Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 39
Velvakandi 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009
Grettir
ÉG ÆTTI
AÐ ÞVO
SVONA ER
AÐ VERA
PIPARSVEINN
Kalvin & Hobbes
MAMMA, MÁ
ÉG FÁ ÞESSAR
BUXUR?
VÁ HVAÐ ÞÆR ERU DÝRAR.
ÉG Á EKKI EINU SINNI SVONA
DÝRAR BUXUR. SVO ÁTTU
EFTIR AÐ VAXA UPP ÚR ÞEIM
„STELPUR“
ÉG ÞARF AÐ
GETA NÁÐ MÉR
Í STELPUR,
MAMMA
HVAÐ
HEFUR BARN
AÐ GERA VIÐ
SVONA DÝRA
MERKJA-
VÖRU?
Kalvin & Hobbes
GEFÐU
MÉR
PENING!
ÉG MYNDI
EKKI GEFA ÞÉR
PENINGINN
MINN
ÞAÐ SEM
MEIRA ER...
ÉG Á ENGAN
PENING
JÚ, BÍDDU...
HÉRNA ERU
NOKKRAR KRÓNUR
HANN ER MJÖG SANN-
FÆRANDI MIÐAÐ VIÐ ÞAÐ
HVAÐ HANN HEFUR TAK-
MARKAÐAN ORÐAFORÐA
SLÆMT
FYRIR ÞIG,
KARLINN
Kalvin & Hobbes
... SVO ÞEGAR MUMMI
ÆTLAR AÐ HAFA AF MÉR
MATARPENINGANA MÍNA ÞÁ
STEKKURÐU Á HANN
OG ÉTUR HANN
ÉTA
HANN?
ÞAÐ GERI
ÉG EKKI
AF
HVERJU
EKKI,
HOBBES?
HANN
INNIHELDUR
OF MIKIÐ
KÓLESTERÓL
TYGGÐU
HANN ÞÁ BARA
OG SPÝTTU
HONUM
SVO ÚT
ÉG ER MEÐ ÁÆTLUN.
ÞÚ KEMUR MEÐ MÉR Í
SKÓLANN Á MORGUN...
Hrólfur hræðilegi
ÉG HEF
EKKI SEST Í
RÓLU FRÁ ÞVÍ
AÐ ÉG VAR
STRÁKUR!
ÞEGAR ÉG VAR YNGRI GAT ÉG
RÓLAÐ HÆRRA EN ALLIR HINIR
ÞAÐ LÍTUR
ÚT FYRIR AÐ
ÉG SÉ EKKI
JAFN GÓÐUR
Í ÞESSU OG
ÉG VAR
Gæsamamma og Grímur
TALAÐU...
TALAÐU...
Ferdinand
Þau fóru mikinn á hoppdýnu, fjörugu börnin sem ljósmyndari Morgun-
blaðsins rakst á í Fjölskyldugarðinum í Laugardal á dögunum. Eins og sjá
má voru þau bókstaflega hoppandi kát.
Morgunblaðið/Eggert
Skopp og hopp
Fangaskip
ÞAÐ kom yfir mig und-
arleg tilfinning þegar
fangelsismálastjórinn
lýsti því yfir í fréttum
að það væri einhvers
konar viðbótardómur
að láta dæmda menn
taka út sérstakan bið-
tíma sem viðbótardóm
við refsingu. Gerir
fangelsismálastjórinn
sér grein fyrir pynting-
arákvæðinu sem í orð-
um hans felast? Má
ætla að þetta sé mann-
réttindabrot? Á biðtími
refsingar að vera pynt-
ingartími? Er þetta ekki sadismi?
Þessi frétt kom á undarlegum tíma
því ég í áhuga mínum á lausn á
kostnaði við fangavist hafði samband
við fangelsismálastjórann með
spurningu um að nota fangaskip sem
lausn á því plássleysi sem nú er uppi
í þessum málaflokki. Fangels-
ismálastjórinn svaraði erindinu á
hefðbundinn hátt með skætingi um
skort á lagaheimildum og öllum
pakkanum því tengdum. Hann hafði
allt á hornum sér við þennan mála-
tilbúnað en upplýsti þó að kostnaður
á refsifanga væri ca. 24.000 krónur á
sólarhring.
