Morgunblaðið - 07.03.2009, Blaðsíða 29
Klárir í sjósundið „Engin óþarfa fagnaðarlæti“ gæti falist í vinki þessa sjósundkappa sem var á leið í Nauthólsvíkina nýlega. Þeim fjölgar óðum sem stunda sjósund við strendur landsins.
RAX 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Í VERKEFNASKRÁ rík-
isstjórnarinnar eru gefin fyrirheit
um margvísleg framfaraskref í
lýðræðismálum. Slíkar umbætur
eru afar mikilvægar, ekki síst í
ljósi þeirrar kröftugu umræðu um
framtíðarskipan samfélagsins sem
við höfum orðið vitni að und-
anfarnar vikur og mánuði. Þennan
kraft verðum við að virkja og
skapa farveg fyrir hann í stjórn-
kerfi okkar til framtíðar.
Víðtækt samráð frá fyrsta degi
Strax á fyrstu dögum ríkisstjórnarinnar
hófst markviss vinna á vettvangi forsætisráðu-
neytisins við að undirbúa boðaðar lýðræð-
isumbætur. Ráðgjafarhópur undir forystu
Bjargar Thorarensen prófessors, hófst handa
við undirbúning stjórnarskrárbreytinga, m.a.
um stjórnlagaþing. Annar hópur undir forystu
Þorkels Helgasonar stærðfræðings, vann að út-
færslu reglna um persónukjör. Á grundvelli
samráðs, m.a. við alla stjórnmálaflokka sem
fulltrúa eiga á Alþingi, hafa lagafrumvörp
byggð á þessari vinnu verið lögð fram á Al-
þingi. Bæði frumvörpin eru borin fram af for-
ystumönnum allra flokka, nema Sjálfstæð-
isflokksins.
Samkvæmt verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar
skyldi stefnt að eftirtöldum breytingum á
stjórnarskránni. Í fyrsta lagi skyldi sett í
stjórnarskrá ákvæði um auðlindir í þjóðareign,
í öðru lagi skyldi leggja fram ákvæði um þjóð-
aratkvæðagreiðslur, í þriðja lagi skyldi breytt
aðferðinni við að breyta stjórnarskrá og loks í
fjórða lagi skyldi hefja undirbúning lagasetn-
ingar um stjórnlagaþing. Ráðgjafarhópnum var
falið að móta tillögur um þetta og varðandi
fyrstu atriðin þrjú skyldi einkum tekið mið af
því víðtæka samráði sem fór fram á vettvangi
stjórnarskrárnefndar árin 2005-2007. Öll þessi
atriði er að finna í stjórnarskrárfrumvarpi því
sem lagt hefur verið fram á Alþingi.
Aukið lýðræði í stjórnarskrá
Í fyrirliggjandi stjórnarskrárfrumvarpi er
gert ráð fyrir að sett verði í stjórnarskrá
ákvæði um náttúruauðlindir og umhverfismál.
Því er slegið föstu að ríkið megi ekki afsala
með varanlegum hætti náttúruauðlindum í
þjóðareign og fjallað er um auðlindir í víðu
samhengi sem þátt í umhverfismálum. Mik-
ilvægt er að árétta að stjórnarskrárákvæðið
um náttúruauðlindir í þjóðareign mun ekki
skerða réttindi þeirra sem hafa veiðiheimildir í
kvótakerfinu eða svipta þá kvótanum. Þau rétt-
indi munu eftir sem áður njóta verndar sem at-
vinnuréttindi þeirra sem stunda útgerð, eða
með öðrum orðum sem óbein eignarréttindi.
Með hinu nýja stjórnarskrárákvæði verður
hins vegar staðfest að útgerðarmenn eða aðrir
sem njóta slíkra heimilda munu
aldrei öðlast beinan og varanlegan
eignarrétt á fiskveiðiauðlindinni,
enda girðir ákvæðið fyrir varanlegt
afsal þjóðareignar. Rétthafar veiði-
heimilda verða að sæta því að al-
mennar og hlutlægar takmarkanir
á þeim afnotarétti af auðlindinni
sem þeir njóta nú verði lögbundn-
ar, þó eftir atvikum í þrepum.
Stjórnarskrárákvæðið staðfestir að
löggjafinn getur, í krafti þess að
hann fer með forsjá auðlindanna í
nafni þjóðarinnar, breytt skipulagi
fiskveiðistjórnunarkerfisins.
