Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 33
Minningar 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
stríða sem hann með æðruleysi, óbil-
andi elju, jákvæðni og góðri hjálp eig-
inkonu sinnar tókst að lifa með. Mig
setti hljóða þegar Villi hringdi og
sagði mér að pabbi sinn væri látinn.
Það átti ekki að koma á óvart en gerð
það samt.
Góðar minningar streyma fram í
huganum og ylja mér um hjartaræt-
ur. Í hugann koma margar ánægju-
stundir sem fjölskyldur okkar áttu
saman bæði á heimilum okkar, í
ferðalögum erlendis eða í sumarbú-
stöðum.
Þú, Jesús, ert lífið, sem dauðann fær
deytt,
lát dauðann úr sálunum víkja,
en lífið, sem eilífan unað fær veitt,
með almættiskrafti þar ríkja.
(Helgi Hálfdánarson.)
Fyrir hönd fjölskyldu minnar,
sendi ég Krissu minni og fjölskyldu
hennar okkar innilegustu samúðar-
kveðjur og biðjum við góðan Guð að
gefa þeim styrk í sorginni. Blessuð sé
minning Hallgríms Einarssonar.
Anna Lilja.
Það er skrýtið að sitja hér og skrifa
þér bréf þegar við vorum vanir að
sitja í stofunni heima hjá þér og
spjalla um daginn og veginn.
Ég var staddur uppi í bústað þegar
ég fékk símtalið um að þú værir bú-
inn að yfirgefa okkur og kominn á
þann stað þar sem eflaust margir eru
ánægðir með að fá þig og fá góðar
ráðleggingar og félagsskap eins og
þér einum var lagið að veita.
Það var hálftómlegt að aka inn göt-
una hjá okkur eftir þessa frétt vitandi
það að ég kæmi ekki til með að hitta
þig framar til að ræða við þig.
Ég tel mig vera mjög lánsaman að
hafa fengið að kynnast þér, Halli, og
hef lært margt af þér í gegnum okkar
vinskaparár og hef tileinkað mér
margt úr þínu hugarfari sem ég mun
taka með mér mína lífsleið.
Við ræddum ýmislegt saman í eld-
húsinu heima hjá þér í Barðavogin-
um í góðu yfirlæti um síðustu áramót
og þar á meðal ræddum við um hvað
tæki við eftir þetta líf og þá fór mig að
gruna að þú værir farinn að spá í
þessa hluti og farinn að búa þig undir
næsta verkefni.
Það var alltaf gott að koma heim til
ykkar Krissu og maður fann alltaf
góðan anda á heimilinu og svo beið
maður bara eftir hvað væri næst á
dagskrá í sambandi við framkvæmd-
ir.
Það var ekkert sem stoppaði þig og
sama hvað þú gerðir, það var alltaf
klárað með sóma og meira til. Betri
nágranna en þig og Krissu hefði mað-
ur ekki getað hugsað sér að eiga og
við hjónin komum til með að halda því
áfram til ókominnar framtíðar að
halda utan um Krissu þína.
Þú munt ávallt lifa í minningu okk-
ar og vera sárt saknað.
Hrafn Heiðdal Úlfsson.
Mig langar í nokkrum orðum að
minnast vinar míns Hallgríms H.
Einarssonar en við sem þekktum
hann kölluðum hann Halla.
Halli og konan hans Krissa voru
höfðingjar heim að sækja á sitt glæsi-
lega heimili við Barðavog.
Nú á seinni árum hafði okkur
Halla orðið mjög vel til vina og áttum
við mörg sameiginleg áhugamál.
Halli var rafvirki að mennt og var
alltaf gott að leita til hans ef einhverj-
ar spurningar varðandi raflögn voru
annars vegar. Halli hafði mikinn
áhuga á öllum gróðri og var gaman að
heimsækja hann í gróðurhúsið í bak-
garðinum. Hann sýndi manni það
sem hann var að rækta, hvernig vín-
berin hans döfnuðu og blómin sem
breyttust úr fræjum í myndarblóm
sem farið var út með snemma sumars
í pottum. Halli smitaði mig af þessum
blómaáhuga og leyfði mér að hafa
nokkra potta hjá sér í fyrravor í gróð-
urhúsinu og naut ég leiðsagnar hans
um uppeldi blómanna.
Það var gott að hafa ástæðu til að
heimsækja þau hjón, kíkja á framfar-
ir blómanna fá kaffiopa og spjalla.
Halli var vel að sér um þjóðmálin
og lá ekki á skoðunum sínum. Oftar
en ekki vorum við mjög sammála.
Ég fylgdist með bæði í heimsókn-
um heim til hans og á spítalann síð-
ustu vikurnar hvernig dró af Halla,
vini mínum.
Nokkrum dögum fyrir andlátið
hringdi Halli í mig og var hann furðu
hress miðað við aðstæður og spjöll-
uðum við saman í dágóða stund mjög
einlæglega og verður mér þetta sam-
tal okkar sem var það síðasta okkar á
milli ljúft í minningunni.
