Morgunblaðið - 15.05.2009, Síða 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
✝ Þyri Sigfríður Ey-dal fæddist á Ak-
ureyri 5. nóvember
1917. Hún lést á
Sjúkrahúsi Akureyr-
ar 8. maí sl. eftir
stutta legu. Hún var
næstyngsta barn
hjónanna Guðfinnu
Eydal, f. 1881, d.
1956, og Ingimars
Eydal ritstjóra, f.
1873, d. 1959.
Eldri systkini henn-
ar voru Hörður Ólaf-
ur, f. 1909, d. 1976,
Margrét Hlíf, f. 1910, d. 1977,
Brynjar Víkingur, f. 1912, d. 1995,
yngri bróðir Gunnar Birgir, f.
1925.
Árið 1942 giftist Þyri Birni
Bessasyni endurskoðanda, f. 1916,
d. 1979. Dætur þeirra eru: a) El-
ínborg, f. 1943, gift Lars Erik
Schilling, f. 1941,
dóttir þeirra er Anna
María Schilling, f.
1979. Þau eru búsett í
Svíþjóð. b) Þyri Guð-
björg Björnsdóttir, f.
1954, búsett á Ak-
ureyri.
Að loknu gagn-
fræða- og tónlist-
arnámi á Akureyri
nam hún píanóleik
við Tónlistarskólann í
Reykjavík og útskrif-
aðist þaðan 1938.
Jafnframt tónlist-
arnámi lærði hún hatta- og skerma-
saum. Hún starfaði við tónlist og
tónlistarkennslu á Akureyri allt til
ársins 1993. Þyri bjó allan sinn ald-
ur utan námsáranna á Akureyri.
Útför Þyriar fer fram frá Ak-
ureyrarkirkju í dag, 15. maí, kl.
13.30.
Hinn 8. maí síðastliðinn lést
elskuleg frænka okkar, Þyri Eydal.
Hún var afasystir okkar en í fjöl-
skyldu okkar voru fjölskylduböndin
þéttofin og ólumst við upp í miklum
samgangi við Þyri og fjölskylduna á
Gilsbakkavegi 7 á Akureyri. Þyri
var pabba okkar, Ingimar, sérstak-
lega kær en hún kenndi honum að
spila á píanó frá unga aldri og áttu
þau sameiginlega endalausa elsku
til tónlistar og gátu rætt ýmsar
hliðar hennar við öll tækifæri. Það
voru því ófáar ferðirnar þar sem
„rennt var á Gillann“, þáður kaffi-
sopi og málin rædd. Síðar naut
Guðný elsta systir okkar þess að
læra einnig á píanóið hjá Þyri og
minnist hún þeirra samverustunda
með miklu þakklæti.
Okkur systkinum var alltaf vel
tekið hjá Þyri, hún sýndi okkur
virðingu eins og við værum fullorð-
in og við bárum sömuleiðis fyrir
henni mikla virðingu. Með henni
hverfur enn einn fasti punkturinn
úr barnæsku okkar systkinanna.
Þyri var virðuleg kona í fasi og bar
ógjarna tilfinningar sínar á torg en
hún var staðföst í umhyggju sinni
og væntumþykju við fjölskylduna
og nutum við systkinin þess ríku-
lega.
Frá því að við munum eftir okkur
og fram á fullorðinsár var það siður
að öll fjölskyldan hittist á aðfanga-
dagskvöld í Gilsbakkavegi eftir að
allir höfðu átt sínar stundir heima
við mat og gjafir. Það var því langt
liðið á kvöldið þegar við söfnuðumst
saman hjá Þyri sem alltaf beið með
hlaðið veisluborð af kökum og góð-
gæti. Oft hlýtur hún að hafa verið
orðin þreytt þegar leið á nóttina
með fullt hús af fullorðnum og
börnum, en þegar við dönsuðum í
kringum jólatréð sat hún gjarna í
stól og fylgdist með, síður en svo
þreytuleg, bara ánægð með jóla-
hópinn sinn. Þessi aðfangadags-
kvöld hafa á sér ævintýrablæ í
minningunni, og ekki síður allar
ferðirnar í Vaglaskóg, lautartúrar
og berjaferðir.
