Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 13
m beðið er eftir 13 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 Seðlabankinn strikaður út fyrir Fjármálaeftirlitið EKKI VAR FARIÐ AÐ RÁÐGJÖF J.P. MORGAN SEM FÓR FRAM Á AÐ BERA EKKI ÁBYRGÐ Ráðgjafar frá JP Morgan bentu áað tilfærsla eigna úr gömlubönkunum í þá nýju skapaði alls-kyns tæknileg vandamál í nýju bönkunum og yrði til þess að kröfuhöfum fyndust þeir sviknir. Þetta kom fram á fundi í forsætisráðuneytinu í október, þar sem meðal annars voru viðstaddir ráð- herrar þáverandi ríkisstjórnar, sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins. Þeir lögðu áherslu á að afstaða er- lendra kröfuhafa yrði höfð í huga þegar stofnað yrði til nýju bankanna, því erfitt væri að bæta úr því eftir á. En ekki var farið að þeim ráðum þegar skipting milli nýju og gömlu bankanna var framkvæmd. Neyðarlögum breytt Fyrstu drög að neyðarlögunum voru samin árið 2006 sem liður í viðlagaæfingu vegna þeirra þrenginga sem bankakerfið hafði gengið í gegnum, en að því komu starfsmenn ráðuneyta og Fjármálaeft- irlitsins. Dustað var rykið af þeim til- lögum í aðdraganda bankahrunsins í fyrra, dagana áður en Glitnir var yfirtek- inn á grundvelli neyðarlaganna. Samkvæmt heimildum voru drögin út- færð á töflufundi aðfaranótt 6. október með mörgum starfsmanna Fjármálaeft- irlitsins, fulltrúa fjármálaráðuneytisins, Seðlabankans og forsætisráðuneytisins, sem og utanaðkomandi ráðgjöfum frá JP Morgan, sem á þeim tíma var Seðlabank- anum til ráðuneytis. Þar var teiknað upp hvernig flytja mætti innstæður og eignir á milli nýju og gömlu bankanna og kom hugmyndin frá JP Morgan um að skulda- bréf færi í staðinn til gömlu bankanna. Fram kemur í nýútkominni bók Guðna Th. Jóhannessonar að síðustu lagagrein- arnar í neyðarlögunum muni „hafa verið samdar í Fjármálaeftirlitinu og við- skiptaráðuneytinu um nóttina eða snemma næsta dags [mánudaginn 6. októ- ber sem þau voru lögð fram og samþykkt á Alþingi].“ Þá var Jón Sigurðsson stjórn- arformaður Fjármálaeftirlitsins og Björg- vin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra. Samkvæmt heimildum fólust breyting- arnar á síðustu metrunum í því, að nánast alls staðar þar sem Seðlabankinn kom við sögu í neyðarlögunum var nafn hans strikað út, og nafn Fjármálaeftirlitsins sett í staðinn. Það varð því hlutverk Fjár- málaeftirlitsins en ekki Seðlabankans að stofna skilanefndirnar sem var falið að reka gömlu bankana, þvert ofan í það sem áður hafði verið lagt upp með – eft- irlitsaðilinn skipaði nefndirnar sem hann átti að hafa eftirlit með. J.P. Morgan hafði verið Seðlabank- anum og ríkisstjórninni til ráðgjafar og fram kemur í Hruninu að það hafi verið einn fulltrúi þessa alþjóðlega fjármál- arisa, sem færði ráðherrunum „heim sanninn um það að þeir yrðu að búa sig undir fall bankakerfisins, að hluta eða jafnvel í heild sinni.“ Heimildir Morgunblaðsins herma, að vegna þeirra vinnubragða sem viðhöfð voru við uppskiptingu bankanna hafi JP Morgan farið fram á vottorð frá Seðla- bankanum um að ákvarðanir Fjármálaeft- irlitsins væru þeim óviðkomandi. Slíkt vottorð var aldrei veitt. Tillögur JP Morgan voru lagðar fram á fundi með ríkisstjórninni um miðjan októ- ber og fólust í því að stofnaður yrði nýr banki og ekki fluttar neinar eignir yfir í hann, aðeins innstæður og eitt skulda- bréf, sem væri forgangskrafa í þrotabú gamla bankans. Síðan gæti nýi bankinn starfað eftir þjónustusamningi við gömlu bankana. Ef þeim ráðum hefði verið fylgt, þá hefði gengisáhættan verið úr sögunni. Jafnframt var lagt til, að til þess að kröfuhafar gömlu bankanna brygðust ekki ókvæða við, yrðu þeir kallaðir að borðinu og fengnir til að taka þátt í að búa til nýjan banka. Sú leið var ekki farin og raunin varð sú, að erlendu kröfuhaf- arnir urðu æfir, meðal annars vegna þess að ríkið leysti til sín eignir, sem í raun voru eignir lánardrottna íslensku bank- anna. Fulltrúar erlendu bankanna voru því frá upphafi þeirrar skoðunar að neyð- arlögin hefðu verið „afleikur“ vegna þess að „íslenska ríkið hafi leyst til sín eignir sem í raun voru eignir lánardrottna ís- lensku bankanna og með því að gera ís- lenskar innstæður að forgangskröfum í þrotabú hefðu þeir mismunað kröfuhöfum gróflega.