Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 33
Minningar 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009 ✝ Arnór Karlssonfæddist í Efstadal í Laugardal í Árnes- sýslu 9. júlí 1935. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi í Reykjavík 25. febrúar síðastliðinn. For- eldrar hans voru hjónin Karl Jónsson, f. 1. júlí 1904, d. 4. júní 1979, og Sig- þrúður Guðnadóttir, f. 8. okt. 1896, d. 29. apríl 1967. Þau bjuggu þá í Efstadal en síðar í Gýgjarhólskoti í Bisk- upstungum. Systkini Arnórs voru Helga, húsfreyja á Gýgjarhóli, f. 1928, d. 1997, Jón, bóndi í Gýgjar- hólskoti, f. 1929, Guðrún, húsfreyja í Brattholti og síðar Miðdalskoti, f. 1931, Ingimar, deildarstjóri hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, f. 1932, d. 1987, Guðni, forstöðumað- ur Bifreiðaeftirlits ríkisins og síðar ráðuneytisstarfsmaður, f. 1933, Margrét, húsfreyja í Skipholti, f. 1936, d. 2006, Gunnar, prófessor við Háskóla Íslands, f. 1939, og Ólöf, skrifstofumaður á Selfossi, f. 1943. Arnór lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1958, stundaði síðan nám í dýra- lækningum í Þýska- landi í tvö ár en hóf búskap á Bóli í Bisk- upstungum árið 1960. Síðar fluttist hann að Arnarholti í sömu sveit og bjó þar til 2003. Jafnframt bú- skap stundaði hann kennslu í skólum í grenndinni, lengst í Skálholtsskóla. Hann skrifaði ásamt öðrum um Biskupstungur í byggðarlýsinguna Sunnlenskar byggðir, 1980, lýsti gönguleiðum á Kili í rit- inu Fótgangandi um fjallasali, 1998, og skrifaði meginhluta af Ár- bók Ferðafélags Íslands 2001 sem fjallaði um Kjöl. Markaskrá Árnes- sýslu gaf hann út 1988, 1996 og 2004. Arnór sat lengi í stjórn Ung- mennafélags Biskupstungna og var formaður þess í þrjú ár. Hann sat í hreppsnefnd 1970-86. Þá starfaði hann að félagsmálum bænda og var formaður Landssamtaka sauð- fjárbænda 1991-97. Síðustu árin átti hann heima í Reykholtshverfi í Biskupstungum. Útför Arnórs fer fram frá Skál- holtskirkju í dag og hefst kl. 14. Jarðsett verður í Torfastaða- kirkjugarði. Tilvera Arnórs móðurbróður okk- ar er samofin mörgum af bestu bernskuminningum okkar systkin- anna og ekki síður hafa samveru- stundir fullorðinsáranna verið margar og eftirminnilegar. Þessi uppáhaldsfrændi okkar var mikill félagsmálamaður og sótti í gegnum tíðina marga fundi og ráðstefnur. Þá bar oft svo við að hann hentist inn um dyrnar á Hjarðarholtinu á leið sinni ofan úr Tungum til Reykjavík- ur, gleypti í sig hádegissnarl, skipti kannski um föt og var svo rokinn, enda oftast „í seinna fallinu“. Það var meiri ró yfir honum þeg- ar hann kom við á heimleiðinni. Þá settist hann gjarnan niður, spjallaði við börn og fullorðna og naut sam- verunnar, enda mikil fjölskyldu- og félagsvera þó lífið hafi fært honum það hlutskipti að búa alla tíð einn. Honum var annt um allt sitt fólk, það duldist engum. Tungnarétt- adagur er í okkar huga tengdur ljúf- um minningum um Arnór. Að ríða með reksturinn heim í Arnarholt að loknum skemmtilegum réttadegi var tilhlökkunarefni, enda ávallt glatt á hjalla og gjarnan fjölmenni í réttasúpunni hjá Arnóri. Yfir heim- ferðinni var líka alltaf létt andrúms- loft og frændi hæfilega áhyggjufull- ur yfir hlutunum þegar líða tók á réttadaginn! Eftir að