Morgunblaðið - 28.05.2009, Side 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009
ALLS höfðu
27.529 ein-
staklingar sótt
um útgreiðslu
séreignarlífeyr-
issparnaðar þann
25. maí síðastlið-
inn, frá því að
heimild var veitt
til þess að taka
hann út í mars.
Upphæðin sem
þessir einstaklingar hafa sótt um
nemur rúmlega 17 milljörðum
króna, að því er kom fram í svari
Steingríms J. Sigfússonar fjár-
málaráðherra á Alþingi í gær.
Þessi upphæð er heldur lægri en
menn áttu von á, að sögn Arnars
Sigurmundssonar, formanns Lands-
samtaka lífeyrissjóða.
„Miðað við þessa stöðu og að því
gefnu að þetta skiptist ekki mjög
misjafnt á milli sjóða finnst mér
fljótt á litið þetta vera innan þeirra
marka sem menn gerðu ráð fyrir,“
segir Arnar.
Hann kveðst eiga von á því að
sjóðirnir hafi gert ráðstafanir til
þess að útgreiðslurnar myndu ekki
skekkja mikið samsetningu eigna.
Sjóðirnir höfðu varað við því að ef
um gríðarlegar upphæðir yrði að
ræða gætu þeir þurft að selja auð-
seljanlegar eignir.
Um síðustu áramót var heildar-
eign í séreignarsparnaði lífeyr-
issjóðakerfisins áætluð um 250 millj-
ónir, að sögn Arnars.
ingibjorg@mbl.is
Sótt um
sautján
milljarða
27 þúsund hafa sótt
um séreignarsparnað
Arnar
Sigurmundsson
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
HLJÓÐRIT frá fjarskiptamiðstöð
ríkislögreglustjóra sýna að lög-
reglumönnum, sem voru á leið í útkall
vegna innbrotsins á Barðaströnd á
Seltjarnarnesi á mánudagskvöld, var
beint að Kaupþingi í Austurstræti
vegna neyðarkalls þaðan, að sögn
Geirs Jóns Þórissonar, yfirlög-
regluþjóns hjá LRH.
Fjarskiptamiðstöðin sendi frá sér
yfirlýsingu í gær þar sem sagði m.a.
að fyrstu lögreglumenn hefðu komið
á Barðaströnd 27 mínútum eftir að
útkallið barst kl. 20:35:25. Geir Jón
staðfesti orð fjarskiptamiðstöðv-
arinnar um að LRH hefði unnið að
þremur forgangsverkefnum á sömu
stundu og tilkynning barst vegna
ránsins á Barðaströnd. Eitt þeirra
var vegna innbrots í Kaupþing banka
í Austurstræti sem tilkynnt var kl.
20.22. Geir Jón sagði að lög-
reglumennirnir sem sinntu hinum út-
köllunum tveimur hefðu klárlega ver-
ið uppteknir.
Geir Jón sagði ljóst að tvö mót-
orhjól sem voru á Hringbraut hefðu
verið send á Barðaströnd í beinu
framhaldi af fyrstu hjálparbeiðni sem
barst vegna innbrotsins. Þegar þau
voru á leiðinni þangað barst neyð-
arkall frá lögreglumanni sem brugð-
ist hafði fyrstur við útkallinu í bank-
ann. Hann var þar einn síns liðs og
taldi að maðurinn sem braust þar inn
væri að skjóta á sig, líklega úr loft-
byssu. Síðar kom í ljós að einhverju
var grýtt að honum.
Mótorhjólalögreglumennirnir sem
voru á leið á Barðaströnd gáfu sig
strax fram, enda nálægt Austur-
stræti. Fjarskiptamiðstöðin sam-
þykkti að beina þeim í bankann því
þar væri þörfin talin brýnni. Geir Jón
benti einnig á, að á Barðaströnd hefði
allt verið yfirstaðið, maður verið kom-
inn á staðinn og ræningjarnir farnir.
Þegar búið var að handtaka manninn
í bankanum fóru mótorhjóla-
lögreglumennirnir strax á Barða-
strönd.
Geir Jón kvaðst vilja biðjast inni-
legrar velvirðingar á því að ekki
skyldi hafa verið hægt að bregðast
fyrr við útkallinu á Barðaströnd.
„Það er alveg ljóst að þarna átti sér
stað alvarlegur atburður. Sem betur
fer upplýstist hann mjög fljótt af af-
skaplega færum rannsóknarlög-
reglumönnum hjá embættinu.“
Lögreglumönnum var beint í bankann
Neyðarkall barst úr Kaupþingi banka í
Austurstræti og fékk það forgang á út-
kall vegna innbrotsins á Barðaströnd
Morgunblaðið/Eggert
Teknir Lögreglan segir að mikilvægar upplýsingar frá almenningi hafi átt
ríkan þátt í að ræningjarnir náðust. Þeir voru leiddir fyrir dómara í gær.
Í HNOTSKURN
»Átta lögreglubílar og fjög-ur mótorhjól voru á götum
höfuðborgarsvæðisins eftir kl.
20.00 á mánudagskvöld og 17
lögreglumenn á þeim sam-
kvæmt varðskrá LRH.
»Auk þess voru þrjú tækifrá umferðardeild með
þremur mönnum í miðborg-
inni.
»Lögreglubílar voru m.a. íKópavogi, við Gullinbrú, í
Norðlingaholti og Garðabæ.
