Morgunblaðið - 28.05.2009, Page 32
32 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 28. MAÍ 2009
Meistara Megasi og Senuþjóf-
unum hans halda engin bönd. Þeir
eru nýbúnir að trylla Vestur-
Íslendinga í Kanada og hyggjast nú
gera slíkt hið sama við hina upp-
runalegu. Með því að taka Ísland
aftan frá, eins og Kiddi „Hjálmur“,
eða öllu heldur Senuþjófur, orðar
það. „Við ætlum að fara hringinn í
kringum landið – rangsælis, með
góðri hjálp frá Rás 2,“ segir hann
óðamála og víst er að stemning er í
hópnum. „Þetta var bara hugdetta.
Helgi Svavar (trymbill) sagði okkur
að við ættum að gera þetta og við
bara hlýddum honum. Megas dýrk-
ar þetta og getur eiginlega ekki
beðið eftir því að fara. Við erum
ekki búnir að redda gistingu eða
neitt, því verður bara reddað þá og
þegar. Það er bara upp í sendibíl og
af stað. Þetta er „óld skúl“. Við ætl-
um líka að hafa þetta vel rokkað
prógramm, svona í takt við annað.“
Fyrsta gigg er á sunnudaginn á
Kirkjubæjarklaustri og svo eru það
Höfn, Neskaupstaður, Akureyri,
Sauðárkrókur, Stykkishólmur og
loks Reykjavík.
Megas og co taka
Ísland aftan frá …
Fólk
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
STÓRSÖNGVARINN Björgvin Halldórsson undirbýr nú að eyða
júnímánuði í hljóðverinu þar sem hann ætlar að hrista eitt stykki
kántríplötu fram úr erminni. Um upptökustjórn sér driffjöður
Hjálmanna, Guðmundur Kristinn Jónsson (eða Kiddi eins og
hann er kallaður) gítarleikari, og er hugmyndin að hlaða
nýrri sveit í kringum Bó er getur spilað berstrípuð
kántrílögin beint inn á band.
„Ég hef gengið með þá hugmynd í maganum
að gera kántríplötu með ímyndaðri hljómsveit
er ég kalla Bóbó og Hjartagosana,“ útskýrir
Björgvin. „Hugmyndin er að taka gömul klass-
ísk kántrílög og popplög og berstrípa þau.
Þau verða svo með ljúfsárum íslenskum textum fyrir full-
orðið fólk. Þetta eru erlend lög en einnig ætla ég að láta
nokkur lög eftir sjálfan mig fylgja með. Við ætlum að gera
þetta upp á gamla mátann, hóa saman í band, telja í og
taka upp. Við ætlum að reyna að koma þessu út strax í
júlí.“
Síðustu vikurnar hafa farið í það að finna réttu hljóð-
færaleikarana til verksins. Það gera þeir Björgvin og
Kiddi í sameiningu en eiga enn eftir að fylla í allar
stöður. Björgvin staðfestir þó að Valdimar Kol-
beinn Sigurjónsson úr Hjálmum verði á bassa,
Kiddi á gítar, Þórir Baldursson á orgel, Jón
Elvar Hafsteinsson á gítar og Magnús Ein-
arsson á mandólín. Enn er verið að leita að
trommara.
Þeir Bergur Ebbi Benediktsson,
liðsmaður Sprengjuhallarinnar, Ari
Eldjárn, starfsmaður á auglýs-
ingastofunni Jónsson & Lemacks,
Árni Vilhjálmsson, liðsmaður FM
Belfast, og rapparinn Dóri DNA
standa fyrir uppistandi í kvöld.
Þetta er í annað skipti sem fjór-
menningarnir fara saman með
gamanmál, en fyrsta skiptið var á
skemmtistaðnum Karamba í byrjun
þessa mánaðar. Þá komust mun
færri að en vildu, og var það mál
manna að þeir félagar þyrftu
stærra húsnæði fyrir næsta uppi-
stand. Sú varð þó ekki raunin því
uppistandið í kvöld verður á Prik-
inu. Herlegheitin hefjast kl. 21 og
vilji menn ekki þurfa að berja sér
leið inn á staðinn er vissara að
mæta tímanlega.
Fyndnustu menn Ís-
lands á Prikinu í kvöld
Eftir Arnart Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ er Orri Páll Dýrason, trymbill
Sigur Rósar, sem staðfestir þann orð-
róm við blaðamann að sveitin hafi ætl-
að að henda í nýja plötu í þessum mán-
uði. Ekki nóg með það, heldur er
gripurinn svo gott sem tilbúinn.
„Við ætluðum að klára allan pakk-
ann; upptökur, hljóðblöndun og hljóm-
jöfnun í þessum eina mánuði en það
tókst ekki alveg. En við vorum ansi
nálægt því þó.“
Meiri sýra?
Orri segir að vinnan við plötuna hafi
gengið mun betur en þeir félagar hafi
þorað að vona en vinnan hefur farið
fram í stúdíói hljómsveitarinnar í Mos-
fellsbænum.
„Þetta gengur bara helv … vel,“
segir Orri vígreifur. Hann segir jafn-
framt að platan sé mjög frábrugðin
síðustu tveimur plötum, Með suð í eyr-
um við spilum endalaust (2008) og
Takk … (2005).
