Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirVIKUSPEGILL
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009
Someguyname
dpat:
Tehran Burea
u is very
telling. How lo
ng do we
wait? How ma
ny need to
be hurt or wo
rse before
the world ste
ps in to help
restore order
.
ReinaCohen:
CNN Live Interview withTehran girl-Said afterbeing beaten she couldn’tbelieve she’s alive &MUST Protest
mekapinos:change your twitter time-
zone setting to tehran to
make it harder to track
iranian twitters
REkedal:
Neda is not even allowe
d
to have a decent funer
al.
pstarnes:
Hospital sources - asmany as 47 killed so farby Gov in the streets
Laz:
Rumors are th
at one of
the most belo
ved Iranian
celebs, Adel F
erdowsi-
pour has been
arrested.
mahin2009:
Use spray paint to cov
er
road signs, make naviga
t-
ing the streets more
difficult for police! they
can’t bill you for utilities
itsyagirlnyah:Girl Shot Dead by Police/
Basij militia in Tehran
June 20 2009 http://bit.
ly/18b9yo GRAPHIC
KeelyNoel:
dnt email anyone, dnttelephone anyone no mat-ter how angrey u get, govagents trying 2 ID u.
fore
star
09:
mor
e an
d m
ore
cler
ics o
n
prot
este
rs s
ide
libr
a00
71:
Sta
te T
V re
pea
ted
ly a
sks
peo
ple
to s
end
in th
eir
vide
os a
nd p
hoto
s of
the
prot
ests
to h
elp
iden
tify
the R
IOTE
RS!!!
Bar
aka
197
4:
can
offe
r sa
fe/d
irec
t
FTP
uplo
ad f
or v
ideo
s an
d
pics
to g
erm
any
- ma
il
me
-
mic
hae
lcu
lve
r:
No
kia
Sie
me
ns
sol
d s
pyi
ng
tec
hno
log
y t
o I
ran
.
ROBOLDHAM:
Iranian blogger hasuploaded a pic of Neda’sgrave - govt forbadepublic funeral: http://twitpic.com/83puiThink
Iran:
This Is
No Long
er Abou
t
Iran Ele
ction It
Is For
Iran Re
gime Ch
ange
VEGASEAGLE02:
ARMY OF IRAN - DONOT FIRE ONTO THEPEOPLE OF IRAN ! THEPEOPLE OF IRAN WILLNEVER FORGIVE FORTHIS! HIT FOLLOW IFYOU CAN READ THIS-
Taylo
rRoe
sch:
from
Iran:
clash
es in
7
Tir S
q and
Valli
Asr A
ve
- stree
t fires
& tear
gas
- sho
oting
hear
d - m
any
militi
a
Eftir Árna Matthíasson
arnim@mbl.is
F
átt þykir alræðisstjórnum verra en að
fólk geti talað saman eins og sann-
aðist þegar stjórnvöld í Íran gerðu
hvað þau gátu til að hindra samskipti
í landinu í aðdraganda forsetakosn-
inganna 12. júní síðastliðinn, og á kosningadaginn
var farsímanet landsins lamað og útsendingar
BBC truflaðar.
Með því að loka farsímanetinu á kosningadag-
inn vildu stjórnvöld koma í veg fyrir að hugs-
anlegir andófsmenn gætu stillt saman strengi sína
með símtölum og SMS-sendingum, en þau áttuðu
sig greinilega ekki á því að ný tækni hefur komið
til sögunnar – Twitter.
Twitter-byltingin
Eftir því sem ólga jókst í landinu hertu stjórn-
völd eftirlit með fréttaflutningi frá Íran og ráku
erlenda fréttamenn úr landi eða settu þá í stofu-
fangelsi. Skömmu fyrir kosningar var Facebook
lokað um hríð og þegar upp úr sauð daginn eftir
kosningar var þeirri síðu aftur lokað og eins var
farsímakerfi landsins nánast lamað, útsendingar
erlendra fjölmiðla truflaðar og lokað fyrir allar
vefsíður sem tengdust BBC og fleiri
breskum og bandarískum fjöl-
miðlum.
Það dró þó ekki úr frétta-
streymi frá landinu, því al-
menningur tók að segja
fréttir í smáskilaboðum
á Twitter-síðum og á
næstu dögum
streymdu fréttir af
því sem fram fór; í
stað tuga frétta-
manna urðu þeir
skyndilega þúsundir.
Fólk notaði Twitt-
er til að boða fé-
laga á mótmæla-
fundi, skýrði frá
afdrifum manna sem
höfðu verið handteknir
eða orðið fyrir ofbeldi
og skrásetti harkalegar
aðferðir stjórnvalda við
að þagga niður í lands-
mönnum – skjólstæð-
ingar íslömsku bylt-
ingarinnar 1978
glímdu við Twitter-
byltinguna.
