Morgunblaðið - 15.06.2009, Blaðsíða 27
Menning 27FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
ÞORGERÐUR Edda Hall fer fyrir
hópi ungs fólks sem stofnaði Tónlist-
arhátíð unga fólksins sem var haldin í
Salnum í fyrsta sinn í ágúst í fyrra.
Ætlunin var að skapa vettvang þar
sem tónlistarnemendur á hinum
ýmsu stigum náms gætu komið sam-
an og lært af frábærum listamönnum
og haldið tónleika.
Hátíðin tókst í alla staði vel, og
meðal þess sem boðið var uppá, var
námskeið í kvartettleik undir hand-
leiðslu Sigurbjörns Bernharðssonar
sem leikur með margverðlaunaða
Pacifica-kvartettinum sem þykir einn
besti strengjakvartett samtímans.
Þegar farið var að skipuleggja há-
tíðina í ár, kom á daginn að Sigur-
björn yrði ekki viðlátinn í ágúst
vegna anna erlendis. Þorgerður
Edda og félagar hennar dóu ekki
ráðalaus, heldur ákváðu að flýta þess-
um þætti Tónlistarhátíðar unga fólks-
ins.
Frá því á mánudag í síðustu viku,
hafa sextán ungmenni frá fimm mis-
munandi löndum og níu mismunandi
tónlistarháskólum æft linnulaust,
átta tíma á dag, undir handleiðslu
Sigurbjörns.
Hópnum er skipt í fjóra kvartetta,
sem hver um sig hefur það verkefni
að fullæfa einn kvartett eftir eitt fjög-
urra tónskálda: Brahms, Beethoven,
Mendelssohn og Sjostakovitsj, en
annað kvöld kl. 20 verða haldnir tón-
leikar í Kópavogskirkju, þar sem af-
rakstur námskeiðsins verður fram
reiddur.
Tónlistarskóli Kópavogs lætur
krökkunum í té æfingahúsnæði í skól-
anum; þau hafa athvarf í ungmenna-
miðstöðinni Molanum handan göt-
unnar, og af einstökum velvilja sjá
foreldrar Sigurbjörns, sr. Bern-
harður Guðmundsson og Rannveig
Sigurbjörnsdóttir, um mat fyrir
krakkana í hádeginu, og kaffi síðdeg-
is. Ekki veitir af þegar setið er og
spilað allan liðlangan daginn.
Þetta er
eintóm gleði!
Morgunblaðið/Golli
Þorgerður Edda Hall „Útlendingum finnst spennandi að koma til Íslands, og af hverju þá ekki að halda svona námskeið hér?“ Þorgeður Edda gaf sér tíma
til að líta upp frá sellóleiknum á æfingu hjá Sigurbirni Bernharðssyni fyrir helgi. Tónleikar kvartettanna verða í Kópavogskirkju annað kvöld kl. 20.
Ungir tónlistarnemar skipuleggja
alþjóðlegt námskeið hér á landi
Í HNOTSKURN
» Meðal skólanna sem ung-mennin koma úr má nefna
Juilliard-skólann, Boston Uni-
versity, North-Western Uni-
versity, Barratt Due musikk-
institutt í Ósló, Tónlistar-
háskólann í Utrecht og
Tónlistarháskólann í Berlín
auk Listaháskóla Íslands.
» Útlensku krakkarnir gistaá heimilum íslensku
krakkanna – einfalt mál.
SÖNGKONAN Ragnheiður
Gröndal flytur íslensk þjóðlög
á tónleikum í Salnum í Kópa-
vogi annað kvöld. Auk Ragn-
heiðar koma fram Haukur
Gröndal á klarínett, Guð-
mundur Pétursson á gítara,
Birgir Baldursson og Matthías
Hemstock á slagverk.
Ragnheiður ætlar að finna
nýja fleti á þjóðlögum okkar og
einnig flytja minna þekkt þjóð-
lög í nýjum útsetningum sem hún hefur unnið í
samvinnu við hljómsveitarmeðlimi. Tónleikarnir
hefjast kl. 20:30 og er miðaverð 2.000 kr. Miðar
fást í forsölu á www.midi.is.
Tónlist
Ragnheiður og
þjóðlögin í Salnum
Ragnheiður
Gröndal
Á ÞJÓÐHÁTÍÐARDAGINN
kemur út skáldfræðisagan
Handbók um hugarfar kúa eft-
ir Bergsvein Birgisson.