Þyri hafði yfir sér reisn og hún
hélt sínu sjálfstæði og andlega at-
gervi allt til loka. Bílnum ákvað hún
að leggja fyrir 90 ára afmælið. Hún
fylgdist með okkur öllum og var
alltaf jafngaman að heimsækja
hana enda hafði hún skarpa kímni-
gáfu, stórkostlega frásagnarhæfi-
leika og vakandi áhuga á mönnum
og málefnum.
Með þessum fáu orðum þökkum
við systkinin Þyri frænku sam-
fylgdina í lífi okkar og kærleikann
sem hún sýndi okkur og fjölskyld-
um okkar. Við vottum dætrum
hennar Ellu og Þyri Guðbjörgu,
tengdasyninum Lars, dótturdóttur
Önnu Maríu og Lilla frænda, bróð-
ur Þyriar, okkar innilegustu sam-
úð.
Inga, Guðný,
Ingimar og Ásdís Eydal.
Það er skrítið að Þyri sé dáin.
Þótt hún væri orðin öldruð fannst
manni alltaf að Þyri væri ung og
nánast ódauðleg. Hún var ung í
anda, bar sig tignarlega og vits-
munirnir voru eins best varð á kos-
ið, greindin leiftrandi og húmorinn
aldrei langt undan. Þegar Þyri og
Brynjar faðir minn ræddu eitt sinn
um dauðsföll, vitnaði pabbi sposkur
á svip sem oftar í Jónas frá Guðrún-
arstöðum sem sagði: „Af hverju
getur ekki alltaf verið sama fólkið?“
Þyri hló við og sagði: „Já, en ég
held nú að það vildum við ekki, ég
og þú“. Eftir nokkra umræðu um
örvasa gamalmenni með heim-
spekilegu ívafi varð niðurstaða
systkinanna sú að það væri best að
fá að fara áður en maður yrði sjálf-
um sér og öðrum til of mikils ama.
Jónasarheimspekin var slegin af.
Þyri naut þeirrar gæfu að búa
alltaf heima, sjá um sig sjálf og
deyja ekki úr öðru en því að nóg var
komið af lífi. Hún var sterkur per-
sónuleiki, raunsæ, jarðbundin og
afar stolt. Hún var örugglega mikil
fyrirmynd okkur konunum í fjöl-
skyldunni og hefur allaf komið upp
í hugann þegar mótun í fjölskyld-
unni hefur verið rædd. Allir í fjöl-
skyldunni báru virðingu fyrir Þyri.
Hún kom þannig fram að ekki var
annað hægt en dást að henni. Þyri
sem var píanókennari, var mjög
sjálfstæð persóna, hafði sterkar
skoðanir, var full af réttlætiskennd
og hún var hreinskiptin, orðaði
hlutina beint og skýrt en var aldrei
ágeng. Þyri var lokaður persónu-
leiki og hún flíkaði ekki eigin til-
finningum. Hún talaði ekki um
sjálfa sig, var fjarri því að vera
sjálflæg, en spurði gjarnan um líð-
an annarra. Þegar á bjátaði, erf-
iðleikar eða áföll dundu yfir, tók
Þyri hlutunum með ró. Hún sætti
sig við hlutina eins og þeir voru.
Hún náði örugglega oft hugarfars-
legri sátt við sjálfa sig þegar vandi
steðjaði að og ígrundaði málin af
raunsæi. Þetta var sterk kona sem
vissi að sumu yrði ekki breytt, lífið
væri ekki alltaf sanngjarnt, það
yrði að sætta sig við. Þetta var oft
innihaldið í umræðum okkar, og ég
sakna þess mikið að fá ekki lengur
að heyra sjónarmið hennar.