Við Áslaug viljum biðja alla góða
vætti að styrkja Krissu, börn,
tengdabörn, afabörn og langafabarn í
þeirra miklu sorg.
Blessuð sé minning Hallgríms H.
Einarssonar.
Þínir vinir
Sigurður og Áslaug.
Það koma þeir dagar sem við
stöldrum við og veltum fyrir okkur
tilgangi lífsins og hlutverki okkar.
Sunnudagurinn síðasti var einn af
þeim en þó sérstakari en aðrir er ég
fékk þær fréttir að Halli hefði skilið
við og fariðá nýjan stað í leit nýrra
ævintýra og í nýju hlutverki. Þessi
tíðindi voru mér afar þungbær enda
skipar Halli sérstakan sess í mínum
huga og hjarta. Fyrst man ég eftir
Halla þegar við fjölskyldan vorum í
sumarbústað okkar við Apavatn og
Halli og Krissa voru nágrannar okk-
ar ásamt sínum börnum. Árin liðu og
samband foreldra minna og þeirra
styrktist og úr varð áralöng vinátta
þeirra í milli.
Halli hafði einstakan mann að
geyma, vinátta hans við föður minn
varð til þess að ávallt voru einhver
verkefni til að takast á við eða sam-
verustundir sem voru þeim allt. Í
veikindum og við fráfall pabba sýndi
Halli sinn innri mann sem var pabba
mikils virði og sýndi hversu góð vin-
átta getur gefið öðrum mikinnstyrk
þegar hans er þörf. Vinátta Halla og
Krissu við foreldra mína, og við móð-
ir mína eftir lát pabba hefur verið
einstök, ekki síður við okkur systk-
inin og hefur verið ómetanlegt fyrir
okkur að fá að kynnast þeim og njóta
samverustunda með þeim.
Atorkusemi hans var með ólíkind-
um, alltaf að framkvæma eitthvað og
hann vissi alltaf hvert stefndi og
hvernig hann vildi hafa hlutina. Fal-
legt heimili þeirra í Barðavoginum
ber þess merki í hvívetna. En það var
ekki nóg, hann var ávallt tilbúinn að
rétta öðrum hjálparhönd og naut ég
krafta hans við endurbætur heima
hjá mér. Halli var þá farinn að berj-
ast við veikindin en lét aldrei deigan
síga, það þýddi lítið að biðja hann um
að hægja á sér, hann stjórnaði ferð-
inni og gafst aldrei upp. Þetta verk-
efni ætlaði hann að klára hvað sem
raulaði og tautaði, endalaus staðfesta
og ákveðni eins og honum var líkt.
Aðstoð hans var ómetanleg sem ég
get seint þakkað honum.
Síðustu misseri hef ég notið þess
að hitta Halla yfir léttu spjalli um
málefni líðandi stundar, það voru
ómetanlegar stundir. Hann lá ekki á
skoðunum sínum og þessi samvera
gaf mér mikið, að rifja upp gamla
tíma og ræða um þjóðmálin.
Í dag kveðjum við mann sem skilur
eftir sig minningar um atorkusaman,
kraftmikinn dugnaðarfork sem aldr-
ei gefst upp.
Minning um einstakan vin lifir með
okkur um ókomna tíð.
Elsku Krissa og fjölskyldur, megi
guð færa ykkur styrk á þessum erf-
iðu tímum.
Eggert Kristinsson.
Elsku Halli okkar, það eitt að setj-
ast niður við tölvuna til að skrifa
minningargrein um þig vekur sáran
söknuð í hjörtum okkar.
Fyrstu minningarnar um þig
tengjast að sjálfsögðu Kanaríeyjum.
Þar kynntumst við Gulli ykkur
Krissu í gegnum Siggu og Palla og
alla tíð síðan hafið þið Krissa verið
okkur eins og fjölskylda. Allar stund-
irnar í Barðavoginum, heima hjá
Siggu og Palla, Kanaríeyjarnar,
heima hjá okkur, allt þetta rennur
saman í eitt. Gulli talar um að þú haf-
ir alltaf talað hreint út um hlutina,
þ.e. talað íslensku. Það sem þú sagðir
meintir þú. Ég er alveg sammála því.
Eftir að þú vissir að þér myndi ekki
batna horfðist þú hetjulega í augu við
það. Síðast þegar við hittum þig sagð-
ir þú okkur að nú væri þetta að verða
búið og svona væri það nú bara. Ég
var að skoða mynd af þér og Krissu
og þá sagðir þú: „Þegar fólk sér
þessa mynd segir Krissa: „Þetta var
nú maðurinn minn.““ Svona hrein-
skilinn varst þú. Ég veit líka að undir
það síðasta var það eina sem þú hugs-
aðir um að fjölskyldan þín hefði það
gott og héldi áfram að lifa lífinu eftir
að þú værir farinn yfir móðuna miklu.
