Morgunblaðið - 15.05.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
„VIÐ erum gapandi hissa á því
hvernig þessi mál hafa verið unnin,“
segir Arinbjörn Snorrason, formaður
Lögreglufélags Reykjavíkur og lög-
reglumaður á höfuðborgarsvæðinu,
en í dag taka gildi uppsagnir 20 lög-
reglumanna sem ráðnir voru tíma-
bundið til starfa hjá embættinu. Ar-
inbjörn segir að stjórnvöldum hafi
þótt lögreglumenn nógu góðir til að
standa vaktina meðan á bús-
áhaldabyltingunni stóð. „Við gerum
okkur grein fyrir að það eru þreng-
ingar í þjóðfélaginu,“ segir Arn-
grímur, „og álagið sem annars er hjá
þessum tuttugu flyst bara á færri
hendur. Já, þetta lítur ekki vel út.“
Hann segir furðulegt að hægt sé að
koma fram við fólk með þeim hætti
sem gert er við lögreglumennina.
„Það er nánast eins og við bíðum
hérna við lögreglustöðvarnar á hverj-
um morgni til að athuga hvort við
fáum vinnu. Þetta er bara sorglegt.“
Mikil ólga er innan félagsins vegna
málsins og mönnum finnst embættið
ekki standa sig nógu vel. „Við viljum
sjá að gerðar verði einhverjar
áherslubreytingar í því ferli sem ver-
ið er að vinna í núna,“ segir Ar-
inbjörn og nefnir í því samhengi fyr-
irhugaða fimm stöðva væðingu, en til
stendur að færa löggæsluna út á
fimm stöðvar á höfuðborgarsvæðinu.
„Það hefur í för með sér aukinn
kostnað og ég held að það sé við-
urkennt, í það minnsta tímabundið á
meðan verið er að koma því á lapp-
irnar,“ segir hann. „Við viljum sjá að
því verði slegið á frest og fjármun-
unum varið í þessa starfsmenn og
staða þeirra tryggð innan lögregl-
unnar. Það er númer eitt, tvö og
þrjú.“
Erum gapandi hissa
Tuttugu lögreglumenn sem ráðnir voru tímabundið missa
vinnuna í dag Furðulegt að hægt sé að koma svona fram
Í HNOTSKURN
»Stefán Eiríksson lýstiáhyggjum sínum yfir
fækkun lögreglumanna í
Morgunblaðinu 2. maí sl.
»Fyrir ári voru 347 lög-reglumenn í starfi hjá
embættinu.
»Með fækkuninni í dagverða eftir 290 lög-
reglumenn.
AUKIÐ líf færist í Hafnarfjarðarhöfn með hækk-
andi sól. Siglingaklúbbur hefur þar aðstöðu og
einstaklingar geyma bátana sína í höfninni.
Stundum er siglt innan um stóru skipin. Í gær
var slöngubáti siglt að dýpkunarpramma sem
liggur við bryggju með annan bát utan á sér.
Áætla má út frá þeim hleðslumerkjum á stefni
prammans sem standa langt upp úr sjó að hann
risti sex til sjö metra. Ekki þarf nein hleðslu-
merki á litla bátinn en ljóst er að farmur hans er
mun verðmætari. Börnin eru með björgunar-
vesti og njóta siglingarinnar. helgi@mbl.is
Útsýnissigling í Hafnarfjarðarhöfn
Morgunblaðið/Eggert
Lögreglumönnunum tuttugu var
boðið upp á að þiggja hálfa stöðu,
breytingar á álagsgreiðslum o.fl.
Arinbjörn segist telja þá almennt
ekki hyggjast þiggja þetta. „Mér
skilst að andinn hjá þeim sé nú þann-
ig að þau séu bara búin á sálinni
hvað þetta varðar,“ segir hann. Þau
hafi ítrekað verið ráðin áfram tíma-
bundið en nú sé nóg komið. „Það
virðist vera tónninn að þau ætli ekki
að láta bjóða sér þetta áfram.“
Arinbjörn segir bæði félagið og
lögreglumennina sjálfa hafa biðlað
til ríkisstjórnarinnar um að tekið
verði á málinu ekki seinna en strax.
„Þetta tekur náttúrlega gildi á
morgun [í dag] og einn mánuður í
viðbót mun ekki breyta neinu. Þau
þurfa að fara að fá eitthvað fast í
hendi,“ segir Arinbjörn og bætir við
að uppsagnirnar setji margt í upp-
nám og m.a. þurfi að hugsa sumarfrí
lögreglumanna upp á nýtt, jafnvel
að brytja þau niður í smátt til að
halda starfinu gangandi í sumar.
