Morgunblaðið - 15.05.2009, Qupperneq 35
Minningar 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
Antík
Salt í grautinn ?!?
Við eigum saltbauka, kaffikvarnir,
stóla, diska og margt fleira skemmti-
legt á heimilið og í sumarhúsið. Opið
fös. kl. 13-18 og eftir samkomulagi.
maddomurnar.com
Bækur
Kaupi bækur
Kaupi bækur og bókasöfn.
Eionnig eldri erlendar bækur
Upplýsingar í síma 898 9475,
Þorvaldur.
Dýrahald
Tæplega 100 l fiskabúr
með ljósi, fiskum, hitara, hreinsara
og skrauti til sölu.
Upplýsingar í síma 864 5290.
Garðar
Garðsláttur og beðhreinsun í
sumar. Garðsláttur og beðhreinsanir
fyrir húsfélög og einstaklinga. Við
kíkjum á garðinn hjá þér og gefum
þér tilboð. ENGI ehf. Sími: 857 3506.
Er öspin til ama?
Sérhæfum okkur í að fella og
fjarlægja tré að öllum stærðum og
gerðum. Eitrum líka í rót.
Upplýsingar í síma 695 -1918.
Heilsa
Viltu líta vel út í sumar?
Fáðu aðstoð með pottþéttri næringu
úr vörunum frá Herbalife .
wwww.heilsufrettir.is/pesi -
herbalife@visir.is
Hljóðfæri
Dúndurtilboð
Kassagítarar: 1/4 stærð kr.
10.900 pakkinn með poka,
strengjasetti og stilliflautu. 1/2
stærð kr. 7.900. Full stærð kr.
12.900. 3/4 kr. 10.900. 4/4 kr.
12.900. Rafmagnsgítarpakkar frá
kr. 29.900. Hljómborð frá kr.
17.900. Trommusett kr. 49.900
með öllu.
Gítarinn, Stórhöfða 27,
sími 552 2125.
www.gitarinn.is
Húsgögn
Húsnæði óskast
Óska eftir 3-4ra herb. íbúð
í Seljahverfi
Óskum að leigja góða 3-4 herb. íbúð í
langtímaleigu í Seljahverfi sem fyrst.
Erum par með 1 barn, erum traust og
reglusöm, reykjum ekki. Vinsam-
legast hafið samband: 615 0843.
Sumarhús
Það verður gott veður um helgina
og við eigum flottan bústað handa
þér og þínum. Vel búin hús með
nettengingu, öllum sjónvarpsrásum
t.d. stöð 2 og íþróttarásunum líka
o.fl., grill og heitir pottar. Allt sem
þarf til að byrja sumarið.
Upplýsingar í síma 868 3592.
www.minniborgir.is
Sumarhús - orlofshús
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Rotþrær-siturlagnir
Heildarlausnir - réttar lausnir.
Heildarfrágangur til sýnis á staðnum
ásamt teikningum og leiðbeiningum.
Borgarplast, www.borgarplast.is
s. 561 2211 - Völuteigi 31 -
Mosfellsbæ.
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Menning
Málverkasölusýning
Erla Þorleifsdóttir og Stefán Bjarna-
son hafa opnað málverkasýningu í sal
hjá félagsþjónustunni Hæðargarði
31. Opið alla virka daga 9-16.
Lau/16 og sun/17 frá 14-17.
Námskeið
Byrjendanámskeið í tennis
Skemmtileg byrjendanámskeið í
tennis fyrir fullorðna í sumar. Sumar-
skráning hafin. Tíu tíma námskeið.
Upplýsingar í síma 564 4030 og á
tennishollin.is
Til sölu
Matador heilsársdekk útsala
165R13 kr. 3.900
155/70R13 kr. 5.500
165/65R14 kr. 7.900
185/65R14 kr. 8.900
195/65R15 kr. 9.900
215/55R16 kr. 16.900
Kaldasel ehf.
hjólbarðaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
sími 544 4333.
