Morgunblaðið - 15.06.2009, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 15.06.2009, Qupperneq 21
Minningar 21 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009 ✝ Einar Sig-urgeirsson fædd- ist á Seyðisfirði 29. maí 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Seyð- isfjarðar 6. júní 2009. Foreldrar hans voru hjónin Sigrún Matt- hildur Einarsdóttir, f. á Unaósi í Hjalta- staðaþinghá í N- Múlasýslu 29. júní 1897, d. 17. október 1991, og Vigfús Sig- urgeir Þórðarson, ættaður úr Berufirði, f. 16. júní 1885, d. 1. desember 1953. Einar var þriðji í röð sjö systkina, hin eru Guðmundur Har- aldur, f. 4. júlí 1924, Björg Guð- björt, f. 9. september 1926, d. 4. júní 2001, Jón Bjartmar, f. 19. mars 1930, d. 4. apríl 1956, Margrét Ingi- björg f. 27. ágúst 1931, d. 18. ágúst 2003, Hreinn, f. 1. maí 1933, og Sig- urður, f. 2. febrúar 1935, d. 12. október 1991. Einar bjó alla ævi á Seyðisfirði og starf- aði lengst af hjá Skipasmíðastöð Seyð- isfjarðar. Útför Einars verður gerð frá Seyðisfjarðarkirkju í dag, 15. júní og hefst athöfnin kl. 14. Það er komið að kveðjustund. Ein- ar frændi er látinn. Í huganum ósk- um við honum góðrar ferðar og þökkum samfylgdina. Austurland er Eden jarðar, æsku minnar paradís þar ég glaður gætti hjarðar grét og söng við blóm og ís. Þegar speglar fjörður fagur fell og sveit og hamratind æðri sýn leit engin dagur eilíf sé þar fyrirmynd. (Ríkarð Jónsson.) Þín minning lifir. Geirdís, Indriði og fjölskyldur. Einar Sigurgeirsson Lokað verður í dag, mánudaginn 15. júní, frá kl. 15.00-17.00 vegna jarðarfarar HERMANNS SIGFÚSSONAR. Nýja sendibílastöðin. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, HULDA PÁLSDÓTTIR, Bárugötu 8, 620 Dalvík, verður jarðsungin frá Dalvíkurkirkju fimmtudaginn 18. júní kl. 13:30 Hartmann Kristjánsson, Páll Heiðar Hartmannsson, Dóra Marý Kjartansdóttir, Elsa Hartmannsdóttir, Magnús Már Steinþórsson, og barnabörn. ÍSLENSKAR LÍKKISTUR Góð þjónusta - Gott verð Starmýri 2, 108 Reykjavík 553 3032 Opið 11-16 virka daga ✝ Þórarinn Árnasonfæddist í Reykja- vík 3. febrúar 1932. Hann lést á Landspít- alanum í Fossvogi 3. júní síðastliðinn. For- eldrar hans voru Árni Sigurðsson frí- kirkjuprestur í Reykjavík, f. 13. sept- ember 1893, d. 20. september 1949, og Bryndís Þórarins- dóttir, f. 10. desem- ber 1899, d. 11. nóv- ember 1988. Systur Þórarins eru Ragnheiður, f. 8. október 1923, gift Ísak Sigurgeirs- syni, f. 2. maí 1921, og Ingibjörg, f. 10. október 1926, d. 15. júní 2004, gift Þórarni Sveinssyni, f. 20. jan- réttindi árið 1962. Þórarinn starf- aði sem fulltrúi hjá bæjarfóg- etanum í Hafnarfirði og sýslumanninum í Gullbringu- og Kjósarsýslu frá 1959 til 1964, þeg- ar hann gerðist lögfræðingur við Búnaðarbanka Íslands í Reykjavík. Hann vann hjá Búnaðarbankanum allar götur þangað til hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Þar annaðist hann einkum málefni Stofnlánadeildar landbúnaðarins og var lögfræðingur hennar frá árinu 1988. Þá var Þórarinn lög- fræðingur Ferðamálasjóðs um skeið. Þórarinn sat í kjaramálanefnd Lögfræðingafélags Íslands frá 1971 til 1973. Hann átti nokkrum sinnum sæti í yfirkjörstjórn Sam- bands ísl. bankamanna um vinnu- samninga. Útför Þórarins fer fram frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag, 15. júní, og hefst athöfnin kl. 13.30. úar 1925, d. 22. júní 1985. Börn Ragnheið- ar og Ísaks eru Árni, maki Ásta Guðrún Sigurðardóttir, Jón, maki Guðrún Jóhann- esdóttir, Bryndís, maki Jón Torfi Jón- asson, og Ragnheið- ur, maki Róbert Dar- ling. Börn Ingibjargar