Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 47
Menning 47FÓLK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ 2009
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Bodrum – Tyrkland
frá kr. 99.900 í 2 vikur
Heimsferðir bjóða frábært sértil-
boð til sumarleyfisperlunnar
Bodrum í Tyrklandi 3. og 17.
júní í 2 vikur. Í boði er frábært
sértilboð á gistingu með hálfu
fæði á Hotel Turihan ***, ein-
staklega góðu og notalegu hóteli
sem býður góðan aðbúnað og mjög góða staðsetningu.
Bodrum bíður þín með einstakan menningararf, stórbrotna náttúrufeg-
urð, töfra Eyjahafsins, frábæran mat og ótrúlega hagstætt verðlag!
Sumarleyfisstaðurinn Bodrum í Tyrklandi er einn eftirsóttasti áfanga-
staður Tyrklands. Bodrum er fallegur hafnarbær sem stendur á sam-
nefndum skaga á Eyjahafsströnd
Tyrklands. Bærinn skartar fallegum
hvítum húsum sem eru víða skrýdd
blómum og þröngum heillandi
götum sem bera fortíðinni vitni. Hér
er endalaust úrval veitingastaða,
bara, kaffihúsa, verslana og mikið
nætur- og skemmtanalíf í boði.
Verð kr. 99.900
– með hálfu fæði í 2 vikur
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli
með hálfu fæði í 14 nætur á Hotel
Turihan ***. Sértilboð 3. júlí. Brottför
17. júlí kr. 25.000 aukalega.
3. eða 17. júlí
Hálft fæði innifalið – ótrúlegt verð!
Ótrúlegt sértilboð
Hotel Turihan ***
· Einstaklega gott hótel
· Hálft fæði innifalið
Eftir Birtu Björnsdóttur
birta@mbl.is
FRÓÐLEIKSÞYRSTUM ætti að
vera alveg óhætt að eyða dágóðum
tíma inni á vefsíðu vikunnar, sem er
Vísindavefur Háskóla Íslands.
Lesendur geta lesið spurningar og
svör í hinum ýmsu flokkum og auk
þess sent inn spurningar sem þeir
vilja gjarnan fá svör við.
Það er svo starfsfólk Háskóla Ís-
lands og aðrir stuðningsmenn sem
ráðast í að veita svörin.
Og spurningarnar eru úr öllum átt-
um. Þarna er hægt að finna svör við
því hve mörg prósent þjóðarinnar
hafa setið í fangelsi, hversu margar
bakteríur sé að finna í mannslíkam-
anum, hvaðan nafnið Keflavík sé
komið og af hverju ljósaperur springi,
svo fátt eitt sé nefnt.
Í flokknum „Föstudagssvar“ er svo
að finna ýmsar skemmtilegar spurn-
ingar, sem erfitt er að finna svör við,
þó starfsmenn Vísindavefjarins geri
vissulega sitt besta og þá oftar en
ekki meira í gamni en alvöru.
Dæmi um slíkar spurningar eru:
Er hægt að deyja úr leiðindum, til
dæmis í dönskutíma? Hvað eru ráðin
undir rifjunum mörg? Af hverju er
allt svona mikið vesen? Hvar er
mamma? og Hver stal kökunni úr
krúsinni í gær?
Vísindavefnum var hleypt af stokk-
unum í janúar árið 2000, en sam-
kvæmt upplýsingum á síðunni var
ætlunin upphaflega að halda síðunni
úti í einungis eitt ár. Vinsældirnar
urðu mun meiri en búist hafði verið
við og vefurinn er enn starfræktur.
Er hægt að deyja úr
leiðindum í dönskutíma?
Morgunblaðið/ÞÖK
Lifandi Það virðast sem betur fer allir á lífi í þessarri kennslustund enda leiðindi sjaldgæf dánarorsök.
VEFSÍÐA VIKUNNAR: WWW.VISINDAVEFUR.HI.IS»
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111