Í bókinni segir frá ungum
menningarfræðingi, sem snýr
heim eftir strangt nám í út-
löndum.
Handbók um hugarfar kúa
er önnur skáldsaga Bergsveins
Birgissonar, en árið 2003 kom
út hjá Bjarti skáldsagan
Landslag er aldrei asnalegt og var hún tilnefnd til
Íslensku bókmenntaverðlaunanna.
Það er Bjartur sem gefur út en bókarkápuna
hannaði Sveinbjörg Jónsdóttir.
Bókmenntir
Handbók um
hugarfar kúa
Handbók um
hugarfar kúa
NÆSTKOMANDI miðviku-
dag heldur Óttar M. Norðfjörð
sýningu á klippilistaverkum
sem hann vann fyrir bók sína,
Arkitektinn með alpahúfuna.
Um er að ræða ævisögu Sverr-
is Norðfjörð, föður Óttars, sem
lést 17. júní í fyrra, 67 ára að
aldri. Ævisagan er unnin úr
dánarbúi Sverris, svo sem ljós-
myndum, bréfum og teikn-
ingum. Á sýningunni verða
nokkrar vel valdar opnur úr bókinni til sýnis,
ásamt bókinni sjálfri, en aðeins 18 eintök voru
prentuð af henni. Sýningin er haldin í Grófinni og
stendur frá klukkan 15-18 þennan eina dag.
Sýning
Arkitektinn
með alpahúfuna
Óttar M.
Norðfjörð
„VIÐ vorum ótrúlega glöð að Sibbi [Sigurbjörn] skyldi vilja koma á þessum
tíma, úr því hann gat ekki verið á hátíðinni í ágúst,“ segir Þorgerður Edda.
„Við vorum sum á námskeiðinu hjá honum í fyrra, en það hafa líka bæst við
íslenskir krakkar sem fréttu af námskeiðinu. Svo er helmingurinn núna út-
lendir krakkar, flestir frá Bandaríkjunum, þar sem Sibbi býr. Ég var að læra
í Noregi í vetur og það kom ein stelpa með mér þaðan hingað.“
Engin svona námskeið á Íslandi
Það er auðvitað rosalega skemmtilegt að spila í kvartett og Þorgerður er
augljóslega ánægð með það. „En það er líka frábært að geta skipulagt eitt-
hvað sem maður getur svo tekið þátt í sjálfur. Annað sem dregur mig áfram,
en snýst kannski ekki beinlínis um það að ég geti spilað, er það að það eru
engin svona námskeið á Íslandi. Krakkar hér hafa alltaf þurft að leita til út-
landa á námskeið, sérstaklega í kammertónlist. En hér er fullt af langt komn-
um tónlistarnemendum og gaman að fá útlenda nemendur hingað. Útlend-
ingum finnst spennandi að koma til Íslands, og af hverju þá ekki að halda
svona námskeið hér?
Það er nauðsynlegt fyrir krakka hérna heima að kynnast útlensku krökk-
unum, því við erum svo fá hér. Þegar ég var í Listaháskólanum hér heima
vorum við þrjú í sellóbekknum. Maður sér ekki vel hvar maður stendur ef
maður sér aldrei hvað aðrir eru að gera. Hér heima eru allir hjá sömu kenn-
urunum, og þótt þeir séu frábærir er gott að fá önnur sjónarhorn líka.“
Gaman að skipuleggja
„ÞETTA er svo flott framtak hjá krökkunum, og ég þekki ekki neitt þessu
líkt í heiminum,“ segir Sigurbjörn Bernharðsson sem leiðir ungmennin um
töfraheima kammertónlistarinnar.
