Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 20
Morgunblaðið/Árni Sæberg Jafnvægi „Þetta snýr að því hvernig við högum okkur sem ábyrgir borgarar í heimssamfélaginu,“ segja þær Hall- dóra Hreggviðsdóttir og Hulda Steingrímsdóttir hjá Alta, sem undirritaði Meginreglur Sameinuðu þjóðanna. Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is G eta fyrirtæki verið með samvisku? Er hægt að ætlast til af öðrum fyr- irtækjum en þeim op- inberu að taka ábyrgð á samfélaginu? Já, svara þær Halldóra Hreggviðsdóttir og Hulda Stein- grímsdóttir, hjá ráðgjafarfyrirtæk- inu Alta. Á dögunum skrifaði það undir Meginreglur Sameinuðu þjóð- anna (UN Global Compact) og lýsti þannig yfir að það ætlaði að axla ábyrgð. „Árið 1999 gerði Kofi Annan, þá- verandi aðalritari Sameinuðu þjóð- anna, sér grein fyrir að þjóðir næðu ekki markmiðum SÞ um sjálfbæra þróun nema í samvinnu við einkarek- in fyrirtæki,“ útskýrir Hulda. „Fyr- irtækin eru lykillinn að breytingum því þau stýra vöruframboði og hafa gífurleg áhrif í allri alheimsvæðing- unni. Hann kom þessu verkefni á þar sem fyrirtæki skuldbinda sig til að fylgja tíu grundvallaratriðum er varða mannréttindi, umhverfismál, vinnuvernd og spillingu. Árlega skila þau svo yfirliti um árangurinn.“ Þær segja það velta á hverju fyr- irtæki hvernig framkvæmd samn- ingsins er, enda snúi málið öðruvísi við t.d. stóru framleiðslufyrirtæki í Lettlandi en ráðgjafarfyrirtæki á Ís- landi. „Hjá okkur tengist þetta bæði innra starfinu og áherslum á sjálf- bærni í ráðgjöf til okkar við- skiptavina, stefnumörkun og öðrum verkefnum sem tengjast þessum málaflokki,“ segir Halldóra. Snýst um að hugsa til langs tíma Samningurinn lýtur þó að fleiru en umhverfismálum. „Sjálfbær þróun byggist á að jafnvægi sé milli efna- hags, samfélags og umhverfis,“ út- skýrir Hulda. „Fyrirtækin skuld- binda sig t.d. til að virða mannréttindi en það felur t.d. í sér að borguð séu lágmarkslaun, að aðbún- aður starfsmanna sé í lagi og fleira í þeim dúr. Þar er okkar fyrirtæki í góðum málum og ég hugsa að svo sé almennt hjá íslenskum fyrirtækjum. Raunar framleiða mörg íslensk fyr- irtæki erlendis og þá þarf að huga að því hvernig málum er háttað þar. Þetta snýr að því hvernig við högum okkur sem ábyrgir borgarar í heims- samfélaginu.“ Þær bæta því við að á Íslandi hafi samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja hingað til snúist að miklu leyti um að veita styrki til góðra málefna. „Svo kemur fjármálakreppan og þá vökn- um við upp við að við höfum hugsað aðeins of mikið í ársfjórðungum. Þetta snýst um að hugsa til langs tíma. Okkur er tamt að hugsa um okkur sem ábyrga einstaklinga og með þessu er það í rauninni yfirfært á fyrirtæki, en samfélagsleg ábyrgð snýst um að vera góður samfélags- þegn með langtímasýn og góð tengsl við sitt samfélag,“ segir Hulda. Auk Alta undirritaði Nýsköp- unarmiðstöð meginreglur SÞ nýlega en áður höfðu bæði Landsbankinn og Glitnir undirritað þær. Þær Halldóra og Hulda eru ekki í vafa um að skuld- bindingin gagnist fleirum. „Úti í hin- um stóra heimi eru stóru fyrirtækin, sem vilja sýna að þau vinni ábyrgt starf, þátttakendur í þessu pró- grammi, sem veitir aðgang að tengsl- aneti og frjóum hugmyndum,“ segir Halldóra. „Í þeim breytingum sem eru að verða á samfélaginu þurfum við að vita fyrir hvað við stöndum og hvert við viljum fara. Þá er þessi hugsunarháttur sjálfbærrar þróunar mikilvægur rammi.“ Þurfum að vita fyrir hvað við stöndum og hvert við stefnum Ýmis vandamál sem heimurinn glímir við á sviði umhverf- is- og mannréttindamála eru svo stór að þau virðast bæði illviðráðanleg og óyfirstíganleg. Lítið ráðgjafarfyrirtæki á Ís- landi ætlar þó að leggja sitt af mörkum til úrbóta. Svo kemur fjármálakrepp- an og þá vöknum við upp við að við höfum hugsað aðeins of mikið í ársfjórðungum. 