Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 20
Hann er fæddur 18. júní 1951. Hann stundaði nám í Landakotsskóla, Hagaskóla og tók stúdentspróf frá Menntaskólanum í Reykjavík 1972. Hann var í Tónlistarskólanum í Reykjavík og Söngskólanum í Reykjavík 1973-1977, Tónlistarhá- skólanum í Vínarborg 1977 og tók embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands 1979. Þá var hann við söng- nám í Bologna á Ítalíu 1979-1982. Hann var starfsmaður Ingvars Helgasonar hf. og Bílheima ehf. 1982 til 2004, lengst af sem fram- kvæmdastjóri og starfandi stjórnarformaður síðustu tvö árin. Hann var óp- erusöngvari við Þjóðleikhúsið, Íslensku óp- eruna og með Sinfóníuhljómsveit Íslands 1982-1987. Hann var borg- arfulltrúi 1998-2002 og aftur frá 2006. Hann er m.a. í borgarráði og formaður skipulagsráðs og Faxa- flóahafna auk þess að sitja í stjórn Orkuveitunnar. Hann er líka formað- ur stjórnar Íslensku óperunnar, stjórnarformaður Tónlistarskólans í Reykjavík og í stjórn Sinfón- íuhljómsveitarinnar. Eiginkona hans er sr. Svanhildur Blöndal og eiga þau fjögur börn, Halldór Kristin (f. 1973), Helga Vífil (f. 1983) og tvíburana Írisi Þóru og Gunnar Snæ (f. 1988), og tvö barna- börn. JÚLÍUS VÍFILL INGVARSSON 20 Tengsl MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009 Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Júlíus Vífill „Ég ólst upp hjá Helga og Áslaugu Sívertsen á Há- vallagötunni og eldri bræður mínir, Helgi og Guðmundur eða Gúndi, áttu þar stóran hlut að máli. Þannig var að þeir eignuðu sér afa okkar, Helgi eignaði sér Helga og Gúndi Guðmund. Þar með var ég afalaus, fór til vinafólks foreldra okkar í næsta húsi og kallaði verðandi fóst- urforeldra mína afa og ömmu. Ég hændist að þessum heiðurshjónum, þau tóku mér mjög vel og það varð til þess að þau tóku mig í fóstur. Vegna þessa vorum við bræður ekki eins og venjulegir bræður held- ur líka vinir. Ég var heimagangur hjá foreldrum mínum og systkinum en bjó þar ekki. Samt sem áður gerðum við Gúndi allt saman. Þegar við fórum í fyrsta sinn til útlanda fórum við saman til Skotlands og þó við höfum farið ólíkar leiðir í námi og áhugamálum hefur alltaf verið náið samband á milli okkar og við höfum alltaf verið mikið saman.“ Pissaði þrisvar „Gúndi var þessi pottþétti bróðir og það var alltaf öruggt að vera með honum, en Helgi var elstur og öllu ævintýragjarnari. Þegar þeir voru fjögurra og fimm ára bönkuðu þeir eitt sinn allt í einu upp á í Bólstaðar- hlíðinni hjá frænku okkar, Guðrúnu P. Helgadóttur, þáverandi skóla- stjóra Kvennaskólans. Þeir höfðu gengið frá Hávallagötunni og ætl- uðu að heimsækja son hennar og uppáhaldsfrænda sinn, Ólaf Odds- son, síðar menntaskólakennara. „Hvaðan komið þið eiginlega, strák- ar mínir,“ spurði Guðrún alveg agn- dofa, „og hvað hafið þið verið lengi?“ Þeir höfðu engin svör, kunnu ekki á klukku en allt í einu lifnaði yfir Helga bróður: „Gúndi bróðir er bú- inn að pissa þrisvar síðan við lögðum af stað.“ Þar með var tímalengdinni svarað. Ég man bara eftir einu tilviki þeg- ar Gúndi fór út af sporinu, til- tölulega snemma eftir að hann tók bílpróf. Mamma og pabbi voru í óvanalega löngu ferðalagi erlendis og án þess að spyrja kóng eða prest fór Gúndi inn í Sölunefnd varn- arliðseigna og keypti amerískan kagga. Þetta var mikil bót fyrir okk- ur sem skröltum á Trabant á þess- um tíma, bílum sem pabbi flutti inn, enda litum við miklu betur út í átta gata tryllitæki. Gúndi hafði fengið Lárus Helgason, frænda okkar, til þess að skrifa upp á víxil, sem hann gerði með semingi og þeim orðum að nú yrði Ingvar „bror“ ekki ánægður. Þegar nær dró heimkomu foreldra okkar fór Gúndi að ókyrr- ast en hann slapp með skrekkinn. Miklir kærleikar voru milli pabba og Lárusar og þess vegna hlífði pabbi Gúnda. Hann kunni ekki við að taka Lárus fyrir.