Morgunblaðið - 15.06.2009, Page 32

Morgunblaðið - 15.06.2009, Page 32
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. JÚNÍ 2009 SÝND Í ÁLFABAKKA, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI EIN ALBESTA GRÍNMYND SUMARSINS ER KOMIN FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA „THIS IS SO FAR THE BEST COMEDY OF THE YEAR.“ PREMIERE „THE SUMMER PARTY MOVIE OF ALL OUR TWISTED DREAMS.“ ROLLING STONE „THIS PROFANELY FUNNY COMEDY EXCEED EXPECTATIONS AND ACHIEVE THE STATUS OF BREAKOUT HIT.“ 90/100 - VARIETY ath. STRANGLEGA BÖNNUÐ BÖRNUM Wes Craven er mættur aftur með einhvern ROSALEGASTA THRILLER SÍÐARI ÁRA SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI / ÁLFABAKKA / KRINGLUNNI THE HANGOVER kl. 5:50 - 8D - 8:30 - 10:20D - 11 12 DIGTAL THE LAST HOUSE ON THE LEFT kl. 10:20 16 THE HANGOVER kl. 5:50 - 8 - 10:20 LÚXUS VIP STAR TREK XI kl. 8 10 MANAGEMENT kl. 8 - 10:20 10 STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN kl. 6 m. ísl. tali L ADVENTURELAND kl. 5:50 - 8 - 10:20 12 HANNAH MONTANA kl. 5:50 L CORALINE 3D kl. 5:503D m. ísl. tali L 3D DIGTAL THE HANGOVER kl. 6D - 8D - 9:10D - 10:20D 12 DIGITAL MANAGEMENT kl. 6 - 8 - 10:20 10 GOTT SILFUR GULLI BETRA kl. 7:30D L DIGITAL CORALINE 3D m. ísl. tali kl. 5:303D L 3D DIGTAL Hugmyndin um að landið getibara verið þarna fyrir sjálftsig hefur alltaf átt erfitt uppdráttar á Íslandi,“ skrifar Krist- ján B. Jónasson, textahöfundur nýrrar ljósmyndabókar Thorstens Henn, Ísland í nærmynd. Þess vegna finnist Íslendingum að þeir eigi eftir að „nema landið“ og að hálendið og mannlausu víðernin séu lönd „tæki- færanna“, þar sem vinna eigi orku og byggja hraðbrautir og hótel. Þetta er satt, svona hugsa margir Íslendingar um landið sem þeir eiga að gæta, og skilja ekki verðmætin í því eins og það er. Og hvað öðrum þykir hið ósnortna dýrmætt. Oft finnst mér að landar mínir átti sig ekki á raunverulegum verðmætum, hinum sanna þjóðarauði sem býr í landinu og náttúrunni, fyrr en þeir hafa skoðað heiminn og geta borið hlutina saman af eigin raun. Og stundum finnst mér líka að þeir heimskustu hvað þetta varðar séu þeir sem hvað mestu menntunina eiga að hafa. Enn og aftur sagan um heimsku þess heimaalda.    Glöggt er gests augað, er alkunn-ur sannleikur, og oft for- vitnilegt að sjá hvað erlendir túlk- endur lands okkar og gæða hafa til málanna að leggja. Einhverjir kunna að telja ljósmyndarann Thorsten Henn til erlendra gesta, en þótt svo hafi verið einhvern tíma, þá er það ekki lengur raunin. Thorsten fædd- ist í Þýskalandi fyrir fjörutíu árum en hefur verið búsettur hér í rúman áratug og rekur hér ljósmyndastofu. Thorsten er ekki lengur gestur en sýn hans er glögg, og ekki fer á milli mála að hann þekkir landið orðið betur en flest okkar, og kann að meta það sem hann sér – og það sem hann sýnir okkur. Það birtist til að mynda í því sem kalla mætti alúð í nálguninni í myndum hans. Þá er athyglisvert að sjá hvernig Torsten sökkvir sér í landið, bók- staflega, þegar hann stingur sér inn í íshella og myndar félaga við klifur í hættulegum hulduheimum landsins, bröltir upp á tinda eða kannar hafið umhverfis á seglskútum.    