Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.06.2009, Blaðsíða 1
2 8. J Ú N Í 2 0 0 9 STOFNAÐ 1913 173. tölublað 97. árgangur Landsprent ehf. MBL.IS Morgunblaðið hvar sem er hvenær sem er 95 ára mbl.is SMÁSKILABOÐ »4 LÍFRÍKIÐ UNDIRSTAÐA AUÐS»6 NÍU prósenta hagvöxtur á Indlandi byggist á því að þvinga smábændur til sjálfsvígs, að slíta rætur þjóðflokka við land þeirra til að ryðja fyrir m.a. námum og verksmiðjum. Þetta fullyrðir baráttukona fyrir umhverfisvernd í þróun- arríkjunum, Vandana Shiva, m.a. í bók sinni, Soil Not Oil. Bókin er öðrum þræði rökstuðningur fyrir breytt- um landbúnaðarháttum, þar sem sjálfbærni og hagsmunir fátæk- ustu borgaranna eru settir í öndvegi. Hagvöxtur fellir bændur Stjórnvöld í Íran voru búin að búa sig undir hugsanleg mótmæli vegna for- setakosninganna þar í landi í byrjun mánaðarins með því að loka far- símakerfinu, trufla fréttaútsendingar og banna samskiptasíður á borð við You- Tube og Facebook. Þau voru aftur á móti ekki búin að átta sig á því að ný tækni hafði tekið við: Twitter, og það fréttatíst var erfitt að stöðva. Mótmælendur tísta á Twitter ÞEIR voru hvergi bangnir þessir mótorhjólamenn sem fóru í ferð á vegum ferðaskrifstofunnar Blue Mountain Adventure Tours í Landmannalaugar á dögunum og létu sig ekki muna um að bruna yfir ána sem varð á vegi þeirra. Hermt er að ekki sé þægilegt að steypast í ískalt vatnið. | 24 Morgunblaðið/Árni Sæberg Rennt á vaðið „ÉG held að helsta skýringin sé sú að komin er upp allt önnur staða og við- horf í samfélaginu eftir efnahags- hrunið. Í andrými dagsins í dag þykir allt tortryggilegt,“ segir Gunnar I. Birgisson, fráfar- andi bæjarstjóri í Kópavogi. Gunnari þykja pólitískir andstæð- ingar sínir og fjölmiðlar hafa farið offari í málinu. Hann segir vonlaust að verjast áhlaupi af þessu tagi. „Þetta er eins konar múgsefjun. Það er bara keyrt á mann án þess að maður fái rönd við reist. Þetta hefur verið mikið álag á fjölskylduna, konu mína og ekki síst dóttur, sem komin er sjö mánuði á leið. Hún hefur tekið þetta mjög nærri sér. Fyrirtæki hennar hefur beðið verulegan hnekki af þessu máli og óvíst að hún geti starfað áfram í faginu.“ Hann óttast ekki lögreglurann- sóknina sem stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar sætir. „Við vorum ekki að fremja neinn glæp. Hvað áttum við að hafa út úr þessu, stjórnarmennirnir? Ekk- ert.“ | 14 Allt tor- tryggi- legt Nýr tíðarandi, segir Gunnar I. Birgisson Gunnar I. Birgisson Eftir Pétur Blöndal pebl@mbl.is BREYTINGAR á neyðarlögunum á síðustu metrunum áður en þau gengu í gildi í október fólust í því, samkvæmt heimildum, að nánast alls staðar þar sem Seðlabankinn kom við sögu var hann strikaður út og Fjármálaeftirlitið sett í staðinn. Það varð því hlutverk FME en ekki Seðlabankans að stofna skila- nefndirnar sem var falið að reka gömlu bankana, öfugt við það sem lagt hafði verið upp með. JP Morgan hafði verið Seðlabank- anum og ríkisstjórninni til ráðgjafar, en vegna þeirra vinnubragða sem viðhöfð voru við uppskiptingu bank- anna, þá fór erlendi bankinn fram á vottorð um að ákvarðanir FME væru honum óviðkomandi. Tillögur JP Morgan voru lagðar fram á fundi með ríkisstjórninni um miðjan október og fólust í því að stofnaður yrði nýr banki og ekki fluttar neinar eignir yfir í hann, að- eins innstæður og eitt skuldabréf, sem væri forgangskrafa í þrotabú gamla bankans. Nýi bankinn gæti starfað eftir þjónustusamningi við gömlu bankana. Og til þess að kröfu- hafar gömlu bankanna brygðust ekki ókvæða við, yrðu þeir kallaðir að borðinu og fengnir til að taka þátt í að búa til nýjan banka. | 12 Seðlabanki sniðgenginn Ekki var farið að tillögum JP Morgan um stofnun nýs banka, um enga yfirfærslu á eignum og samráð við kröfuhafa TENGSL:GUÐMUNDUR OG JÚLÍUSVÍFILL MANSTU EFTIR HALLÆRIS PLANINU? RODARTE Kate & Laura vinna verðlaun SVEITAMAÐUR GRÆJUKALL BRÆÐUR KVIKMYNDIR Sumar skína, aðrar falla SUNNUDAGUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.