Morgunblaðið - 26.03.2009, Blaðsíða 16
Upp hamarinn
Eftir Agnesi Bragadóttur
agnes@mbl.is
L
andsfundur Sjálfstæðisflokksins
hefst í dag í Laugardalshöll og lýk-
ur á sunnudag, hinn 29. mars.
Segja má að sama gildi um Sjálf-
stæðisflokkinn og Samfylkinguna,
flokkarnir ganga til landsfunda sinna og hefja
fjögurra vikna kosningabaráttu í skugga mik-
illar óvissu; báðir flokkar eru að kjósa sér nýja
forystu; báðir flokkar hafa nýverið gengið í
gegnum prófkjör um land allt þar sem nið-
urstaðan varð sú að ekki varð um þá endurnýj-
un á framboðslistum að ræða sem menn höfðu
gert sér í hugarlund að yrði í kjölfar geysilegs
óróa, óánægju almennings og beinlínis kröfu um
mikla endurnýjun. Það eru þó aðeins þeir gagn-
rýnustu sem halda þessu fram – aðrir benda á
að vissulega hafi mikil endurnýjun átt sé stað.
Það er mikið í húfi fyrir báða flokka að vel
takist til með landsfundi flokkanna, um það eru
allir viðmælendur sammála.
Segja má að sjálfstæðismenn sem þátt tóku í
prófkjörum flokksins hafi tekið sína eigin
ákvörðun um vissa endurnýjun í forystu flokks-
ins því þeir frambjóðendur sem voru ráðherrar
flokksins í ríkisstjórn Geirs H. Haarde og sótt-
ust eftir að leiða lista lentu allir í öðru sæti.
Fyrst voru það Guðlaugur Þór Þórðarson og
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir til þess að
hljóta þau örlög og um síðustu helgi varð Einar
K. Guðfinnsson í öðru sæti á lista Sjálfstæð-
isflokksins í Norðvesturkjördæmi. Geir H.
Haarde, Björn Bjarnason og Árni Mathisen
ákváðu allir að hætta stjórnmálaþátttöku, af
ólíkum ástæðum sem þegar eru kunnar.
Hlutur kvenna heldur rýr
Almennir sjálfstæðismenn, þ.e. þeir sem starfa
í hverfafélögum á höfuðborgarsvæðinu og í sjálf-
stæðisfélögum á landsbyggðinni, virðast þokka-
lega sáttir við niðurstöður prófkjöranna. Það sem
einna helst er gagnrýnt í Reykjavík er hversu
konur komu illa út úr prófkjörinu þar því ein-
ungis þrjár konur lentu í átta efstu sætunum.
Ólöf Nordal er í raun eina konan sem tók þátt
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem
getur vel við unað. Hún hlaut fjórða sætið. Ásta
Möller bauð sig fram í þriðja sætið en hafnaði í
sjöunda sæti eins og fyrir tveimur árum og Erla
Ósk Ásgeirsdóttir hlaut það áttunda.
Margir viðmælendur hafa fagnað því að Illugi
Gunnarsson skuli hafa náð fyrsta sætinu, sem
hann náði með glæsibrag, því hann hlaut 4.232
atkvæði í fyrsta sætið eða 54% greiddra at-
kvæða. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem einnig
sóttist eftir fyrsta sætinu, hafnaði í öðru sæti
með 2.868 atkvæði í 1.-2. sæti, hlaut 36,5% at-
kvæða. Sigur Illuga var mjög afgerandi því
Guðlaugur Þór hlaut aðeins 2.115 atkvæði í
fyrsta sæti, eða 27% atkvæða.
Góð útkoma Péturs Blöndal í þriðja sæti
listans í Reykjavík, með 3.395 atkvæði eða 43%
atkvæða í 1.-3. sæti, þykir sýna sterka stöðu
þessa þingmanns sem oft hefur farið eigin leiðir
í pólitíkinni og sjálfstæðisfólk er sagt hafa verið
að launa honum sjálfstæðið.
Flokksmenn almennt virðast mjög ánægðir
með að Ragnheiður Elín Árnadóttir sigraði
glæsilega í prófkjöri flokksins á Suðurlandi, ekki
síst sjálfstæðismenn á Suðurlandi. Hún hlaut
2.192 atkvæði í fyrsta sæti og Árni Johnsen varð í
öðru sæti, með 1.576 atkvæði í 1.-2. sæti, en hann
hlaut 1.300 atkvæði í fyrsta sætið.