Hjóla- og bílaflutningakerra
til sölu, lengd 6,60 m, breidd og hæð
2,50 m. Verð 3,5 millj. Tilboð 2.190
þús. Áhv. 1.200 þús. Glitnir. Afb. 25
þús. Uppl. í s: 898-1598.
Gluggar, hurðir o.fl.
Til sölu eru útlitsgallaðir gluggar
og hurðir ásamt nokkrum fata-
skápum.
Sala fer fram að Fossaleyni 8
milli 15 og 17 föstudaginn 15 maí.
Frábær kaup. Renault MacKeen,
‘99, lítið bilaður, verð því 80 þús.
Chervolet smábíll,árg. ‘07, ek. 65 þús.
Áhv. óverðtr. lán 700 þús. fæst á 800
þús. Sænsk gæða bandsög, verð 85
þús. MF 575 dráttarvél, þarfnast
boddy aðhlynningar, verð 175 þús.
Upplýsingar í síma 865 6560.
Ýmislegt
Nýjar gerðir af TRIUMPH og TYR
sundbolum og bikinium.
Kíktu við á www.aquasport.is
Hamraborg 7, 200 Kópavogi,
sími 564 0035,
gengið inn frá Hamrabrekku
Musik og Sport Hafnarfirði
Nana Hólagarði
www.aquasport.is
Blómaskór. Margir litir.
Eitt par 1.000 kr., tvö pör 1.690 kr.
Póstsendum.
Skarthúsið, Laugavegi 44.
Sími 562 2466.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
ÁSKRIFTASÍMI 569 1100
hlutina. Sem dæmi um vinnubrögð
Halldórs má nefna að fyrir mörgum
árum ákvað þáverandi fjármálaráð-
herra að skattleggja happdrætti
líknarfélaga.Annar höfunda þessar-
ar greinar fór á fund ráðherra með
Halldóri. Ráðherrann sló úr og í og
gaf lítil svör en var skemmtilegur.
Eftir 20 mínútna samtal hringir
síminn og ráðherrann sagðist verða
að taka símann. Halldór sat sem
fastast og sagði: „Ég vil fá að vita:
Ætlarðu að skattleggja happdrætti
líknarfélaga. Ég vil fá svar, já eða
nei.“ Ráðherrann dró við sig svarið
og svaraði svo ákveðið „nei“. Þá gat
hann tekið símann í næði. Með
Halldóri Rafnar er genginn einn
öflugasti forystumaður blindra og
sjónskertra á liðnum árum. Hans
verður minnst fyrst og fremst fyrir
mikið áræði, ljúfmennsku og já-
kvætt hugarfar. Hann sá eitthvað
gott í öllum. Blessuð sé minning
hans.
Gísli Helgason, fyrrverandi
formaður Blindrafélagsins,
Kristinn Halldór Einarsson,
formaður Blindrafélagsins.
Elskulegur afi okkar hefur nú
kvatt okkur fyrir fullt og allt. Vilj-
um við minnast hans með nokkrum
orðum. Afi reyndist okkur ávallt
vel, var traustur og alltaf til staðar.
Við munum fyrst eftir honum á
Kleppsveginum þar sem oft var
margt um manninn. Við systkinin
fórum ófáar ferðirnar með Akra-
borginni til að dvelja yfir helgi hjá
ömmu og afa, þá var pöntuð pítsa,
farinn ísrúntur og margt fleira
skemmtilegt. Afi gaf okkur alltaf
tíma, hann tefldi við okkur, „horfði“
á frumsamin leikrit, hlustaði á mis-
góða brandara og sögur frá okkur,
þar sem hann sat teinréttur við eld-
húsborðið og strauk á sér auga-
brýrnar með tveimur fingrum og
ilmaði af afarakspíranum góða.
Spennan magnaðist svo þegar dreg-
inn var upp lykillinn að grænu „sjó-
ræningja“-kistunni á ganginum,
sem var troðfull af útlensku nammi
fyrir alla aldurshópa. Minningin um
afa þar sem hann lagði sig í bleika
sófanum og fæturnir stóðu vel fram
í gangveginn og teppið náði rétt um
hann miðjan er líka skemmtileg.