“ Stóðst eggjaprófið „Þrátt fyrir þetta er einkennandi fyrir Gúnda að hann er algerlega pottþéttur. Hann er klettur í öllu sem hann gerir, vandur að virðingu sinni og vandar til allra verka sinna eins og sjá má glögg merki í einkalífi hans, fyrirtækjarekstri og hjá HSÍ. Hann tekur áhugamál sín miklu lengra en ég hef gert. Nema söng- inn. Reyndar hélt hann því fram á tímabili að hann væri meiri söngvari en ég. Þannig var að þegar ég lærði sönglist las ég allt sem ég gat um söngvara og sérstaklega um ítalska tenórsöngvarann Enrico Caruso. Þá komst ég að því að hann hafði sett stórt hænuegg upp í sig og látið það hverfa – munnholið var það stórt. Ég lét alla fjölskylduna prófa þetta og eini maðurinn sem stóðst prófið var Gúndi bróðir. Upp frá því hélt hann því fram að hann væri lang- efnilegasti söngvari fjölskyldunnar þar sem hann hefði staðist eggja- prófið. En hann hefur aldrei sungið nokkurn skapaðan hlut og einu sinni kom það sér illa fyrir mig. Við vor- um í brúðkaupsveislu hjá vinum for- eldra okkar í Kaupmannahöfn og hljómsveitin hafði æft íslenska þjóð- sönginn vegna komu okkar. Mamma, pabbi, Gúndi og ég vorum kölluð upp á svið til þess að syngja þjóðsönginn, sem er langt frá því að vera á allra færi. Pabbi og Gúndi bróðir hóstuðu og ræsktu sig þegar upp á svið var komið, báru við kvefi og hálsbólgu og sögðust ekki geta sungið. Þeir stóðu því hjá og við mamma sungum dúett, sem reyndar tókst bærilega vel. Hins vegar héldu allir að við yrðum í aukahlutverki og þessir stóru menn væru söngv- ararnir.“ „Ég byrjaði að vinna hjá pabba 11 ára og 12 ára var ég aðalrukkarinn og fór um bæinn á Bauer-hjólinu mínu. Við það fór ég úr því að vera í sæmilegum holdum í það að vera mjög grannur. Það var mjög skemmtilegt að vinna með Gúnda á þessum árum og reyndar síðar líka en við höfum unnið saman stóran hluta starfsævi okkar. Gúndi er dellukarl. Hann tók hestamennskuna með trukki eins og allt annað og var snemma farinn að tala um ræktun en enginn vissi hvað hann átti marga hesta. Það hefur alltaf verið einhver sveitamaður í honum, strengur náttúrunnar. Nú er hann til dæmis á kafi í sumar- bústaðarlífinu og vinnur hörðum höndum allar helgar við að rækta landið. Pabbi var svona líka, mikill áhugamaður um trjárækt, og Gúndi hefur tekið við. Við höfum oft farið í veiði saman. Hann er lunkinn veiðimaður, jafn og þéttur og gefst ekki upp. Hann er þarna og stendur vaktina eins og í öllu sem hann tekur sér fyrir hend- ur.“ Á réttum stað „Gúndi á trausta vini og ég held að vinskapur hans við gott fólk innan íþróttahreyfingarinnar hafi valdið því að hann hafi tekið við HSÍ. Menn vissu að hann gat haldið utan um fjármál og það var mikið þrekvirki hjá honum að koma HSÍ á réttan kjöl. Hann var réttur maður á rétt- um stað og það var rétt val að leita til hans á sínum tíma. Fyrir nokkr- um árum heyrði ég mann lýsa því yf- ir í hádegisfréttum útvarps að hann vildi taka við stjórninni í HSÍ og gagnrýndi þáverandi forystu. Ég hringdi strax í Gúnda og spurði hann hvort hann hefði heyrt fréttina um framboðið. „Hver þremillinn,“ sagði hann. „Og ég sem ætlaði að hætta.“ En hann gat ekki hætt við þessar að- stæður og hélt því áfram. Hann ætl- aði ekki að láta segja um sig að hann hefði neyðst til þess að hætta heldur vildi hætta á eigin forsendum. Það gerði hann svo í vor – á toppnum. Hann hætti ekki aðeins á hápunkti heldur farsællega sem ekki er öllum gefið og getur nú leitað nýrra miða.“ Morgunblaðið/Eggert Einhver sveitamaður í honum Bræðurnir Guðmundur Ágúst og Júlíus Vífill Ingvarssynir léku sér mikið saman í æsku, voru mikið saman á unglingsárun- um og hafa lengst af unnið saman en fóru ólíkar leiðir í skóla og hafa ólík áhugamál. Hann er fæddur 13. apríl 1950. Hann gekk í Melaskóla, Breiða- gerðisskóla og Rétt- arholtsskóla. Síðan hóf hann nám í endur- skoðun og starfaði á endurskoðunarskrif- stofu í nokkur ár. 1976 stofnaði hann fyrirtækið Ástund ásamt Arnari Guð- mundssyni. 1978 hóf hann störf hjá föður sínum og vann hjá Ingvari Helgasyni hf. þar til fjölskyldan seldi fyrirtækið 2004. Hann var í ýmsum stjórnunarstörfum og síðustu árin forstjóri. 2004 keypti hann mikinn meirihluta í Vélasölunni ehf. og var framkvæmdastjóri fyrirtæk- isins þar til hann seldi það og stofnaði Bílaumboðið Sögu 2006 til að flytja inn Fiat-bíla og mótorhjól. Hann var í aðalstjórn Víkings, í landsliðsnefnd karla hjá Handknatt- leikssambandi Íslands í mörg ár frá 1993 og formaður HSÍ 1996 til 2009. Sjálfboðaliðastörf í þágu handboltans hafa fært honum margar við- urkenningar og þar á meðal stórriddarakross hinnar íslensku fálkaorðu, heiðurskross ÍSÍ, heiðurskross HSÍ og gullmerki Víkings, Vals og FH. Eiginkona hans er Guðríður Stefánsdóttir verslunarstjóri og eiga þau þrjú börn, Stefán Níels (f. 1981), tvíburana Ingvar Júlíus og Sigríði (f. 1983) og tvö barnabörn. GUÐMUNDUR ÁGÚST INGVARSSON Bræður Júlíus Vífill, Helgi og Guðmundur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.