20 Daglegt líf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 Eftir Björn Björnsson Sauðárkrókur | Skammt er stórra högga á milli í tónlistarlífi Skagfirð- inga því nú að nýlokinni Sæluviku, þar sem söng og tónlist var haldið hátt á lofti, verður óperan Rigoletto eftir G. Verdi færð á fjalirnar í Fé- lagsheimilinu Miðgarði hinn 21. maí nk. kl. 20.30 Það er Ópera Skagafjarðar sem stendur að uppfærslunni, sem er sambland af leik, söng og tónlist, en leikstjóri og sögumaður er hin góð- kunna leikkona Guðrún Ásmunds- dóttir, Aladar Rácz leikur undir en stjórnandi tónlistar og kórs er Pa- mela De Sensi. Ópera Skagafjarðar var stofnuð árið 2006 af Alexöndru Cherny- shovu og var fyrsta verkefnið La Traviata sem sýnd var víða um land við góðar undirtektir. Í Rigoletto syngur Alexandra hlutverk Gildu, en Þórhallur Barða- son er í hlutverki Rigolettos og Sig- urður Þengilsson er Duca. Önnur hlutverk eru í höndum Stefáns Arn- grímssonar, Jóhannesar Gíslasonar, Ásdísar Guðmundsdóttur, Þorsteins Bjarnasonar, Ivano Tasin, Sig- urdrífu Jónatansdóttur, Árna Gísla Brynleifssonar og Ólafar Ólafs- dóttur. Þá er með einsöngvörunum kór óperunnar. Að sögn Alexöndru Chernyshovu hefur verið nokkuð langur aðdrag- andi að þessari uppfærslu, en byrjað var á æfingum á síðastliðnum vetri, og á Sæluvikunni þá voru teknar upp nokkrar af perlum verksins og gefnar út á geisladiski, þar sem Keith Reed stjórnaði fjórtán manna kammersveit hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Íslands, er lék undir á diskinum. En síðan var þráðurinn tekinn upp að nýju nú í haust og segir Alexandra að svo hafi komið svolítið kreppufrí, en „í febr- úar vorum við ákveðin í að gera þetta og láta það ganga. Okkur langaði bara til að gera okkar eigin Rigoletto, við vorum komin svo langt. Fólkið var bara komið í kar- akterana sem það leikur, svo það var ekkert eftir nema að setja þetta á sviðið. Hún Guðrún Ásmunds- dóttir sér um leikstjórnina, en hún hefur gert þetta allt saman áður, svo að við erum ekki í neinum vand- ræðum. Svo erum við með frábæran pí- anóleikara, því að við höfum ekki efni á heilli hljómsveit, en það er hann Aladar Rácz og stjórnandi tón- listar og kórsins er ekki síðri, Pa- mela De Sensi. Þetta verður flottur okkar Rigoletto,“ sagði Alexandra brosandi um leið og hún dreif sig inn á æfingu sem var í fullum gangi. Nóg að gera Alexandra Chernyshova hefur ekki setið auðum höndum í vetur því auk óperunnar rekur hún Söng- skóla Alexöndru og í samvinnu við Tónlistarskóla Austur- og Vestur- Húnavatnssýslu stofnaði hún stúlknakórinn Draumaraddir norð- ursins og stjórnar honum en kórinn telur rúmlega fimmtíu stúlkur af svæðinu og voru um síðustu páska haldnir nokkrir tónleikar frá Hvammstanga til Sauðárkróks við frábærar undirtektir tónleikagesta. „Ætlum að láta þetta ganga“ Góð Rigoletto, Þórhallur Barðason og Gilda, Alexandra Chernyshova. Óperan Rigoletto sett á svið í Skagafirði Halldóra og Hulda segja því fara fjarri að fyrirtæki og stofnanir hafi ekki efni á umhverfisáherslum, nú þegar skórinn kreppir. „Þetta snýst um að fara vel með auðlindir og nýta þau tækifæri sem við öll stöndum frammi fyrir í dag,“ segir Hulda. „Við þurfum að byggja upp trúverðugleika og traust á ný og þessar meginreglur eru tæki til þess.“ Halldóra er þessu sammála og segir ríða á að finna hvar tækifærin og vaxtarsprotarnir liggja. „Þetta snýst um hugsunarhátt sem breyttir tímar knýja okkur til að taka alvarlega. Það má búast við að þeim þjóðum vegni betur sem kunna að nýta sér hann og gera það snemma og af fullri al- vöru. Nú er einstakt tækifæri fyrir Ísland að skapa sér sérstöðu á sviði sjálfbærrar þróunar. Þar vinnur stærð okkar samfélags, samfélagsgerð og eðli með okkur. Vaxtarsprotarnir eru í nýsköpun sem nýtir hreina orku og þróun á vörum sem því tengjast. Og við höfum allt sem þarf, þ.e. umhverfið, hreina orku, auðlindir og mannauð. Við þurfum bara að vera svo- lítið voguð í hugsun. Af hverju fáum við t.d. ekki bílafyrirtæki til að nota Ísland sem reynsluland fyrir þróun rafmagnsbíla? Það gæti gerst býsna hratt.“ Þær benda á íslensk fyrirtæki sem blómstri nú í kreppunni sem hafi einmitt nýtt sér auknar umhverfiskröfur. Dæmi um þetta er Marorka sem fékk umhverf- isverðlaun Norðurlandaráðs í fyrra og gekk í vikunni frá sínum langstærsta samningi til þessa, við norska fyrirtækið Kongsberg um sölu á orkustjórn- unarkerfi fyrir skip. Ferðaþjónustan er annað dæmi. „Það eru mikil sóknarfæri í sjálfbærri ferða- þjónustu. Við höfum þessa frábæru þjóðgarða og þurfum aðeins að styrkja innviði þeirra og gera þá aðgengilegri fyrir ferðamenn. Þeir geta gegnt lyk- ilhlutverki í öflugri atvinnuuppbyggingu tengdri landbúnaði og þjónustu í héraði, sérstaklega þar sem uppbyggingin er samvinnuverkefni íbúa, nátt- úruverndaraðila og annarra hagsmunaaðila. Af hverju horfum við ekki á stórfyrirtækið „Þjóðgarð“ með öllu því góða sem því fylgir? “ Tækifæri til sóknar í kreppunni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.