Morgunblaðið - 15.05.2009, Blaðsíða 37
Dagbók 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009
Orð dagsins: En sonurinn sagði við
hann: Faðir, ég hef syndgað móti
himninum og gegn þér. Ég er ekki
framar verður að heita sonur þinn.
(Lúk. 15, 21.)
Þegar vorar verður áberandi alltruslið sem fýkur um bæi og
grund. Þessi óþrifnaður fer mikið í
taugarnar á Víkverja. Þegar hann fer
í gönguferðir á hann það til að tína
upp rusl sem verður á hans vegi og
fara með það í ruslatunnur. Árangur
af þessu starfi er einhver en líklega
þyrftu fleiri að fara að taka þátt í
þessu til að árangurinn yrði áberandi.
Aðalvandamálið er þó hversu
margir gera sig seka um að henda
rusli. Víkverja finnst það óskiljanlegt
að fólk skuli henda umbúðum og öðru
rusli. Ekkert fer þó meira í taugarnar
á Víkverja en þegar reykingamenn
henda stubbunum frá sér. Er ekki
nóg að þetta fólk eyði peningum í að
skemma heilsuna fyrir sjálfu sér?
Þarf það líka að skemma umhverfið
með sóðaskap?
x x x
Nú þegar ljóst er að ríkissjóður errekinn með tapi upp á 170 millj-
arða og skuldir sveitarfélaganna hafa
hækkað um tugi milljarða á skömm-
um tíma spyrja skattgreiðendur
hvernig stjórnvöld ætla að skera nið-
ur í ríkisútgjöldum? Viðbrögðin fram
að þessu benda ekki til þess að stjórn-
málamenn okkar treysti sér í þetta
erfiða verkefni. Víkverji sér ekki
hvernig á að taka á verkefninu án
þess að segja upp fólki. Það er að
sjálfsögðu ekki góður kostur að fjölga
fólki á atvinnuleysisskrá, en af hverju
á eitthvað annað að gilda um ríkið og
sveitarfélögin en fyrirtækin í landinu
sem neyðst hafa að segja upp fólki?
Er skuldasöfnun ríkisins ekki jafn-
slæm og skuldasöfnun fyrirtækja?
Skuldasöfnun ríkisins og sveitarfé-
laganna er ekkert annað en skatt-
lagning barna okkar. Steingrímur J.
Sigfússon fjármálaráðherra komst
vel að orði um daginn þegar hann
sagði að ríkið ætti ekki annan kost en
að skera niður því annars myndi rík-
issjóður kafna í vaxtagreiðslum.
Víkverji er ekki í nokkrum vafa um
að það er svigrúm til hagræðingar hjá
ríkinu og sveitarfélögum eins og fyr-
irtækjunum í landinu. Nú þurfa
stjórnmálamenn að sýna kjark og
þor. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 næring-
armikið, 8 drekkur, 9
skott, 10 rödd, 11
drykkjumenn, 13 spen-
dýrið, 15 álftar, 18 rjúfa,
21 glöð, 22 spil, 23 skjól-
laus, 24 ljósfyrirbrigði.
Lóðrétt | 2 land, 3 magr-
ar, 4 raupa, 5 seinka, 6
hæðir, 7 gys, 12 beita, 14
skaut, 15 safi, 16 sárar,
17 fiskur, 18 hvassviðri,
19 klakinn, 20 kven-
mannsnafn.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 kukla, 4 skalf, 7 geyma, 8 endur, 9 ref, 11 náin,
13 ergi, 14 áttan, 15 borð, 17 náma, 20 urg, 22 lotin, 23
rofið, 24 skipa, 25 túnið.
Lóðrétt: 1 kúgun, 2 keyri, 3 afar, 4 stef, 5 andar, 6 forði,
10 ertur, 12 náð, 13 enn, 15 belgs, 16 rætni, 18 álfan, 19
auðið, 20 unna, 21 græt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Mikil orka hefur verið leyst úr
læðingi en þú þarft samt að bíða þar til þú
veist hvað aðrir ætlast fyrir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Reyndu að bregðast við eftir efnum
og ástæðum því of hörð viðbrögð valda
bara vandræðum og það kann ekki góðri
lukku að stýra.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú nýtur hins ljúfa lífs, góðs
matar, góðs víns og fallegs umhverfis.
