Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 Óskar Magnússon. Ólafur Þ. Stephensen. Útgefandi: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Það erkannskiekki að furða að ríkis- stjórnin skyldi bíða með að birta opinberlega drög sín að þingsályktunartillögu um umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu. Text- inn sýnir svo augljóslega fram á vandræðaganginn á milli flokkanna í þessu stóra og afdrifaríka máli. Í tillögunni er engan rök- stuðning að finna fyrir því hvers vegna Ísland ætti að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu. Einu rökin, sem eru færð fram, eru þessi: „Tillaga um aðildarumsókn til ESB er lögð fram til þess að íslenska þjóðin fái tæki- færi til að hafna eða sam- þykkja samning um aðild að Evrópusambandinu þegar hann liggur fyrir.“ Vissulega er mikilvægt að þjóðin fái að taka afstöðu til aðildarsamnings. En mörg skýr rök eru fyrir því að sækja um aðild að Evrópu- sambandinu. Og slík rök hljóta að vera undirstaða þess umboðs, sem rík- isstjórnin og samningamenn hennar fá frá Alþingi til að semja við Evrópusambandið um aðild. Sá, sem sækir um aðild og virðist ekki hafa hugmynd um til hvers, mun ekki ná góðum árangri í samningaviðræð- unum. Í greinargerð- inni með drög- unum að þings- ályktunartillögu eru ýmsir skyn- samlegir punktar. Áherzlan á víðtækt samráð við hags- munaaðila er jákvæð, sömu- leiðis fyrirheit um opið og gegnsætt ferli og greiða miðlun upplýsinga um aðild- arviðræðurnar til almenn- ings. Upptalning í greinargerð- inni á grundvallarhags- munum, sem ríkisstjórnin telur að þurfi að gæta í samningaviðræðunum, er fremur almennt orðuð. Slíkt er ekki óskynsamlegt út frá því að skapa svigrúm í aðild- arviðræðum til að ná samn- ingum. Hins vegar má telja víst að stjórnarandstaðan, sem nú á í viðræðum við Öss- ur Skarphéðinsson utanrík- isráðherra um texta þings- ályktunartillögunnar, muni vilja hafa áhrif á þetta orða- lag. Stjórnarandstaðan getur hins vegar tæplega hjálpað ríkisstjórninni að koma sam- an rökstuðningi fyrir því hvers vegna eigi að senda Evrópusambandinu aðild- arumsókn. Þar verða stjórn- arflokkarnir einfaldlega sjálfir að komast að nið- urstöðu. Rökin skortir ekki. Stjórnarandstaðan getur ekki hjálpað stjórninni að koma saman rökstuðningi} Rökin skortir ekki Svo virðist semmörgum vaxi í augum að losa sig við rusl á þar til gerðum stöðum. Sjaldnast er þó langt að fara; móttaka á sorpi og endur- vinnslustöðvar eru til dæmis víða á höfuðborgarsvæðinu. Þrátt fyrir þetta kjósa ein- hverjir að kasta rusli á víða- vangi. Í Morgunblaðinu í gær var skýrt frá því að í Úlfars- árdal í Reykjavík hefðu ein- hverjir kastað steypustyrktarjárnum, göml- um vörubrettum, ónýtu sem- enti og alls konar rusli. Þeir hafa varla leitt hugann að samborgurum sínum sem þurfa að líða fyrir sóðaskap- inn. Og munu að líkindum greiða fyrir hreinsunina. Því miður er umgengnin í Úlfarsárdal ekkert einsdæmi. Allt of margir virðast ekki víla fyrir sér að kasta rusli bak við næsta hól eða ofan í gjótu eins og hraunið nálægt Hafnarfirði ber vitni um. Fréttin af sóðaskapnum leiðir hins vegar hugann að því að oft getur al- menningur lagt mikið af mörkum til að halda um- hverfi sínu snyrti- legu. Núna, þegar niður- skurður blasir við hjá ríki og sveitarfélögunum, ættu menn að sameinast um að þrífa garða og götur. Reykjavíkur- borg hætti að safna saman garðútgangi þetta vorið og þá fyndu margir ágæt not fyrir jeppana og kerrurnar sem er að finna við annað hvert hús. Nágrannar geta sameinast á hreinsunardögum þar sem öllu lausu rusli er safnað sam- an og því komið á haugana. Slíkir tiltektardagar efla samheldni fólks og ekki veitir af þegar