Öll æska mín er tengd Þyri og
Gilsbakkaveginum. Allt frá því að
ég setti rúllur í Þyri og Hlíbbu frá
unga aldri eru aðfangadagskvöld
og samverustundirnar í Vaglaskógi
einna minnisstæðastar. Eydalsfjöl-
skyldan söng, spilaði og dansaði
kringum jólatréð á aðfangadags-
kvöld og borðaði kökukræsingarn-
ar af ótal sortum. Alltaf var hlegið
þegar þéttholda Hlíbba og Ingimar
sögðu við þetta tilefni: „Mikil bölv-
uð vitleysa er að borða svona,“ og
fengu sér svo eina eða fleiri sneiðar
í viðbót. Vaglaskógaferðirnar voru
Spánarferðir þessa tíma, og í minn-
ingunni voru þær betri en nokkrar
utanlandsferðir. Tilhlökkunin og
væntingarnar voru alltaf uppfyllt-
ar. Fólkið naut þess mikið að vera
saman. Það verður tómlegra að
heimsækja Akureyri eftir að Þyri
er farin og veit ég að margir sakna
þess að eiga hana ekki lengur að.
Hún var eins konar ættarmóðir.
Ella og Þyri Guðbjörg fá innilegar
samúðarkveðjur frá fjölskyldunni í
Garðastræti 25.
Guðfinna Eydal.
Þyri Eydal var einhver kímnasta
kona sem ég hefi kynnst.
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi
að starfa með Þyri Eydal við Tón-
listarskólann á Akureyri um tutt-
ugu ára skeið. Hún miðlaði gleði og
jákvæðu viðmóti til okkar sam-
starfsfólks síns og nemenda sinna
daglega og gerði það svo vel að
margoft urðu dökkir skýjabakkar í
sálinni að glóandi björtu glitskýi í
hennar návist. Farsæll píanó-
kennsluferill Þyriar í Tónlistarskól-
anum á Akureyri náði yfir nærri
fimmtíu ára tímabil og ég varð aldr-
ei var við annað en jákvæður lífs-
andi hennar væri síungur. Ég veit
að hennar ljúfa skaphöfn hefur orð-
ið mörgum nemendum mikilvæg
hvatning til að finna hinn glaða tón
í hljómlistinni.
Mér er tíðrætt um Þyri sem
gleðigjafa og mín sannfæring er sú
að fáar lífsgjafir séu dýrmætari en
þær að gleðjast yfir litlu og mega
veita samferðafólkinu hlutdeild í
þeirri gjöf. Hnyttin tilsvör Þyriar
lifa með manni, eins og þegar ein-
hver efaðist um sannleiksgildi
fréttar og Þyri setti upp sakleys-
issvip og sagði: „En þetta stóð í
Mogganum og hann segir alltaf
satt“ . Því miður eru fréttir Morg-
unblaðsins af láti Þyriar sannar. En
þakklætið verður þó sorginni yfir-
sterkara og bros vorsins í minningu
um einstaka konu lifir.
Ég kveð Þyri með vorvísu eftir
Bjarna Gíslason frá Þorsteinsstöð-
um í Dalasýslu:
Sérhvað undrast hjartað hlýtur
helgan vorsins dýrðarmátt.
Það sem vetrarvaldið brýtur
og vekur blómsins andardrátt.
Megi minningin um Þyri Eydal
lifa.
Einlægar samúðarkveðjur fær-
um við Sæbjörg þeim systrum, El-
ínborgu og Þyri Guðbjörgu, ásamt
öðru venslafólki.
Jón Hlöðver Áskelsson.
Í dag kveðjum við Þyri Eydal.
Þyri var mamma Ellu vinkonu
minnar en hún var líka góð vinkona
mín. Hún var lærð hattadama og pí-
anókennari og vann utan heimilis
sem fáar mæður gerðu á þeim tíma.