Þau munu gera það með þín sterku
gen og vitandi það að þú fylgist með
áfram með þeim.
Gulli sagði mér að næst þegar
hann, Palli og Villi yrðu saman á
Kanarí þá myndu þeir fara í þyrlu-
flug yfir eyjuna þér til heiðurs. Þú
nefndir það nefnilega að næst þegar
þú færir til Kanarí ætlaðir þú í þyrlu-
flug. Ég sé þetta flug alveg fyrir mér
og er viss um að þú verður með þeim í
þyrlunni og hlærð að þeim þegar þeir
verða hræddir.
Með þessum orðum kveðjum við
þig, Halli okkar, og biðjum um styrk
fyrir Krissu, Siggu, Palla og börn,
Villa, Ingu og börn og alla þá sem
sakna þín.
Farðu í friði.
Guðlaugur Már Unnarsson
og Guðrún Lára
Baldursdóttir.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HANNESAR ÞORSTEINSSONAR.
Við færum öllum á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund sérstakar þakkir fyrir góða umönnun,
kærleika og félagsskap.
Hjörtur Hannesson, Sigrún Axelsdóttir,
Guðrún Hannesdóttir, Vilhjálmur Þór Kjartansson,
Una Hannesdóttir, Geir Ingimarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar okkar ástkæru móður,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
BJARGAR HALLVARÐSDÓTTUR,
Höfðagrund 10,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks lyflækningadeildar
Sjúkrahúss Akraness fyrir góða umönnun og hlýlegt
viðmót.
Anna K. Skúladóttir, Jón I. Haraldsson,
Lárus Skúlason,
Málfríður G. Skúladóttir, Gísli H. Hallbjörnsson,
Skúli Skúlason, Margrét G. Rögnvaldsdóttir,
Guðmundur Skúlason, Guðrún Ísleifsdóttir,
Hallveig Skúladóttir, Stefán Jónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
vináttu og hlýhug við andlát og útför móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og langa-
langömmu,
FANNEYJAR ODDGEIRSDÓTTUR
frá Hlöðum,
Grenivík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalarheimilinu
Hlíð fyrir nærgætna umönnun á undanförnum árum.
Einnig þökkum við séra Sólveigu Höllu Kristjánsdóttur, Kirkjukór
Akureyrar, stjórnanda hans og orgelleikara fyrir einstaklega hlýja og
fallega kveðjuathöfn í Akureyrarkirkju.
Guð blessi ykkur öll.
Heiða Hrönn Jóhannsdóttir, Birgir Stefánsson,
Anna María Jóhannsdóttir, Birgir Marinósson,
Lilja Helgadóttir,
Jóhann Már Jóhannsson, Þórey S. Jónsdóttir,
Svavar Hákon Jóhannsson, Sigurbjörg Þ. Jónsdóttir,
Kristján Jóhannsson, Sigurjóna Sverrisdóttir,
Haukur Jóhannsson, Ragnheiður Haraldsdóttir,
ömmubörn, langömmubörn
og langalangömmubörn.
✝
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug
vegna andláts og útfarar ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
KRISTBJARGAR A. MAGNÚSDÓTTUR,
Tröllagili 14,
Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við öllum þeim er
önnuðust hana af einstakri hlýju og kærleika í
veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Helgi Magnús Stefánsson, Helga Kristjánsdóttir,
María Sigurbjörg Stefánsdóttir, Leiknir Jónsson,
Svandís Ebba Stefánsdóttir, Jóhannes Páll Héðinsson,
Anna Kristín Stefánsdóttir, Anfinn Heinesen,
ömmubörn og langömmubörn.
✝
Elskuleg eiginkona mín og amma okkar,
BJARNDÍS FRIÐRIKSDÓTTIR,
Dísa frá Eilífsdal í Kjós,
Bugðulæk 20,
Reykjavík,
sem andaðist á heimili sínu mánudaginn 4. maí,
verður jarðsungin frá Áskirkju þriðjudaginn 19. maí
kl. 13.00.
Karl Kristinsson,
Perla Dís Kristinsdóttir,
Birta Líf Kristinsdóttir.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi,
MAGNÚS FINNBOGASON
frá Lágafelli,
Gilsbakka 2,
Hvolsvelli,
lést þriðjudaginn 5. maí.
Útför hans verður gerð frá Krosskirkju Austur-
Landeyjum laugardaginn 16. maí kl. 14.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans
er bent á minningarsjóð Guðrúnar á Lágafelli reikn. 0182-15-370217 eða
dvalarheimilið Kirkjuhvol Hvolsvelli.
Auður Hermannsdóttir,
Vilborg Magnúsdóttir, Gunnar Hermannsson,
Finnbogi Magnússon, Þórey Pálsdóttir,
Ragnhildur Magnúsdóttir, Guðmundur Erlendsson
og barnabörn.