Þá vakti það athygli í prófkjöri Sjálfstæð-
isflokksins í Suðurkjördæmi að tvær konur hlutu
þriðja og fjórða sætið, þær Unnur Brá Konráðs-
dóttir og Íris Róbertsdóttir, en þingmennirnir
Kjartan Ólafsson og Björk Guðjónsdóttir færð-
ust niður listann í fimmta og sjötta sæti.
En nú eru prófkjörin að baki, listarnir liggja
fyrir og landsfundur að hefjast í dag.
Það virðist vera útbreidd skoðun innan Sjálf-
stæðisflokksins að flokkurinn hafi á und-
anförnum mánuðum og misserum átt við
ákveðna forystukrísu að stríða. Strax eftir
bankahrun hafi ráðaleysi flokksforystunnar
orðið hróplega áberandi. Því hafi landsmenn
Kristján Þór hafi í vetur verið talsmaður þess að
Sjálfstæðisflokkurinn breytti um stefnu í Evr-
ópusambandsmálum og opnaði á möguleikann á
aðildarviðræður. Hann sjálfur hafi sagt á
stórum fundi í Valhöll þegar hann tók við for-
mennsku í Evrópunefndinni að hann hafi ekki
gert upp hug sinn í þessum málum og m.a. lýst
því yfir að hann myndi vinna af opnum hug og
gera niðurstöðu nefndarinnar að sinni.
Stuðningsmenn Kristjáns Þórs hafa bent á að
ekki sé endilega ákjósanlegt að formaður og
varaformaður séu úr sama kjördæmi, þ.e. Krag-
anum, þar sem Bjarni Benediktsson og Þor-
gerður Katrín skipa tvö efstu sætin á framboðs-
lista flokksins. Þessa röksemd gefa margir lítið
fyrir. Bent er á að það skipti miklu máli fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, ímynd hans og skírskotun
til flokksmanna og annarra að kona sé í forystu-
sveit Sjálfstæðisflokksins. Það hafi varafor-
mennska Þorgerðar Katrínar sýnt og engin
ástæða sé til þess að hafna henni nú.
Jafnframt er bent á að konur hafi almennt
ekki fengið mjög gott brautargengi í próf-
kjörum flokksins. Stuðningsmenn Illuga Gunn-
arssonar segja að þetta sé aðalástæða þess að
Illugi hefur þvertekið fyrir það að bjóða sig
fram gegn Þorgerði Katrínu en ýmsir hafa reif-
að þá hugmynd við hann eftir að niðurstöður
prófkjörsins í Reykjavík lágu fyrir.
Flestir telja að aðalmál landsfundarins muni
verða efnahagsmál því sú krafa sé gerð til Sjálf-
stæðisflokksins að hann geri skýra grein fyrir
því hvaða leiðir hann leggi til að farnar verði til
þess að styðja heimilin í landinu og hvaða úr-
lausnir hann sjái fyrir fyrirtækin í landinu.
Landsfundarfulltrúar og þeir sem starfa í
málefnahópum til undirbúnings landsfundi
segjast gera sér fulla grein fyrir því að nú dugi
ekkert „almennt snakk“ heldur sé krafan sú að
Sjálfstæðisflokkurinn kynni „útfærðar tillögur“.
Niðurstaða landsfundar Sjálfstæðisflokksins
í efnahagsmálum og útfærðar tillögur um
hvernig koma eigi til móts við heimilin í landinu
verði svo það veganesti sem Sjálfstæðisflokk-
urinn leggi upp með í kosningabaráttu.
Evrópusambandsmál í brennidepli
Eðli málsins samkvæmt eiga menn von á því
að umræða um Evrópusambandið og mögu-
legar aðildarviðræður muni taka mikinn tíma á
landsfundinum og að mestu átökin verði um það
mál. Þó gera menn sér í hugarlund að hægt
verði að ná fram ákveðinni málamiðlun á milli
þeirra sem eru því andvígir með öllu að sótt
verði um aðild og þeirra sem eru því fylgjandi.
Málamiðlunin gæti falist í því að stefna að að-
ildarviðræðum við Evrópusambandið þar sem
sú krafa verði skilyrðislaus og ófrávíkjanleg að
auðlindir landsins verði ávallt í eigu og undir
stjórn Íslendinga. Margir sjálfstæðismenn sem
rætt var við telja að með því að skilyrða við-
ræður með þessum hætti ætti að geta náðst
samstaða um að láta á það reyna hvort samn-
ingar við ESB gætu náðst um aðild Íslands.
