Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009 FRÉTTASKÝRING Eftir Sigurð Boga Sævarsson sigbogi@mbl.is Á SÍÐUSTU árum hafa sjö Íslendingar, sem hlotið hafa mænuskaða, farið til Gautaborgar í Svíþjóðar í aðgerðir sem veita fólki að nýju mátt í hendur og bæta færni. Tekin er sin úr ósködduðum vöðvum og hún tengd lömuðum vöðvum, til dæmis í framhandlegg. Með því getur fólk hreyft fingur að nýju og notað hendur. „Árangurinn af þessu er frábær. Fyrir mér var í raun opinberun að sjá að þetta væri hægt,“ segir Sig- þrúður Loftsdóttir, iðju- þjálfi á Grensásdeild Land- spítalans. Aðgerðirnar eru gerðar á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg, þar sem Páll Ingvarsson taugalæknir við Grens- ásdeild starfaði til fjölda ára. Þegar hann kom til starfa hér heima fór hann strax að leita nýrra leiða í meðferð fyrir skjólstæðinga sína. Meðal þess voru áðurnefndar aðgerðir, sem lengi hafa verið stundaðar af læknum í Gauta- borg með góðum árangri. Forsenda þess að fólk með mænuskaða kom- ist í handaaðgerðir er að hafa fulla olnboga- réttu. Þeir sem hafa slíkt ekki, þurfa því að byrja í olnbogaaðgerð eins og einn Íslendingur hefur farið í. Aðgerð á hendi getur þá komið hálfu ári síðar. Þá eru sinar úr upphandleggs- vöðvum tengdar fram í höndina svo fólk nær gripi með fingrunum og getur með æfingum sinnt nauðsynlegum athöfnum daglegs lífs, burstað tennur, haldið á glasi, unnið á tölvu og svo framvegis. Sumir treysta sér ekki Ef læknar meta mál þannig að sjúklingur hafi gagn af handaraðgerð sem bætir færnina, er honum í upphafi gerð grein fyrir að mögu- leikinn sé til staðar. Viðkomandi á svo val um framhaldið. „Það eru alls ekki allir sem hafa áhuga. Sumir gefa sér hreinlega ekki tíma og margir treysta sér einfaldlega ekki í frekari að- gerðir, enda geta slíku fylgt sárar endur- minningar frá frumendurhæfingu fyrst eftir slys,“ segir Sigþrúður. Hér heima hefur sá póll verið tekinn í hæðina að senda sjúklinga frekar utan í aðgerðir en gera þær hér heima. Aðgerðirnar eru dýrar og það fáar að íslenskir læknar myndu aldrei fá þá þjálfun sem er nauðsynleg. Sænski handar- skurðlæknirinn Jan Fridén sem annast aðgerð- irnar ytra kemur því reglulega hingað til lands, skoðar sjúklinga og metur hvort aðgerð gagnast viðkomandi. Aðgerðirnar eru greiddar af Tryggingastofnun ríkisins og greiddar skv. samþykki svonefndrar siglinganefndar. Sannarlega aukin lífsgæði Fyrsti Íslendingurinn fór í svona aðgerð í febrúar 2006. Það var Aðalsteinn Hallsson á Húsavík, sem lamaðist neðan við brjóst eftir bílslys fyrir rúmum tuttugu árum. Hann er með eðlilega hreyfigetu í öxlum en í aðgerð ytra fyrir þremur árum voru fingur hans tengdir með sin úr upphandlegg. Aðgerðin olli straum- hvörfum í hans lífi eins og fram kom í Morg- unblaðinu á sínum tíma. Sigþrúður segir líklegt að nokkrir ein- staklingar fari í aðgerðir í Gautaborg á næstu misserum. „Við erum með nokkra kandídata á blaði,“ segir Sigþrúður. Gangurinn í málinu er þá sá að sjúklingur fer utan með fylgdarmanni, oft úr röðum starfsfólks Grensásdeildar, á sunnudegi og er aftur kominn heim fyrir viku- lok. Þá tekur við endurhæfing sem er í raun sjúklingsins sjálfs að sinna. „Fingurnir öðlast mátt. Eftir því þarf sjúklingurinn að haga æf- ingunum, að höndin kenni heilanum að nú sé hægt að hreyfa fingurna aftur,“ útskýrir Sig- þrúður og bætir við að aðgerðirnar hafi svo sannarlega aukið lífsgæði þeirra skjólstæðinga sinna sem hafa farið í þessar aðgerðir. Það sjá- ist best í daglegu lífi viðkomandi og eins þegar viðkomandi mætir í reglulegt endurmat