Reyndar ber löggjafanum skylda til að gera
svo, telji hann aðrar leiðir betri til að tryggja
þjóðinni og komandi kynslóðum hagsæld til
langrar framtíðar.
Breytingar á stjórnarskrá
auðveldaðar
Einnig er gert ráð fyrir nýju ákvæði sem
auðveldi breytingar á stjórnarskránni og
tryggi áhrif almennings á þær. Kjarni þessa
ákvæðis er sá að samþykkja þurfi breytingar á
stjórnarskránni sérstaklega í þjóðaratkvæða-
greiðslu, í stað þess að þing sé rofið í kjölfar
þess að stjórnarskrárbreyting sé samþykkt, al-
mennar þingkosningar fari fram og frumvarpið
samþykkt að nýju án breytinga. Með þessu
gefst þjóðinni kostur á að taka beina afstöðu til
stjórnarskrárbreytinga, sem er sjálfsögð og
eðlileg skipan í lýðræðisþjóðfélagi.
Þá er í frumvarpinu stigið enn eitt merkt
spor í lýðræðisátt, en gert er ráð fyrir ákvæði í
stjórnarskrá þess efnis að skylt sé að fram fari
þjóðaratkvæðagreiðsla um tiltekið málefni ef
15 af hundraði kjósenda á kjörskrá krefjast
þess. Heimild til slíks verður þannig bundin í
stjórnarskránni í almennu ákvæði en stefnt er
að nánari útfærslu í lögum svo sem í hvaða
búning eigi að setja slíka kröfu, hvernig standa
eigi að því að safna undirskriftum kjósenda,
hvernig mál skuli borin upp og um framkvæmd
þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
Stjórnlagaþing verður að veruleika
Loks er gert ráð fyrir því að ákvæði um
stjórnlagaþing bætist í stjórnarskrána. Slíkt
ákvæði verður stjórnskipuleg heimild eða
grundvöllur fyrir því að efna til stjórnlaga-
þings, en nánari útfærsla á störfum og skipu-
lagi þingsins verður sett með almennum lög-
um. Samkvæmt fyrirliggjandi drögum að
frumvarpi um stjórnlagaþing sem eru fylgi-
skjal með stjórnarskrárfrumvarpinu er stefnt
að því að kosningar til stjórnlagaþings fari
fram í haust, þingfulltrúar verði 41 og kosnir
persónukjöri. Þeir mega ekki vera þingmenn
eða varaþingmenn og skulu bjóða sig fram í
eigin nafni. Hugmyndin um stjórnlagaþing hér
á landi er ekki ný af nálinni en árið 1995 lagði
ég m.a. fram hliðstætt frumvarp þar sem gert
var ráð fyrir 41 þjóðkjörnum fulltrúa og yrði
þinginu falið að semja nýja stjórnarskrá. Út-
færslan sem nú er lögð fram af fulltrúum fjög-
urra flokka er í meginatriðum áþekk þeirri
sem fram kom í því frumvarpi og einnig frum-
varpi Framsóknarflokksins sem nú liggur fyrir
Alþingi. Ég vil leggja áherslu á að gert er ráð
fyrir nánu samráði milli stjórnlagaþingsins og
Alþingis um gerð frumvarps til nýrrar stjórn-
arskrár ekki síst til að tryggja eins og framast
er kostur vandaða meðferð málsins. Þegar og
ef stjórnlagaþing hefur samþykkt nýja stjórn-
arskrá skal hún borin upp í þjóðaratkvæða-
greiðslu, þar sem a.m.k. 25% kjósenda á kjör-
skrá verða að samþykkja hana svo hún taki
gildi.
Persónukjör strax í
næstu kosningum
Í vikunni var einnig mælt fyrir á Alþingi
frumvarpi til laga um breytingu á kosn-
ingalögum sem ætlað er að innleiða persónu-
kjör. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að einstök
framboð geti valið hvort þau stilli upp röðuðum
lista líkt og tíðkast hefur eða bjóði fram ór-
aðaðan lista. Velji framboðin óraðaða lista yrði
endanleg röð frambjóðenda í höndum kjósenda
listanna sem myndu í kjörklefanum raða þeim
upp, hver með sínu nefi. Verði frumvarp þetta
að lögum verður persónukjör í komandi kosn-
ingum. Í ljósi þess að fulltrúar allra þingflokka
á Alþingi, nema Sjálfstæðisflokksins, bera mál-
ið fram er full ástæða til að vonast til þess að
það nái fram að ganga.