Aukið eftirlit
Eftir að hafa verið
tekin í bólinu með Twit-
terhafa stjórnvöld í Ír-
an gripið til þess ráðs að
auka til muna eftirlit með tölvusamskiptum
og sérstakt teymi tók til við að slökkva á
vefþjónum og loka fyrir nettengingar
þjónustuaðila. Málum er svo háttað þar í
landi að öll netumferð fer um tölvubúnað í Háskól-
ann í Teheran og því er tiltölulega auðvelt fyrir
stjórnvöld að loka fyrir netsamband.
Twitter-notendur víða um heim hafa reynt að
leggja írönskum andófsmönnum lið, meðal annars
með því að ráðast á vefsetur stjórnvalda og setja
upp vefsel utan Írans sem íranskir tölvunotendur
geta notað og þannig falið slóð sína, en stjórnvöld
hafa brugðist við af hörku og meðal annars var
póstþjónustu Gmail lokað um tíma og eins var lok-
að á Yahoo.
Er einhver á línunni?
Ekki er bara að stjórnvöld í Íran hafi lagt mikla
áherslu á að ná tökum á tölvunotkun landsmanna,
heldur hafa þau komið sér upp búnaði til að fylgj-
ast með farsímasímtölum.
Búnaðinn keyptu þá frá fyrirtæki í eigu Nokia
og Siemens, NSN, sem hefur fengið bágt fyrir
víða um heim.
Að sögn Nokia og Siemens er það alsiða að
möguleika til að hlusta á símtöl sé komið fyrir í
farsímabúnaði, meira að segja í vestrænum lýð-
ræðisríkjum. Í ljósi þess að símhlerun er lögleg í
Íran hafi fyrirtækið ekki gert neitt rangt.
Svo virðist sem þessi afstaða Nokia og Siemens
eigi þó eftir að koma fyrirtækjunum í koll því víða
um heim hafa
menn tekið hönd-
um saman
um að hætta að kaupa síma frá fyrirtækjunum og
í kjölfar fréttar um málið í stórblaðinu Wall Street
Journal var lagt fram á Bandaríkjaþingi frumvarp
til laga sem kveða á um að bandarískum stjórn-
völdum sé óheimilt að eiga viðskipti við fyr-
irtæki sem selji njósnabúnað til Írans.
Njósnabúnaður í allar tölvur
Kínversk stjórnvöld hafa líka lagt mikla
áherslu á að koma í veg fyrir að íbúar landsins
geti skipst á skoðunum og þar er alsiða að lokað
sé fyrir vinsælar vefþjónustur. Þannig hefur
iðulega verið lokað fyrir YouTube í Kína, þ.e. í
tölvum sem tengjast netinu í gegnum
kínverskar netþjónustur er ekki hægt að
horfa á YouTube-myndskeið, og þar sést
þá ekki önnur mynd af ástandinu í Tíbet
en sýnd er í ríkisfjölmiðlum.
Einnig hafa stjórnvöld þar í landi
lokað fyrir leitarsíður Google og
hafa að yfirvarpi að þar sé hægt
að finna klámefni. Hingað til hafa
ýmsar skorður verið settar við
starfsemi Google, meðal annars
hefur ekki verið hægt að leita að
nöfnum frammámanna komm-
únistaflokksins, en stjórnvöldum
þykir ekki nóg að gert: 1. júlí
næstkomandi verða allar tölvur
sem seldar eru í Kína með sér-
stökum hugbúnaði sem kemur
í veg fyrir að notandinn geti
lesið vefsíður með því sem aðal-
ritarinn og hyski hans telur
óviðeigandi.
Ekki er þó bara að í tölv-
unum sé sjálfvirk vefsía, held-
ur er tölvunotkun líka skráð
til að koma upp um það ef
notandi tölvunnar reynir að
finna leiðir framhjá vefsíunni, en
allajafna er tiltölulega auðvelt að
gera það. Netþjónustur eru líka gerð-
ar ábyrgar fyrir því sem notendur
þeirra gera og það með eru þær þving-
aðar til að njósna líka.
Smáskilaboð ógna alræði
Almenningur í Íran beitir nýrri tækni í glímu við skoðanakúgun stjórnvalda Þegar
símkerfið er lamað, fréttir ritskoðaðar og fylgst með netsamskiptum grípur fólk til Twitter
Reuters
Barátta Þegar settar eru skorður við hátækni
grípa menn til annarra leiða og frumstæðari.
Mikil umræða hefur verið umgagnsemi Twitter og ámóta
þjónustu þegar hamfarir dynja yfir.
Rannsakendur við Háskólann í Colo-
rado segja margt benda til þess að
þjónusta á við Twitter, blogg og
myndasíður á netinu dugi betur til
að koma upplýsingum til manna
þegar hamfarir eða átök standi yfir
en hefðbundnir fréttamiðlar.
Þegar hryðjuverkamenn gerðu
árás á Mumbai á síðasta ári notuðu
fjölmargir Twitter til að koma á
framfæri boðum til ættingja og/eða
fréttum af því sem þeir urðu vitni
að, aukinheldur sem upplýsingar um
neyðaraðstoð og ámóta voru sendar
með aðstoð Twitter. Allt varð þetta
fjölmiðlum fréttaefni eftir árásirnar
og á sjónvarpsstöðinni CNN var því
lýst yfir að samskiptanet hefðu slit-
ið barnskónum í Mumbai.
