Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 5
Fréttir 5INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
FORSETI Ís-
lands, Ólafur
Ragnar Gríms-
son, og Dorrit
Moussaieff for-
setafrú tóku í
gær þátt í hátíð-
arhöldum í
Litháen í tilefni
af 1.000 ára af-
mæli landsins.
Forsetinn var
viðstaddur hátíðarguðsþjónustu í
dómkirkju höfuðborgarinnar, Viln-
ius, og að því loknu flutti hann
ávarp við afhjúpun minnismerkis
um 1.000 ára afmæli landsins.
Forsetinn tók þátt í
þjóðhátíð í Litháen
Ólafur Ragnar
Grímsson
PÓSTURINN býður nú upp á bið-
póst. Þá eru almennar bréfasend-
ingar geymdar fyrir þá sem ekki
eru heima tímabundið. Pósturinn
sendir þær sendingar, sem þá ber-
ast, á umbeðið pósthús þar sem við-
takandi getur nálgast þær þegar
honum hentar. Mánaðargjald fyrir
þjónustuna er 580 kónur.
Biðpóstur
TÆPLEGA þúsund búslóðir voru
fluttar frá landinu fyrstu fimm
mánuði ársins, samkvæmt fréttum
Sjónvarpsins. Það er rúmum þriðj-
ungi meira en á sama tíma í fyrra.
Flestir fluttu búslóðir sínar til Nor-
egs en Danmörk og Svíþjóð fylgja
fast á eftir.
Samkvæmt upplýsingum Eim-
skips er hins vegar 40% samdráttur
í búslóðaflutningum til landsins.
Morgunblaðið/Ómar
Á brott með búslóðir? Fleiri flytja
úr landi en fyrir ári.
Þúsund búslóðir
fluttar úr landi
VINNUSKÓLI Reykjavíkur hefur
hlotið Grænfánann. Hann er al-
þjóðlegt verkefni til að auka um-
hverfisvernd og styrkja umhverf-
isstefnu í skólum. Hver skóli sem
hlotið hefur Grænfánann þarf ár-
lega að bæta umhverfisstarf sitt til
að halda fánanum.
Um það bil 80 skólar á Íslandi eru
nú með Grænfánann.
Vinnuskóli Reykja-
víkur fær Grænfána
BÆJARRÁÐ Akraness beinir
þeirri áskorun til ríkisstjórnar Ís-
lands, samgönguráðherra og þing-
manna Norðvesturkjördæmis, að
fylgt verði eftir án tafar tillögum
og hugmyndum um tvöföldun Vest-
urlandsvegar á Kjalarnesi og tvö-
földun Hvalfjarðarganga.
Tvöföldun vega
STUTT
„ÞAÐ gefur augaleið að þegar 350-
400 bátar byrja að stunda sjó dag-
lega, til viðbótar við það sem fyrir
var verður mikið annríki í stjórn-
stöðinni,“ segir Ásgrímur Ásgríms-
son, yfirmaður vaktstöðvar siglinga.
Eftir að strandveiðar hófust hafa
mörg hundruð bátar bæst við þá um-
ferð sem áður var afgreidd hjá
stjórnstöðinni sem nú vaktar um 700
skip og báta daglega. Að sögn Ás-
gríms komu slíkir hápunktar áður
inni á milli á góðviðrisdögum en nú
sé slíkur fjöldi stöðugur.
Verða að velja og hafna
„Við sinnum þessu en það gerir
það að verkum að vaktstjórarnir
þurfa að forgangsraða afgreiðslu
mála og leggja sig mikið fram við að
velja og hafna því, sem taka þarf fyr-
ir hverju sinni.“ Ýmis verkefni lendi
því aftast í forgangsröðinni, s.s. mót-
taka á komutilkynningum skipa til
landsins. „Eftir svona vaktatarnir
eru varðstjórarnir mun þreyttari en
venjulega,“ segir Ásgrímur.
Hinsvegar sé ánægjulegt hversu
strandveiðimenn leggi sig fram við
að uppfylla öll öryggisskilyrði áður
en veiðiferð hefst. Hinir nýju útgerð-
armenn starfi því afar vel með Gæsl-
unni. una@mbl.is
Strandveiðar auka álag á Gæsluna
Mörg hundruð bátar hafa bæst við hefðbundinn fjölda á miðunum við Ísland
Varðstjórar mun þreyttari en áður Sum verkefni fara aftast í forgangsröðina
Í HNOTSKURN
» Vaktstöðin vaktar nú dag-lega 7-800 báta og skip.
» Í gær bárust fjögur útköllofan á önnur störf, þ. á m.
eitt frá sökkvandi báti og öðr-
um með reyk í vélarrými.