Morgunblaðið - 07.07.2009, Síða 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
ORKUÖFLUN fyrir kísilverksmiðju
í Helguvík er lokið. Að því gefnu að
starfsleyfi fáist er gert ráð fyrir að
framkvæmdir við verksmiðjuna hefj-
ist í haust og taki um tuttugu mánuði.
Að sögn framkvæmdastjóra Íslenska
kísilfélagsins er stefnt að því að hefja
framleiðslu í nóvember 2011.
Fyrirtækið Icelandic Silicon Cor-
poration, eða Íslenska kísilfélagið,
var stofnað hér á landi 15. apríl sl.
vegna áforma um kísilverksmiðjuna.
Eigandi þess er danska ráðgjafarfyr-
irtækið Tomahawk Development.
Fyrirtækið lét gera mat á umhverfis-
áhrifum framkvæmdarinnar í fyrra,
en aðeins hægðist á öllu ferlinu – um
sex mánuði – í haust vegna hruns
bankanna.
Framleiða 42
þúsund tonn á ári
Fyrirtækið gerði raforkusamning
við Hitaveitu Suðurnesja vegna
fyrsta áfanga verkefnisins og er í
honum kveðið á um að afhending ork-
unnar hefjist 1. nóvember 2011. Í
áfanganum er gert ráð fyrir að fram-
leiða 42 þúsund tonn af 99% hreinum
kísli á ári og um 16 þúsund tonn af
kísilryki.
Samkvæmt starfsleyfi mun verk-
smiðjan hins vegar fá að framleiða 50
þúsund tonn. Til þess þarf um 130
þúsund tonn af kvartsgrjóti, um 120
þúsund tonn af kolefni og um sex
hundruð gígavattstundir af rafmagni.
Gert er ráð fyrir að jarðstrengur
verði lagður frá Fitjum á Suð-
urnesjum til Helguvíkur.
„Tökum eitt skref í einu“
Í öðrum áfanga er áformað að bæta
við framleiðslu á mjög hreinum kísli
og kísilflögum. Lokaáfanginn er svo
framleiðsla á eigin sólarrafhlöðum.
„Þetta eru áformin en við tökum hins
vegar bara eitt skref í einu. Ég áætla
að við verðum vel komnir á veg með
fyrsta skrefið áður en við stígum það
næsta,“ segir Magnús Garðarsson,
framkvæmdastjóri Íslenska kís-
ilfélagsins.
Forsenda þess að áform um aðra
áfanga gangi upp er að tryggð verði
meiri raforka. Samningaviðræður um
frekari orku eru þó ekki hafnar.
Í matsskýrslunni vegna umhverfis-
áhrifa kemur m.a. fram að við bygg-
ingu verksmiðjunnar skapist um þrjú
hundruð ársverk á framkvæmdatím-
anum. Í verksmiðjunni sjálfri skapist
svo um níutíu ný störf. Stór hluti
starfsmanna verður háskólamennt-
aður auk þess sem margir iðn-
aðarmenn munu fá þar vinnu.
Flutningar til og frá verksmiðjunni
verða fyrst og fremst um Helguvík-
urhöfn og mun skipaumferð um hana
aukast um 28 ferðir á ári.
Umhverfisstofnun hefur boðað til
kynningarfundar vegna útgáfu
starfsleyfis til handa Íslenska kís-
ilfélaginu. Fundurinn verður haldinn
í Duushúsi í Reykjanesbæ á morgun.
Hægt er að skila athugasemdum við
starfsleyfið til 23. júlí. Þær skulu vera
skriflegar og sendar Umhverfis-
stofnun.
Orkuöflun vegna fyrsta áfanga við fyrirhugaða kísilverksmiðju í Helguvík lokið Framleiðsla gæti
hafist í nóvember 2011 Um þrjú hundruð ársverk ættu að geta skapast á framkvæmdatímanum
Framkvæmdir hefjast í haust
Helguvík Staðsetningin þykir henta
mjög vel fyrir kísilverksmiðju.
GUNNLAUGUR
Júlíusson lang-
hlaupari, sem á
sex dögum ætlar
að hlaupa til Ak-
ureyrar, hyggst
hlaupa vel austur
fyrir Hvamms-
tanga í dag.
Það var á
sunnudaginn sem
Gunnlaugur lagði af stað í hlaupið
sem er til styrktar Grensásdeildinni.