þjóðin stendur frammi fyrir erfiðri tiltekt í ríkisbúskapnum. Og einn handlaginn nágranni getur hæglega aðstoðað annan við smærri verk sem launar fyrir sig með einhverju öðru við- viki. Samheldni þarf ekki að kosta neitt. En hún skilar miklu. Samheldni fólks skilar miklu}Sameinumst um verkin Í allan vetur hefur verið rætt um að kreppa sé góð fyrir listina, að í kreppu hætti listin að snúast um að súpa af þurru hvítvíni innan um blaz- erklædda plebba og horfa á tilgangs- lausar og leiðinlegar vídeóinnsetningar. Ég skal ekkert segja um hvort góðæri geri list lé- lega eða ómerkilega. Hins vegar þori ég að fullyrða að í góðæri verður listin leiðinlegri og skelfilegri. Það er eins og í listinni brjótist út það sem vantar upp á í samfélagið. Á tímum góðæris þegar fólk situr við gnægtaborð áhyggjuleysis er listin fábreytt og grimm. Listaverkasalir hafa undanfarin ár verið hálf- tómir þó að sýning standi yfir. Salirnir hafa bæði verið tómir af fólki og einnig tómir af list. Verkin hafa kannski samanstaðið af nokkrum vörubrett- um og múrsteinum í einu horninu auk skjás sem sýnir myndband af slátrun lamadýrs. Burtséð frá mikilvægi slíkra verka eru þau umfram allt leiðinleg. Þetta sjón- armið á eftir atvikum einnig við um tónlist og leiklist. Listamenn fengu því miður það óvinsæla hlutskipti í góð- ærinu að halda samfélaginu hæfilega leiðinlegu. Grínið og gleðin fór að mestu fram annars staðar. Í þessu sam- hengi er nánast óþarft að taka fram að kaldhæðið og stíl- iserað listagrín telst ekki gleði. En nú hvet ég listamenn til að vakna af martröð sinni. Snaran er ekki lengur um háls ykkar. Samfélagið sjálft er orðið alvarlegt. Fjölmiðlar eru nú fullir af svínalvar- legum og grimmum staðreyndum um hinn efnislega heim í kringum okkur. Nú er kom- inn tími fyrir ykkur að stabílisera þjóðfélagið frá hinum vængnum. Nú er runnin upp sú stund þar sem ykkur listamönnum er ætlað það hlutverk að minna okkur á gleðina í lífinu því ef þið gerið það ekki þá gerir það enginn. Samfélagið þarf ekki lengur að láta minna sig á hversu grimmt og innihaldslaust það er. Fjölmiðlar sjá nú um það. Nú þurfið þið að sýna okkur að þvert á móti sé heimurinn full- ur af hjartagæsku, gleði og mýkt. Og þessi gleði má hvorki vera útpæld né liður í neins- konar listrænni yfirlýsingu. Hún þarf að vera sjálfsprottin og fölskvalaus. Sjálfur var ég reyndar svo heppinn að verða vitni að listviðburði um síðustu helgi sem miðlaði ósvikinni sjálfsprottinni gleði. Þar var á ferð hljómsveitin „Fallegir menn“ sem var að halda sína fyrstu tónleika og fóru þeir fram á skemmtistaðnum Karamba á Lauga- vegi. Dagskrá þeirra var skemmtileg, létt og áreynslu- laus en hafði samt í samhengi hlutanna einhverja óræða vigt. Þeir tóku sig ekki mjög alvarlega en voru þrátt fyrir það yfirvegaðir og sannir. Flutningur þeirra einkenndist af hnitmiðuðu kæruleysi, eins þversagnarkennt og það hljómar. Að eigin sögn var hljómsveitin stofnuð aðeins sjö dögum fyrr. Nú er hún loksins að spretta fram. Innan um sóleyjarnar. Hin sjálfsprottna gleði. bergur.ebbi.benediktsson@gmail.com Bergur Ebbi Pistill Sjálfsprottin gleði Tillaga að fyrstu aðildarskrefunum Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is A lþingi samþykkir að rík- isstjórnin leggi inn um- sókn um aðild að Evrópu- sambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning,“ segir í tillögu stjórnarflokkanna um aðildarumsókn að sambandinu sem rædd var á fundum með fulltrúum stjórnarandstöðuflokkanna í gær. Fyrirvari er settur að umsókninni, enda sé það „íslensku þjóðarinnar að komast að endanlegri niðurstöðu í málinu“. Þá eru grundvallarhags- munir Íslendinga í málinu ítrekaðir, nefnilega