„Alveg búin
á sálinni“
ÖGMUNDUR
Jónasson heil-
brigðisráðherra
vill setja sér-
stakan skatt á
sykraða gos-
drykki. Hann
lýsti þessu yfir í
ræðu á ársfundi
Sjúkrahússins á
Akureyri í gær og
hyggst taka málið
upp í ríkisstjórn í dag. Ögmundur
sagði við Morgunblaðið að vitneskja
um afar slæma tannheilsu íslenskra
barna kallaði á kröftug viðbrögð
stjórnvalda. Ráðherra vildi ekki
nefna neinar tölur en í grein í Morg-
unblaðinu á dögunum fjölluðu tveir
vísindamenn um hugsanlegan skatt
á gosdrykki, Sigurður Guðmunds-
son, forseti heilbrigðisvísindasviðs
Háskóla Íslands, og Inga Þórsdóttir,
prófessor í næringarfræði. Þau
nefndu að miðað við það magn sem
drukkið er hér á landi af gosi myndi
10 króna aukagjald á hvern lítra
skila ríkissjóði um hálfum milljarði
króna á ári. skapti@mbl.is
Ögmundur
vill leggja á
sykurskatt
Ögmundur
Jónasson
Verður að bregðast
við slæmri tannheilsu
ÍSLENSKA ríkið er eigandi vatns-
réttinda jarðarinnar Skálmholts-
hrauns í Þjórsá. Hæstiréttur hefur
staðfest dóm héraðsdóms sem hafn-
aði kröfu núverandi eiganda jarðar-
innar um að þessi réttindi væru fallin
niður.
Títanfélagið seldi jörðina Skálm-
holtshraun á vesturbakka Þjórsár
árið 1931, án vatnsréttinda sem fé-
lagið afsalaði síðan á árinu 1952 til ís-
lenska ríkisins.
Núverandi eigandi Skálmholts-
hrauns stefndi Landsvirkjun og rík-
inu vegna fyrirhugaðrar virkjunar í
neðri hluta Þjórsár. Taldi hún að
réttindin hefðu fallið niður fyrir van-
lýsingu, hún hefði eignast þau fyrir
hefð eða að þau væru fallin niður fyr-
ir vangeymslu og tómlæti. Á þessi
sjónarmið var ekki fallist, hvorki í
héraðsdómi né Hæstarétti.
Ríkið á
réttindin
í Þjórsá
FRÉTTASKÝRING
Eftir Magnús Halldórsson
magnush@mbl.is
SAMTALS þiggja nú 22 ráðherra-
laun, samkvæmt svari skrif-
stofustjóra forsætisráðuneytisins,
Óðins Helga Jónssonar, við fyr-
irspurn Morgunblaðsins.
Þar af eru átta á biðlaunum til sex
mánaða. Þeir eru Árni M. Mathie-
sen, Björn Bjarnason, Einar Krist-
inn Guðfinnsson, Geir H. Haarde,
Guðlaugur Þór Þórðarson, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir, Þorgerður Katr-
ín Gunnarsdóttir og Þórunn Svein-
bjarnardóttir.
Þá eru tveir fyrrverandi ráð-
herrar á biðlaunum til þriggja mán-
aða, Ásta Ragnheiður Jóhann-
esdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir.
Til viðbótar þessum tíu fyrrver-
andi ráðherrum sem nú þiggja bið-
laun eru tólf ráðherrar í nýskipaðri
ríkisstjórn Samfylkingarinnar og
Vinstri grænna. Óðinn Helgi sagði
ekki vera hægt að segja nákvæmlega
hver kostnaðurinn yrði af þessu.
Sé mið tekið af launatöflu Kjara-
ráðs, sem ákvarðar laun ráðherra,
ætti kostnaður við greiðslu mán-
aðarlauna til þeirra sem eru á bið-
launum að nema tæplega 54 millj-
ónum króna.
Mánaðarlaun ráðherra eru sam-
kvæmt launatöflu 992 þúsund krón-
ur en forsætisráðherra er með tæp-
lega 1,1 milljón á mánuði.
Kostnaður við greiðslu biðlauna fyrrverandi ráðherra
um 54 milljónir króna sé mið tekið af launatöflu Kjararáðs
22 á ráðherralaunum
Morgunblaðið/Ómar
Ráðherrar Fyrrverandi og núver-
andi félagsmálaráðherra.
Töluverður kostnaður lendir nú á
skattgreiðendum vegna ríkis-
stjórnaskipta. Samtals eru 22 á
ráðherralaunum, þar af tíu ráð-
herrar í fyrri ríkisstjórnum.