Arnór flutti í Reykholt hélt hann þeim góða sið að elda kjöt- súpu á réttadaginn og ættingjar og vinir glöddust með honum á nýja, fallega heimilinu hans. Stundum var nú reyndar gantast með áferð súp- unnar, sem mörgum þótti fremur að mætti kalla graut en súpu, svo mat- armikil var hún. Hestamennska fjöl- skyldunnar hefur á margan hátt tengst Arnóri í gegnum tíðina. Ár- um saman áttu hestarnir aðgang að gjöfulum högum Arnarholtsins yfir sumartímann og mannfólkið vísan kaffisopann við eldhúsborðið hjá bóndanum. Í seinni tíð var það fast- ur liður, þegar riðið var með hrossin í Holtakot á vorin, að koma við hjá Arnóri í Reykholti og þiggja vöfflur, kaffi og appelsín meðan klárunum var beitt í blómsturgarðinn. Þessa alls munum við sakna. Á hverjum jólum fengum við systkinin og fjölskyldur okkar per- sónulega og fallega jólakveðju frá Arnóri, sem hann hafði útbúið í tölv- unni sinni og prýdd var hans eigin ljósmyndum. Myndirnar voru gjarn- an af þeim sem kortið var ætlað, stöðum þeim tengdum eða fallegum náttúrumyndum. Þessar myndir og kveðjur verða nú dýrmætur fjár- sjóður þegar Arnór er allur. Arnór var Tungnamaður og unni öllu því sem tengdist sveitinni sem var hon- um svo kær. Hans verður nú víða minnst og þakkað fyrir óeigingjarnt starf, í þágu sveitarfélagsins, fjöl- margra félagasamtaka, skóla og ekki síst kirkjunnar. Hann var félagsmálamaður, fræðimaður, kennari og bóndi. Það var ekki tilviljun að Arnór fékk það hlutverk að leiða frumburð Ólafar systur sinnar inn kirkjugólfið í Skál- holti fyrir næstum 19 árum er hún gifti sig. Það gerði hann með glöðu geði eins og flest annað sem hann tók sér fyrir hendur. Þau verða þyngri sporin okkar fram kirkju- gólfið í Skálholti í dag er við fylgjum honum síðasta spölinn. Við kveðjum kæran frænda með virðingu og þakklæti. Sigþrúður, Valgeir, Hrund og fjölskyldur. Arnór, föðurbróðir minn, lést eftir stutta sjúkralegu. Hann var mjög skemmtilegur og fróður maður. Frá honum geislaði alltaf einhver glettni eins og hann væri að hugsa um eitt- hvað skemmtilegt. Það var því alltaf gaman að hitta hann. Arnór var líka félagslyndur maður og hafði frum- kvæði að ýmsum mannamótum. Þar á meðal er árleg gróðursetningar- ferð ættarinnar á Launfit á bökkum Hvítár sem líkja má orðið við lítið ættarmót. Þar hefur Arnór jafnan verið fremstur í flokki við gróður- setninguna. Fyrir nokkrum árum fór Arnór með okkur inn á Kjöl til að sýna okkur hvar faðir okkar hélt til þegar hann var við vörslu sauðfjárveiki- varnagirðinga fyrir 50 árum. Arnór þekkti greinilega hvern stein á Kili og var heill hafsjór af fróðleik, bæði um staðhætti og atburði. Ferðalagið var því hið skemmtilegasta. Arnór var óþreytandi að útskýra fyrir fróðleiksþyrstum samferðamönnum það sem fyrir augu bar. Það var greinilegt að þarna var Arnór á slóð- um sem honum líkaði vel. Við urðum margs vísari í ferðinni og oft hefur hvarflað að okkur að gaman væri að endurtaka leikinn og fræðast meira. Það verður nú að bíða betri tíma. Arnór hefur haft þann skemmti- lega sið að bjóða sveitungum sínum í kjötsúpu á réttardaginn. Við lentum þar fyrir tilviljun fyrir nokkru og það var ógleymanleg stund. Arnór lék á als oddi innan um sveitunga sína og veitti kjötsúpu af rausn með aðstoð