Margir bentu aftur á móti á það
að margar af þeim fréttum sem birt-
ust á Twitter-síðum voru fengnar
beint upp út hefðbundnum miðlum;
oftar en ekki var fólk að segja frá
því sem það horfði á í sjónvarpi eða
hlustaði á í útvarpi. Að sama skapi
hafa ýmsir hefðbundnir miðlar bent
á að það gefi ekki alltaf besta mynd
af viðburði að hlusta á fjörutíu frá-
sagnir ólíkra sjónarvotta.
Flestir eru þó sammála um það að
nýjar dreifileiðir upplýsinga verði til
þess að þær berist hraðar og betur
til þeirra sem þurfa á upplýsing-
unum að halda og það hafi sannast í
Mumbai og Teheran.
Reuters
Farsímar eru orðnir eitt helstatæki til fréttaöflunar – fólk tek-
ur myndir og myndbönd og sendir úr
símunum, myndbandið af andláti
andófskonunnar
Nedu, er gott
dæmi um það.
Annað dæmi er
til að mynda að
þegar jörð skalf
á Suðurlandi á
síðasta ári var
ljósmyndari
Morgunblaðsins
kominn á stað-
inn nokkrum mínútum síðar og
fyrstu myndir sem birtust af skjálft-
anum voru sendar úr Nokia-farsíma
á fréttavefinn mbl.is.
Óhætt er að spá því að þetta verði
enn algengara á næstu árum og eins
að dagar hefðbundinna fréttamiðla
séu taldir nema þeir nýti sér
tæknina; það verði sífellt algengara
að fyrstu fréttir af atburði séu frétt-
ir frá þeim sem eru á staðnum, en
ekki frá fréttamönnum og sumir
hafa gengið svo langt að segja að
framvegis muni fréttir fyrst sjást á
netinu en ekki í sjónvarpi.
HUGMYNDIN að Twitter kviknaði
hjá smáfyrirtæki í vefvarpi þar
sem menn voru að leita að nýjum
hugmyndum. Einn starfsmann-
anna stakk upp á þjónustu sem
senda myndi SMS til félaga í
hópvinnu með upplýsingum um
hvað þeir væru að fást við hverju
sinni. Þetta skýrir ýmislegt við
þjónustuna, til að mynda það að
hver boð mega ekki vera nema
140 tákn, og ef menn hafa það í
huga er auðveldara að skilja fyr-
irbærið, enda þekja allir SMS.
Nafnið á þjónustunni, Twitter,
sem var reyndar Twittr framan
af, á einnig að undirstrika hlut-
verkið – svona rétt eins og fugl
sé að tísta í vasa manns eða
sími að hrökkva við er SMS
berst í hann.
Fyrstu Twitter-boðin, eða
tweet, eins og það er kallað upp
á ensku, kannski má snara því
sem tísti, voru send í lok mars
2006, en þjónustan fór ekki al-
mennilega af stað fyrr en á tón-
listarkaupstefnunni South by
Southwest í Texas. Þá komu eig-
endur fyrirtækisins upp risa-
vöxnum rafgasskjám sem sýndu
ekkert nema tíst. Fram að því
höfðu tíst verið um 20.000 á
dag, en urðu nú 60.000.
Líkt og með svo marga vef-
þjónustu sem hrífur fólk þá eiga
menn enn eftir að finna út
hvernig græða megi á tístinu, en
eigendur fyrirtækisins gera sér í
hugarlund að tekjur komi af net-
verslun þegar tæknin hafi náð
almennri útbreiðslu, að fyrirtæki
muni sjá sér hag í að tísta til-
boðum á viðskiptavini sína og
uppástungum um vænlegan varn-
ing. Þeir una glaðir við sitt því
útbreiðslan hefur verið gríðar-
lega ör, á síðasta ári fjölgaði
notendum um 752% og eru nú
ríflega hálf fimmta milljón og
aukningin á þessu ári hefur verið
enn hraðari.
Það kemur væntanlega ekki á
óvart að innan við helmingur
notenda hefur tíst á Twitter, en
þeir sem nota þjónustuna senda
að minnsta kosti eitt tíst á dag
að meðaltali. Það kemur svo
nokkuð á óvart að ríflega helm-
ingur þeirra sem skrá sig í þjón-
ustuna er ekki að fylgjast með
neinum, hlustar ekki eftir tísti
annarra.
Tölvurnar tísta
Ný fréttatækni
Búnaður
til verslunarreksturs
óskast
Óskum eftir að kaupa eftirfarandi, notað eða nýtt:
Hillukerfi fyrir vöruhús, afgreiðsluborð, lyftara, brettatjakka, inn-
kaupakerrur/körfur, kassakerfi, símkerfi, skrifborð, kælikerfi,
frystipressur og fl.
Vinsamlega sendið upplýsingar ásamt símanúmeri
á netfangið smartkaupinfo@gmail.com
smart kaup
Spörum og njótum lífsins