Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 24

Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 24
24 Umræðan BRÉF TIL BLAÐSINS MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 AF HVERJU ekki? Af hverju ættum við ekki að geta gert hlut- ina öðruvísi? Þessum spurningum varpaði Sigurður Guðmunds- son, forseti heilbrigð- isvísindasviðs Háskóla Íslands, fram við lok opins vinnudags sem heilbrigðisráðherra, í samstarfi við fag- og stéttarfélög, efndi til hinn 7. apríl sl. Líflegar umræður spunnust um þær áskoranir sem heilbrigðisþjón- ustan stendur frammi fyrir á tímum efnahagsþrenginga og tekið var á ólíkum hliðum í fjórum málstofum þar sem var rætt um forgangsröðun í heilbrigðiskerfinu, samráð við ákvarðanatöku, samspil hins and- lega og hins líkamlega og um heil- brigðisþjónustu á krepputímum. Í kringum 150 manns lánuðu vinnudeginum krafta sína og hug- myndaflug og úr varð mikill hug- myndabanki sem nýtist til áfram- haldandi vinnu. Meðal þess sem lagt var til var að efla grunnþjón- ustu til muna; auka heimahjúkrun og heimaþjónustu; sameina heil- brigðisráðuneytið og félags- og tryggingamálaráðuneytið til að tryggja sem besta og skilvirkasta þjónustu; innleiða rafræna sjúkra- skrá til að auðvelda alla vinnu og spara fé; endurskoða launakerfi heilbrigðisstarfsfólks og efla samráð við allar ákvarðanir. Skemmtilegast við vinnudaginn var að kalla saman fólk frá ólíkum stofnunum og í ólíkum stöðum inn- an heilbrigðisþjónust- unnar og fá það til að móta tillögur í samein- ingu. Stundum virðast nefnilega múrar milli stétta innan heilbrigð- isþjónustunnar vera háir og einn mál- stofuhópanna lagði t.a.m. áherslu á að rífa þyrfti þessa múra nið- ur. Á vinnudeginum var hins vegar ekki hægt að merkja hópaskiptingu heldur var samhugur í fólki um að takast á við breyttan veruleika með hag heilbrigðisþjónustunnar – og þannig allra íbúa Íslands – að leið- arljósi. Þá kom skýrt fram að samráð væri mjög kærkomið en mörgum þótti tíminn á vinnudeginum knapp- ur. Það er því ljóst að heilbrigð- isstarfsfólk er fúst til að leggja sín lóð á vogarskálarnar í þeim erfiðu verkefnum sem framundan eru. Gerum þetta saman. Af hverju ekki? Eftir Höllu Gunnarsdóttur Halla Gunnarsdóttir » Það er því ljóst að heilbrigðisstarfsfólk er fúst til að leggja sín lóð á vogarskálarnar í þeim erfiðu verkefnum sem framundan eru. Höfundur er aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra. Af hverju ekki? NÚ HEFUR Borg- arbyggð ásamt Hval- fjarðarsveit ákveðið að hætta samstarfi við strætó vegna ferða frá Borgarnesi til Reykja- víkur. Þetta samstarf hefur verið í gangi frá síðustu áramótum þannig að afar lítil reynsla er í raun komin á það. Í byrjun gekk á ýmsu í áætluninni og má með sanni segja að sú upplifun hafi fælt nokkra notendur frá því að nota þessar ferð- ir. Strax í byrjun var farið í nokkra kynningarherferð á þessum ferðum – á áætlun og helstu kostum þess að ferðast með almenningsvögnum vs. að nota einkabílinn. Síðan þá hefur ekkert verið gert til að auglýsa þess- ar ferðir og þá sérstaklega ekki eftir byrjunarörðugleikana sem urðu til þess að margir eru enn í dag ekki vissir um að þetta gangi upp. Mig langar hér í nokkrum orðum að lýsa minni upplifun af því að ferðast með strætó frá Borgarnesi