Morgunblaðið - 26.03.2009, Blaðsíða 5
Alþingi samþykkti nýverið lög um
100% endurgreiðslu virðisauka-
skatts af vinnu á byggingarstað,
bæði íbúðarhúsnæðis og sumarhúsa.
Nýju lögin eru tímabundin ráðstöfun
og gilda til 1. janúar 2011. Sérstök
athygli er vakin á því að lögin ná til
nýframkvæmda og viðhalds sumar-
bústaða.
Meistarafélög
Innan raða Samtaka iðnaðarins
eru starfandi fjölmörg félög og
fyrirtæki sem hafa á að skipa
löggiltum fagmönnum til hvers
kyns framkvæmda.
Mannvirki - félag verktaka
Félag blikksmiðjueigenda
Félag skrúðgarðyrkjumeistara
Málarameistarafélagið
Meistarafélag byggingarmanna á
Norðurlandi
Meistarafélag iðnaðarmanna í
Hafnarfirði
Meistarafélag Suðurlands
Veljið rétt,
veljið meistara
til verksins
Ábyrgð meistara í byggingariðn-
greinum er lögbundin. Það er því
ótvíræð gæðatrygging fyrir við-
skiptavininn að skipta við meist-
ara og fagmenn sem hafa tilskilin
réttindi. Því vilja Samtök iðnaðar-
ins hvetja fólk til að skipta aðeins
við löggilta meistara með tilskilin
réttindi.
Þegar skipt er við aðra en
iðnaðarmenn er engin trygging
fyrir gæðum verksins. Slík viðskipti
eru því miður oft nótulaus og þá
getur verið erfitt fyrir verkkaupa
að leita réttar síns ef eitthvað út af
ber. Meistarinn ber stoltur ábyrgð á
verki sínu. Forðist fúsk! Veljið rétt,
veljið meistara til verksins.
Allar nánari upplýsingar um endurgreiðslu virðisaukaskatts og nauðsynleg eyðublöð er að finna á www.si.is/vsk/
Nú er rétti tíminn til að ráðast í
nýjar framkvæmdir og huga að
endurbótum og viðhaldi. Út næsta
ár geta eigendur íbúðahúsnæðis
fengið VSK af vinnu á byggingastað
endurgreiddan og nú þarf enginn
að stunda nótulaus viðskipti til að
spara sér eyrinn. Góðir iðnaðar-
menn í öllum greinum bjóða fram
vinnufúsar hendur og hugvit.
Á liðnum árum hefur nánast
verið ógjörningur að fá góða
fagmenn til að sinna nauðsyn-
legum verkum vegna stórra og
viðamikilla verkefna. Nú eru aðrir
tímar og kjörið tækifæri fyrir íbúða-
eigendur að láta hendur standa
fram úr ermum og laga þakið,
endurnýja drenlagnir, endurnýja
glugga og gler, pússa parket, yfir-
fara raflagnir, færa skilveggi, opna
rými eða loka þeim. Ekkert verk-
efni er of smátt og ekkert of stórt.
Reglur um tímabundna endur-
greiðslu VSK af vinnu gagnast
öllum óháð umfangi.
Brettum upp ermar og látum verkin tala
Nú er rétti tíminn
Marga iðnaðarmenn vantar
vinnu og það er margt sem má laga
og bæta. Nú slá þeir sem vilja og
geta tvær flugur í einu höggi. Fá
vinnufúsum höndum verðug verk-
efni á heimilum sínum og sumar-
húsum – verkum sem sum hver
hafa dregist um of.
Næstu tvö árin þarf ekki að
borga virðisaukaskatt af vinnu
iðnaðarmannanna og trúlega hefur
sjaldan eða aldrei verið auðveldara
að fá þá til starfa. Nú er tækifæri
fyrir þá sem geta að leggja lóð sín
á vogarskálarnar og taka þátt í
endurreisn atvinnulífsins. Margt
smátt gerir eitt stórt.
Næstu tvö árin þarf ekki að borga virðisaukaskatt af vinnu iðnaðarmannanna og trúlega hefur sjaldan eða aldrei verið auðveldara að fá þá til starfa.
Nú er tími til framkvæmda
Stjórnvöld hafa ýtt ýmsum úr-
ræðum úr vör til að styðja við
atvinnulífið, vinnumarkaðinn
og heimilin í þeirri efnahags-
lægð sem nú ríkir. Þær aðgerðir
sem hér eru kynntar er ætlað að
hvetja til aukinna framkvæmda
í byggingariðnaði og að slíkar
framkvæmdir séu gefnar upp.
Með þessari hvatningu vilja
stjórnvöld styðja við byggingar-
iðnaðinn, efla atvinnu í landinu
og auðvelda heimilum viðhald og
uppbyggingu íbúðarhúsnæðis.
Aukin endurgreiðsla virðisauka-
skatts gagnast
ekki síður
h ú s f é l ö g u m
og sveitar-
félögum og
lækka verð
á viðhaldi og
b y g g i n g a r -
k o s t n a ð i .
Þ e s s a r
aðgerðir eru
tímabundnar
og því er lag
að nýta tækifærið og hefja fram-
kvæmdir nú.
Steingrímur J. Sigfússon,
fjármálaráðherra.
Endurgreiðsla virðisaukaskatts af
vinnu við nýbyggingar og viðhald
Nýju lögin eru tímabundin ráðstöfun og gilda til 1. janúar 2011.
Nú þarf enginn að stunda nótulaus viðskipti til að spara sér eyrinn.
Íbúðaeigendur! Látið vaskinn ekki fara
í vaskinn, fáið hann endurgreiddan
Af hvaða vinnu fæst endurgreiðsla?
Auk vinnu iðnaðarmanna á
borð við málara, smiði, pípara,
múrara, dúklagningamenn, raf-
virkja, skrúðgarðyrkjumeistara
o.s.frv. tekur endurgreiðslan til
vinnu hönnuða, arkitekta, verk-
fræðinga, tæknifræðinga og lög-
giltra eftirlitsaðila.
Dæmi um endur-
málun íbúðar
Heildarkostnaður:
480.000 kr.
Þar af vinna á staðnum:
321.000 kr.
Endurgreiðsla: 63.300 kr.
Endurgreiðsla VSK jafn-
gildir 10 til 15%* af heildar
framkvæmdakostnaði.
*Fer eftir umfangi vinnuliðar
Auglýsing 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009