Afi var mikill húmoristi og sögu-
maður og fór listilega með söguna
um Einbjörn, Tvíbjörn og Þríbjörn.
Þrátt fyrir að afi hafi verið blindur
var hann ótrúlega glöggur, til að
mynda átti amma það til að segja:
„Halldór, hvar eru „gylltu“ skær-
in?“ Ekki tók það hann langan tíma
að hjálpa ömmu að finna þau.
Amma og afi höfðu unun af því að
ferðast, bæði innanlands og utan og
fórum við með þeim í margar sum-
arbústaðaferðir og eftirminnilega
ferð um Snæfellsnesið.
Afi var dugnaðarforkur og lét
ekkert hindra sig. Hann fæddist
með augnsjúkdóm og missti sjónina
hægt og rólega þar til hann varð al-
blindur árið 1974. Afi lærði lögfræði
þrátt fyrir skerta sjón og starfaði
sem slíkur hjá borgarfógetaemb-
ættinu og seinna sem borgarfógeti.
Einnig starfaði hann mikið í þágu
blindra, var formaður og fram-
kvæmdastjóri Blindrafélagsins til
fjölda ára. Afi var vinamargur,
hafði gaman af því að vera innan
um fólk og var yfirleitt hrókur alls
fagnaðar.
Afi átti yndislega konu, hana
ömmu Gobbu, sem var honum stoð
og stytta í lífinu og rúmlega það.
Fylgdi hún honum um allan heim í
hans erindagjörðum vegna vinnunn-
ar og á seinni árum hefur amma
verið honum ómetanleg í hans veik-
indum. Síðustu æviárin hefur afi
Halldór dvalið á Hjúkrunarheim-
ilinu Eir. Þar naut hann góðrar
umönnunar starfsfólks sem með al-
úð og virðingu hefur annast hann
og það ber að þakka. Með þessum
orðum kveðjum við afa Halldór,
minningin um yndislegan afa mun
lifa í hugum okkar um ókomna tíð.
Elsku afi, takk fyrir allt.
Hallgrímur, Þórólfur og Áslaug.
Meira: mbl.is/minningar
Það er mikill fengur hverjum
manni að kynnast skemmtilegu og
víðsýnu fólki til að deila áhugamál-
um og góðum stundum með. Við
kynntumst Halldóri Rafnar á vett-
vangi Blindrafélagsins 1979 en
hann var þá nýorðinn formaður
þess og síðar framkvæmdastjóri.
Fljótlega fundum við, ungir og bar-
áttuglaðir foreldrar blindra, hversu
gefandi var að umgangast fólkið í
félaginu og okkur voru falin trún-
aðarstörf í stjórn og nefndum þess
til að fylgja eftir því mikla starfi
sem frumkvöðlarnir höfðu lagt
traustan grunn að. Það var góður
skóli undir handleiðslu reyndra fé-
lagsmanna. Viðfangsefnin voru ærin
og Halldór tilbúinn til að leggja
okkur lið, opinn fyrir nýjungum,
fylginn sér og vandfundið það mál
sem ekki gekk eftir ef hann hafði
lagt því lið. Hann var áhugamaður
um erlent samstarf, taldi blinda Ís-
lendinga geta lært margt af öðrum
þjóðum í leik og starfi. Mikil lífs-
gleði ríkti oft á skemmtunum
Blindrafélagsins og þar var Halldór
jafnan hrókur alls fagnaðar, var
fjölfróður, sagði skemmtilega frá
enda víðlesinn og vel máli farinn. Á
ferðalögum, innanlands sem utan,
laðaði hann að sér fólk með sinni
góðu nærveru og lífsgleði og naut
líka þess að hafa einstaka eiginkonu
sér við hlið. Þannig viljum við muna
Halldór Rafnar sem kenndi okkur
svo margt á þessum góðu og eft-
irminnilegu árum í lok síðustu ald-
ar. Við sendum Þorbjörgu og fjöl-
skyldu samúðarkveðjur um leið og
við þökkum ógleymanlegar stundir.
Una Þóra og Bessi.