Fólk biður þig líka um stóra greiða og
best er að neita strax.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Að vera vinsæll hefur bæði sína
kosti og galla. Talaðu skýrt og skorinort
svo ekkert geti komið í bakið á þér. Sættu
þig við það sem er og njóttu þess sem lífið
hefur að bjóða.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Allt er á fleygiferð og upplýsingar
berast úr mörgum áttum í einu. Haltu aft-
ur af þér svo allt verði í besta lagi.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Nú eru menn samhuga um að láta
hendur standa fram úr ermum og fram-
kvæma hlutina. Einhverra hluta vegna
heldur fólk aftur af sér þessa dagana.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Nú er komið að því að þú verður að
taka afstöðu til þeirra mála sem skipta
sköpum fyrir framtíðina. Ef þú heldur
áfram á sömu braut færðu orð á þig fyrir
geggjaða snilligáfu.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Ferðaáætlanir og verkefni
tengd útgáfu, fjölmiðlun og menntun
breytast hugsanlega. Ræddu málin af
fullri einlægni áður en allt fer í hnút.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er alltaf gaman að rekast á
gamla vini og rifja upp liðna tíð. Fjöl-
skylduviðburður gengur að óskum, ekki
síst ef þú stendur á þínu frá upphafi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Sígandi lukka er best svo vertu
bara rólegur og taktu einn dag fyrir í einu
og gerðu þitt besta. Skemmtu þér með
vinum.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Þú ert að gera þér grein fyrir
því hvað það er mikil ást í lífi þínu. En
mundu að bera sömu virðingu fyrir öðrum
og þú vilt að þér sé sýnd.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Það er engu líkara en þér séu allir
vegir færir og ekki til það vandamál sem
þú getur ekki leyst. Fólk er almennt sam-
vinnuþýtt og opið fyrir skoðunum ann-
arra í dag.
Stjörnuspá
Þetta gerðist …
15. maí 1937
Tuttugu og fimm ára stjórn-
arafmæli Kristjáns konungs tí-
unda var haldið hátíðlegt. All-
ar opinberar skrifstofur voru
lokaðar, samsæti var á Hótel
Borg, ræður fluttar í útvarpi
og gefin út ævisaga konungs,
prýdd á annað hundrað mynd-
um.
15. maí 1952
Fiskveiðilögsagan var færð úr
þremur sjómílum í fjórar.
Næsta útfærsla var sex árum
síðar.
15. maí 1967
Jón gamli, fyrsta íslenska
sjónvarpsleikritið, var frum-
sýnt. Það er eftir Matthías Jo-
hannessen.
15. maí 1999
Íslendingar unnu einn stærsta
sigur í landsleik í handknatt-
leik þegar þeir lögðu Kýp-
urbúa með 42 mörkum gegn
11.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
EIGUM við ekki að segja að ég verði að heiman, á
kafi að undirbúa 35 ára stúdentsafmælið,“ segir
Einar Erlendsson ljósmyndafræðingur sem fagnar
í dag 55 ára afmæli sínu um leið og hann heldur
upp á 35 ára stúdentsafmæli með gömlum félögum
sínum úr MR, á ónefndum stað í kvöld. Einar hefur
síðustu daga verið á fullu við að skanna inn gaml-
ar myndir frá árunum í MR og hlegið sig vitlaus-
an, eins og hann orðaði það, yfir að sjá virðulega
menn í dag þá barnalega með bítlahár. Einar
fagnar fleiri tímamótum í ár, eða 35 ára brúð-
kaupsafmæli í sumar með eiginkonu sinni, Ástu
Halldórsdóttur fatahönnuði. Þau eiga fjórar dætur og þrjú barna-
börn, þar af eins árs dótturson. „Loksins kom strákur,“ segir Einar og
hlær en hann starfar sjálfstætt sem ljósmyndafræðingur, m.a. við að
gera við gamlar ljósmyndir og færa þær yfir á stafrænt form. Einnig
stendur hann fyrir verkefninu Focus on Nature (focusonnature.is) þar
sem hann aðstoðar útlendinga að tengja saman náttúru landsins og
kennslu í ljósmyndun, fara þeir heim að loknu námskeiði með fallegar
myndir frá Íslandi. Þá er Einar með samning við Adobe-hugbún-
aðarrisann og heldur reglulega námskeið í þeim búnaði . bjb@mbl.is
Einar Erlendsson ljósmyndafræðingur 55 ára
Skellihló við skönnunina
Sudoku
Frumstig
8 9 2
6 8
3 7 1
1 4 2
5 8 7 3
4 6
9
1 3 4
5 2
3 9 2 4
4 8 3
1 2
7 2
4 7
3 5
3 4 1 7 5
3
6 7 8
8 1
2 7 5
9 8
6
2 4 7 3
7 3 6
3 1 6
8 6
1 2 4
7 6 4 5 2 1 3 8 9
3 2 5 9 8 7 6 4 1
8 1 9 3 4 6 2 7 5
4 5 1 8 7 3 9 6 2
9 7 2 1 6 4 5 3 8
6 3 8 2 9 5 4 1 7
5 4 6 7 1 9 8 2 3
1 8 3 4 5 2 7 9 6
2 9 7 6 3 8 1 5 4
1 5 8 9 7 6 4 3 2
3 4 9 5 2 1 7 8 6
6 7 2 8 4 3 5 1 9
5 8 6 3 9 7 1 2 4
7 1 3 4 6 2 8 9 5
9 2 4 1 8 5 6 7 3
4 9 1 2 5 8 3 6 7
8 6 5 7 3 9 2 4 1
2 3 7 6 1 4 9 5 8
3 5 7 9 1 8 4 6 2
4 8 2 6 5 3 1 7 9
1 6 9 4 7 2 5 8 3
2 7 8 1 6 5 3 9 4
6 4 1 8 3 9 2 5 7
5 9 3 7 2 4 6 1 8
9 1 4 2 8 6 7 3 5
7 2 5 3 9 1 8 4 6
8 3 6 5 4 7 9 2 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Lausn síðustu Sudoki.
