Morgunblaðið - 15.05.2009, Side 38

Morgunblaðið - 15.05.2009, Side 38
38 Velvakandi MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. MAÍ 2009 ÞÆR voru nokkuð ískyggilegar, kisurnar tvær sem héldu sig saman á Grettisgötunni. Kannski voru þær að skyggnast eftir miðbæjarrottum. Morgunblaðið/Eggert Í veiðihug Atvinnubótavinna ÉG rölti stundum um Öskjuhlíð á björtum sumardögum. Mér og öðru göngufólki til mik- illar armræðu rekst maður iðulega á alls kyns rusl á víð og dreif um hlíðina. Því miður eru til umhverfissóðar, sem líta á Öskjuhlíðina sem risastóran ösku- haug. Hér þarf ber- sýnilega að taka til hendinni. Ég geri það hér með að tillögu minni að borgaryfirvöld nýti þann starfskraft, sem er á atvinnu- leysisbótum, til að hreinsa ruslið í Öskjuhlíðinni og sömuleiðis að hreinsa hundaskít, sígarettustubba og anna ósóma á gangstéttum og götum borgarinnar. Það hlýtur að vera meira mannbætandi að gera eitthvert gagn heldur en ganga iðju- laus um stræti borgarinnar. Þegar kreppan mikla geisaði á Ís- landi í byrjun fjórða áratugar síð- ustu aldar voru engar atvinnuleys- isbætur, en þess í stað þáði verkafólk atvinnubótavinnu og fékk greidd ákveðin laun fyrir. Mætti ekki líta á þetta hreinsunarstarf sem nokkurs konar atvinnubótavinnu. Sigurður Jón Ólafsson. Íslandsbæn HEILAGI almáttugi Guð, við þökkum þér fyrir Ísland, landið sem þú gafst okkur, við biðjum þig að bjarga, vernda og blessa það, í Jesú nafni, amen. Á.S. Núpi 3. Takk fyrir auglýs- ingarnar, Tómas ÉG vil skila þakklæti til aðstandenda Ham- borgarabúllu Tómasar. Alltaf kemst ég í gott skap þegar ég hlusta á auglýsingar frá búll- unni og vil ég þakka Tómasi fyrir þessar stórskemmtilegu aug- lýsingarnar. Vonandi fáum við að heyra fleiri svona góð- ar auglýsingar. Ágústa. Týnd gleraugu GLERAUGU töpuðust sl. föstu- dagskvöld, hinn 8. maí, að öllum lík- indum í leigubíl sem tekinn var á leigubílastæði í Lækjargötu. Skilvís finnandi hringi í Ragnhildi í síma 552-8319 eða 856-1516. Góðum fund- arlaunum heitið. Týnd lyklakippa LYKLAKIPPA tapaðist fyrir nokkrum vikum á göngustíg of- arlega í Ásahverfi í Hafnarfirði. Á kippunni er leðurbót með Toyota- merki, hús- og bíllyklar. Finnandi vinsamlegast skilið til lögregu í Hafnarfirði. Ásvallagata 40 ÞIÐ sem bjugguð á Ásvallagötu 40 í íbúð 7 í kringum 1994, vinsamlegast hafið samband við Helgu í síma 487- 8262 eftir kl. 17.           Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand PABBI, MAMMA FÓR MEÐ MIG Á BÓKASAFNIÐ OG FANNSTU BÓK TIL AÐ LESA? JÁ! ÉG VISSI EKKI AÐ BÆKUR GÆTU VERIÐ SVONA SKEMMTILEGAR OG ÞÚ GETUR LÍKA LÆRT MARGT GETUM VIÐ EKKI LÁTIÐ HANN HANGA Á EINHVERJU GÖTUHORNI FREKAR? ÞAÐ ERU LÍKA FRÁBÆRAR MYNDIR Í BÓKINNI! JÁ! Í BÓKINNI MINNI STENDUR AÐ ÞAÐ SÉ TIL VESPA SEM VERPIR EGGJUNUM SÍNUM Á KÓNGULÆR. SÍÐAN ÞEGAR EGGIN KLEKJAST ÚT ÞÁ BYRJA LIRFURNAR AÐ ÉTA SIG INN Í KÓNGULÓNA. ÞÆR BORÐA MIKILVÆGUSTU LÍFFÆRIN SÍÐAST, ÞANNIG AÐ HÚN ER ÉTIN LIFANDI! BÓKIN ER ÆÐI! PABBI, ÉG SPURÐI KÆRUST- UNA MÍNA OG HÚN SAGÐIST ALDREI HAFA PRÓFAÐ ÞAÐ HÚN HELDUR SAMT AÐ ÞAÐ TÆKI HANA HÁLFTÍMA AÐ REITA KJÚKLING ...PABBI? ERTU VISS UM AÐ HÚN SÉ NÓGU GÓÐ FYRIR ÞIG, SONUR SÆLL? EKKI BRÆÐA HANN! HÆTTU ÞESSU! HANN ER GÓÐUR STRÁKUR! GERÐU ÞAÐ! HANN HEFUR EKKI GERT ÞÉR NEITT! ÁRANS PABBI, HVAÐ ÞARF ÉG AÐ VITA UM KONUR? ÞEGAR ÞÚ VERÐUR ELDRI... SKAL ÉG SEGJA ÞÉR ALLT SEM ÞÚ ÞARFT AÐ VITA