Morgunblaðið - 07.07.2009, Qupperneq 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
Eftir Svanbjörgu H. Einarsdóttur
svanbjorg@mbl.is
JÓN Gunnar Benjamínsson er
hreystin uppmáluð; rauðhærður, sól-
brenndur og freknóttur, með sterk-
lega handleggi. En fæturnir eru lam-
aðir og Jón Gunnar er bundinn við
hjólastól síðan hann lenti í alvarlegu
bílslysi fyrir tveimur árum.
Jón Gunnar er maður ævintýra og
útivistar. Fram að slysinu báru fæt-
urnir hann upp á ófáa fjallstindana og
á þeim stóð hann keikur úti í á við
veiðar eða hljóp við fót og fræddi
ferðamenn um ágæti föðurlandsins.
Það var stór biti að kyngja fyrir ung-
an útvistarmann að lamast fyrir neð-
an mitti.
Frelsið fannst í fjórhjólinu
Jón tók þá ákvörðun að leika á löm-
unina og leita leiða til að halda áfram í
ævintýrinu á fjöllum. Hann keypti sér
fjórhjól sem hann hefur breytt og að-
lagað sínum þörfum. Á hjólinu fer
hann í lax- og gæsaveiði og á morgun
leggur hann í fimm daga ferð yfir há-
lendið á fjórhjólinu.
Hann velur sér svo sannarlega ekki
auðveldar leiðir. Ferðin hefst við Mý-
vatn, með viðkomu í Öskju, síðan
þræðir Jón Gæsavatnaleið yfir í
Nýjadal, suður Sprengisand, línuveg
að Gullfossi, yfir Lyngdalsheiðina til
Þingvalla og svo er leiðin greið til
Reykjavíkur. „Það væri nú kjánalegt
að vera ekki svolítið kvíðinn,“ segir
Jón Gunnar. „Fjórhjólið getur verið
erfitt á ósléttum vegarslóðum og þarf
helst viðspyrnu. Þar sem fæturnir
hlýða mér ekki þarf ég að fara var-
lega og beygja og sveigja efri hluta
skrokksins til að draga úr höggum á
bakið. En ég veit að ég get þetta!“
Jón Gunnar verður ekki einn á ferð,
enda óþarfi að storka örlögunum
svona í fyrstu hálendisferðinni. Í för
verður sveitungi hans úr Eyjafirði,
Sigfús Hreiðarsson, á sexhjóli og Ing-
ólfur Stefánsson sem fylgir þeim á
fjallajeppa.
Úrbætur geta verið einfaldar
Fötlun dregur ekki úr ferðagleði
og áhuga á furðum fjallanna. Hins
vegar er ekki hægt að segja að skálar
og aðbúnaður á fjöllum sé hannaður
með aðgengi fólks í hjólastól í huga. Á
ferð sinni yfir landið ætlar Jón Gunn-
ar að skoða og kanna aðgengi fyrir
fatlaða í skálum hálendisins og kynna
leiðir til úrbóta. „Sannleikurinn er sá
að margt er hægt að lagfæra án þess
að kosta miklu til. Það þarf oft bara
að benda á einföldu leiðina. Mig lang-
ar til að vekja fólk til umhugsunar og
hvetja aðra í svipuðum sporum og ég
er í til að takast á við það sem þeir
hafa talið ógerlegt með öllu. Í fram-
haldinu er síðan markmiðið að skipu-
leggja ævintýraferðir með þarfir fatl-
aðra í huga,“ segir Jón Gunnar,
fatlaði ferðalangurinn á fjórhjólinu.
Í tengslum við leiðangurinn verður
safnað áheitum sem varið verður til
að bæta aðgengi fatlaðra í Land-
mannalaugum. Fyrirtækið 66°Norð-
ur sem styrkir leiðangurinn hefur
framleitt boli með merki leiðangurs-
ins sem verða seldir í verslunum fyr-
irtækisins í Hafnarfirði, Kringlunni,
Smáralind og á Akureyri. Bolirnir
kosta 2.000 krónur og renna 1.000 kr.
af söluverði hvers bols til söfnunar-
innar. Þá er hægt að styrkja verk-
efnið um þúsund krónur með því að
hringja í söfnunarsímann 901 5001.
Leikur á lömunina
Morgunblaðið/Ómar
Fjórhjólaferð Jón Gunnar ásamt ferðafélaganum Ingólfi Stefánssyni og Helgu Viðarsdóttur markaðstjóra hjá 66°N
Jón Gunnar Benjamínsson leggur í erfiða ferð yfir há-
lendið á fjórhjóli Hann er lamaður fyrir neðan mitti
Í HNOTSKURN
»Fimm daga ferð á fjórhjólihefst á morgun, 8. júlí.