„Þau byrja klukkan átta, hita upp og æfa sig sjálf. Klukkan níu fer hver
hópur í sitt herbergi og æfir sinn kvartett til hádegis. Þá er ég með klukku-
tíma kennslustund fyrir hvern hóp. Þau eru því að æfa sig sem kvartett í
fimm tíma og hafa klukkutíma á undan til að æfa sig sjálf. Á hverjum degi,
eftir hádegi, eru svo samspilstímar, eða masterklassar þar sem kvart-
ettarnir spila hver fyrir annan og við ræðum málin. Þetta eru átta dagar –
mjög strembnir og markmiðið er að kafa eins djúpt og hægt er í tónlistina
og læra að vinna saman. Mörg þeirra þekktust ekkert fyrir – ein stúlkan
kemur t.d. alla leið frá Taívan, en þau verða að koma sér saman um túlkun
í því leiðtogalausa verkefni sem svona samspil er. Það skerpir tækni þeirra
að þurfa að spila með öðrum, en ég vona líka að þau læri að vera sannfærð
um sína meiningu í túlkun, án þess að vera þrjósk, en vera um leið sveigj-
anleg. Þetta er tilgangur námskeiðsins.
Ég er ofboðslega ánægður með þessa krakka, andinn er mjög góður og
þau eru jákvæð. Mér finnst þetta rosalega gaman, enda hef ég þetta að at-
vinnu og því er það frábært að geta komið heim til að vinna svona mark-
visst og náið með ungu og efnilegu fólki. Það er gott fyrir íslensku krakk-
ana að kynnast þeim útlensku og fyrir þá útlensku að komast að því hvað
við eigum klára tónlistarnemendur hér. Þetta er eintóm gleði!“
Átta strembnir dagar
Hann er þekktur,
miðaldra tískuljós-
myndari og kvennagull
sem virðist hafa náð
rjóma kvenþjóðarinnar
úr brókunum … 27
»
BÓKIN Brotahöfuð eftir Þórarin
Eldjárn hefur nú verið gefin út í
Danmörku og fara gagnrýnendur
margra af virtustu fjölmiðlum þar í
landi lofsamlegum orðum um sög-
una.
Í Brotahöfði, sem kom út hér á
landi árið 1996, er rakin saga Guð-
mundar Andréssonar, lærdóms-
manns og samviskufanga á 17. öld,
sem sat inni fyrir skoðanir sínar í
einu rammgerðasta fangelsi Dana,
Bláturni.
Brotahöfuð hefur áður verið gefin
út í Bretlandi, Finnlandi og Frakk-
landi.
„Maður heillast af margslunginni
persónu hans [Guðmundar] í þessu
játningariti sem skáldsagan læst
vera. Þar skiptir einstæð stílgáfa
Þórarins mestu og sannfærandi sál-
fræðileg sýn hans á persónur bók-
arinnar, en einnig fær þýðandinn lof
fyrir að hafa leyst erfitt verkefni
með bravúr. Hér er ekki sleginn
falskur tónn, heldur er tónlistin
hrein alla leið,“ skrifar Lars Bonne-
vie í Weekendavisen.
Næmi, kímni og innlifun
Anne Chaplin Hansen hjá Jyl-
lands-Posten segir Þórarin skrifa
„þessa grátbroslegu örlagasögu af
næmi, kímni og innlifun“.
Á sömu nótum er Søren Vinter-
berg hjá Politiken, sem segir meðal
annars í sínum dómi:
„Guðmundur Andrésson segir frá
örlögum sínum með áreynslulausu
tungutaki samtíma síns og aðal-
atriðin afhjúpast smám saman hjá
sagnameistaranum Þórarni Eld-
járn … Efnið er áhugavert og mað-
ur furðar sig á að skáldsagan, sem
kom út árið 1996, hafi ekki komið
fyrr út á dönsku. Skáldsagan […]
býr yfir öllu því sem gerir bók-
menntir norðursins einstakar.“
Tilnefnd til verðlauna
Það er Björn heitinn Sigur-
björnsson sem þýddi bókina yfir á
danska tungu en Erik Skyum-
Nielsen ritar eftirmála.
Brotahöfuð hefur undanfarin ár
verið tilnefnd til ýmissa verðlauna,
meðal annars Aristeion-verð-
launanna og Bókmenntaverðlauna
Evrópu, en hún er eina íslenska
bókin sem hlotnast hefur sá heiður.
Sama ár, 1999, var hún lögð fram af
Íslands hálfu til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs, auk þess að
vera tilnefnd til hinna alþjóðlegu
IMPAC-bókmenntaverðlauna árið
2001.
Morgunblaðið/Ómar
Höfundurinn Þórarinn Eldjárn.
Brotahöfuð
fær góða
dóma í
Danmörku
„Býr yfir öllu því sem
gerir bókmenntir
norðursins einstakar.“