Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 21
21 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 Guðmundur „Þegar fjölskyldan flutti af Hávallagötunni á Lynghagann varð Júlíus Vífill eftir hjá barnlausri fjölskyldu í næsta húsi, vinafólki sem óskaði eftir að fá að hafa hann og hann hafði tekið ástfóstri við, en engu að síður hittumst við reglulega og lékum okkur saman. Það er að- eins ár á milli okkar og við náðum vel saman enda báðir uppátektarsamir. Við vorum níu systkinin og sennilega vorum við Vífill samrýmdastir, sér- staklega áður en við festum ráð okk- ar. Eftir að við fluttum á Sogaveginn varð lengra á milli okkar og í okkar augum var þetta mikil vegalengd. Samt sem áður hélst gott samband og við vorum eins og einn systk- inahópur. Við Vífill ólumst ekki upp saman, en síðar unnum við saman með for- eldrum okkar hjá fjölskyldufyr- irtækinu Ingvari Helgasyni hf. og það var góð eining í þeim hópi. Reyndar unnum við þrír bræðurnir og tvær systur hjá fyrirtækinu um árabil, auk annarra fjölskyldu- meðlima, og var því um sannkallað fjölskyldufyrirtæki að ræða. Við hjálpuðum til sem strákar en urðum síðar fullgildir starfsmenn. Júlíus kom í fullt starf hjá okkur eftir að hafa verið í söngnámi á Ítalíu og það var gott að fá hann aftur í hópinn. Hann kom með nýjar hugmyndir og úr þessu varð ágætis hrærigrautur, en meðan pabba naut við hafði gamli maðurinn alltaf síðasta orðið. Við komumst að samkomulagi um alla hluti og unnum í miklu bróðerni. Alltaf ríkti mikill keppnisandi og keppnisskap í fyrirtækinu okkar og þess vegna náðum við miklum ár- angri. Eftir að við hættum að vinna saman hættu þessi daglegu tengsl en við erum reglulega í símasambandi og tökum púlsinn hvor á öðrum.“ Hæfileikar „Vífill er sjálfum sér samkvæmur, heilsteyptur og blátt áfram í öllu sem hann tekur sér fyrir hendur. Við eig- um ágætis söngfólk í báðum ættum. Afi okkar í móðurætt var til dæmis lengi í kórum og söng vel eins og móðir okkar. Vífill byrjaði snemma að syngja, en ég hef ekki sönghæfi- leika, syng aðeins einn með sjálfum mér í sturtu og þá í hljóði. Vífill var fínn í því að taka Bítlana og þá sem voru efstir á vinsældalistunum á unglingsárunum auk þess sem hann spilaði á gítarinn. Liðtækur gleði- gjafi á mannamótum. Vífill er mikill keppnismaður en hann hefur aldrei verið í íþróttum og ég held að hann hafi engan áhuga á íþróttum. Hjónin sem hann ólst upp hjá áttu sumarbústað við Þingvalla- vatn og hann fór með þeim út á vatn- ið að veiða en ekki fer miklum sögum af veiðiskapnum. Við höfum nokkr- um sinnum farið saman í rjúpu og laxveiði en eigum það sameiginlegt að vera hvorugur mikið fyrir veiðar. Ég fer þó aðeins enn og er betri veiðimaður, hef skotið fleiri rjúpur og veitt fleiri fiska. Við bræður höfum allir átt hesta og við riðum út saman. Á unga aldri riðum við Vífill meðal annars eitt sinn á Þingvöll og sendum farang- urinn með rútunni á Valhöll. Hann skipulagði túrinn og allt gekk vel. Þetta átti að vera skottúr en við vor- um lengi á leiðinni. Vífill hélt því lengi fram að hann væri betri hesta- maður en nokkur annar vegna þess að hann hafði aðstoðað Rosmarie Þorleifsdóttur í reiðskóla en ég minnist þess ekki að hann hafi haft hæfileika umfram aðra á þessu sviði. Fyrst og fremst vegna hestanna fór- um við saman í sveit í Flóanum, en ég sá Vífil aldrei fyrir mér sem bónda. Þegar hann ákvað að taka sönginn alvarlega flosnaði hann upp úr hestamennskunni og ég hætti eða setti hestamennskuna í hvíld nokkr- um árum síðar.