»Vill blása fötluðum kjarki íbrjóst til að takast á við
hið ógerlega.
»Skoðar aðgengi fatlaðra ískálum á hálendinu og
kynnir leiðir til úrbóta.
» Safnar áheitum til aðbæta aðgengi fatlaðra í
Landmannalaugum.
»66°Norður selur til styrkt-ar söfnuninni boli með
merki leiðangursins.
»Söfnunarsími er 901 5001.»www.acrossiceland.is
Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur
ben@mbl.is
FRAMKVÆMDASTJÓRI Lífeyr-
issjóðs verslunarmanna segir ekki
skilyrði að lántakendur séu komnir í
vanskil áður en þeim gefst kostur á
úrræðum vegna greiðsluerfiðleika.
Lántakandi hefur aðra sögu að segja.
Forsaga málsins er sú að mað-
urinn lenti í bílslysi fyrr á árinu og
vegna þess þurfti hann að greiða
óvæntan kostnað, um 92 þúsund
krónur, vegna sjúkrameðferðar sem
hann undirgekkst í kjölfarið. Þegar
hann sá fram á um næstsíðustu mán-
aðarmót að eiga ekki fyrir afborg-
uninni af láninu sem hann er með hjá
Lífeyrissjóði verslunarmanna hafði
hann samband við innheimtudeild
sjóðsins og óskaði eftir því að fresta
tveimur til þremur afborgunum, þar
sem hann ætti í tímabundnum erf-
iðleikum. „Þá var mér sagt að þeir
gætu ekkert gert nema ég væri kom-
in í alvarleg vanskil,“ segir hann.
„Eina sem hægt væri að gera væri að
senda þetta ekki í frekari innheimtu,
þ.e. lögfræðing, og mér var gefinn
frestur til 10. júlí að borga.“ Síðan
hafa dráttarvextir safnast upp á
skuldinni. „Lánið hefur alltaf verið í
skilum hingað til og mér finnst þetta
dálítið furðuleg viðbrögð eins og
ástandið er hjá mörgum um þessar
mundir.“
Á ekki að þurfa að
greiða dráttarvexti
Guðmundur Þórhallsson, fram-
kvæmdastjóri Lífeyrissjóðs versl-
unarmanna, segir margvísleg úrræði
í boði fyrir þá sjóðsfélaga sem eiga í
erfiðleikum með að greiða af lánum
sínum hjá sjóðnum, s.s. skuldbreyt-
ing, lenging lánstíma, frestun afborg-
ana og jafnvel vaxta eftir atvikum og
að breyta lánum í jafngreiðslulán svo
eitthvað sé nefnt.
Inntur eftir því hvort lántakandi
þurfi að vera kominn í vanskil áður
en hægt er að beita þessum úrræðum
segir Guðmundur: „Það er að sjálf-
sögðu ekki upplagið, heldur einmitt
öfugt því við viljum komast hjá því að
fólk komist í vanskil.“ Fólk eigi hik-
laust að fá slíka fyrirgreiðslu án þess
að fara fyrst í gegn um tímabil þar
sem það greiði dráttavexti eða annan
kostnað.
Vanskil ekki forsenda úrræða
Lántakanda hjá Lífeyrissjóði verslunarmanna sagt að ekkert væri hægt að gera meðan hann væri
í skilum með lánið Framkvæmdastjóri segir samt að vanskil séu ekki skilyrði fyrir greiðsluaðlögun
Í HNOTSKURN
»Útistandandi lán hjá Líf-eyrissjóði verslunarmanna
voru 9.955 talsins um síðustu
áramót.
»Þá voru 310 lán í van-skilum eða 3,1% allra
lána.
»Upphæðin var hins vegaraðeins 0,08% útistandandi
lánafjárhæðar.
Erróverðlaun
fyrir reykvísk
ungmenni
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
hefur ákveðið að stofna til svokall-
aðra Erróverðlauna meðal reyk-
vískra ungmenna. Verðlaunin verða
veitt ungmennum fyrir frumleika og
leikni í listsköpun. Þau verða veitt
annað hvert ár í tengslum við fyr-
irhugaða barnalistahátíð.