Fylgi Sjálfstæðisflokksins hefur dalað sam-
kvæmt skoðanakönnunum og mældist flokk-
urinn næststærsti flokkurinn hjá Capacent
Gallup fyrir viku, með 26,5% fylgi, 0,9% stærri
en VG og tæpum 5% minni en Samfylkingin.
Ljóst er að sjálfstæðismenn eiga á brattann
að sækja og þeir gera sér fyllilega grein fyrir
því. Þó er ekki að heyra á viðmælendum að von-
leysi og uppgjöf hafi tekið völdin, þvert á móti
er bent á að aldrei hafi verið brýnna en einmitt
nú að taka sig saman í andlitinu, þjappa fólki
saman, snúa bökum saman og halda landsfund
sem stappi stálinu í menn og blási þeim bar-
áttuþreki í brjóst. „Við ætlum beint upp ham-
arinn,“ segir baráttuglaður sjálfstæðismaður.
Fundurinn verði ugglaust átakafundur þar sem
bæði verður tekist á um menn og málefni. En
landsfundur við þessar aðstæður eigi að vera
átakafundur. Menn þurfi að vera ófeimnir við að
gera upp mál, gagnrýna það sem rangt hefur
verið gert og læra af mistökunum. Starfið sem
unnið hafi verið af endurreisnarnefndinni sé
einmitt gott dæmi um að Sjálfstæðisflokkurinn
sé fær um opna umræðu og sjálfsgagnrýni.
Því sé engin ástæða til þess að örvænta. Ný
forysta flokksins verði valin um helgina og nýir
forystumenn muni í flestum tilvikum leiða lista
flokksins og þeir ásamt nýrri forystu muni leiða
flokkinn í gegnum snarpa fjögurra vikna kosn-
ingabaráttu.
Flestir telja að Bjarni Benediktsson verði kjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins
Líklegt er talið að aðalmál landsfundar Sjálfstæðisflokksins muni verða efnahagsmál
Sjálfsgagnrýni, umræða og innra uppgjör munu eiga upp á pallborðið á fundinum
tekið eftir og því hafi flokksmenn ekki síður tek-
ið eftir. Það hafi verið flokkshollusta sjálfstæð-
isfólks um land allt sem réði því að gagnrýn-
iraddir í garð Geirs H. Haarde, formanns
Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra, Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur, varaformanns
og menntamálaráðherra, og annarra sjálfstæð-
isráðherra í ríkisstjórn Geirs voru ekki hávær-
ari en raun bar vitni.
Sjálfstæðisfólk segir að forystuleysi í flokkn-
um hafi orðið algjört eftir að Geir tilkynnti um
veikindi sín og að hann hygðist hætta í pólitík.
Ekki hafi Þorgerður Katrín tekið við kyndlinum
af formanninum og raunar enginn annar heldur.
Flokkurinn hafi því miður verið eins og rekald
undanfarna mánuði – það sé sorglegt en enga að
síður staðreynd. Því er það að hinn almenni
flokksmaður er óþreyjufullur að kjósa nýjan
formann, það má glöggt heyra á kjörnum lands-
fundarfulltrúum.
Bjarni Benediktsson næsti formaður
Margt sjálfstæðisfólk telur að góð samstaða
muni myndast um að kjósa Bjarna Benedikts-
son sem formann. Þó búast margir við því að
Kristján Þór Júlíusson, sem ákvað sl. sunnudag
að bjóða sig fram til formanns, muni fá talsvert
af atkvæðum í formannskjörinu og er einkum
búist við því að hann muni sækja fylgið til lands-
fundarfulltrúa úr eigin kjördæmi, Norðaust-
urkjördæmi, en einnig til annarra landsbyggð-
arkjördæma. Almennt spá menn því þó að hann
fari varla langt yfir 30% atkvæða.
