Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Bjartari tímarFangaðu ljósið og færðu stofuna út í sumar
Lambo Lounger
69.900,-
einfaldlega betri kostur
30
%
af
sl
át
tu
r
af
öll
um
Si
len
ce
dý
nu
m
Lambo Lounger. NÝTT. Garðsófi. Ø165cm. Innifalið í verði er sessa og 5 púðar.69.900,-
einfaldlega betri kostur
laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-19
s: 522 4500 www.ILVA.is
Skoðaðu hann á www.ILVA.is
NÝRSUMARBÆKLINGUR
NÝTT KORTATÍMABIL
EKKI er hægt að sekta eða svipta
ökumann ökuleyfi fyrir að aka eftir
að hafa neytt ávana- og fíkniefna
með óbeinum reykingum. Hæstirétt-
ur hefur í fyrsta skipti kveðið upp
dóm þessa efnis.
Ekki er heimilt að aka þegar á-
vana- og fíkniefni mælast í þvagi þótt
blóðsýni staðfesti að ökumaður hafi
ekki verið undir áhrifum. Hæstirétt-
ur hefur staðfest slíka dóma.
Maður sem ákærður var fyrir
akstur undir áhrifum fíkniefna eftir
að leifar af kannabis fundust í þvagi
hans bar því við að hann hefði ekki
áttað sig á því að vera hans í bíl, hálf-
um sólarhring áður, þar sem kanna-
bis var reykt hefði haft áhrif á lík-
amskerfi hans. Bar hann að fjórir
strákar hefðu reykt hass í um 20
mínútur í lokaðri fólksbifreið sem
hann sat í. Dósent í eiturefnafræði
taldi fyrir héraðsdómi að fjarlægur
möguleiki væri á að kannabissýra
kæmi fram í þvagi eftir óbeinar
reykingar, en möguleiki þó. Raunar
taldi hann það ólíklegt í þessu tilviki.
Hæstiréttur taldi ekki sannað að
ákærði hefði vitað eða mátt vita að
dvöl hans í bifreiðinni leiddi til þess
að leifar ávana- og fíkniefna yrðu í
þvagi hans hálfum sólarhring síðar.
Aksturinn væri því ekki saknæmur
og var dómur héraðsdóms þar sem
hann var sýknaður af ákæru stað-
festur.
Daði Kristjánsson var saksóknari
en Sveinn Andri Sveinsson hrl. varði
ákærða. helgi@mbl.is
Akstur ekki
saknæmur
Kannabis í þvagi vegna óbeinna reykinga
Ekki sannað að
ákærði hafi vitað um
leifar kannabis
Aksturinn því ekki
talinn saknæmur
Eftir Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„ÞAÐ sem könnunin leiðir í ljós er að fyrirtæki
eru síður líkleg til að lenda í vanskilum ef þau eru
rekin af konum,“ segir Hafdís Jónsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Laugar Spa og varaformaður Fé-
lags kvenna í atvinnurekstri (FKA), um könnun
Creditinfo á hlutdeild kvenna í atvinnulífinu.
Um nýja könnun er að ræða en þar kemur fram
að arðsemi eiginfjár hjá fyrirtækjum þar sem
karlar eru framkvæmdastjórar er 29,3% en 34,8%
hjá konum. Með líku lagi standa konur betur í
skilum en karlar en skv. könnuninni er hlutfall
fyrirtækja á vanskilaskrá þar sem karlar eru
framkvæmdastjórar 14,3% en 12,8% hjá konum.
Hafdís segir stefnt að því að
auka hlutdeild kvenna í at-
vinnulífinu í samstilltu átaki
hagsmunaaðila og stjórnvalda.
„Félag kvenna í atvinnu-
rekstri, Samtök atvinnulífsins
og Viðskiptaráð Íslands hafa
verið að vinna að því að undir-
búa samning sem verður undir-
ritaður á morgun [í dag] af
þessum þremur félögum um að
efla á næstu fjórum árum þátttöku kvenna í ís-
lensku atvinnulífi. Forystumenn allra stjórn-
málaflokka verða viðstaddir til að undirrita þenn-
an samning í Rúgbrauðsgerðinni klukkan fimm.“
Hún kveðst vilja forðast að fara norsku leiðina.
„Í Noregi er hlutfall kvenna í stjórnum fyrir-
tækja lögbundið. Við viljum hins vegar forðast að
þetta verði bundið í lög hér heldur viljum sjá við-
skiptalífið efla þetta sjálft. Við viljum sjá það ger-
ast að á næstu fjórum árum verði hlutfall kvenna í
stjórnunarstöðum komið upp í a.m.k. 40%.“
Minnt verði árlega á markmiðin
Ætlunin er að könnunin verði gerð árlega og
segir Hafdís stefnt að því að kanna á hverju ári
hversu mikið hafi áunnist í baráttunni.