“ Aðrar heimildir innan úr stjórnkerfinu herma að JP Morgan hafi síðar fallið frá þessari leið, en hún var þó síðar farin í yfirtöku á Straumi. Ef til vill voru hægari heimatökin þar, því ekki var eins mikið af innstæðum í Straumi, auk þess sem mikil áhersla var lögð á að halda viðskipta- bönkunum þremur gangandi. Seðlabankinn sniðgenginn Daginn eftir að neyðarlögin voru sett, þriðjudaginn 7. október, lagði Geir H. Haarde til á fundi nokkurra ráðherra að þriggja manna stýrihópur yrði skipaður til að hafa yfirumsjón með efnahags- aðgerðum stjórnvalda, að því er fram kemur í Hruninu. Það áttu að vera fulltrúar forsætisráðuneytis, fjár- málaráðuneytis og viðskiptaráðuneytis, og lagði Geir til að Davíð Oddsson yrði for- maður hópsins. Ráðherrar Samfylking- arinnar sem viðstaddir voru báðu um fundarhlé en höfnuðu svo með öllu tillög- unni. Ráðgjafafyrirtækið McKinsey var síðar fengið að borðinu ásamt bresku lögfræði- fyrirtæki, og „control tower“ var settur upp í Borgartúni, þar sem Ásmundur Stefánsson var settur yfir stýrihóp um viðbrögð við bankahruninu. Eftir það kom Seðlabankinn ekki að ákvörðunum, for- sætisráðuneytið bar ábyrgð á þeim. Þó má segja að hvergi hafi verið til jafnmikil þekking á kerfinu í heild sinni og í Seðla- bankanum. En það fór ekkert á milli mála á þess- um tíma að Davíð Oddsson seðla- bankastjóri naut einskis trausts hjá ráð- herrum Samfylkingarinnar og kemur það glöggt fram í skeyti Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, sem birt er í Hruninu, þar sem hún segir að Davíð Oddsson „verði að fara“ og að persóna hans „sé allt of fyrirferðarmikil í þeirri atburðarás sem nú gengur yfir“. Ef til vill var málamiðlun stjórnar- flokkanna því sú, að ýta Seðlabankanum til hliðar, til að losna við Davíð Oddsson, en taka Fjármálaeftirlitið að borðinu í staðinn. Seðlabankanum var meira og minna haldið utan við atburðarásina í október þegar fjármálakerfi landsins fór á hliðina og margt bendir til að það megi rekja til óvildar í garð eins manns. Eins og það er orðað, þá var nær eina hlutverk Seðlabankans í atburðarásinni að halda greiðslumiðlun við útlönd gangandi. 385.000.000.000 Í efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins var gert ráð fyrir að eiginfjárframlag ríkisins yrði 385 milljarðar króna en sú upphæð hefur eitthvað lækkað. 40% Samkvæmt mati Wyman voru um 40% af eignum nýju bankanna þriggja flokkaðar sem slæm lán, sem þýðir að þau hafa verið lengur en 90 daga í vanskilum. 179,18 Miðgengi evrunnar þegar markaðir voru lokaðir á föstudag. 60% Áætlað er að um 60% af eignum nýju bankanna séu í erlendri mynt og gefi því aðeins 3-4% ávöxtun. 280-300% Heildarskuldir hjóna og sambúðarfólks 35 ára og yngri eru á bilinu 280% til 300% af ráðstöfunartekjum og þar af eru íbúðarskuldir um eða yfir 200%. Nú er beðið eftir því að gengið verði frá verðmati á eignum sem fluttar voru úr gömlu bönkunum yfir í þá nýju, en þær koma til mótvægis við þær skuldbindingar sem felast í innstæðum í nýju bönkunum. Fjármálaeftirlitið tók ákvörðun um hvaða eignir færu yfir í nýju bankana eftir hrunið síðasta haust, en þeirri reglu var meðal annars fylgt að eignir sem ekki tengdust Íslandi yrðu eftir. Deloitte var svo falið að verðmeta eignirnar og átti að byggja stofnefnahagsreikning bank- anna á þeim grunni, en ráðgjafarfyrirtækinu Oliver Wyman var falið að fara yfir það mat. Verðmatið sem Deloitte skilaði loks af sér 22. apríl er hinsvegar ekki föst tala, heldur er mat- ið á ákveðnu verðmætabili. „Á milli hæsta og lægsta mats er himinn og haf,“ eins og einn bankamaður komst að orði. Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig leyst verður úr þeirri stöðu, en viðræður standa yfir við kröfuhafa gömlu bankanna af hálfu fjármálaráðuneytisins og er gengið út frá því að niðurstöður liggi fyrir 17. júlí. Ýmsar leiðir hafa verið nefndar. Sjálfstæðismenn hafa lagt til að skuldabréfið sem lagt verði í gömlu bankana verði með afleiðu, þannig að áhættan sitji áfram hjá kröfuhöfunum og þeir hafi hagsmuni af því að vel gangi. Ljóst er að eignirnar verða keyptar með afföllum. Og samkvæmt heimildum er vilji til þess innan bankanna og þykir sjálfsagt, að gerð verði ávöxtunarkrafa til eignanna, sem tryggi arð- semi og standi undir fjármagnskostnaði, sem vaxið hefur gríðarlega á undanförnum misserum. Morgunblaðið/Sverrir ÓVISSA UM VERÐMAT EIGNA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.