Það sem einkum er talið geta tryggt Kristjáni
Þór nokkuð gott fylgi er afstaða hans í Evrópu-
sambandsmálum en hann mun vera andvígur að-
ild, en það er Bjarni Benediktsson einnig. Stuðn-
ingsmenn Bjarna benda á, að Bjarni hafi alltaf
sagt að hagsmunum Íslendinga væri betur borg-
ið utan ESB og hann hafi aldrei sagst vilja ganga
í ESB, heldur einungis talað fyrir því að virkj-
aður yrði vilji þjóðarinnar til þess að komast að
niðurstöðu í málinu. Hann hafi einnig ávallt sagt
að sjávarútvegs- og landbúnaðarstefna ESB væri
ósamrýmanleg hagsmunum Íslendinga. Bjarni
hefur stundum ekki þótt tala nógu skýrt um af-
stöðu sína til ESB. Gagnrýnendur hans benda
t.d. á hans eigin orð, þegar hann á fundi í Valhöll
sagði: „Umboð forystu flokksins þarf... að vera
opið... Það verður að gera flokksforystunni kleift
að taka heilshugar þátt í samningaviðræðum sem
kunna að leiða til ESB aðildar á grundvelli tiltek-
inna samningsmarkmiða.“
Evrópunefndin hefur ekki enn kynnt nið-
urstöður sínar og eru margir sjálfstæðismenn
orðnir langeygir eftir þeim. Gagnrýnendur
Kristjáns Þórs benda á að andstaða hans sé
nokkuð ný af nálinni og að hann hafi fyrr í vetur
verið mun jákvæðari gagnvart aðildarvið-
ræðum, en hann gefi sig út fyrir að vera nú.
Þeir sem vilja verja breytta afstöðu Kristjáns
Þórs til ESB á mjög skömmum tíma segja að
menn megi ekki rugla saman formannsstörfum
hans í Evrópunefndinni þar sem honum beri að
samræma skoðanir og byggja brýr og komast
að niðurstöðu sem flestir geti sætt sig við og
hans persónulegu skoðunum.
Hvað sem þessu líður benda margir á að
16 Fréttaskýring
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009
Bjarni Benediktsson býður sig fram til formanns á landsfundi Sjálfstæð-
isflokksins. Formannskjör fer fram á sunnudag. Hann lýsir því hver hann telur
að sé mikilvægasta niðurstaðan sem landsfundur Sjálfstæðisflokksins nái til
þess að leggja upp með í þá kosningabaráttu sem mun hefjast strax eftir helgi:
„Það liggur fyrir að við þurfum að ljúka umræðu um atburði vetrarins og gera
upp alla þá atburðarás, hvað fór úrskeiðis og hvaða mistök við sjálf gerðum.
Slíku uppgjöri verður einfaldlega ekki frestað.
Við þurfum auk þess að leggja línur með þeim hætti að við getum komið fram
fyrir þjóðina og kynnt fyrir henni með skýrum og einföldum hætti fyrir hverju
við ætlum að berjast í þessari kosningabaráttu.
Síðast en ekki síst verðum við að ná því á þessum mjög svo
þýðingarmikla landsfundi að berja kjark í okkar fólk. Við
förum fram með stefnu sem sýnir að við ætlum að
byggja á fólkinu í þessu landi í endurreisninni. Við
ætlum að styðja við heimilin í mesta erfiðleika-
tímabili sem við höfum gengið í gegnum.
Við ætlum að styðja atvinnu-
starfsemina en ekki að taka
hana yfir. Við ætlum að
forðast ríkisvæðingu
og halda skött-
um í lág-
marki.“
Berja kjark í okkar fólk
Kristján Þór Júlíusson býður sig fram til formanns Sjálfstæðisflokksins. Hann er
formaður Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins. Hann vill ekki upplýsa hver verður
tillaga nefndarinnar í Evrópumálum. Kveðst munu gera það á landsfundinum.
Aðspurður um hvað hann vilji að verði veganesti landsfundarfulltrúa út í kosn-
ingabaráttuna segir Kristján Þór: „Ég vona að landsfundarfulltrúar fari út af lands-
fundi með þá tilfinningu að þeir hafi sagt forystu flokksins skoðanir sínar. Sömu-
leiðis vona ég að landsfundarfulltrúar telji ekki að þeim hafi verið sagt á
landsfundinum að hafa einhverjar tilteknar skoðanir, heldur að þeir hafi komið til
fundar, kynnt sín sjónarmið og áherslur og í framhaldi þess treyst niðurstöðum
fundarins til þess að vinna út frá því, við að móta þá stefnu sem menn gengju með
út til þjóðarinnar, til að vinna samkvæmt í kosningabaráttunni. Ég held að helstu áherslumálin í kosn-
ingabaráttunni verði átök um leiðir með hvaða hætti stjórnvöld ætla að vinna með samfélagið næstu
tvö til fjögur árin, á meðan við erum að vinna okkur í gegnum þann stabba sem bíður okkar.“
Átök um leiðir næstu 2-4 árin