Morgunblaðið - 07.03.2009, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. MARS 2009
Eftir Karl Blöndal
kbl@mbl.is
HÓTUN stjórnvalda í Norður-
Kóreu um að skjóta niður farþega-
flugvélar hefur kallað fram hörð við-
brögð í Suður-Kóreu. Ríkin á Kór-
euskaganum hafa iðulega deilt, en
hótunin var tekin það alvarlega að
stóru flugfélögin tvö í Suður-Kóreu
tóku enga áhættu og breyttu flug-
leiðum véla sinna og síðan tilkynnti
Singapore Airlines að það myndi
gera slíkt hið sama.
Yfirvöld í Norður-Kóreu hafa þrá-
faldlega lýst yfir því að þau séu ósátt
við fyrirhugaða heræfingu Banda-
ríkjahers og hers Suður-Kóreu. Æf-
ingin á að hefjast á mánudag og
standa til 20. mars. Á fimmtudag
barst síðan svohljóðandi yfirlýsing
frá norður-kóreskum yfirvöldum:
„Ekki er hægt að tryggja öryggi
suður-kóreskra véla á borgaralegu
flugi í okkar lofthelgi og grennd við
hana ... meðan á heræfingunum
stendur.“
Mótmæla heræfingum
Bandaríkjamenn og Suður-Kórea
hafa árum saman haldið heræfingar
og Norður-Kórea lýst yfir því að
þær væru „aðdragandi innrásar og
kjarnorkustyrjaldar“.
Undanfarnar vikur hefur Norður-
Kórea hins vegar þráfaldlega hótað
að ráðast á Suður-Kóreu. Einnig er
því haldið fram að norður-kóresk yf-
irvöld undirbúi nú að skjóta lang-
drægustu sprengjuflaug sinni í til-
raunaskyni í trássi við bann
Sameinuðu þjóðanna við slíkum til-
raunum. Þau segja að til standi að
skjóta á loft gervihnetti og það sé
hluti af geimáætlun Norður-Kóreu.
Ekki er langt síðan samskiptin
milli Norður- og Suður-Kóreu virt-
ust vera á batavegi. Efnt var til sam-
starfs af ýmsum toga og Suður-
Kórea sendi aðstoð til Norður-
Kóreu. Nú hefur tortryggnin aftur
náð yfirhöndinni og það eina, sem
eftir er af samstarfinu er sérstakt
iðnaðarsvæði í Norður-Kóreu.
Ástæðan fyrir því að það er enn
starfrækt er að þar verða til útflutn-
ingstekjur, sem Norður-Kórea getur
ekki verið án.
Bandaríkjamenn eru með 28 þús-
und hermenn í Suður-Kóreu undir
merkjum Sameinuðu þjóðanna. Á
mánudag ræddust við yfirmenn úr
norður-kóreska hernum og banda-
rískir herforingjar úr sveitum Sam-
einuðu þjóðanna í Suður-Kóreu í
fyrsta skipti í sjö ár. Þeir ræddust
aftur við í gær.
Sérlegur sendifulltrúi banda-
rískra stjórnvalda í Norður-Kóreu,
Stephen Bosworth, hefur þegar
heimsótt Pyongyang, höfuðborg
Norður-Kóreu, og nú er hann vænt-
anlegur til Seoul, höfuðborgar Norð-
ur-Kóreu. Tilgangurinn með heim-
sókn hans er að koma aftur af stað
viðræðum um kjarnorkuáætlun
Norður-Kóreu. Hann ætlar einnig
að ræða við stjórnvöld í Rússlandi,
Kína og Japan.
N-Kórea hótar að
granda farþegavélum
Reuters
Gráir fyrir járnum Tveir norður-kóreskir hermenn horfa á liðsmann hers
Suður-Kóreu í þorpi á vopnlausa svæðinu milli Norður- og Suður-Kóreu.
Hvernig hafa samskiptin verið
milli Norður-Kóreu og Suður-
Kóreu?
Tæknilega stendur enn yfir stríð á
milli ríkjanna. Þegar Kóreustríðinu
lauk 1953 var gert vopnahlé, en
ekki samið um frið. Sín hvorum
megin við landamæri ríkjanna
standa milljón hermenn gráir fyrir
járnum. Fyrir rúmu ári gekk forseti
Suður-Kóreu yfir landamærin og
þíða blasti við. Í febrúar í fyrra
urðu valdaskipti í Suður-Kóreu og
ný stjórn sagði að engin aðstoð
yrði veitt Norður-Kóreu án skil-
yrða. Nú hótar Norður-Kórea að
hætta öllu samstarfi við Suður-
Kóreu.
Er hætta á átökum milli
ríkjanna?
Ólíklegt er að stríð brjótist út, en
skærur gætu orðið á milli landa-
mæravarða eins og gerst hefur af
og til, síðast árið 2002. Tími sátta-
funda er hins vegar liðinn í bili.
S&S
Salattangirnar frá Rösle eru fallegar
og handhægar en þetta gróna þýska fyrirtæki
hefur framleitt hágæða eldhúsáhöld úr ryðfríu
stáli í nær hundrað ár. Rösle leggur mikla
áherslu á gæði og stílhreina hönnun.
J
Ó
N
S
S
O
N
&
L
E
’M
A
C
K
S
•
jl
.i
s
•
S
ÍA
Lyftir
salatinu
upp
„... afbragðsvel byggð saga.“
gauti kristmannsson, v íðsjá
„Frásögnin grípur lesandann
allt frá fyrstu síðu.“
soffía auður birgisdót tir, morgunblaðið
„Guðrún er svo ofboðslega klár
og skemmtilegur höfundur
að maður roðnar eiginlega bara við
að hugsa um hæfileika hennar.“
þór arinn þór arinsson, ný t t líf
„... SKYLDULESNI
NG.“
páll baldvin ba
ldvinsson, frét
tablaðið
KOMIN
í kilju