„Hún er mun meira „ambient“, lág-
stemmdari einhvern veginn,“ segir
hann. „Kannski aðeins súrari mætti
segja (hlær). Nei, nei, þetta er allt
saman melódískt og fínt þannig en
hún er til muna rólegri en síðustu plöt-
ur. Það eru ekki jafnmikil læti og eru
þar.“
Annars er margt og mikið á seyði
hjá Sigur Rósar mönnum í upphafi
sumars. Á opinberri fréttaveitu sveit-
arinnar, sem er vistuð á www.sigur-
ros.co.uk, er nú auglýst eftir minn-
ingum fólks sem var viðstatt goð-
sagnakennda útgáfutónleika
sveitarinnar vegna Ágætis byrjunar,
sem fram fóru í Íslensku óperunni 12.
júní árið 1999, fyrir réttum tíu árum.
Fólk er beðið að senda inn minningar í
textaformi, myndaformi eða hverju
því formi sem því hugnast.
Orri staðfestir að þetta sé m.a.
vegna sérstakrar endurútgáfu sem er
fyrirhuguð á plötunni, en ævintýrið
sem saga Sigur Rósar hefur verið
undanfarinn áratug hófst með þessu
ótrúlega verki.
„Í endurútgáfunni verður m.a. að
finna upptöku frá útgáfutónleikunum.
Og kannski eitthvert DVD-efni líka,“
segir Orri. „Platan kemur þó ekki út í
sumar, heldur á næsta ári. Það er enn
verið að vinna í þessu og því ýmislegt
opið enn.“
Fljótari og fljótari
Meðlimir hafa þá verið að sinna eig-
in hugðarefnum að undanförnu. Jónsi
er við það að klára sólóplötu auk þess
sem samstarfsverkefni hans og Alex
Somers, Riceboy Sleeps, kemur út í
sumar. Kjartan er að vinna að kvik-
myndatónlist og Goggi, Georg, „er að
dútla við eitthvað heima hjá sér“, segir
Orri. Sjálfur er hann að aðstoða vin
sinn Ölvis við upptökur á plötu.
„En akkúrat núna erum við allan
liðlangan daginn í hljóðverinu að klára
nýju plötuna. Þetta er búið að taka
stuttan tíma, við erum alltaf að verða
fljótari og fljótari að þessu. Um út-
gáfudag og slíkt veit ég hins vegar
ekki, en hún kemur út undir merkjum
EMI, svo mikið er víst.“
„Kannski aðeins súrari...“
Sigur Rós svo gott sem klár með nýja plötu Mjög frábrugðin síðustu verkum
segir Orri Páll Dýrason Afmæli Ágætis byrjunar fagnað með sérstakri útgáfu
Morgunblaðið/Kristinn
Í hljóðverinu Orri (fremstur) ásamt Kjartani og eiginkonu sinni, Lukku.
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
SÁ hinn sami og heldur því fram að
stúlkur séu lítt áberandi í íslensku
tónlistarlífi þarf ekki annað en að
kíkja á uppákomur kvenhópsins Trú-
batrixur til þess að sannfærast um
það að hér á landi er aragrúi af hæfi-
leikaríkum stúlkum sem spila og
syngja sín eigin lög.
Um er að ræða eins konar regn-
hlífarsamtök kvenkyns trúbadúra
sem voru stofnuð af þeim Elízu
Geirsdóttur Newman og Myrru Rós
Þrastardóttur fyrir um tveimur ár-
um. Í næstu viku fagna Trúbatrix-
urnar útgáfu fyrstu safnplötu sam-
takana með heljarinnar reisu í
kringum landið þar sem fram kemur
blandaður hópur reyndari tónlistar-
kvenna og uppkomandi nýstirna. Þar
má nefna Elízu, Elínu Ey, Jöru, Miss
Daisy, kvennasveitina Pascal Pinon
og Mysterious Mörtu, sem var boð-
inn plötusamningur á dögunum eftir
að hafa sigrað í Þorskastríðinu svo-
kallaða.
„Þetta eru mjög opin samtök,“
segir Elíza. „Það var t.d. erfitt að
velja lögin sem enduðu á safnplöt-
unni vegna þess að það voru svo
margar stelpur sem vildu vera með.
Við erum að reyna að skapa vettvang
fyrir stelpur til þess að koma og spila
í þægilegu umhverfi þar sem er ekk-
ert nema stuðningur úr salnum.“
Tónleikaferð Trúbatrixanna hefst
2. júní með tónleikum í Rósenberg.
Eftir það verður hóp stúlkna safnað í
rútu og lagt í hann í kringum landið í
boði Kraums og Rásar 2. Heimild-
armynd verður víst gerð um mynd-
ina en nýja platan, sem er algjörlega
heimaunnin, verður seld í ferðinni.
Rúta full af söngelskum
stúlkum fer hringveginn
Morgunblaðið/RAX
Trúbatrixur Þær Myrra og Elíza halda utan um skipulag ferðarinnar.
Trúbatrixur fagna nýútkominni safnplötu með tónleikaferð
ÞAÐ er óhætt að segja að út-
gáfutónleikar Sigur Rósar
vegna Ágætis byrjunar hafi ver-
ið sögulegir og margir sverja og
sárt við leggja að þetta séu
mögnuðustu tónleikar sem þeir
hafi upplifað – fyrr og síðar.
Þetta voru auk þess kveðju-
tónleikar upprunalegs tromm-
ara sveitarinnar, Ágústs Ævars
Gunnarssonar. Orri Páll Dýrason
tók svo sæti hans um sumarið
og tók vígslu með því að fara í
hringferð um landið með sveit-
inni.
Sögulegir tónleikar
Björgvin Búinn að taka upp kassagítarinn aftur.
Björgvin stofnar Bóbó og Hjartagosana