FORSVARS-
MENN Háskól-
ans á Akureyri
leggjast alfarið
gegn því að skól-
inn verði „gerð-
ur út“ frá
Reykjavík. Rök-
stuðning skorti
fyrir slíkum hug-
leiðingum. Þetta
kemur fram í
fréttatilkynningu frá skólanum
vegna niðurstöðu mats sérfræð-
inga, sem unnið var fyrir mennta-
málaráðuneytið, en þeir lögðu til
að háskólar í landinu yrðu tveir.
Annar ríkisrekinn og hinn einka-
skóli.
Forsvarsmenn HA
vilja ekki tilheyra HÍ
HA Rök vanti fyrir
sameiningu.
GRASRÓTIN í BYR sparisjóði efndi í gærkvöld til fundar á Grand Hóteli
undir yfirskriftinni Endurreisn íslenskra sparisjóða. Meginmarkmiðið með
fundinum var að þjappa saman velunnurum sparisjóða og stofna samtök
þeirra. Tilgangur samtakanna sem stofnuð voru í gærkvöld er að standa
vörð um tilvist og hagsmuni sparisjóðanna og efla almennan stuðning við
sparisjóðshugsjónina. Lögð var áhersla á að það væru ekki bara stofnfjár-
eigendur sem gætu gerst félagar. Sveinn Margeirsson verkfræðingur,
stofnfjáreigandi í Byr, var einn þeirra sem ávörpuðu fundinn. Sveinn sagði
í gær að gagnsæi og heilbrigðir viðskiptahættir væru grunnforsenda fyrir
öllu sem verið væri að gera á Íslandi í dag.
Morgunblaðið/Golli
Landssamtök velunnara
sparisjóða stofnuð
Borgarafundur um sparisjóði
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÖLLUM ber saman um að á morgun
renni upp úrslitastund í viðræðunum
um launamál. Rætt hefur verið um
samning út næsta ár eða til tveggja
ára. Á morgun verður allt dregið
saman og látið á það reyna hvort
samkomulag næst um launaliði
samninga. Takist að leiða þetta allt
til lykta verður unnið hratt alla
næstu viku með það að markmiði að
stöðugleikasáttmáli liggi fyrir 9.
júní. Ekki verður þó gengið frá sam-
komulagi í kjaramálum án fyrirvara
um aðgerðir í ríkisfjármálum og í
efnahags- og atvinnumálum.
„Verkalýðshreyfingin ætlar sér
ekki að fara að reka ríkissjóð en við
viljum koma að forgangsröðuninni,“
segir Gylfi Arnbjörnsson, forseti
ASÍ. ,,Ég sé það fyrir mér að það
verði sameinast um forgangsröðun,
um ytri ramma ríkisfjármálanna til
næstu 4 ára.“
Vaxtastefnan og gengi krónunnar
eru hvað erfiðust viðfangs. Þegar
hefur verið rætt við fulltrúa bæði
Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins. Fulltrúar AGS hafa ekki
legið á þeirri skoðun að það sé mjög
áhættusamt fyrir gengi krónunnar
ef gengið verður hraðar fram í
vaxtalækkunum. „Ef við getum ekki
lækkað vexti meira, þá verðum við
að fara í umræðu við bæði Seðla-
bankann og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn um hvað þarf að gera til þess að
hægt sé að lækka vexti. Það verður
að finna leið til þess að við getum
lækkað vexti,“ segir Gylfi. Þetta þarf
að meta í samhengi við hversu langt
verður gengið í ríkisfjármálunum og
öðrum aðgerðum. Að sögn Gylfa
gæti þetta líka haft þá þýðingu að
taka verði erfiðar ákvarðanir um t.d.
lagasetningu gagnvart erlendum
kröfuhöfum, „að þeir séu ekki eins
lausbeislaðir og þeir eru í dag“.
Þurfum aðra í lið með okkur
Rætt hefur verið um að taka upp
fastgengisstefnu en hún þarf að
byggja á digrum gjaldeyrissjóði.
„Hann eigum við ekki til, heldur er-
um með hann að láni,“ segir Gylfi og
vísar til lána frá AGS og Norð-
urlöndum. Það er því óvíst að þeir
sem lána okkur gjaldeyrisforðann
séu tilbúnir til að taka áhættuna.
„Það er okkar vandi að við erum
ekki að gera þetta á eigin áhættu,
heldur þurfum að fá aðra í lið með
okkur. Þeir staldra við og segja sem
svo; eitt er að vilja taka meiri
áhættu, annað er að bera hana.“
Vextirnir og
gengið erfið
viðfangs
Fastgengisstefna þarf digran gjald-
eyrisforða en hann er fenginn að láni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í Karphúsinu Líklega dregur til tíð-
inda í kjaramálunum á morgun.
Langur vegur er frá því að sam-
komulag sé í augsýn í launa-
viðræðum stjórnvalda, samtaka
vinnumarkaðarins og sveitarfé-
laga. Viðræður eru í fullum gangi
og úrslitastund þeirra á morgun.
Í HNOTSKURN
»Viðræður í Karphúsinusíðustu daga hafa snúist
um kjarasamninga hjá ríki og
sveitarfélögum
»Vinnuhópar hafa safnaðað sér upplýsingum um
stöðu efnahagsmála og fyr-
irhugaðar framkvæmdir, m.a.
á vegum orkufyrirtækjanna.