til Reykjavíkur. Ég hóf störf hjá lyfja- fyrirtæki í Reykjavík í apríl sl. og þar sem fjölskyldan býr á Bifröst þurfti ég að athuga hvernig hagkvæmast væri fyrir mig fjárhagslega að kom- ast til vinnu í Reykjavík. Fjölskyldan settist yfir þetta og athugaði hvort nota skyldi fjölskyldubílinn eða nýta sér almenningsvagnakerfi sem í boði var. Síðan var reiknað – bensín, dekk, tryggingar, bifreiðagjöld, göngin, olía á vélina og bensínkostnaður. Reikn- aðist okkur til að mánaðarlegur kostnaður væri í kringum 50 þúsund krónur eða 2.500 kr. á dag að keyra þessa 240 km á hverjum degi á fjölskyldubifreiðinni. Eftir þennan reikning var farið í að athuga hver væri kostnaður við að ferðast með almenn- ingsvögnum. Þriggja mánaða kort kostar með strætó 50.800 þannig að mánaðarlegur kostn- aður er um 17 þúsund krónur eða 830 krónur á dag. Með því að kaupa níu mánaða kort er hægt að ná kostn- aðinum niður í 646 krónur á dag. Það var engin spurning fyrir mig fjár- hagslega að nota almenningsvagna þannig að 1. apríl byrjaði ég að ferðast þessa leið með strætó og sé ekki eftir því vali. Það er afar þægi- legt að ferðast þessa leið með al- menningsvögnum. Vel er tekið á móti ferðalöngum með Fréttablaðinu í sætinu. Á leiðinni er gluggað í blaðið ásamt því að ræða landsins gagn og nauðsynjar við samferðalanga. Áður en maður veit af er vagninn kominn til Mosfellsbæjar og þar bíður annar vagn eftir okkur. Síðan tekur við stuttur akstur og göngutúr í vinnuna og svo er kaffi í hendi á skrifstofunni eftir skemmtilega ferð í vinnuna. Þykir mér afar leiðinlegt að þessar ferðir leggjast nú niður. Fjölskyldan verður nú að huga að brottflutningi úr Borgarbyggð þar sem ekki gengur upp fyrir okkur fjárhagslega að borga hæstu skólagjöldin á landinu, eina hæstu leiguna á landinu og svo að einn fjölskyldumeðlimur þurfi að keyra með tilheyrandi kostnaði á einkabílnum til Reykjavíkur til að sækja vinnu. Ég hef virkilega notið þess að ferðast þessa leið tvisvar á dag og ekki skemmir fyrir að veski fjölskyldunnar hefur tekið þátt í fögnuðinum. Það er von mín að Borg- arbyggð og Hvalfjarðarsveit taki sig nú saman og rífi þetta upp í staðinn fyrir að hætta þessu alveg. Mark- aðurinn er í raun stærri fyrir þetta en notkunin sýnir í dag. Ekki er til dæmis verið að reyna að ná til þeirra sem keyra daglega frá Reykjavík til Bifrastar, bæði nemendur og kenn- arar, ekki er verið að reyna að semja við álverið um að taka starfsmenn þeirra með í ferðirnar, ekki er verið að reyna að ná til þess hóps ein- staklinga er gafst upp á þessum ferð- um í upphafi vegna erfiðleika er voru þá í áætlun og svo mætti áfram telja. Það þarf að huga vel að því nú á þessum tímum að fólk sækir vinnu þar sem hún býðst. Ætlar sveitarfé- lag eins og Borgarbyggð að missa frá sér íbúa vegna þess að það sér eftir þeim kostnaði sem fellur til vegna al- menningssamgangna? Ég bið sveit- arstjórnarmenn í Borgarbyggð og Hvalfjarðarsveit að hugsa dæmið upp á nýtt og hvernig hægt sé að fjölga farþegum í þessum ferðum í staðinn fyrir að slá þær alveg út af borðinu án þess að láta reyna til fulln- ustu á það hvort dæmið gengur upp eður ei. Almenningssamgöngur – Borgarnes-Reykjavík Eftir Inga Þór Ágústsson Ingi Þór Ágústsson »Upplifun og reynsla farþega strætó á