Morgunblaðið - 26.03.2009, Blaðsíða 39
BÓKAÚTGÁFAN Crymogea, sem
gaf á dögunum út stórvirkið Flora
Islandica með jurtamyndum Egg-
erts Péturssonar, hefur opnað
skrifstofu og sýningarsal á Bar-
ónsstíg 27 þar sem áður var hönn-
unarbúðin Herðubreið. Þeir Krist-
ján B. Jónasson og Snæbjörn
Arngrímsson standa að útgáfunni.
„Hér verða haldnar sýningar
tengdar útgáfuverkum Crymogeu
sem og sýningar ljósmyndara,
hönnuða og myndlistarmanna sem
vinna fyrir útgáfuna eða gefa út
verk sín hjá henni,“ segir Krist-
ján.
Fyrsta sýningin verður opnuð
nú á Hönnunardögum og er til-
einkuð Flora Islandica. Snæfríð
Þorsteins og Hildigunnur Gunn-
arsdóttir hönnuðu bókina og
fengu verðlaun FÍT 2009 fyrir
hana í flokknum Grafísk hönnun
fyrir prentmiðla.
„Veggirnir verða þaktir blóma-
myndum þar sem heilt eintak af
óinnbundinni flórubók er skorið í
sundur og hengt upp þannig að
hægt er að sjá nær allar blóm-
plöntur íslensku flórunnar í grasa-
fræðilega réttu flokkunarkerfi.“
Ljósmyndun, list og hönnun
Crymogea var stofnuð sumarið
2007 og fyrst og fremst ætlað að
gefa út bækur um ljósmyndun, list
og hönnun. Í undirbúningi eru
bækur með RAX og Páli Stef-
ánssyni auk nokkurra stórra al-
þjóðlegra verkefna. Crymogea
gefur einnig út í samstarfi við
Listsjóð Dungal röð bóka um ís-
lenska samtímalist.
Crymogea heitir eftir höfuðriti
Arngríms Jónssonar lærða, Cry-
mogaea, sive rerum Islandicarum
libri tres, sem kom fyrst út í
Hamborg 1609. Þar er saga Ís-
lands og íslenskrar menningar
túlkuð í ljósi hugmynda end-
urreisnarinnar. Arngrímur setti
orðið saman úr grísku stofnunum
crymos og gea, hrím og jörð, og
bjó þannig til sérstakt orð um Ís-
land: Crymogea.
Crymogea
opnar skrif-
stofu og
sýningarsal
Kristján B.
Jónasson
Snæbjörn
Arngrímsson
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MARS 2009
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100
EFTIRMYND meistaraverks Pablos Picasso, Guernica,
er nú til sýnis í London. Er ofið teppið, sem er jafn stórt
málverkinu, til sýnis í Whitechapel Art Gallery.
Vefverkið er í eigu Rockefeller-fjölskyldunnar en hef-
ur í 24 ár hangið í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna.
Picasso lauk við málverkið árið 1937 og minnist í því
hryðjuverkanna er sprengjum var varpað á baskneska
bæinn Guernica í borgarastyrjöldinni á Spáni. Á sjötta
áratugnum fól Picasso tveimur vefurum að gera þrjár
eftirmyndir verksins í fullri stærð, þar sem frummyndin
væri of viðkvæm til að vera flutt á sýningar.
Eitt veggteppi er í Japan og annað í Frakklandi.
Vinnur sýningu um sögu málverksins
Pólski skúlptúristinn Goshka Macuga fékk teppið lán-
að og fellir það í sýningu sem hún vinnur um deilurnar
sem málverk Picassos olli. Þar til sú sýning verður opn-
uð, eftir tvær vikur, er veggteppið eitt og sér til sýnis.
Reuters
Ádeila Listakonan Macuga við hluta vefverksins.
Ofin Guernica sýnd í London
ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
S æ d ý r a s a f n i ð
Frumsýning í Kassanum 27. mars
Verk eftir Marie Darrieussecq. Leikstjóri: Arthur Nauzyciel
Erum við óhult hér?