Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 17

Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 17
Fréttir 17VIÐSKIPTI|ATVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 Þetta helst ... ● KALIFORNÍA hefur beðið alrík- isstjórnina í Washington um aðstoð við sölu á skammtímaskuldabréfum. Mun Kalifornía þurfa að selja skuldabréf fyrir 23 milljarða dala til að geta staðið í skil- um á þessu ári. Vilja talsmenn Kaliforníu að alríkið noti hluta af því fé, sem ætlað er til að kaupa lélegar eignir af fjármálafyr- irtækjum, til að kaupa þessi bréf af rík- inu. Þrátt fyrir slæma stöðu hefur lítið þokast í hagræðingarátt hjá stjórn- völdum í Kaliforníu. bjarni@mbl.is Kalifornía þarf hjálp ● JAPANSKA raftækjafyrirtækið Sony var rekið með tapi á síðasta rekstrarári en það hefur ekki gerst í fjórtán ár. Fyr- irtækið varar við því að útlit sé fyrir áframhaldandi tap en efnahags- kreppan hefur bitnað illilega á jap- önskum tæknifyrirtækjum. Nam rekstrartap Sony 227,8 millj- örðum jena á rekstrarárinu sem lauk þann 31. mars sl. Árið á undan nam rekstrarhagnaðurinn 475,3 milljörðum jena. Tap Sony nam 98,9 milljörðum jena en árið á undan var hagnaðurinn 369,4 milljarðar jena. Er tapið mun minna heldur en áætlanir félagsins gerðu ráð fyrir. guna@mbl.is Sony tapar í fyrsta sinn í fjórtán ár ● BBR ehf., einka- hlutafélag í eigu bræðranna Lýðs og Ágústs Guðmunds- sona, á orðið 89,4% hlut í Exista en í síðustu viku rann út tilboð BBR til hluthafa í Exista um kaup á hlutum þeirra í félaginu. Alls tóku 11,5% hluthafa tilboði BBR, sem fyrir átti 77,9% hlut í Exista. Samkvæmt ákvörð- un Fjármálaeftirlitsins hljóðaði tilboðið upp á 0,02 krónur á hlut. Hefði hlutur BBR farið yfir 90% eftir útboðið hafði félagið áskilið sér rétt til að innleysa það sem eftir stæði. guna@mbl.is Náðu ekki 90% eignarhlut í Exista Lýður Guðmundsson FRÉTTASKÝRING Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@mbl.is SJÓVÁ uppfyllir sem stendur ekki lágmarkskröfur um gjaldþol trygg- ingafélaga, en það er nauðsynlegt magn af eigið fé sem slík félög þurfa til þess að mega starfa samkvæmt lögum. Vegna þessarar stöðu hefur Sjóvá, ásamt Verði, verið undir sér- tæku eftirliti Fjármálaeftirlitsins (FME) frá bankahruni. Sjóvá fjárfesti mikið í erlendum fast- eignaverkefnum víðsvegar um heim- inn auk þess sem eigandi Sjóvár, Milestone, færði eignir inn í trygg- ingafélagið til að jafna út viðskipta- skuld. Stjórnendur Sjóvár hafa ekki viljað upplýsa Morgunblaðið um hvernig sú viðskiptaskuld skapaðist, en hún stóð í 7,3 milljörðum króna í árslok 2006. Ráðist var í fjárfesting- arnar í krafti þess að staða bótasjóðs Sjóvár var afar sterk. Vantar tíu milljarða Slæma stöðu Sjóvár má rekja til ofangreindra fjárfestinga. Félagið er nú á forræði skilanefndar Glitnis, eftir að hún tók yfir eignir Milestone, fyrrverandi eiganda Sjóvár. Verið er að reyna að endurskipuleggja Sjóvá með þeim hætti að aðskilja fjárfest- ingahlutann frá vátryggingarhlutan- um. Árni Tómasson, formaður skila- nefndar Glitnis, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að þeirri end- urskipulagningu væri ekki lokið. Hann vonaðist þó til að hægt yrði að ljúka henni á allra næstu dögum. Í kjölfarið myndi vátryggingahlutinn væntanlega fara í söluferli, en hann vantaði að minnsta kosti tíu millj- arða króna innspýtingu eigna eða fjármagns til að mega starfa áfram. Eigandi Sjóvár fyrir hrun var fjár- festingafélagið Milestone. Það keypti sig inn í Sjóvá árið 2005 og eignaðist það að fullu árið eftir. Mile- stone, sem