“ Möguleikar „Snemma helgaði Vífill sig söngn- um og svo stjórnmálunum og um önnur áhugamál hefur varla verið að ræða hjá honum nema hvað hann hefur sinnt félagsmálum sem tengj- ast þessum áhugamálum hans. Vífill er mjög góður tenór og ég er sannfærður um að hann hefði náð langt á því sviði erlendis. Hann átti möguleika og mun meiri en hann nýtti sér, en sennilega hefur hann ekki viljað taka áhættuna og fara aft- ur út eftir að hann hafði flutt heim. Það var ekki mikið fjárhagslegt ör- yggi hjá ungum söngvurum á þess- um árum og kannski óvarlegt að treysta eingöngu á sönginn hjá fjöl- skyldufólki. Söngurinn var honum í blóð bor- inn og því kom ekki á óvart að hann legði hann fyrir sig. Hins vegar kom það mér svolítið á óvart að hann færi í lögfræðina en hann fann sig þar þó hann hafi aldrei unnið við fagið sem slíkt. Stjórnmálin heilluðu hann, stúdentapólitíkin kveikti í honum og ég held að hann hafi hellt sér út í borgarmálin vegna mikils áhuga auk þess sem þrýstingur frá samflokks- mönnum hans hafði örugglega mikið að segja. Ég held að Vífill sé á réttri hillu í pólitíkinni og það hentar honum vel að starfa á þessum vettvangi. Við er- um flokksbræður og ég segi honum mínar skoðanir á ýmsum málum. Hann er góður hlustandi og tekur ábendingum en auðvitað eru mínar skoðanir ekki endilega alltaf réttar – samt oftast. Enginn er svo fullkom- inn að hann geti allt og viti allt og það er kostur hvers stjórnmála- manns að geta hlustað og tekið rök- um. Þegar meirihlutinn í borginni sprakk fyrir tæplega tveimur árum fannst mér oft vegið að borgar- fulltrúum meirihlutans með ósann- gjörnum hætti og hann átti ekki allt skilið sem hann fékk á sig. Ég reyndi að styðja Vífil á þessum tíma með því að veita honum móralskan stuðning enda þekki ég af eigin raun sem for- maður Handknattleikssambandsins til margra ára að slíkur stuðningur skiptir miklu máli og Vífill hafði veitt mér hann þegar á þurfti að halda. Þegar á móti blæs er gott að geta talað saman og þegið ráð frá öðrum eða gefið góð ráð. Mér finnst Vífill hafa staðið sig vel í pólitíkinni og nú lætur hann til dæmis til sín taka í skipulagsmálum og þar á undan í mennta- og skóla- málum. Hann hefur eflst mikið en ég held að hans stærstu mistök hafi verið að hætta eitt kjörtímabil. Auð- vitað er allt annað að vera í meiri- hluta en minnihluta. Vífill er fram- sækinn og það hentar honum örugglega ekki að vera í minnihluta og ráða litlu sem engu um framgang mála. Hann vill gera góða hluti og láta gott af sér leiða. Það er ekki allt- af auðvelt í minnihluta.“ Bílar og önnur tæki „Við erum mjög ólíkir. Það er stuttur þráðurinn í Vífli og hann get- ur verið fljótur upp en hann er líka snöggur niður aftur. Ég held hins vegar aftur af mér og blæs sjaldan. Áhugamálin eru gjörólík. Ég sæki mikið í sumarbústaðinn okkar og er mikið fyrir útivist uppi á fjöllum. Þó hann fari á skíði vill hann helst vera í borginni og í miðbænum eða sem næst honum. Þessi munur liggur í eðlinu. Ég átti vélsleða um nokkurra ára skeið og náði að bjóða Vífli með í sleðaferð nokkrum sinnum. Það var samt ekki auðvelt því tenórinn þurfti að passa röddina en þegar það tókst þurfti ég að hafa mig allan við til að halda í hann því hann hafði alltaf gaman af því að keyra og reyna á sig og tækin. Mótorhjólaáhuginn hefur lengi loðað við Vífil og hann hefur átt þau nokkur. Lengi átti hann gamalt