milli Borgarness og Reykjavíkur sem nú á, því miður, að leggja af í núverandi mynd. Höfundur er sölu- og markaðsfulltrúi Icepharma. ÞAÐ ER eins með fiskveiðikvót- ann og margt annað í þessu trufl- aða þjóðfélagi.Stór gjaldþrot út- rásarvíkinga og bankahrun sem skilur eftir sig þjóð í nauðum sem rambar á barmi gjaldþrots, ým- islegt er skrafað og skrifað en al- menningur hefur litla hugmynd hvað er satt og hvað er logið, eða allt að því, þ.e.a.s. sannleikanum er hagrætt. Þegar kvótakerfið var sett á fyrir u.þ.b. tuttugu árum, átti það að bjarga sjávarútveginum og vernda fiskistofnanna. Þegar svo nokkrum árum síðar var heimilað frjálst framsal á kvótanum, þeim aðilum sem fengið höfðu hann að láni frá ríkinu, upphófst eitt mesta spillingardæmi sem riðið hefur yf- ir þessa þjóð. Flestir þeirra sem fengu kvótann upphaflega án kvaða frá ríkinu hafa nú selt hann og margir hafa leigt hann árum saman og fengið miklar fjárhæðir fyrir það. Sumir vilja segja að þetta sé eitt mesta hneyksli sem þjóðin hefur upplifað og aðrir hafa kallað þetta stærsta þjófnað í sögu landsins. Eitt er víst að það eitt að afhenda örfáum aðilum einka- rétt á að nýta mestu auðlind þjóð- arinnar og nýta sér hana til fjár- hagslegs ávinnings er hneykslanlegt athæfi og megi þeir stjórnmálamenn sem að þessu stóðu hafa skömm fyrir svo lengi sem þeirra verður minnst í sög- unni. Nú er sagt, gott væri að fá það staðfest, að um 80-90 prósent þeirra sem fengu kvótann í upp- hafi hafi selt hann fyrir morð fjár og þeir peningar hafi verið notaðir í aðrar atvinnugreinar, aðallega viðskipti af ýmsu tagi og fjárfest- ingar. Meðal annars var þetta fé notað til að kaupa hluti í bönkum og útrásarfyrirtækjum og er því væntanlega sumt af því varanlega glatað. Þetta þýðir að um 90% þeirra sem nú stunda sjávar- útveg hafi þurft að greiða háar fjárupphæðir til hinna upp- haflegu kvóta- hafa fyrir veiði- heimildirnar. Það gefur því auga leið að sú hugmynd stjórn- arflokkanna um breytingar á kerf- inu sem kölluð hefur verið fyrn- ingarleið getur einfaldlega ekki gengið upp sem sanngjörn lausn, nema fyrir þá sem enn eru eftir af þeim sem fengu kvótann upp- haflega á silfurfati frá stjórnvöld- um. Um aðra aðila er ekki hægt að hafa neina einfalda lausn. Þar verður sanngirni að ráða og hvert fyrirtæki þarf e.t.v. að fá sína sér- stöku lausn á vandanum. Þetta skírir að einhverju leyti þær mót- bárur sem borist hafa ríkistjórn- inni frá m.a. ýmsum sveit- arfélögum og fjölda útgerðarfyrirtækja. Ég er eindreginn andstæðingur kvótakerfisins og hef alltaf verið. En ég er samt talsmaður þess að varlega verði farið í að koma með lausnir á afnámi kvótakerfisins sem geti bitnað illilega á mörgum fyrirtækjum og sveitarfélögum. En það er samt sem áður brýn nauðsyn, m.a. af mannréttinda- ástæðum, að leysa þetta mál á sanngjarnan hátt. Síðan mætti spyrja: hvers vegna eru fyrirtæki sem hafa einokað þennan atvinnu- veg í tuttugu ár svo illa stödd að þau telja sig fara á hausinn ef hróflað verður við kvótakerfinu. Er ekki eitthvað bogið við það? Spyr sá sem ekki veit. HERMANN ÞÓRÐARSON, fyrrverandi flugumferðarstjóri. Karpað um kvótann – Hvað er satt? – Hverju er logið? Frá Hermanni Þórðarsyni Hermann Þórðarson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.