var í eigu bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona, réð Þór Sigfússon sem forstjóra fé- lagsins. Eignirnar jukust gríðarlega Í lok árs 2005 voru heildareignir Sjóvár 36 milljarðar króna og félagið var fyrst og síðast vátryggingafélag. Þorri fjárfestinganna var þá í ýmiss konar verðbréfum en engar „fjár- festingareignir“, en það eru fast- eignir í notkun eða í byggingu. Í árs- lok 2006 höfðu eignir félagsins rúmlega tvöfaldast, voru orðnar 77,3 milljarðar króna, og munaði þar mest um fjárfestingaeignir upp á 30,6 milljarða króna. Árið 2007 voru heildareignir Sjóvár komnar í 99 milljarða króna. Þar af námu fjár- festingaeignirnar 49 milljörðum. Stór hluti þessara eigna var í stýr- ingu hjá Askar Capital, öðru félagi Milestone. Skilanefndin reynir nú að fjarlægja þessar eignir út úr Sjóvá. Þær hafa rýrnað mikið í verði. Heimildir Morgunblaðsins herma að stærstu leikendur í íslensku fjár- málalífi hafi litið bótasjóði trygg- ingafélaganna hýru auga þar sem í þeim var raunverulegt fjármagn. Þeir höfðu áhuga á að virkja það fjármagn í fjárfestingum sínum. Sjóvá undir eftirliti FME frá bankahruni  Vátryggingastarfsemi enn ekki aðskilin fjárfestingum Í HNOTSKURN »Vátryggingaskuld Sjóvár,oftast kölluð bótasjóður, samanstendur af tjónaskuld félagsins og fyrirfram- greiddum iðgjöldum. Bóta- sjóðurinn er því í raun skuld Sjóvár við viðskiptavini sína. »Peningarnir sem koma inneru síðan fjárfestir, og þær fjárfestingar bókfærðar á eignarhluta efnahagsreikn- ings Sjóvár. Eftir Grétar Júníus Guðmundsson gretar@mbl.is LANDSSAMTÖK lífeyrissjóða (LL) áætla að raunávöxtun lífeyrissjóð- anna í landinu hafi verið neikvæð um 21,5% að meðaltali á árinu 2008. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Arnars Sigurmundssonar, for- manns stjórnar LL, á aðalfundi sam- takanna í gær. Sagði hann að árið 2008 hefði verið eitt erfiðasta ár í starfsemi sjóðanna frá upphafi. Arnar greindi frá því að síðastliðin tíu ár hefði meðalraunávöxtun lífeyr- issjóðanna verið jákvæð um 2,5%. „Frá upphafi reglulegra mælinga ár- ið 1991 mælist hins vegar meðal- raunávöxtunin 3,7% og hélst þetta há þrátt fyrir að raunávöxtun væri neikvæð um rúm 20% í fyrra.“ Meðal þeirra hæstu í heimi Arnar sagði að eignarýrnun lífeyr- issjóðanna á síðasta ári kæmi skýrt fram í hinni rúmlega 20% neikvæðu raunávöxtun þeirra í fyrra. „Má ætla að það hlutfall gefi glögga mynd af stöðu sjóðanna í árslok 2008. Ljóst er að lækkun á eignum erlendra líf- eyrissjóða er í mörgum tilvikum meiri en hér á landi,“ sagði hann og vísaði til samantektar OECD þessu til stuðnings. Heildareignir íslenska lífeyris- sjóðakerfisins sem hlutfall af lands- framleiðslu eru meðal þeirra hæstu í heimi og voru um 130% af vergri landsframleiðslu í árslok 2008. Sagði Arnar að áætlað væri að þetta hlut- fall væri nú komið í um 112%. Arnar greindi frá því að fullur vilji væri hjá lífeyrissjóðunum að ganga eins langt og mögulegt væri til að koma til móts við sjóðfélaga í greiðsluerfiðleikum, með skuld- breytingu vanskila, frestun á greiðslum og lengingu lánstíma. Er það í samræmi við þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur beitt sér fyrir. Mikið högg Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og lektor, sagði í erindi sem hann flutti á aðalfundinum, að ljóst væri að lífeyrissjóðirnir í landinu hefðu orðið fyrir miklu höggi. „En við vit- um að þeir náðu að jafna sig tiltölu- lega fljótt, til dæmis eftir að netbólan sprakk.