Í dag er föstudagur 15. maí, 135. dagur
ársins 2009
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3
Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Rc6 7. O-O Be7 8.
He1 Bg4 9. c4 Rf6 10. Rc3 Bxf3 11.
Dxf3 Rxd4 12. Dd1 Re6 13. cxd5 Rxd5
14. Bb5+ c6 15. Rxd5 cxb5 16. Db3
O-O 17. Be3 Bc5 18. Had1 Bxe3 19.
Hxe3 Da5 20. Dc2 Hfe8 21. f4 b4 22. f5
Rf8 23. Hed3 Rd7 24. Dc7 Dc5+ 25.
Kf1 Db5 26. Dg3 Re5 27. f6 g6 28. Dg5
Kh8 29. Dh6 Hg8 30. Rc7 Dc4 31. b3
Dg4 32. Hd4 Df5+ 33. Hf4 Rg4
Staðan kom upp á heimsbikarmóti
FIDE sem lauk fyrir skömmu í Nalc-
hik í Rússlandi. Peter Leko (2751) frá
Ungverjalandi hafði hvítt gegn Boris
Gelfand (2733) frá Ísrael. 34. Dg7+!
Hxg7 35. fxg7+ Kxg7 36. Hxf5 gxf5
37. Rxa8 Re3+ 38. Ke2 Rxd1 39. Kxd1
hvítur er nú manni yfir. 39…Kf6 40.
Kd2 Ke5 41. Rc7 f4 42. Kd3 a6 43. Ra8
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Tafarleysi.
Norður
♠KD852
♥K6
♦G10952
♣7
Vestur Austur
♠ – ♠1074
♥D1074 ♥G9532
♦D ♦ÁK874
♣ÁD1085432 ♣ –
Suður
♠ÁG963
♥Á8
♦63
♣KG96
(11) Sagnbaráttan.
Pressuhindranir eru einhliða og taf-
arlausar, segja Robson & Segal. Með
„einhliða“ eiga við að hindranir megi
vera víðar í merkingu, eða blæðandi –
og um það má deila; en „tafarleysið“
er skilyrði þess að hindranir standi
undir nafni – og það er óumdeilt. Suð-
ur opnar á 1♠. Enginn á hættu. Vest-
ur ákveður að vera „sniðugur“ og
passa „til að byrja með“. Norður
stekkur í 4♠ og þegar sú sögn skilar
sér til vesturs kemur hann upp úr
kafinu með 5♣. Sem eru dobluð, þrjá
niður. „Fjórir spaðar standa,“ segir
vestur í eftirmálanum. „Já, en ekki
fimm,“ svarar austur og meinar þetta:
Ef vestur stekkur í 5♣ við 1♠ hlýtur
norður að segja 5♠. Hann getur ekki
þagað yfir slíkum sóknarspilum.
Hindranir verða að vera taf-
arlausar.
Eva Þórey Jónsdóttir og Dagrún
Inga Jónsdóttir, héldu tombólu og
söfnuðu 4.476 kr. sem þær gáfu til
Rauða krossins í Árnessýslu.
Hlutavelta
Nýirborgarar
Reykjavík Sigurlína
Helga fæddist 23. janúar
kl. 15.35. Hún vó 3.350 g
og var 49 cm á lengd. For-
eldrar hennar eru Ingi-
björg Birgisdóttir og
Sindri Már Sigfússon.
Akureyri Bjarkey Dalrós
fæddist 19. mars 2008 kl.
17.36. Hún vó 3.190 g og
var 50 cm löng. Foreldrar
hennar eru Auður Björk
Birgisdóttir og Rúnar Páll
Hreinsson.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd
af barninu
til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is