Fangar og fangabiðtími væri 160
einstaklingar á ársgrundvelli. Síðan
kom messan um skort á fangelsum
og fangarýmum með kröfu um meiri
peninga til fangelsa frá skattgreið-
endum. Ég spurði sjálfan mig hvort
fangelsin væru fyrir fangana eða
fangaverðina. Ég gerði mér það til
gamans að kanna hvaða tegund af
fangaskipi gæti hentað hér við land
og hvaða skip gætu komið til greina
við málatilbúnaðinn. Til leigu eða
sölu var ísbrjótur frá Kanada með
aðstöðu fyrir 54 menn, þar af 14 í
áhöfn en aðstaða var fyrir 40 vís-
indamenn. 40 fangar á dag í 365 daga
gera ca 350 milljónir. Skipið var boð-
ið til sölu fyrir ca 250 milljónir. Næst
var að finna verkefni fyrir skipið í
siglingu á milli Vestfjarða og Græn-
lands með 800 tonn af vörum og
verslunarvarningi frá Íslandi á 20
daga fresti. Tekjur af þessum
rekstri eru óþekkt stærðargráða en
þó verður góður arður af þessari við-
skiptahugmynd. Ég ákvað að
hrekkja fangelsismálastjórann í eitt
skipti fyrir öll og lagði til við hann að
ég eða aðrir færum í
það að breyta
skemmtiferðaskipi sem
boðið var til sölu á ca
1.000 milljónir og gerð-
um það að fangaskipi
fyrir alla 160 fangana á
ársgrundvelli, 160
fangar x 24.000x365
gera: 1.401.600.000. Ég
er hér kominn með 400
milljónir í plús áður en
ég nýti 500 herbergi í
skemmtiferðaskipinu
til annarra hluta. Á
skipinu er spítalarými
sem ég ætla að stækka
og bæta við 4 skurð-
stofum og lyfjaverslun.
Hver sjúklingur á íslensku spít-
alarými kostar skattgreiðendur
36.000 krónur á sólarhring. Ég ætla
að sætta mig við fangataxta upp á
24.000 krónur á sólarhring og fengi á
þann hátt 4.380.000 milljónir í auka-
tekjur af spítalarekstri á þessu
fangaskipi í þjónustu íslenska rík-
isins. Þetta erindi sendi ég á sínum
tíma til þáverandi félagsmálaráð-
herra, frú Jóhönnu Sigurðardóttur,
nú háttvirts forsætisráðherra. Er-
indinu vísaði ráðherra þá í kot.
Ég er að fá það á tilfinninguna að
opinberir starfsmenn í þjónustu rík-
isins séu veruleikafirrtir þegar kem-
ur að því að reka þjónustukerfi ís-
lenska ríkisins í krónum og aurum
eða evrum og dollurum á kostnað
skattgreiðenda. Vilja fangar á Ís-
landi þjóna á fangaskipi?
Guðbrandur Jónsson, versl-
unarmaður, flugstjóri og skipstjóri.
Enn af Sigmund
ÉG hef svo sem áður kvartað vegna
brotthvarfs Sigmunds af síðum
Morgunblaðsins en án árangurs.
Eldri borgari í Árborg kvartar yfir
því sama í Velvakanda 26. júní. Ég er
honum svo hjartanlega sammála og
þeim sem sendu bréf um sama efni
áður. Þær teikningar sem tóku við af
teikningum Sigmunds hafa ekki einu
sinni tærnar þar sem hans höfðu
hælana og ég tel að Morgunblaðið
hafi sett ofan vegna þessa.
Áskrifandi og lesandi í 50 ár.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Bólstaðarhlíð 43 | 13-14 ára stúlkur
koma í heimsókn 29. júní kl. 9.30 og
sýna stuttan leikþátt og lesa upp ljóð.
Boðið upp á kaffi á eftir.
Eftirlaunadeild símamanna | Vegna
forfalla geta nokkrir bæst við í sum-
arferðina 21.-26. júlí til Austfjarða og
Norðausturlands: Þórbergssetur á Hala,
Papey, Kárahnjúkar, Raufarhöfn, Mel-
rakkaslétta, Tjörnes, Hágöngulón á
Sprengisandi o.fl. Hafið samband við
Ragnhildi í síma. 551-1137 eða 898-
4437 eða Valgarð í síma 897-7550.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Dans-
leikur í Stangarhyl 4, kl. 20-23.30,
Borgartríó leikur fyrir dansi. Fundur
með farþegum í ferðina Flateyjardal og
Fjörður þriðjudaginn 30. júní kl. 16 í
Stangarhyl. Sjá feb.is.
Félagsstarf Gerðubergi | Ferðalag um
Árnesþing verður 29. júní, m.a. Þing-
völl, Grafning, Laugarvatn, Bisk-
upstungur o.fl. Lagt af stað frá Gerðu-
bergi kl. 13. Vegna sumarleyfa
starfsfólks fellur starfsemi og þjónusta
niður frá miðvikud. 1. júlí og hefst aftur
miðvikud. 12. ágúst. Sími 575-7720.
Hæðargarður 31 | Opið í sumar kl. 9-
16. Félagsvist, matur, kaffi, morg-
unsamvera, bankaþjónusta, Stef-
ánsganga, púttvöllurinn opinn o.fl. Boð-
ið upp á námskeið fyrir atvinnulausa í
skartgripagerð 29. til 3. júlí. S. 411-
2790. Fótaaðgerðir, s. 897-9801, s. hár-
greiðslustofa 568-3139.
Orlofsnefnd húsmæðra í Reykjavík |
Örfá sæti laus í ferð á Snæfellsnes 17. -
18. júlí n.k. Skráning og upplýsingar á
Ferðaskrifstofu Guðmundar Jónassonar
ehf. Sími 511-1515.