“ Sagði hann að staðan nú væri reyndar töluvert erfiðari en þá. Netbólan átti sinn þátt í því að raunávöxtun lífeyrissjóðanna var að meðaltali neikvæð á tímabilinu frá árinu 2000 til ársins 2002. Meðalraunávöxtun um 3,7% frá árinu 1991 Morgunblaðið/Eggert Högg Ólafur Ísleifsson, hagfræðingur og lektor, sagði m.a. á aðalfundi Landssamtaka lífeyrissjóða að sjóðirnir hefðu orðið fyrir miklu höggi í fyrra. Heildareignir líf- eyrissjóða rýrnuðu töluvert í fyrra                     !"# $%& $( $ (  &(    '  ' ' Þorsteinn Ein- arsson, skipta- stjóri Mótormax, segir allt til skoð- unar í bókhaldi félagsins nú þeg- ar það er komið í gjaldþrota- meðferð. Helgina áður en skiptastjóri tók við búinu var auglýstur stórafsláttur af ýmsum tækjabúnaði sem Mótormax selur. Þorsteinn segir það skoðað eins og allt annað í rekstri Mótormax hvort verið var að reyna að taka reiðufé út úr félaginu rétt áður en það fór í gjaldþrot. Hann hafi enga vitneskju um að svo hafi verið en reikningar fyrirtækisins verði yf- irfarnir eins og alltaf er gert við svona aðstæður. Magnús Kristinsson var eigandi Mótormax en hann hefur einnig stjórnað Toyota á Íslandi. Þorsteinn segir nú auglýst eftir kröfum í búið. Skuldir félagsins séu á annan milljarð. bjorgvin@mbl.is Mótormax undir smásjá Þorsteinn Einarsson Skuldabréf féllu í verði í Kauphöll Íslands í gær í kjölfar yfirlýsingar sendifulltrúa Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins á fundi SFF, að að- stæður bjóði ekki upp á frekari stýrivaxtalækkun. Velta með skuldabréf var líka mikil eða tæpir 12 milljarðar króna. Styttri skuldabréfin lækkuðu meira en þau lengri. Þannig lækk- uðu ríkisbréf, sem eru á gjalddaga 2019, um 1,88% í viðskiptum dags- ins. Verðtryggð íbúðabréf lækk- uðu einnig. Íbúðabréf á gjalddaga 2024 lækkuðu til dæmis um rúmt 1%. Yfirlýsing sendifulltrúa Alþjóða- gjaldeyrissjóðsins í gær gaf til kynna að stýrivextir yrðu ekki lækkaðir umtalsvert í júní eins og Seðlabankinn hafði gert ráð fyrir. Þeir sem eiga í viðskiptum á skuldabréfamarkaðnum lesa í þessi skilaboð og telja greinilega að sú hækkun sem hefur verið á áður útgefnum skuldabréfum haldi ekki þar sem vextir verði lengur hærri en væntingar stóðu til. Þegar skuldabréf lækka í verði gera fjárfestar kröfu um hærri vexti. Skuldabréfin féllu í verði í kjölfar fundar )* )*      ' ' )* +*    ' ' ,-./- 0  1  ' ' 2345 ,6*   ' ' )* )*  ' ' ● STJÓRNVÖLD í Lettlandi reyna nú að semja á ný um þau skilyrði sem Alþjóða gjaldeyr- issjóðurinn (IMF) setur fyrir því að ríkið fái aðstoð frá sjóðnum, að sögn forsætisráðherra Lettlands, Valdis Dombrovskis. Sagðist hann vilja fá heimild til þess að nýta hluta af því fé sem er eyrna- merkt bönkum í rekstur hins op- inbera. IMF hefur krafist þess að Lettar skeri enn frekar niður í ríkisrekstri. Lettar leita samninga við IMF Valdis Dombrovskis ● ALLS skráðu 637 þúsund Bandaríkja- menn sig á atvinnuleysisskrá þar í landi í síðustu viku og er þetta meiri fjöldi en gert hafði verið ráð fyrir. Þykir þetta merki um að efnahagsástandið sé ekkert að batna þar í landi þrátt fyrir yf- irlýsingar ráðamanna um slíkt. Samkvæmt upplýsingum frá banda- rísku vinnumálastofunni voru nýskrán- ingarnar nú 32 þúsund fleiri en vikuna á undan er þær voru 605 þúsund talsins. Höfðu sérfræðingar spáð því að ný- skráningarnar yrðu 610 þúsund talsins í síðustu viku. Meðal hinna fjölmörgu sem skráðir voru á atvinnuleysisskrá í síðustu viku eru starfsmenn Chrysler bílaframleiðandans, sem kominn er í greiðslustöðvun. guna@mbl.is Enn eykst atvinnuleysi í Bandaríkjunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.