Ólafar, systur sinnar. Arnór var frændrækinn maður og vildi halda góðum tengslum við ættingja sína, hvort sem þeir bjuggu nær eða fjær. Megir þú hvíla í friði. Snorri Ingimarsson og fjölskylda. „Óttalega eruð þið hallærislegar,“ sagði Arnór frændi við okkur syst- urnar þegar við afþökkuðum áfengi síðasta gamlárskvöldið sem við átt- um saman í Skipholti. Allt í einu urðum við eins og áratugum eldri en hann móðurbróðir okkar, eilífðar- unglingurinn sem sat þarna með glas í hendi og glampa í augunum, staðráðinn í að skemmta sér og standa meðan stætt væri en skeyta ekki um smáatriði eins og það hvort gleðin bæri hann ofurliði fyrir eða eftir miðnættið. Heimsóknir Arnórs vöktu alltaf kæti í Skipholti, áður fyrr kom hann og gerði krakkaskarann kolvitlaus- an svo allt ætlaði um koll að keyra. Svo dæsti hann og sagði að við minntum hann á Kærleiksheimilið í Þjóðviljanum, sneri sér að ættfræði- pappírunum og lét eins og hann ætti engan þátt í því sem á gekk. Við krakkarnir undruðumst oft þetta pappírsflóð og hvað fullorðið fólk gat endalaust gert sér upp áhuga á tali hans um fólk sem var flest löngu dáið og því hvernig það var skylt en seinna uppgötvuðum við þann fjár- sjóð sem lá í öllu því sem Arnór vissi og kunni. Oft var hann spurður um atriði sem aðrir kunnu ekki skil á, oft þurfti ekki að spyrja því hann sagði það í óspurðum fréttum. Um margt átti líka að spyrja hann seinna enda var einhvern veginn ekki eins og hann væri neitt á förum þó að vissu- lega væri hann oft á ferðinni. Hann var ræktarlegur við fólkið sitt, var duglegur að heimsækja það, spurði frétta og talaði við unga sem aldna eins og jafningja. Hann var áhugasamur um hagi okkar og andvarpaði mæðulega þegar talið barst að eiginmanns- leysi okkar systra, eins og það væri alveg síðasta sort. Eins og Arnóri þótti vænt um fólkið sitt þótti honum líka vænt um landið sitt þó að sú ást væri svolítið stað- bundin. Að minnsta kosti var stundum óþarflega augljóst hvað honum fannst Tungurnar miklu fallegri og merkilegri en Hruna- mannahreppurinn. Arnór var í ess- inu sínu í Tungnaréttum og heima á Bjarkarbrautinni á réttardaginn. Þaðan eigum við góðar minningar um kátan frænda, stoltan húsráð- anda og kjötsúpukokk. Við kveðjum kæran frænda með söknuði en líka með stolti og þakk- læti fyrir það að hafa fengið að eiga hann að sem uppáhaldsfrænda og velunnara fjölskyldunnar í öll þessi ár. Sigrún og Sigþrúður Guðmundsdætur. Svo allt of fljótt og óvænt er frændi okkar Arnór Karlsson fallinn frá. Upp í huga okkar koma öll þau ótal skipti sem Arnór kom til okkar að Gýgjarhóli. Ekki síst öll þau að- fangadagskvöld sem hann var hjá okkur og skemmti sér alltaf jafn konunglega yfir öllum æsingnum í okkur krökkunum. Minningar um heimsóknir hans eru ekki aðeins bundnar við okkar kynslóð, því eitt það fyrsta sem Helgi Viktoríusonur spurði um þegar hann kom í sveitina síðasta sumar, var hvenær Arnór kæmi nú í heimsókn. Arnór átti sitt fasta sæti í eldhús- inu, á bekknum við hliðina á pabba. Og það var alltaf gaman að hlusta á tal þeirra, enda var hann mikill viskubrunnur, ekki síst um sögu stórfjölskyldunnar. Við systur hugsum til þess með söknuði að þessar stundir verði ekki fleiri. Fyrir okkur og fjölskyldur okk- ar verður