Morgunblaðið - 15.05.2009, Side 8

Morgunblaðið - 15.05.2009, Side 8
8 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 Eftir Gunnhildi Örnu Gunnarsdóttur gag@mbl.is SEÐLABANKI Íslands mat á vor- mánuðum, fyrir fall bankanna, að heildartap fjármálaáfalls gæti sam- tals numið um 400-500 milljörðum króna. Þar af væri kostnaður við lausn fjármálaáfallsins á bilinu 179- 230 milljarðar króna og hagvaxtar- tapið í kjölfarið hlypi á 217-256 millj- örðum króna. Þetta kemur fram í stöðugleikaskýrslu bankans fyrir árið 2008. Tapið var reiknað út eftir ábend- ingu fjármálakrísusérfræðingsins Andrew Gracie, sem Seðlabankinn réð í febrúar í fyrra. Bankinn vann með honum áætlanir um hvað þyrfti að gera nægðu bankarnir ekki að fjár- magna sig og færu í þrot; Glitnir fyrir október 2008 og Kaupþing á fyrsta ársfjórðungi 2009. Katrín Ólafsdóttir, lektor við við- skiptadeild Háskólans í Reykjavík, segir ljóst að áfallið hér á landi sé meira en bankinn reiknaði út. Hann miði sína útreikninga við reynslu þeirra ríkja sem hafi gengið í gegnum áföll á síðustu 35 árum. Áfall Íslend- inga sé einfaldlega meira en þeirra. „Reikna má með því að bæði kostn- aður við lausn áfallsins og hagvaxt- artapið í kjölfarið verði meiri en nefndur er í útreikningum Seðlabank- ans,“ segir hún. „Sé horft til kostn- aðar við lausn á fjármálaáfallinu má sjá að bara eiginfjárframlagið inn í Seðlabankann var 270 milljarðar. Þessi eina fjárhæð er því komin yfir töluna sem bankinn reiknaði út.“ Þá eigi enn eftir að greiða kostnað vegna Icesave-deilunnar og leggja bönkun- um til eiginfé svo eitthvað sé nefnt. Katrín segir að Seðlabankanum hafi að sumu leyti átt að vera ljóst að tjónið yrði meira hér. „Við vorum með samþjappaðan markað, aðeins þrjá banka, og vitað að gjaldeyrisforðinn dugði ekki fyrir þá þrjá, heldur hugsanlega aðeins einn, varla tvo og alls ekki þrjá,“ segir Katrín. „Í ljós kom hins vegar eftir á að tengslin á milli bankanna gerðu björgun nær ómögulega. Erlendis spáðu menn lítið í hvaða banki var hvað. Þetta voru bara íslensku bank- arnir.“ Mesta fjármálaáfallið í 35 ár  Seðlabankinn reiknaði út kostnað við lausn fjármálaáfalls og hagvaxtartapið í kjölfarið  Lektor í HR segir áfallið kostnaðarsamara sem hefði mátt sjá fyrir Fékk meira í eigið fé en hann mat tjónið verða. Seðlabankinn hefði mátt sjá að tjón yrði meira. Unnu matið í vinnu við viðlagaáætlun bankans. Tengsl milli banka gerðu björgun ómögulega. Enn óljóst hver endanlegur kostnaður verður. HALDA mætti að báturinn hefði hafið sig til flugs og hygðist komast á skrúfunum einum saman upp í himinhvolfið. Þeir fóru allavega um í loftköstum félagarnir í Björgunarfélagi Akra- ness þar sem þeir voru við æfingar í brimrótinu úti fyrir Akraneshöfn. Sjórinn hefur verið úfinn í rokinu sem gengið hefur yfir landið en er nú á undanhaldi. Þótt flestir kjósi að halda sig inni láta björgunarkapparnir veðrið ekki aftra sér. Flugbátur í Akraneshöfn ÁKVÖRÐUN um að víxla þingflokksherbergjum milli framsóknarmanna og VG var tekin með stuðningi forseta Alþingis og síðar forsætisnefndar, að sögn Helga Bern- ódussonar, skrifstofustjóra Alþingis. