Morgunblaðið - 15.06.2009, Page 1
ÞEIR voru ekki allir háir í loftinu hinir ungu hestamenn
framtíðarinnar sem nutu sín í góða veðrinu í Vík í Mýrdal um
helgina. Krakkarnir voru á reiðnámskeiði þar sem þeir lærðu
meðal annars að stjórna fákunum og sitja fallega í hnakk.
Bæði ferfætlingar og fólk féllu fagurlega inn í blómahafið og
Reynisdrangar risu líkt og steintröll upp úr hafinu.
Morgunblaðið/Ómar
M Á N U D A G U R 1 5. J Ú N Í 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
160. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
« ALÞJÓÐLEGT TÓNLISTARNÁMSKEIÐ
SAMVINNAN ER
EINTÓM GLEÐI
«ELDHUGAR Í VESTMANNAEYJUM
SÖFNIN OG SAGAN
Á SAMA STAÐ
Bestu kylfingar landsins kepptu á
stigamóti GSÍ á Garðavelli á Akra-
nesi þar sem Signý Arnórsdóttir og
Sigmundur Einar Másson fögnuðu
sigri.
Íþróttir
Sigmundur og
Signý sigruðu
Helga Margrét Þorsteinsdóttir
bætti eigið Íslandsmet í sjöþraut og
hún fagnaði jafnframt Norður-
landameistaratitlinum í keppni 22
ára og yngri.
Helga Margrét
bætti eigið met
Fjórir leikir fóru fram í Pepsi-deild
karla í gær í fótboltanum. Öruggt
hjá meisturunum í Grindavík. Góð-
ur endasprettur KR. Stjarnan held-
ur sínu striki. ÍBV tapaði.
Þróttarar brutu
ísinn og sigruðu
RÖKSTUDDUR grunur er um að
brögð hafi verið í tafli í forseta-
kosningunum í Íran, eftir að í ljós
kom að Mahmoud Ahmadinejad Ír-
ansforseti hafði fengið umtalsvert
fleiri atkvæði en mótframbjóð-
endur hans í heimabæjum þeirra.
Samtök hófsamra klerka fara
fram á að endurkjör Ahmadinejads
verði ógilt, með þeim orðum að ef
haldið verði áfram á sömu braut
muni það grafa undan stoðum lýð-
ræðisins og fólk missa trú á kerfið.
Helsti keppinautur Ahmad-
inejads, Mir Hossein Mousavi, segir
víða hafa skort kjörkassa og að vef-
síðu sinni hafi verið lokað. | 13
Rökstuddur grunur
um kosningasvindl
Reuters
Fylgismenn forsetans fagna sigri.
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
LANDSBANKINN hefur vísað til
Fjármálaeftirlitsins til frekari skoð-
unar máli þar sem inn á fjárvörslu-
safn í einkalífeyrissparnaði við-
skiptavinar bankans hafi verið
keypt veðskuldabréf útgefið af
sama viðskiptavini. Samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins er um að
ræða Sigurjón Þ. Árnason, fyrrver-
andi bankastjóra Landsbankans. Þá
hefur sjóðstjóra hjá bankanum ver-
ið vikið tímabundið frá störfum.
Í tilkynningunni segir að í reglu-
legri úttekt innri endurskoðunar
Landsbankans hafi komið fram að
inn á fjárvörslusafn í einkalífeyris-
sparnaði viðskiptavinar hafi verið
keypt veðskuldabréf, útgefið af
sama viðskiptavini. Ákvörðun um
kaupin hafi verið tekin af eiganda
safnsins og sjóðstjóra án samráðs
við yfirstjórn bankans. Ekki sé um
önnur sambærileg tilvik að ræða
hjá öðrum viðskiptavinum.
Sigurður G. Guðjónsson lögmað-
ur útbjó tvö veðskuldabréf sem Sig-
urjón Þ. Árnason fékk tvö kúlulán
út á, samtals að fjárhæð 70 millj-
ónir króna, hjá séreignarlífeyris-
sjóði í vörslu Landsbankans í nóv-
ember á síðasta ári. Segir Sigurður
að lífeyrissjóðurinn sé einkaeign
Sigurjóns.
Hrafn Magnússon, framkvæmda-
stjóri Landssamtaka lífeyrissjóða,
segir að samkvæmt lögum um
skyldutryggingu lífeyrisréttinda og
starfsemi lífeyrissjóða geti lífeyris-
sjóðir ekki verið í einkaeigu.
Fékk samtals 70 milljóna lán | 6
Lán Sigurjóns til FME
» Sigurjón Þ. Árnason fékk 70 milljónir að láni
» Lögmaður hans segir hann sjálfan veita lánin
» Lífeyrissjóðir ekki í einkaeigu skv. lögum
Landsbankinn vísar lántökum fyrrverandi bankastjóra til Fjármálaeftirlitsins
EKKI hefur
verið ákveðið
hver tekur við
starfi bæjar-
stjóra í Kópavogi
af Gunnari I.
Birgissyni sem
boðist hefur til
að hætta, verði
það til þess að
meirihlutasamstarf Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks í bæn-
um haldi áfram. Óánægju gætir
meðal sjálfstæðismanna með að
Gunnar skuli víkja, að kröfu fram-
sóknarmanna.
Málið verður útkljáð á fundi full-
trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í
kvöld. Til umræðu hefur komið
meðal stuðningsmanna Gunnars að
skora á hann að hætta ekki. »2
Ekki vitað hver tekur við
sem bæjarstjóri í Kópavogi