stórt, ófyllt skarð við eld- húsborðið á Gýgjarhóli yfir sunnu- dagssteikinni hér eftir. Viktoría og Sigþrúður Guðnadætur. Ennþá hefur skarð verið rofið í hóp okkar stúdenta, sem útskrifuð- umst frá Menntaskólanum að Laug- arvatni vorið 1958. Úr hópi 21 stúd- ents er hann sá fimmti sem kveður. Það hefði engum okkar dottið í hug á síðasta vori, þegar við héldum upp á fimmtíu ára stúdentsafmælið, að honum Arnóri væri svo naumur tími sniðinn í okkar hópi. Hann hélt þá eftirminnilegt ávarp við skólaslit. Það var á haustdögum árið 1954 að flest okkar settust í Menntaskól- ann að Laugarvatni, sem mörg hver áttum það sammerkt að vera úr sveit. Einn þeirra var sá sem hér er kvaddur. Hann var þá þegar sjálf- kjörinn fremstur meðal jafningja í bekknum. Framundan voru fjórir vetur, lengst af á heimavistinni, sem var þá á annarri hæð yfir kennslu- stofum í skólahúsinu. Gangurinn var læstur um nætur og mundi sú ráð- stöfun trúlega ekki standast skoðun brunavarna í dag. Þessi tími leið skjótt og var bekkurinn samhentur við nám og félagsstörf og hefur haldið hópinn dyggilega enda þótt leiðir skildi um sinn eftir ánægju- lega útskriftarferð til Kaupmanna- hafnar og Hamborgar. Þetta var tími mótunar þar sem nemendur ólu hver annan upp og við lærðum að meta og umbera hvert annað án telj- andi árekstra. Síðasta veturinn sinnti Arnór að- alembætti bekkjarins, stöðu stall- ara, og var þar með forsvarsmaður nemenda gagnvart skólameistara og kennurum auk þess að vera leiðandi í félagslífinu. Námið veittist honum létt og einkum var gott að eiga hann að við lausn erfiðra heimadæma. Að stúdentsprófi loknu hóf Arnór nám í dýralækningum í Giessen í Þýska- landi, en eftir fyrsta misserið tók hann nokkuð óvænta stefnu að okk- ur fannst. Jörðin Ból í Biskupstung- um var þá laus til ábúðar og varð það úr að hann hóf þar sauðfjárbú- skap 1960. Enda þótt við væntum honum lengri skólagöngu og stærri emb- ætta virtist Arnór una vel sínum hag og sinnti skólakennslu og félagsleg- um störfum, sem báru þess ljósan vott að sveitungarnir mátu og nutu starfskrafta hans og skipulags- hæfni. Framlag hans í árlegum haustferðum okkar Laugvetninga hefur verið ómetanlegt; minnisstæð- ust var þó ferðin á Kjalveg fyrir ein- um átta árum. Hér vorum við á hans heimaslóð, þar sem hann var þaul- kunnugur eftir áratuga reynslu í smölunum og fjárleitum, auk þess að vera aðalhöfundur Árbókar Ferðafélagsins 2001 um þessar slóð- ir. Eftirminnilegt var sjötugsafmæli hans í Aratungu fyrir þremur árum. Síðustu misseri hafa gefið tilefni til tíðari samfunda, þar sem hópurinn hefur verið að halda upp á sjötugs- afmælin og hefur Arnór verið þar fremstur í flokki fagnenda. Í stúd- entaför okkar á síðasta sumri til Sví- þjóðar nutum við lífsins ekki síður en fimmtíu árum áður. Nú hefur fráfall Arnórs borið að með skjótum hætti svo okkur setur hljóð og minnir okkur enn og aftur á hvað hópurinn er að nálgast hættu- svæði lífs og heilsu. Með þökk og miklum söknuði kveðjum við góðan vin og vottum systkinum hans og öðrum ættingj- um okkar dýpstu samúð. F.h. Laugarvatnsstúdenta 1958, Sigurgeir Kjartansson. Við sem höfum starfað í núver- andi ritnefnd Litla-Bergþórs höfum átt því góða láni að fagna að vinna með Arnóri við útgáfu