að tryggja forræði þjóð- arinnar yfir fiskveiðiauðlindinni og vatns- og orkuauðlindum. Að sama skapi verði öflugur íslenskur land- búnaður tryggður á grundvelli fæðu- og matvælaöryggis, réttur til að stýra almannaþjónustu á félagslegum for- sendum tryggður og vörður staðinn um réttindi launafólks. Flokkarnir ekki sammála Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir skorta að rökstutt sé hvers vegna sækja beri um aðild. „Það er venjan þegar lögð er fram þingsályktunartillaga eða laga- frumvarp að færð séu rök fyrir því hvers vegna rétt sé að samþykkja það. Í þessu stóra máli er lítið gert af því að færa rök fyrir því hvers vegna eigi að sækja um. Tillagan ber þess mjög merki að þetta sé sett fram af flokkum sem ekki eru sammála.“ Tillagan sé að hans mati efnislega stutt og uppfylli þar með ekki skilyrði sem samþykkt voru á flokksþingi Framsóknarflokksins. Spurður hvort of snemmt sé að leggja tillöguna fyrir stjórnarand- stöðuna svarar Sigmundur: „Það er ekki of snemmt ef þetta er það sem þeir eru að hugsa en ef þetta á að vera niðurstaðan finnst mér vanta ým- islegt upp á.“ Uppfyllir ályktun framsóknar Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra vísar þessu á bug. „Ég tel að í þessari tillögu komi al- gjörlega skýrt fram sú afstaða að það beri að sækja um aðild að ESB. Það liggur í hlutarins eðli vegna þess að menn telja að eftir töluverðu sé að slægjast. Á hinn bóginn þá er alveg ljóst að það eru ákveðnir íslenskir hagsmunir sem þarf að verja [...] Niðurstaða mín í lok dags er sú að það ber lítið í milli þeirrar samþykktar sem landsfundur Framsóknarflokks- ins samþykkti á sínum tíma og þess- arar tillögu eins og hún er fram sett og efnis greinargerðarinnar. Alveg ljóst er hins vegar að það er stærri vík á milli tillögudraganna og afstöðu Sjálfstæðisflokks.“ Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur látið þá skoðun í ljós að þar sem ekki sé til staðar nægjanlega traust sam- komulag á milli stjórnarflokkanna um ESB-málið sé ekki komið að þeim tímapunkti að hefja samráð við stjórnarandstöðuna, sjónarmið sem Þór Saari, þingmaður Borgara- hreyfingarinnar, kveðst andvígur, með þeim orðum að stjórnarflokkar þurfi ekki að alltaf að vera sammála. „Þetta er ekki þessi hefðbundna leið að leggja ekki mál fyrir þingið nema að það sé búið að geirnegla það af hálfu framkvæmdavaldsins að það verði samþykkt. Þannig að þarna er verið að færa stjórnkerfið að ein- hverju leyti í átt til þingræðisins.“ Morgunblaðið/Golli Evrópumálið Formenn flokkanna ræða þingsályktunartillöguna á Alþingi í fyrradag. Formaður Framsóknar telur rökstuðning fyrir aðildinni skorta. Stjórnarflokkarnir hafa lagt fram drög að þingsályktunartillögu um aðildarumsókn að Evrópu- sambandinu. Utanríkisráðherra hafnar þeirri gagnrýni að rök- stuðning fyrir aðild skorti. Í TILLÖGUNNI kemur fram að fagleg viðræðunefnd við ESB verði skipuð af ríkisstjórn Íslands. Henni til fulltingis verði „breiður samráðshópur fulltrúa hags- munaaðila sem nefndin leitar ráð- gjafar hjá, og upplýsir jafnóðum um framvindu viðræðna“. „Ísland sem Evrópuþjóð vill leggja sitt af mörkum við uppbygg- ingu lýðræðislegrar Evrópu sem grundvallast á félagslegu réttlæti, jafnrétti og virðingu fyrir mann- gildi og umhverfi. Hlutverk Evrópu er að vera hornsteinn mannréttinda í heiminum og ýta undir stöðug- leika, sjálfbæra þróun, réttlæti og velmegun um allan heim. Stjórnvöld áskilja sér rétt til að mæla með eða leggjast gegn samn- ingnum þegar hann liggur fyrir enda eru settir margvíslegir fyrir- varar við hugsanlegan stuðning við málið,“ segir í tillögunni. RÉTTUR TIL AÐ HAFNA ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.