Helstu landslagsljósmyndararokkar staðfesta sýn sína á landið og náttúruna í bókum, sem er í senn beint að okkur Íslendingum og ferðamönnum, sem kunna að taka gripinn heim til minningar um landið. Í bland við persónulega sköp- unina ríkir því ákveðinn „kommersí- alismi“; bækurnar eiga að höfða til sem flestra og ekki vera ágengar eða erfiðar. Ísland í nærmynd eftir Thorsten Henn er engin undantekn- ing frá því. Og hún er tvímælalaust í hópi hinna betri af því tagi. Alúð er lögð í hönnun, prentun og textana; allt er það til fyrirmyndar. Mynd- irnar í flestum tilvikum jafnar að gæðum og forvitnilegar, þótt valið hefði mátt vera aðeins stífara og óhætt hefði verið að sleppa nokkr- um, ekki síst loftmyndum sem búa ekki yfir sömu skerpu og litbrigðum og flestar hinna – og eru að auki full- kunnuglegar (þetta er jú land nátt- úruljósmyndara og sum myndefnin verða æði kunnugleg).    Einn helsti styrkur bókar Thor-stens felst í hreinu og kláru konseptinu sem verkið byggist á, í formála er það kallað „Frumefnin: land - vatn - loft - fólk“. Þetta eru hinir fjórir kaflar bókarinnar og gefa ljósmyndaranum ákjósanlegan ramma til að sýna hvernig hann horfir á náttúru landsins og hvernig hann vinnur með form þess innan ramma myndavélanna. Í Landi er gengið um hraun, fjöll og út í vatn, rafmagnslínur kljúfa auðnina og gengið er á jökla. Í Vatni er horft til hafs, öldur berja á landinu, lækir renna um gil, þar eru hverasvæðin, hvalaskoðun og siglingar. Loft er kafli með loftmyndum; og kannski sá forvitnilegasti, því eins og Krist- ján B. skrifar, þá er það sem virðist óreiðukennt á jörðu niðri „undan- tekningarlaust skipulegt þegar horft er á það úr lofti“. Og skýring hans: „Maðurinn skipuleggur heim sinn með hliðsjón af teikningum og kortum.“ Við sjáum vegi og vötn skera land- ið, jökulár mæta grænu landi, gróð- ur við svartan sand. Fólk í baði. Kýr í skógi. Margir rammanna eru býsna góðir.    Thorsten birtir ekki bara sýn sínaá landið, eins og flestir lands- lagsljósmyndarar, heldur bætir við kaflanum Eldþjóðin. Í honum eru 17 portrettmyndir, sýnishorn af þjóð- inni sem byggir landið, fólk sem sit- ur fyrir og horfir upplitsdjarft í lins- una. Fyrrverandi forseti, Íþrótta- álfurinn, listamenn, hönnuðir og tónskáld. Þetta fólk er nafngreint. En þarna eru líka portrett af fólki sem hefur ekki nafn, er „bara“ þyrluflugmaður, sjálfboðaliði, skóg- arhöggsmaður og flugmaður. Eru þau fulltrúar hinnar nafnlausu al- þýðu, fólkið sem á eftir að „nema landið“? Það er spurning. En þetta er fín og talsvert persónuleg „nær- mynd“ af eyju norður í hafi. efi@mbl.is Land tæki- færanna í ljósmyndum Úr lofti Land og fólk Í Landamannalaugum er fyrirtaks baðaðstaða undir berum himni, segir í bókinni, og það sést. AF LISTUM Eftir Einar Fal Ingólfsson Fulltrúar eldþjóðar Baltasar Kormákur og Lilja Pálmadóttir, kvikmynda- framleiðendur og bændur á Hofi á Höfðaströnd. Ljósmynd/Thorsten Henn Gengið í landið Í íshelli í Langjökli. Slíkir hellar eru skammvinn fyrirbæri sem myndast vegna leysingavatns eða jarðhita en hrynja fljótt aftur saman. » Þá er athyglisvert aðsjá hvernig Torsten sökkvir sér í landið, bókstaflega, þegar hann stingur sér inn í íshella og myndar félaga við klifur í hættulegum hulduheimum landsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.