Erróverðlaununum er ætlað að
vekja athygli á gildi listmenntunar í
skólum, ýta undir skapandi hugsun
og menningarlæsi ungmenna, jafn-
framt því að stuðla að samþættingu
listgreina og annarra námsgreina í
skólum.
Við hæfi þótti að nefna verðlaunin
eftir listamanninum Erró, enda hef-
ur hann hvatt til aukinnar áherslu á
listsköpun barna. Erró er jafnframt
verndari verðlaunanna.
FRAMKVÆMDASTJÓRN Land-
spítala hefur ákveðið að sameina
bráðamóttöku við Hringbraut og
slysa- og bráðadeild í Fossvogi í eina
bráðadeild frá og með 15. mars 2010.
Nýja bráðadeildin verður í Fossvogi.
Jafnframt verður opnuð hjartamið-
stöð við Hringbraut og verður hún
opin frá mánudegi til föstudags. Sjúk-
lingar sem eru til meðferðar á deild-
um vegna t.d. krabbameins eða
nýrnabilunar og þurfa sérfræðiaðstoð
vegna óstöðugs eða versnandi
ástands koma á sína heimadeild í stað
bráðadeildar.
Þessi breyting hefur verið til um-
ræðu innan spítalans undanfarna
mánuði. Ekki hefur verið full eining
um breytinguna. Þannig segir í álykt-
un frá hjúkrunarráði Landspítalans
frá því í maí að ráðið hafi miklar
áhyggjur af fyrirhugaðri sameiningu.
Taldi ráðið verulegar líkur á að breyt-
ingin skerti þjónustu við sjúklinga og
stefndi öryggi ákveðinna hópa þeirra
í hættu. Hjartaheill lýstu sömuleiðis
yfir áhyggjum af breytingunni.
Mikil framþróun
Í fréttatilkynningu frá skrifstofu
forstjóra LSH segir að bráðalækn-
ingar og bráðahjúkrun séu fag-
greinar í mikilli framþróun og í end-
urbættu húsnæði í Fossvogi verði
hægt að bæta þjónustu við sjúklinga
enn frekar og auka öryggi þeirra.
Liður í breytingunum sé endur-
skoðun á öllum verkferlum og
tengslum milli bráðadeildar, sér-
greina og deilda spítalans. Markmiðið
sé að tryggja vel skilgreinda aðkomu
og skilvirka verkferla fyrir alla sjúk-
lingahópa sem leita á bráðadeild.
Húsnæðið verði líka endurbætt og
búnaður og tæki endurnýjuð.
Kostnaður við húsnæðisbreyt-
ingar, þjálfun starfsfólks og und-
irbúning, endurnýjun tækja og bún-
aðar og flutning er talinn verða um
230 milljónir króna. Hins vegar er
áætlað að með því að sameina bráða-
móttökurnar náist um 100 milljóna
króna árlegur sparnaður.
Morgunblaðið/ÞÖK
Sameinað Deildir spítalanna verða
sameinaðar í mars á næsta ári.
Sameina
slysa- og
bráðadeild
Nýja bráðadeildin
verður í Fossvogi
„AÐSTÆÐUR voru mjög erfiðar
hjá mörgum um síðustu mánaðamót
og ég hef heyrt í fólki sem segir að
ef þetta lagist ekki núna á næstu
vikum og í síðasta lagi fyrir mán-
aðamót muni það lenda í verulegum
vandræðum,“ segir Ósvaldur Knud-
sen, starfsmaður SPRON.
Hann segir að svo virðist sem 130
starfsmenn SPRON séu staddir í
einhvers konar tómarúmi eftir að
þeim var tilkynnt um mánaðamótin
að þeir fengju ekki lengur greidd
laun á uppsagnarfresti.
„Bæði viðskiptanefnd og ráðu-
neytið virðast meina að þetta sé
bara misskilningur í slitastjórninni
og henni sé í raun heimilt að greiða
laun en slitastjórnin stendur fast á
sínu að hún megi ekki greiða laun,
þetta er orðinn einn allsherjar sam-
kvæmisleikur,“ segir Ósvaldur.
Í miðjunni sitji svo starfsmenn og
fái ekki launin sín greidd. Skila-
boðin séu mjög misvísandi því allir
aðilar virðist sammála um að
ástandið sé óviðunandi mismunun,
en samt þokist ekkert áfram.
„Menn vísa hver á annan, en það
þarf einhver að taka á sig ábyrgð-
ina og bara klára þetta dæmi.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óvissa Starfsmenn SPRON segja
það mismunun að fá ekki launin.
Mjög erfitt
fyrir starfs-
menn SPRON