eru Árni, maki Valgerður Þ. Jónsdóttir, og Stein- unn, maki Jón Ársæll Þórðarson. Þórarinn Árnason lauk stúdents- prófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1953 og varð cand. juris frá Háskóla Íslands árið 1959. Hann fékk héraðsdómslögmanns- Frændi minn Þórarinn Árnason, sem oftast var kallaður Lalli innan fjölskyldunnar, lést þann 3. júní eftir skamma sjúkdómslegu. Þar sem Þórarinn hafði notið tiltölulega góðrar heilsu kom andlát hans sum- um okkar í opna skjöldu því ekki er langt síðan hann fór til Kína með ferðahópi lögfræðinga en hann hafði yndi af slíkum fræðandi ferðum. Þórarinn var einstakt ljúfmenni og þægilegur í viðmóti. Hann var sérlega fróður um sögu lands og þjóðar og hafði mikinn áhuga á sagnfræði og öðrum slíkum fróðleik og þar var hann algjör viskubrunn- ur. Hins vegar lærði hann lögfræði og starfaði sem lögfræðingur hjá Búnaðarbankanum til starfsloka. Þórarinn hafði gaman af gönguferð- um og fór allra sinna ferða um Reykjavík fótgangandi, einkum hin síðari ár. Hann fór þrisvar í viku í Sundlaug Vesturbæjar sem hann taldi vera mikinn heilsubrunn. Málefni Fríkirkjunnar í Reykja- vík voru honum ætíð hugleikin enda hafði faðir hans séra Árni Sigurðs- son verið prestur í kirkjunni þar til hann lést langt um aldur fram árið 1949 og Bryndís Þórarinsdóttir móðir hans var formaður kvenfélags Fríkirkjunnar í áratugi. Þórarinn starfaði nokkuð að málefnum kirkj- unnar og var m.a. í stjórn Bræðra- félags hennar í nokkur ár. Þórarinn var ókvæntur og hélt lengst af heim- ili með Bryndísi móður sinni á Mel- haga 3 í Reykjavík. Við andlát henn- ar árið 1988 fluttist hann að Fálkagötu 17, þar sem hann bjó til æviloka. Á þessum tímamótum rifjast upp fyrir mér minningar um ferðalag með Lalla frænda og ömmu Dísu á óðal feðranna að Valþjófsstað í Fljótsdal á sjöunda áratug síðustu aldar. Var þá oft glatt á hjalla í Atla- vík eða á Eiðum hjá Þórarni móð- urbróður og nafna Lalla. Lalli hafði þá nýlega tekið bílpróf og fjárfest í Volkswagen-bjöllu. Lalli naut svo sannarlega þessa ferðalags á sinn ljúfa og yfirvegaða hátt. Blessuð sé minning Lalla frænda. Árni Ísaksson. Fyrstu minningar mínar um Þór- arin, móðurbróður minn, eru frá þeim tíma er hann bjó með ömmu Dísu á Melhaganum, þá ungur mað- ur í námi. Þegar systurbörn hans komu í heimsókn las hann oft eitt- hvað skemmtilegt fyrir okkur. Í minningunni ber hæst ævintýri H.C. Andersen, þótt eflaust hafi ýmislegt annað komið við sögu. Hvort ástæð- an fyrir lestrinum var sú að það þurfti að hafa ofan af fyrir yngri kynslóðinni svo systur hans og amma gætu spjallað saman í ró og næði er óvíst, en við nutum alltént sögustundanna og mig grunar að hann hafi gert það líka. Hann hafði gaman af börnum, átti það til að stríða okkur á sinn hægláta hátt og brosti í kampinn þegar við espuð- umst upp. Þessi vinsamlega kerskni fylgdi honum alla tíð. Örlögin höguðu því svo að Lalli, eins og hann var alltaf kallaður í fjölskyldunni, og amma bjuggu í sama húsi í tæp 40 ár. Það fyrir- komulag varð þeim báðum til far- sældar og gleði enda mjög samrýnd mæðgin. Þegar amma Dísa eltist kom það æ meir í hlut Lalla að vera hinn sterki aðili í rekstri heimilanna tveggja og gerði hann það með sóma þótt hann væri í fullu starfi utan heimilis. Hann gætti þess alltaf að sinna líka eigin hugðarefnum. Á yngri árum og fram eftir aldri hafði hann gaman af því að fara í kvik- myndahús þó að sá áhugi hafi dvínað á síðustu árum. Áhugamál hans, fyrir utan lög- fræðina, voru tónlist, sund, ferðalög og eiginlega allt sem tengdist sagn- fræði- og