Hlýtt á raddir fólksins
Þau nýmæli sem ég hef hér rakið byggjast á
þeirri grundvallarhugsun að allar stofnanir í
lýðræðisþjóðfélagi eigi að endurspegla raddir
fólksins, raddir almennings. Okkur, sem erum
lýðræðislega kjörnir fulltrúar fólksins, ber að
hlýða á sjálfsagðar kröfur fólksins í landinu er
varða umbætur á kerfi sem á að þjóna sam-
félaginu öllu. Það þarf kjark og þor til þess að
ráðast í breytingar af þessu tagi en yfir þeim
kjarki og því þori býr núverandi ríkisstjórn.
Ég treysti svo almenningi fullkomlega til þess
að nýta þau tæki sem felast í þjóðaratkvæða-
greiðslu og stjórnlagaþingi og ég tel að þau
muni styrkja samfélag okkar til frambúðar. Ég
er fullviss um að með fyrrnefndum umbótum í
lýðræðisátt munum við eignast betra og öfl-
ugra samfélag sem byggist á jafnræði í reynd.
Eftir Jóhönnu Sigurðardóttur » Það þarf kjark og þor til
þess að ráðast í breytingar
af þessu tagi en yfir þeim kjarki
og því þori býr núverandi
ríkisstjórn.
Jóhanna Sigurðardóttir
Höfundur er forsætisráðherra.
Lýðræðisumbætur –
vald til fólksins
Katrín Snæhólm Baldursdóttir | 6. mars
6 krákur fyrir utan Mela-
búðina boða kuldakast!
Þær voru 6 saman og kol-
svartar, krunkandi í hóp
og kjagandi fyrir utan
Melabúðina í morgun. Við
sem þarna vorum flýttum
okkur heim og hækk-
uðum á ofnunum og tínd-
um til hlýjar flíkur og tékkuðum á kakób-
irgðunum.
Við vitum hvað þetta þýðir.
Meira: katrinsnaeholm.blog.is
Inga Jessen | 6. mars 2009
Súper form
eftir kreppu
Það mættu sumir taka
Ísafjarðarbæ til fyr-
irmyndar. Þetta er frá-
bært framtak því það er
mjög mikilvægt að fara á
lappir þegar maður er at-
vinnulaus og svitna smá –
ég tala ekki um að hitta aðra í ræktinni.
Ég heyrði einnig í útvarpinu að það er
frítt í sund fyrir alla á Akureyri og á Suð-
urnesjum. Hvar er Reykjavík?
Þegar allt kemur til alls verður Land-
inn örugglega í súperformi eftir þessa
kreppu – fólk borðar minna og fer oftar í
ræktina. Það hlýtur bara að vera.
Meira: atvinnulaus.blog.is
Friðrik Þór Guðmundsson | 6. mars
„Fótalausi Pólverjinn“
kominn með tennur!
Það er mér mikil ánægja
að geta greint frá því að
„fótalausi Pólverjinn“,
með nýrnabilunina,
heyrnarskerðinguna og
félagslegu einangrunina,
er nú kominn með tenn-
ur upp í sig. Er þá einu vandamálinu
færra hjá Irenusz A. Gluchowski, þökk
sé góðu fólki. Ég sagði á blogginu mínu
frá grimmum örlögum Irenusz, sem
leitt höfðu til þess að hann missti báða
fætur fyrir neðan hné, nýru hans biluðu
og heyrnin hvarf að stórum hluta. Það
gerðist vegna veikinda sem hann sýkt-
ist af við vinnu hér á landi – en vegna
þess að viðkomandi fyrirtæki hafði
hvorki séð honum fyrir atvinnuleyfi né
tryggingum var hann réttindalaus og
upp á náð og miskunn okkar skatt-
greiðendanna kominn … Tann-
smíðastofa, sem vill ekki eigna sér
heiður með nafngreiningu, tók málið til
sín og hefur nú smíðað og komið fyrir
tanngarði í Irenusz – frítt. Takk frá mér
og Irenuszi, sem biður auk þess kær-
lega að heilsa öllum – brosandi út að
eyrum með nýju tennurnar.
Meira: lillo.blog.is
BLOG.IS