fjölda tölu- blaða. Blaðið og ritnefndin átti at- hvarf heima hjá Arnóri og þar var setið ófá kvöldin við yfirlestur og undirbúning næstu tölublaða. Hann hafði unnið við blaðið árum saman og borið það á herðum sínum af seiglu þegar margir aðrir hefðu eflaust gefist upp. Hann lét sér mjög annt um Litla- Bergþór, efnisval blaðsins og hvern- ig það ætti að vera uppsett. Hann setti hugmyndir sínar skýrt fram og kom þar glögglega fram hvað hann unni ungmennafélaginu, uppsveit- unum, fornum tímum og búskap. Við stríddum honum stundum góðlátlega með andstæðum sjónar- miðum við val á efni og uppsetningu blaðsins. Hann lá aldrei á svari sínu og gat ekki orða bundist. Talaði af mikilli einlægni og ákafa fyrir sín- um skoðunum. Hann vissi iðulega að við vorum að pota í hann og hló um leið en honum var samt svo mik- ið niðri fyrir við að koma að sínu sjónarhorni að hann lyftist allur upp í ákafa sínum við að tjá sig. Þannig gat hann oft verið stífur á sinni meiningu og varð ekki léttilega haggað – það kvöldið. Oft var það þó svo að á næsta fundi sem ritnefndin hittist var hann búinn að hugsa mál- ið og kom samstarfsmönnum sínum á óvart með því að tjá okkur að rétt- ast væri að gera eins og við hefðum rætt síðast. Að loknum hverjum ritnefndar- fundi bauð Arnór okkur svo upp á vöfflur og með þeim. Það var fastur liður hvers fundar og við gátum oft setið mun lengur en við ætluðum okkur í spjalli um menn og málefni þegar vöfflurnar voru komnar á borðið í eldhúsinu hjá Arnóri. Arnór var hafsjór að fróðleik sem hann gat laumað út úr sér í góðu tómi þótt oft væri hann fullhógvær og héldi endurminningum sínum ekki mikið á lofti. Hann var hold- gervingur Litla-Bergþórs og við höfum ekki bara misst dyggan sam- starfsmann og trúan félaga heldur höfum við líka glatað hluta af sögu blaðsins. Skarð Arnórs Karlssonar verður vandfyllt. F.h. ritnefndar Litla-Bergþórs, Skúli Sæland. Björgunarsveit Biskupstungna vill þakka Arnóri það ötula starf sem hann hefur innt af hendi fyrir Björgunarsveitina. Arnór hafði hönd í bagga við stofnun Slysa- varnadeildar Biskupstungna eins og hún hét þá, en deildin var stofnuð að frumkvæði sveitarstjórnar Biskups- tungnahrepps árið 1985. Allt frá þeim tíma hefur hann með óbilandi áhuga starfað fyrir Björg- unarsveitina. Hafðu þökk fyrir. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. (Vald. Briem.) Kveðja. F.h. Björgunarsveitar Biskupstungna, Andrés Bjarnason. Arnór Karlsson Halldór B. Stefánsson ✝ Halldór Brynj-ólfur Stefánsson fæddist í Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð 3.3. 1927. Hann lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 25.2. síð- astliðinn. Halldór var jarðsunginn frá Háteigs- kirkju 5. mars sl. Meira: mbl.is/minningar Katrín Emma Maríusdóttir Hale ✝ Katrín EmmaMaríusdóttir Hale fæddist í Reykjavík 6. desember 1982. Hún lést í bílslysi 2. júlí 2003 og var útför hennar gerð frá Bú- staðakirkju 14. júlí 2003. Meira: mbl.is/minningar Minningar á mbl.is Einar Logi Arnarsson ✝ Einar Logi Arn-arsson fæddist 10. september 2007. Hann andaðist 26. febrúar síðastliðinn. Einar Logi var jarð- sunginn frá Foss- vogskapellu 6. febr- úar sl. Meira: mbl.is/minning

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.