menningarlegum málefn- um og hann sótti alla tíð málþing og fyrirlestra á þessum sviðum. Hann ferðaðist víða, m.a. í félagsskap ann- arra lögfræðinga, og var mjög fróð- ur um staði, menn og málefni. Hvergi var komið að tómum kof- unum hjá honum þegar Íslandssög- una, mannkynssögu eða tónlist bar á góma og hann lumaði á mörgum skemmtilegum sögum frá liðinni tíð. Lalli var frændrækinn og fé- lagslyndur og naut þess að vera á mannamótum. Um margt var hann vanafastur og vildi virða gamlar og góðar hefðir. Ef til vill hefur upp- vöxtur hans á prestsheimili haft sitt að segja um það að helgidagar og hátíðisdagar voru honum mikilvæg- ir. Á slíkum tyllidögum vildi hann gjarnan gera sér dagamun, helst með hefðbundnu sniði. Síðastliðin 20 ár bjó Lalli í næstu götu við okkur fjölskylduna. Hann var hættur að aka bíl og þótti gott að geta litið í heimsókn í nágrenninu. Það gerði hann iðulega og við áttum með honum margar góðar stundir, bæði hversdags og á hátíðisdögum. Nærvera hans var hófstillt og nota- leg og við munum sakna vinar og einstaks ljúfmennis. Góður drengur er genginn og við minnumst hans með hlýju, þakklæti og virðingu. Bryndís Ísaksdóttir og fjölskylda. Stundirnar með Lalla frænda heima hjá ömmu (systur hans) og afa á Bergstaðastrætinu eru meðal elstu minninga minna. Hann var ein- staklega fróður um liðna tíma í víð- um skilningi, hafði mikla unun af að bjóða öðrum í samferð um söguna og má segja að sú miðlun hafi verið í senn leiðarstef og undirstaða okkar vinskapar í yfir 30 ár. Í bernskunni birtist þetta í að rifja upp gömlu gát- urnar og þulurnar, „fagur fiskur í sjó“, „það er kominn gestur segir prestur“ og „fullt hús matar sem finnast ekki dyr á“. Ég er að reyna að rifja þetta upp núna þegar ég pára niður þessar línur en man varla einn tíunda þessa gamla minning- ararfs sem endurspeglar að minni hans var framar öðrum á þessu sviði. Síðar meir fórum við að spila Söguspilið gamla, borðspil þar sem leikmenn öttu kappi í að ferðast sem hraðast um Íslandssöguna að enda- marki. Vont var að lenda á reitum á borð við „svarti dauði“ og „einok- unarverslunin“ en „stofnun Alþing- is“ og „upphaf flugsins“ gáfu kepp- endum byr í seglin. Lalli gæddi spilið auknu lífi með fróðlegum sög- um af hverjum atburði og sá þar að auki ætíð til þess að litli frændinn sigraði að lokum. Ég er fullviss að þarna hafi verið plægður jarðvegur sem leiddi til að ég fór síðar að leggja stund á sagnfræði við Há- skóla Íslands og þá var aldeilis ekki ónýtt að eiga frændann að. Hann gat útlistað í þaula hugmyndafræði Vídalínspostillu og tildrög hræðslu- bandalagsins og bjó yfir miklum bókakosti sem auðveldaði til muna heimildaöflun. Lalli var ætíð ein þeirra stoða og stytta sem gerðu fjölskyldulífið auð- ugt, sunnudagssteikin hjá ömmu, jólaboðin, páskarnir, afmælisveisl- urnar, þessar stundir voru óhugs- andi án þess að hann væri viðstadd- ur. Enda voru slík mannamót hans ær og kýr. Þótt hann léti stundum lítið fyrir sér fara var ætíð stutt í fróðlegar ábendingar um hvernig sagan endurtæki sig eða kómískar sögur af mannlífi liðinna tíma. Þegar fram liðu stundir efldist vinátta okk- ar og dafnaði í raun utan hinna rót- grónu fjölskyldabanda enda brúuðu sameiginleg áhugamál auðveldlega 42 ára aldursbilið. Síðustu árin fórum við að ferðast saman út fyrir landsteinana, m.a. til Þýskalands, Rússlands og Kína, og auk sögunnar deildum við þeirri ástríðu að hlusta á sígilda tónlist. Hlustuðum gjarnan saman á sinfóní- ur og óperur og fórum jafnvel að sækja tónlistarviðburði til fjarlægra landa. Mér