HANN ÞARF FYRST AÐ KOMAST AÐ ÞVÍ SJÁLFUR ATLI, VERTU ALVEG KYRR! ÉG ÆTLA AÐ SAGA DÓSINA Í TVENNT! ÞETTA HLÝTUR AÐ VIRKA... ÉG SÁ ÞETTA Í SJÓNVARPINU SENDI FJÖLSKYLDAN HANS LANG- AFA HANN EINAN TIL ÚTLANDA? JÁ, ÞAU ÁTTU BARA NÆGAN PENING TIL AÐ SENDA EINN ÉG ER VISS UM AÐ SALÓMON, FRÆNDI ÞINN Í NEW YORK, HJÁLPAR ÞÉR HÉRNA ER BRAUÐ, SMÁ OSTUR, PENINGURINN FYRIR FERÐINNI OG KERTASTJAKI KERTA- STJAKI? TIL HVERS ÞARF ÉG HANN? EF ÞÚ ÞARFT Á KRAFTAVERKI AÐ HALDA „EF HANN KÆMIST TIL BANDARÍKJANNA GÆTI HANN FENGIÐ VINNU OG SENT EFTIR HINUM“ LÁTTU KONUNA MÍNA VERA! HANN ER FARINN ÉG HEFÐI ÁTT AÐ LÁTA HANN FINNA FYRIR ÞVÍ! ÉG VEIT ÞAÐ EKKI... HANN ER EKKI JAFN SLÆMUR OG ÉG HÉLT Svarað í síma 5691100 frá 10–12 velvakandi@mbl.is Félagsstarfeldriborgara Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnu- stofa kl. 9-16.30, blöðin/kaffi kl. 9, bingó kl. 13.30. Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, opin smíðastofa kl. 9-16.3, bingó kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Handverkssýning hefst í dag, sýnt er það helsta sem unn- ið hefur verið í félagsstarfinu í vetur og stendur sýningin 29. maí, opið kl. 9-16 virka daga. Línudanshópur sýnir kl. 14. Dalbraut 18-20 | Lýður með harmonik- una kl. 13.30, söngur og samvera. Félag eldri borgara í Kópavogi | Gleði- gjafarnir syngja í Gullsmára kl. 14, stjórnandi Guðmundur Magnússon. Félagsheimilið Gjábakki | Botsía kl. 9.30, jóga kl. 10.50, félagsvist kl. 20.30. Félagsheimilið Gullsmára 13 | Jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, leikfimi kl. 10.30, Gleðigjafarnir kl. 14. Dansleikur í Gull- smára kl. 20, Haukur Ingibergsson leik- ur. Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatnsleikfimi kl. 9.20, félagsvist FEBG kl. 13.30, rúta frá Hleinum kl. 13, frá Garðabergi kl. 13.15. Hægt er að sækja sýningarmuni í dag. Síðasti skráning- ardagur í vorferð Félags eldri borgara 3.-5. júní er í dag kl. 13-15 á skrifstofu í Jónshúsi. Furugerði 1, félagsstarf | Framhalds- sagan Dögg í sori kl. 14. Háteigskirkja – starf eldri borgara | Konur spila brids í Setrinu kl. 13. Hraunsel | Bókmenntaklúbbur kl. 10, leikfimi í Bjarkarhúsi kl. 11.30, tréskurð- ur á Hjallabr. og gamla Lækjarskóla kl. 13, brids kl. 13, dansleikur kl. 20.30, Þorvaldur Halldórsson leikur, verð 1.000 kr. Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9 postulínsmálning, lífsorkuleikfimi kl. 9 og 10, námskeið í myndlist kl. 12.15, bingó kl. 13.30, veitingar. Hæðargarður 31 | Blöðin, listasmiðja, myndlist, Qigong og gönuhlaup kl. 9, hláturjóga kl. 13.30. Spænskunámskeið í samvinnu við Frú Mínervu og líkams- rækt í samvinnu við World Class. Mynd- listarsýning Erlu og Stefáns opin um helgina kl. 14-17. Uppl. Í Ráðagerði 411- 2790. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Blaða- klúbbur kl. 10, leikfimi kl. 11, vist, brids og skrafl kl. 13. Hárgreiðslustofa, s. 862-7097, fótaaðgerðastofa, s. 552- 7522. Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9.15- 14.30, spænska kl. 11.30, Sungið v/ flygilinn kl. 13.30, dansað í aðalsal kl. 14.30. Hárgr. og fótaaðgerðir kl. 9-16. Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa- vinnusýning á munum sem unnir hafa verið í félagsstofunni undanfarin 2 ár. Söngur í kaffitímanum og dans við und- irleik Vitatorgsbandsins á laugardag.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.