hjól. Ég held að það hafi verið Indian. Það fór aldrei í gang en hann gat fengið menn til að stíga og stíga, reyna og reyna að koma því í gang án árang- urs. Við eigum það sameiginlegt að við höfum lengi haft áhuga á bílum. Um svipað leyti og ég keypti minn fyrsta og eina kagga hjá Sölunefndinni eignaðist Vífill nýjan Sunbeam, sem þótti heldur betur klassi í þá daga en fyrstu bílarnir okkar voru að sjálf- sögðu Trabant. Á þessum tíma áttu fósturforeldrar hans Chrysler 1947, sem þá var með flottari bílum lands- ins og er enn. Bíllinn var bara keyrð- ur á sumrin og fékk Vífill að taka í hann og hefur ekki sleppt honum síð- an.“ Mótorhjólin toga í hann Eftir Ingu Rún Sigurðardóttur ingarun@mbl.is SYSTURNAR Kate ogLaura Mulleavy fengustærstu verðlaunin á ný-afstaðinni hátíð CFDA, Samtaka bandarískra fatahönn- uða, sem fram fór í New York. Tvíeykið var verðlaunað fyrir bestu kvenfatahönnunina fyrir tískuhús sitt, Rodarte. Þar höfðu þær betur gegn mun reyndari hönnuðum, en Marc Jacobs og Narciso Rodriguez voru einnig tilnefndir. Rodarte var stofnað í Pasadena í Kaliforníu árið 2005 af systr- unum sem eru 28 og 30 ára gamlar. Tískuhúsið heitir eftir ættarnafni móður þeirra. Báðar eru þær menntaðar frá Berkeley-háskóla en þó ekki í fatahönnun. Kate er útskrifuð úr listasögu með áherslu á 19. og 20. öldina en Laura er menntuð í bók- menntafræði með nútímaskáldsöguna í forgrunni. Þær hafa notið velgengni á tísku- sviðinu, en Rodarte er nú til sölu um allan heim hjá mörg- um af helstu stór- verslununum eins og Barneys, Neiman Marcus, Bergdorf Goodman, Harvey Nichols, Colette, Ik- ram, Nordstrom, Dover Street Mar- ket og 10 Corso Como. Til við- bótar hafa fyr- irsætur í fötum frá Rodarte prýtt forsíður fleiri en 20 tímarita, þar á meðal Vogue. Systurnar hafa líka hagnast á því að hafa eignast öflugar stuðningskonur en stjörnur á borð við Kate Blanchett, Natalie Portman, Kirsten Dunst, Michelle Obama, Reese Witherspoon, Chloë Sevigny og Tildu Swinton hafa allar klæðst Rodarte við hátíðleg tilefni. Hönnun Rodarte ein- kennist af prjónaflíkum og löngum borðum og er út- litið oft frekar gróft, röff og töff eru einkennisorð systranna. Rodarte hefur áður verið tilnefnt til tískuverðlauna og hreppt einhver þeirra en þessi eru vissulega þau stærstu og líklegt að tískuhúsið eigi aðeins eft- ir að eflast í kjölfarið. Rodarte ræður ríkjum Töff Frá tískusýningu Rodarte á komandi haust- og vetrarlínu. Gróft en glæsilegt Úr haust- og vetrarlínu Rodarte 2009-10. Aðalkonurnar Systurnar Kate og Laura Mulleavy tóku sig vel út með verðlaunastyttuna baksviðs á CFDA-hátíðinni. Vinkona Kirsten Dunst íklædd hönnun systr- anna á hátíð CFDA. Reuters Óskarinn Natalie Portman mætti í hönnun systranna á Óskarsverðlaunahátíðina, að- alhátíð kjólanna, í febrúar. AUKAKRÓNUR 36 bíóferðirá ári fyrirAukakrónur A-kortin Kreditkort sem safna Aukakrónum fyrir þig Þú getur farið í Laugarásbíó, Háskólabíó, Regnbogann, Smárabíó eða Borgarbíó á Akureyri á 10 daga fresti fyrir Aukakrónurnar sem safnast þegar þú notar A-kortið þitt – eða fengið þér eitthvað annað sem þig langar í hjá samstarfsaðilum Aukakróna. Sæktu um A-kort á www.aukakronur.is * M.v. 150 þúsund kr. innlenda verslun á mánuði, þ.a. 1/3 hjá samstarfsaðilum. Sjá nánar á www.aukakronur.is. * E N N E M M / S ÍA / N M 3 8 4 16 N B I h f. (L a n d s b a n k in n ), k t. 4 7 10 0 8 -2 0 8 0 .

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.