lækna, iðjuþjálfa og annarra sérfræðinga. Höndin kennir heilanum  Sjö Íslendingar hafa farið í færnibætandi aðgerðir í Gautaborg  Sinar voru fluttar til og tengdar lömuðum vöðvum  Með aðgerðunum getur fólkið hreyft fingur og notað hendur að nýju Aðgerð Handaraðgerðirnar eru framkvæmdar á Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg. Í læknavísindunum þykja þær um margt merkilegar, enda kemur fjöldi sérfræðinga víða frá og fylgist með hvernig staðið er að verki. Endurhæfingin í kjölfarið fer síðan fram hér heima. Árangurinn af aðgerðum sem sjö Íslend- ingar hafa sótt til Gautaborgar vegna mænuskaða er frábær, segir iðjuþjálfi á Grensásdeild. Fólk getur eftir aðgerðirnar sinnt nauðsynlegum athöfnum daglegs lífs. Sigþrúður Loftsdóttir ÞINGEYINGURINN Sverrir Ingólfsson gekkst undir aðgerð á vinstri hendi í Svíþjóð í nóvember á síðasta ári. Fingur hans voru tengdir hendinni með nýjum sinum sem meðal annars voru teknar úr upphandlegg „Ég er farinn að geta gert ýmsa hluti sem mér voru ómögulegir áður,“ segir Sverrir sem fyrr í vikunni gekkst undir færnimat hjá iðjuþjálfum Grensásdeildar. Getur hann nú meðal annars skrúfað litlar sem stórar rær á bolta með hendinni, snúið lykli í skrá og fært til mjólkurkönnu og hellt úr henni í bolla með því að taka um handfangið. Ýmsir fleiri þættir voru kannaðir í færnimatinu, þar sem útkoman var að flestu leyti mjög góð. „Sverrir er í klárlega í mikilli framför,“ segir Sigþrúður iðjuþjálfi. Sverrir er lamaður neðan mittis og bundinn við hjólastól eftir mænublæðingu fyrir rúmum tuttugu árum. Blæðingin hafði einn- ig þær afleiðingar að hann missti mátt í fingrum vinstri handar, sem nú hafa aftur verið gæddir lífi ef svo má að orði komast. „Þeg- ar mér bauðst að fara í aðgerð ákvað ég strax að þekkjast boðið. Fór út til Gautaborgar í nóvember og í framhaldinu tók svo við nokkurra vikna þjálfun hér heima. Mér finnst árangurinn alveg stórkostlegur og ég er ánægður með hvernig til hefur tekist,“ út- skýrir Sverrir sem segist hafa vel getað sinnt sínu með þrótt í ann- arri hendi. Viðbótin sé þó býsna góð og nýtist sér vel meðal annars í bílaviðgerðum en Sverrir rekur Samgönguminjasafnið á Ysta- felli í Köldukinn. Viðbótin er góð Ró á bolta Sverrir á Ystafelli fór í færnimat iðjuþjálfa í vikunni og út- koman sýnir miklar framfarir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi „ÞETTA eru algjörar kraftaverkaaðgerðir,“ segir Kristín Inga Brynjarsdóttir. Hún slas- aðist í bílslysi undir Hafnarfjalli árið 2002 og varð fyrir alvarlegum mænuskaða. Lamaðist fyrir neðan brjóst og átti auk heldur meðal annars bágt með allar fínni handahreyfingar. Með aðgerðum tókst að bæta úr því. „Fyrri aðgerðin í Gautaborg sem ég fór í, var í janúar 2007. Þá var settur pinni í þum- alfingur hægri handar þannig að hann sneri rétt. Í október þetta sama ár fór ég í aðra að- gerð þar sem var skorið í handlegginn. Sinar voru færðar til og þræddar þannig að ég öðl- aðist mátt í fingur vinstri handar og grip milli þumal- og vísifingra. Eftir það hef ég náð ágætu valdi á fínhreyfingum sem er mjög kærkomið því mér finnst gaman að sauma, mála og fleira slíkt. Fyrir hannyrðakonu er þetta alveg frábært,“ segir Kristín Inga, sem innan tíðar fer í enn eina aðgerðina þar sem rétta á úr kreppu á baugfingri á vinstri hendi. Sú aðgerð verður gerð hér heima af lækninum sænska sem fyrr er nefndur. Öðlaðist mátt Hannyrðakonan Alveg frábært, segir Kristín Inga Brynjarsdóttir. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Aðgerðir gegn mænuskaða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.