Formannskjör fer fram hjá FKA í dag og
kveðst Hafdís vænta þess að hún verði næsti for-
maður félagsins, enda sé hún ein í framboði til
eftirmanns Margrétar Kristmannsdóttur, fram-
kvæmdastjóra Pfaff, sem lætur af embætti í dag.
Arðsemin meiri séu konur við stjórn
Ný könnun Creditinfo leiðir í ljós mun á afkomu fyrirtækja eftir kyni framkvæmdastjóra
Bendir einnig til að fyrirtæki þar sem konur eru framkvæmdastjórar lendi síður í vanskilum
Hafdís Jónsdóttir
ÞÓTT Kári blési duglega nutu krakkarnir á Austur-
borg sólarinnar og sungu hástöfum upp í vindinn fyrir
gesti sína á opnu húsi í leikskólanum í gær. Þar mátti
líta glæsilegan afrakstur unga fólksins um allan skól-
ann, s.s. litskrúðug listaverk af margvíslegu tagi:
skúlptúra, smíðagripi, óróa, myndbönd og ljósmyndir.
Ekki spillti fyrir að í leikskólagarðinum var búið að
koma fyrir stórskemmtilegum hoppuköstulum og létu
yngstu kynslóðirnar það tækifæri ekki framhjá sér
fara. Háir og lágir gæddu sér svo á nýbökuðum vöfflum
í leikskólasalnum svo óhætt er að segja að boðið hafi
verið upp á næringu bæði fyrir líkama og sál.
Morgunblaðið/Kristinn
Sungu upp í sólina og vindinn
ÍSLENSKA ríkið var í gær dæmt í
Hæstarétti til að greiða manni, sem
sat í gæsluvarðhaldi í 12 daga í nóv-
ember 2006 bætur upp á 300 þúsund
krónur. Maðurinn, sem sat í varð-
haldinu vegna gruns um aðild að
fíkniefnamáli, krafðist 5 milljóna
króna í bætur en Héraðsdómur
Reykjavíkur hafði áður sýknað ríkið
af kröfu hans.
Maðurinn var handtekinn í
tengslum við innflutning á tölvum
sem keyptar höfðu verið í Kaup-
mannahöfn og flytja átti til Íslands.
Í Danmörku uppgötvuðu starfs-
menn flutningafyrirtækis að tölv-
urnar innihéldu pakka með fíkniefn-
um, en grunur þeirra vaknaði við
það hversu þungar tölvurnar voru.
Kom í ljós að meginhluti vélbúnaðar
tölvanna hafði verið fjarlægður og í
stað hans settir fíkniefnapakkar
sem innihéldu alls um 13,4 kíló af
hassi og 202 grömm af kókaíni.
Gerðu starfsmennirnir lögreglu
viðvart og ákváðu íslensk og dönsk
lögregluyfirvöld að láta vörusend-
inguna fara til Íslands án fíkni-
efnanna í þeim tilgangi að reyna að
hafa hendur í hári þeirra manna
sem stóðu að innflutningnum á Ís-
landi.
Ný gögn komu fram
sem breyttu forsendum
Böndin bárust að starfsmanni
hraðflutningafyrirtækis hér á landi
sem var fljótlega handtekinn ásamt
félaga sínum. Nokkrum dögum síð-
ar var þriðji maðurinn, sá er Hæsti-
réttur dæmdi bæturnar, handtek-
inn. Í kjölfar handtökunnar féllst
hann á húsleit á heimili sínu þar sem
ýmislegt fannst er þótti tengjast
fíkniefnaviðskiptum.
Þrátt fyrir að þekkja hina menn-
ina tvo neitaði maðurinn öllum fíkni-
efnatengslum við þá. Engu að síður
var hann handtekinn á ný og úr-
skurðaður í gæsluvarðhald, eftir að
viðbótarupplýsingar bárust lögregl-
unni. Þar sat hann í tæpan hálfan
mánuð áður en honum var sleppt. Í
júní árið eftir var honum tilkynnt
bréflega að málið gegn honum hefði
verið fellt niður. Hann höfðaði síðan
mál og krafðist bóta.
Í dómi Hæstaréttar segir, að til-
efni hafi verið til að handtaka mann-
inn aftur og úrskurða hann í fram-
haldi af því í gæsluvarðhald. Hins
vegar hafi skilyrði brostið fyrir því
að halda honum í gæsluvarðhaldi
þegar skýrsla var tekin af enn öðr-
um grunuðum manni. Önnur atriði,
sem komu fram við rannsókn máls-
ins, hafi ekki rennt frekari stoðum
undir grunsemdir lögreglu um þátt
mannsins í málinu.
Fær bætur frá ríkinu
Forsendur fyrir tveggja vikna gæsluvarðhaldi í tengslum við
fíkniefnamál héldu ekki samkvæmt niðurstöðu Hæstaréttar
Arðsemi eigin fjár
karlar framkvæmdastjórar
29,3%
konur framkvæmdastjórar
34,8%