Hún spilaði í mörg ár á píanó fyrir
Karlakór Akureyrar og kenndi við
Tónlistarskólann á Akureyri í ára-
tugi og eru margir okkar þekktustu
píanista nemendur hennar. Oft
bauð hún okkur Ellu á nemenda-
tónleika og mér fannst alltaf jafn
gaman að hlusta á nemendur henn-
ar flytja falleg tónverk. Þyri var
gift Birni Bessasyni og stóð heimili
þeirra hjóna mér alltaf opið og á ég
margar góðar minningar þaðan.
Þyri gaf sig mikið að okkur Ellu og
reyndi eftir megni að siða okkur til
en fór að okkar mati stundum yfir
strikið, þegar hún þurfti að vita
hverra manna kunningjar okkar
voru sem okkur fannst alveg út í
hött. En það kom að því að seinna
brann þessi sama spurning á vörum
okkar Ellu. Eftir að Ella flutti til
Svíþjóðar styrktist vinátta okkar
Þyri enn frekar. Það var stutt á
milli heimila okkar, ég fór oft í
heimsókn til hennar, við gátum
spjallað, hlegið og átt góðar stundir
saman.
Ekki vantaði húmorinn hjá
henni, hún sá spaugilegar hliðar á
ótrúlegum hlutum. Þótt ég væri
flutt til Reykjavíkur fylgdist hún
alltaf vel með fjölskyldu minni bæði
sunnan og norðan heiða. Þyri var
sterkur persónuleiki, glæsileg kona
sem minnti mig stundum á Elísa-
betu Englandsdrottningu, þegar
hún mætti virðuleg með flottan hatt
og veski á handlegg. Hún var hlé-
dræg og ekki mikið fyrir að vera út
á við en svo sannarlega vinur vina
sinna. Þyri naut þess að fá vini og
ættingja í heimsókn, aldurinn bar
hún sérstaklega vel og hún var ein-
staklega minnug.
Ég kveð Þyri vinkonu mína og
bið Guð að blessa hana. Ellu, Þyri
Guðbjörgu, Önnu Maríu og Lars
sendi ég innilegar samúðarkveðjur
frá okkur Erling og börnum
Ragnheiður Jónsdóttir.
Þyri Sigfríður Eydal
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
GERÐUR S. ÞÓRARINSDÓTTIR,
Brekkugerði 18,
Reykjavík,
lést þriðjudaginn 12. maí.
Jarðarförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 22. maí kl. 15.00.
Auður Sveinsdóttir,
Þórarinn Egill Sveinsson, Inga Einarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og hjartkær vinkona,
SIGRÚN ODDGEIRSDÓTTIR,
Hæðargarði 35,
áður Skipasundi 11,
Reykjavík,
andaðist á líknardeild Landspítala Landakoti
þriðjudaginn 12. maí.
Jarðarförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 19. maí
kl. 15.00.
Ingvar A. Guðnason, Þórunn Guðmundsdóttir,
Gunnar Guðnason, Sigríður Davíðsdóttir,
Haukur Geir Guðnason, Anna Sigríður Guðmundsdóttir,
barnabörn, barnabarnabörn,
Theódór Halldórsson.
✝
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
LAUFEY BJARNADÓTTIR,
Lindarbraut 9,
Seltjarnarnesi,
lést á krabbameinsdeild Landspítalans að kvöldi
miðvikudagsins 13. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Einar Örn Björnsson,
Jóhanna María Einarsdóttir, Andrés Hjaltason,
Edda Einarsdóttir, Haraldur Ólafsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR EYMUNDSDÓTTIR
sjúkraliði,
frá Flögu í Skriðdal,
lést að morgni fimmtudagsins 14. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Eygló Magnúsdóttir,
Eymundur Magnússon,
Steinarr Magnússon.
✝
Vinur okkar,
DONALD CHARLES BRANDT,
Hverfisgötu 49,
Reykjavík,
lést á Landspítala Landakoti þriðjudaginn 12. maí.
Einar Matthíasson,
Bolli Davíðsson.
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík • sími 587 1960 • www.mosaik.is
MIKIÐ ÚRVAL AF LEGSTEINUM
OG FYLGIHLUTUM
Sendum myndalista