Hlaupið er jafnframt minning-
arhlaup um Jón H. Sigurðsson
hlaupara frá Úthlíð.
Gunnlaugur hljóp upp fyrir Borg-
arnes á sunnudaginn og í gær upp á
Holtavörðuheiði.
Á morgun er ætlunin að hlaupa
sem lengst inn í Langadal í áttina að
Vatnsskarði.
Á fimmtudag ætlar Gunnlaugur
að hlaupa upp á vatnaskil á Öxna-
dalsheiði og hlaupinu lýkur síðan á
föstudagskvöldið á hinum nýja
íþróttaleikvangi Akureyrar.
Safnað er inn á reikning 0130-26-
9981, kt: 660269-5929.
Austur fyrir
Hvamms-
tanga í dag
Gunnlaugur
Júlíusson
TÆPLEGA fjórðungur kvenna á Ís-
landi hefur verið beittur líkamlegu,
andlegu eða kynferðislegu ofbeldi af
maka. Skýr tengsl eru á milli ofbeld-
isins og heilsufarsvandamála
kvennanna, að því er niðurstöður
nýrrar rannsóknar sýna.
Það voru Brynja Örlygsdóttir,
doktor í hjúkrunarfræði, og Erla
Kolbrún Svavarsdóttir, prófessor við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands, sem stóðu að rannsókninni
fyrir tveimur árum.
„Það kom okkur á óvart hversu
lágur meðalaldur kvennanna, sem
eru þolendur ofbeldis, er. Hjá konum
í sambúð er hann 35 ár en hjá giftum
konum 47 ár. Það kom einnig á óvart
hversu stór hópur fæst við talsvert
flókin líkamleg og andleg heilsufars-
vandamál vegna ofbeldisins,“ segir
Erla Kolbrún.
Niðurstöður
rannsóknarinnar
sýna að 18,2 pró-
sent kvenna hafa
orðið fyrir and-
legu ofbeldi, 3,3
prósent fyrir lík-
amlegu ofbeldi og
1,3 prósent fyrir
kynferðislegu of-
beldi. 11 prósent
kvenna hræðast
maka sinn og rúmlega þriðjungur
segir spennu ríkja í sambandinu.
„Konurnar sem kváðust vera
beittar ofbeldi voru með fleiri þung-
lyndiseinkenni en aðrar, þær þjáðust
af átröskunarvandamálum og voru
með ýmis einkenni um gigt auk þess
sem þær áttu við ýmis streituein-
kenni að stríða eins og kvíða og
minna sjálfsálit,“ greinir Erla Kol-
brún frá. Hún getur þess jafnframt
að fylgni hafi verið milli ofbeldisins
og áhættuhegðunar. „Þær voru til
dæmis líklegri til þess að reykja,
drekka, misnota lyf og jafnvel neyta
eiturlyfja.“
ingibjorg@mbl.is
Fjórðungur kvenna beitt-
ur ofbeldi af maka sínum
Erla Kolbrún
Svavarsdóttir
Skýr tengsl á milli ofbeldisins og heilsufarsvanda kvennanna
Í HNOTSKURN
»Spurningar voru sendar tilum 7.500 kvenna á aldr-
inum 18 til 67 ára sem valdar
voru af handahófi úr þjóðskrá.
»Svör bárust frá tæplega2.800 konum.
»Rannsóknin er kynnt í júlí-útgáfu ritsins Journal of
Advanced Nursing.
ÓTRÚLEGT má heita hve vel kona á þrítugs-
aldri slapp þegar bíll hennar lenti framan á
vörubifreið í Hvalfjarðargöngunum í gær. Við
höggið kastaðist fólksbíllinn til um nokkra
metra og þurfti að klippa hann í sundur til að ná
konunni út. Hún var flutt á slysadeild en áverkar
hennar reyndust ekki alvarlegir. Göngunum var
hins vegar lokað fyrir umferð í þrjár klukku-
stundir á meðan bílarnir voru fjarlægðir.
Á RÖNGUM HELMINGI Í VEG FYRIR VÖRUBÍL
Morgunblaðið/Júlíus
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is
Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson
Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Tempur – 15 ár á Íslandi
Frábær afmælistilboð í júlí
Te
m
pu
r 15 ár á Ísland
i
Te
m
pur 15 ár á
Ísl
an
d
i