Þegar okkur félagsmönnum
Blindrafélagsins barst sú frétt um
síðustu helgi að Halldór okkar
Rafnar væri látinn komu margar
hlýjar og ljúfar minningar upp í
hugann um þann ágæta mann.
Ég kynntist Halldóri upp úr
1990, fljótlega eftir að ég gekk í
Blindrafélagið, þá ungur að árum.
Það var alltaf gaman að koma á
skrifstofu hans og spjalla við hann
um heima og geima. Hann var víð-
lesinn maður, fróður um flesta hluti
og hafði mikla og góða eiginleika
sem leiðtogi. Hann var alltaf mjög
yfirvegaður, sama á hverju gekk.
Undir hans stjórn náði félagið
merkilegum áfangasigrum í rétt-
indabaráttu sinni. Hann var fram-
kvæmdastjóri þegar þríkrossinn
var blessaður af Jóhannesi Páli páfa
þegar hann kom til Íslands árið
1989. Þríkrossinn er fallegur skart-
gripur sem hannaður var af Ásgeiri
heitnum Gunnarssyni, og hefur
hann verið mjög vinsæll meðal
landsmanna í gegnum árin og
margir Íslendingar bera sem vernd-
argrip.
Fyrir mér var Halldór alltaf góð
fyrirmynd. Hann sýndi okkur hin-
um sem erum blind eða alvarlega
sjónskert að með þrautseigju, dugn-
aði og viljanum eru allar leiðir fær-
ar. Þrátt fyrir litla sjón framan af
ævi gekk hann menntaveginn og
lauk prófi úr lagadeild Háskóla Ís-
lands 1950. Hann stofnaði fjöl-
skyldu og eignaðist þrjár dætur og
tók þátt í samfélaginu af lífi og sál.
Fyrir okkur hin sem komum á eftir
Halldóri var dugnaður hans hvatn-
ing til okkar að ýmislegt væri hægt
að gera þótt sjónin væri lítil eða
engin eins og Halldór þurfti að tak-
ast á við seinni hluta ævi sinnar.
Þegar Halldór var framkvæmda-
stjóri félagsins lagði hann mikla
áherslu á að vera í góðum sam-
skiptum við félagsmenn. Hann og
Þorbjörg kona hans voru mjög virk
í félagsstarfi félagsins, mættu á alla
fundi og skemmtanir, ferðalög,
bæði hérlendis og erlendis, og voru
þau hjón hrókur alls fagnaðar. Það
var alltaf stutt í húmorinn og hon-
um fannst ekki leiðinlegt að segja
skemmtisögur og oft urðu blindra-
brandarar af honum sjálfum fyrir
valinu.
Mér er mjög minnisstætt að árið
1993 var ég að skipuleggja norræn-
ar sumarbúðir fyrir blind og sjón-
skert ungmenni. Þá bauðst Halldór
Rafnar til að koma með mér á fund
borgarstjóra til að sannfæra hann
um að styrkja ætti verkefnið mynd-
arlega. Halldór talaði mikið á þess-
um fundi og sannfærði borgarstjóra
um að styrkja ætti ungt, blint og
sjónskert fólk á Norðurlöndum svo
það gæti komið saman og deilt
reynslu sinni. Þegar við komum út
af fundinum sagði ég við Halldór:
„Það mætti halda Halldór að þú
ætlaðir að taka þátt í þessum sum-
arbúðum, sannfæringarkrafturinn
var svo mikill.“ Þá glotti hann við
og sagði: „Það er aldrei að vita
nema ég mæti.“ Þarna var Halldór
orðinn 70 ára gamall.
Að lokum vil ég senda Þorbjörgu
Rafnar, dætrum hans, tengdabörn-
um, barnabörnum og barnabarna-
börnum mínar innilegustu samúðar-
kveðjur og bið góðan guð að styrkja
þau í sorg þeirra. Halldórs verður
minnst í Blindrafélaginu sem öflugs
og farsæls leiðtoga um ókomna
framtíð.
Halldór Sævar Guðbergsson,
fyrrverandi formaður
Blindrafélagsins og nú
formaður Öryrkjabandalags
Íslands.