er einkum minnisstætt hversu snortinn hann var að sjá Meistarasöngvara Wagners í Ríkis- óperu Berlínar og nú síðast Turan- dot Puccinis í námunda við For- boðnu borgina í Peking. Tilviljanirnar geta sett mark sitt á lífshlaupið á undarlegan hátt. Ég var staddur í Havana á Kúbu í byrj- un júnímánaðar árið 2004 þegar ég frétti að amma mín, systir Lalla, hefði látist 77 ára að aldri. Hinn 3. júní síðastliðinn var ég á flakki um höfuðborg annars alþýðuveldis, Hanoi í Víetnam, þegar mér bárust tíðindin að Lalli hefði fallið frá eftir skammvinn veikindi. Hann var 77 ára gamall. Samverustundirnar verða ekki fleiri en minningin um einstakan vin lifir. Pétur Hrafn Árnason. Þótt hann væri hávaxinn fór ekki mikið fyrir honum og ekki tranaði hann sér fram. Samt var hann víða nálægur. Við kynntumst fyrst í þriðja bekk Lærða skólans í Reykja- vík. Og þótt hann væri hæglátur mátti skjótt finna að þar fór margvís maður. Ég fékk hann því til að birta ritrýni á allt efni Skólablaðsins þann vetur sem ég réð þar nokkru um. Og það gerði hann svikalaust. Hann var að sumu leyti einfari, en því fór fjarri að hann forðaðist félagsskap. Hann var manna ötulastur að sækja menningarsamkomur af fjölbreytt- um toga. Maður rakst hvarvetna á hann, hvort heldur var á sinfóníu- tónleikum eða fundum félags um átjándu aldar fræði. Sem nýlegt dæmi skal tekið að helgi eina fyrir mánuði fékk hann far með Þór Magnússyni austur að Laugavatni til að sitja málþing um Ólaf Briem. Daginn eftir er hann fyrstur manna í Norræna húsið að hlýða dagskrá um Carl Michael Bellman. Og hann ferðaðist meira en menn almennt vissu. Seinustu áratugi hittumst við flesta morgna í Sundlaug Vestur- bæjar. Hann kom þó aldrei á mánu- dögum, og voru margar getur að því leiddar, hvernig á því stæði og hvað hann aðhefðist þá stundina. En hann fer með það leyndarmál í gröfina. Hann átti sinn fasta sess í potti og dirfðist enginn frekjuhundur að ryðjast þangað. Þar er sem kunnugt er ekki töluð vitleysan, en samt bar við að Þórarinn þurfti að hvísla fram einhverri hógværri leiðréttingu sem bessevisserar reyndu sjaldnast að andmæla. Ég þykist mæla fyrir munn margra að við söknum Þór- arins. Árni Björnsson. Við andlát Þórarins koma ýmsar minningar upp í hugann. Langt er síðan ég kynntist honum en á tíunda áratugnum bjuggum við um skeið í sama stigagangi á Fálkagötu. Á seinni árum fórum við stundum saman í ökuferðir um nágrenni borgarinnar, síðast í vor á Þingvöll. Þórarinn var mikill heiðursmaður og þægilegur í umgengni, víðlesinn og margfróður, sérstaklega í sögu, en hann átti gott bókasafn sem hann fékk að hluta í arf eftir föður sinn. Hann hafði mikinn áhuga á ferðalög- um og hafði víða farið, einkum á síð- ustu árum, svo sem til Suður-Afríku og Kína. Ég hitti hann í síðasta sinn í ferð öldungadeildar lögfræðingafélags- ins á Landnámssetrið í Borgarnesi og var hann þá hress og glaður. Hans er gott að minnast. Ég sendi ættingjum hans samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Þórarins Árna- sonar. Þorsteinn Skúlason. Þórarinn Árnason Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist val- kosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minn- ingargrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Greinar, sem berast eftir að út- för hefur farið fram, eftir tiltekinn skilafrests eða ef útförin hefur ver- ið gerð í kyrrþey, eru birtar á vefn- um, www.mbl.is/minningar. Æviá- grip með þeim greinum verður birt í blaðinu og vísað í greinar á vefn- um. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.