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, taldi í gær að ákvörðun lægi ekki fyrir, eftir því sem hann best vissi. Hann kvaðst ekki hafa náð að fylgjast með málinu síðustu daga og áleit að ný forsætisnefnd Alþingis, sem kjörin verður í dag, mundi taka málið fyrir. Helgi sagði að forseti þingsins hefði falið sér að ganga frá skrifstofum handa nýjum þingmönnum og öðrum ráð- stöfunum sem gera þyrfti. Þingflokkur Vinstrihreyfing- arinnar – græns framboðs kæmist ekki fyrir í herberginu sem hann hefði haft og því hefði verið ákveðið að víxla herbergjum milli þingflokka VG og Framsóknar. Helgi sagði að vel mætti vera að þetta mál kæmi til kasta nýrr- ar forsætisnefndar. Hann kvaðst vona að málið leystist í góðu samkomulagi. Aðalatriðið væri að allir fengju fund- arherbergi eins og þeir þyrftu. Alþingi verður sett í dag. Þingsetningin hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni kl. 13.30. Séra Helga Soffía Konráðsdóttir predikar og séra Einar Sigurbjörnsson þjónar fyrir altari ásamt biskupi Íslands, Karli Sigur- björnssyni. Siðmennt ætlar að bjóða þingmönnum sem ganga ekki til kirkju að koma á Hótel Borg og hlýða á hugvekju um „mikilvægi góðs siðferðis í þágu þjóðar“. Forseti Íslands setur síðan 137. löggjafarþingið í þing- húsinu. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, starfs- aldursforseti þingsins, tekur þá við fundarstjórn og stjórnar kjöri kjörbréfanefndar. Hlé verður gert á þingsetningarfundinum til kl. 16. Þá verða kjörbréf afgreidd og nýir alþingismenn undirrita drengskaparheit. Starfsaldursforseti stýrir síðan kjöri forseta Alþingis, en Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir tekur við embættinu. Einnig verða kosnir sex varafor- setar og kosið í fastanefndir Alþingis. Síðan verður varp- að hlutkesti um sæti þingmanna. gudni@mbl.is Endurnýjað Alþingi verður sett í dag Morgunblaðið/Sverrir Þingflokksherbergi Framsóknar Flokkurinn hefur haft herbergið frá því á árum síðari heimsstyrjaldarinnar. Forysta Alþingis studdi víxlun þingflokksherbergja SAMTÖK atvinnulífsins telja óraun- hæft að stytta vinnuvikuna en í sam- starfsyfirlýsingu nýrrar ríkis- stjórnar er ákvæði um aðgerðir til þess að sporna gegn atvinnuleysi og þess getið í því samhengi að metnir verði kostir þess að stytta vinnuvik- una. Segir á vef SA að þetta ákvæði komi nokkuð á óvart því vinnutími er viðfangsefni kjarasamninga og með- al samningsaðila hafa undanfarin ár ekki farið fram neinar umræður um styttingu vinnuvikunnar. Orlof er töluvert lengra á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum og sérstakir frídagar sömuleiðis fleiri. Ársvinnutími í dag- vinnu er hvergi lægri nema í Þýska- landi og Frakklandi og hvorki séu tilefni né aðstæður til þess nú að eyða miklum tíma í skoðun á því hvort stytta eigi vinnuvikuna á Ís- landi. Stjórnvöld höfðu síðast afskipti af vikulegum vinnutíma hér á landi árið 1972 þegar lög um 40 stunda vinnu- viku voru lögfest, en áður var vinnu- vikan 44 stundir. Lagabreytingin fól í sér 10% hækkun tímakaups í dag- vinnu og ef 44 stundir voru unnar áfram ( frá 8-13 á laugardögum) þá fól hún í sér 18% hækkun vikukaups. Þá er í gildi vinnutímatilskipun ESB um 48 stunda hámarksvinnutíma að meðaltali, samkvæmt vef SA. Markmið ríkisstjórn- ar kemur SA á óvart Óraunhæft að stytta vinnuviku Morgunblaðið/Árni Sæberg Umdeilt Ríkisstjórnin vill skoða kosti þess að stytta vinnuvikuna. Mesta úrval landsins af rafgeymum í allar gerðir farartækja mælum • skiptum um • traust og fagleg þjónusta • 30 ára reynsla MEÐ TUDOR fæst í Sólningu Kópavogi, Njarðvík og Selfossi og Barðanum Skútuvogi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.