Morgunblaðið - 07.07.2009, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
Útsalan
í fullum
gangi
www.feminin.is • feminin@feminin.is
Bæjarlind 4, Kópavogi • sími 544 2222
Opið mán.-fös. kl. 11-18 - lau. 10-16
Str. 38-56
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
Kvartbuxur frá PAS
Str. 36-56
Mörg snið og litir
Tískuvöruverslunin
Vera
Útsala
n
í fullu
m gan
gi!
Tískuvöruverslunin Vera
Laugavegi 49 - Sími 552 2020
Bonito ehf. Friendtex,
Faxafen 10, 108 Reykjavík,
sími 568 2870 – www.friendtex.is
ÚTSALA
Opið mán.-fös. frá kl. 11.00-18.00
Lokað á laugardögum
Mikið úrval af eldri fatnaði á
1.000, 2.000 og 3.000 kr.
Síðasta vika
Kaupir 2 flíkur
og færð eina fría með
(ódýrasta flíkin fylgir frítt með)
3 fyrir 2
Verslaðu glæsilegan fatnað þar sem gæði og þjónusta skipta máli
Skoðið sýnishornin á laxdal.is
SUMARÚTSALAN Í FULLU GANGI
20-70% AFSLÁTTUR
@
Eftir Ólaf Bernódusson,
Skagaströnd | Það er enginn
kreppu-barlómur í yngsta verk-
takanum á Skagaströnd. Hann
færði nýlega út kvíarnar með því
að festa kaup á nýju atvinnutæki
og réð til sín mann í vinnu.
Stefán Velemir er 15 ára gam-
all og hefur undanfarin þrjú
sumur tekið að sér að slá garða
fyrir fólk í bænum með lítilli
bensínsláttuvél. Hafa margir
nýtt sér þessa þjónustu Stefáns
sem hefur verið ódýr, vel unnin
og áreiðanleg. Nú nýverið var
orðið svo mikið að gera hjá
sláttuþjónustu Stefáns að hann
festi kaup á nýrri afkastamikilli
18 hestafla sláttuvél sem hann
getur setið á.
Þessi viðbót við sláttuvélakost
fyrirtækisins gerir Stefáni líka
kleift að taka að sér stærri verk
eins og ýmis opin svæði í sveitar-
félaginu. Til að geta annað eft-
irspurn hefur Stefán ráðið til sín
Róbert kunningja sinn á hrífuna.
„Það munar heilmiklu fyrir mig
að þurfa ekki að raka líka því þá
kemst ég yfir að slá meira á
hverjum degi,“ sagði þessi ungi
athafnamaður sem óttast ekki að
stofna fyrirtæki á krepputímum.
„Það þarf alltaf að slá grasið
hvort sem bankarnir fara á haus-
inn eða ekki,“ bætti hann við.
Færir óhræddur út
kvíarnar í kreppunni
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
Framtakssemi Stefán með atvinnutækið ásamt Róbert Ingvarssyni, sem sér
um að koma grasinu í stóra poka, sem síðan eru fjarlægðir með kranabíl.
ÁRSÆLL Már Arnarsson hefur
varið doktorsritgerð sína „Faralds-
fræði flögnunarheilkennis“ við
læknadeild Há-
skóla Íslands.
Andmælendur
voru Ahti Tarkk-
anen, prófessor
emeritus við Há-
skólann í Hels-
inki og dr. Krist-
inn P. Magnús-
son, dósent við
Háskólann á Ak-
ureyri. Leiðbeinandi í verkefninu
var Friðbert Jónasson prófessor.
Verkefni Ársæls byggist á
Reykjavíkuraugnrannsókninni sem
er framsæ rannsókn byggð á
slembiúrtaki úr Þjóðskrá. Upphafs-
skoðunin var gerð haustið 1996,
þegar 1.045 einstaklingar eldri en
50 ára tóku þátt. Af þeim mættu
846 (88,2% eftirlifenda) í eftirfylgni
fimm árum síðar. Allir þátttak-
endur fóru í viðamikla augnskoðun
og svöruðu yfirgripsmiklum spurn-
ingalista um heilsufar og lífsstíl.
Í ljós kom að flögnunarheilkenni
er algengt meðal Íslendinga. Í al-
gengisrannsókninni greindist heil-
kennið hjá 10,7% þátttakenda og
frekar hjá konum og þeim sem eldri
voru. Fimm árum síðar greindist
heilkennið í 5,2% til viðbótar.
Greiningarviðmiðin sem stuðst er
við reyndust áreiðanleg yfir tíma.
Sterk tengsl milli flögnunarheil-
kennis og hækkaðs augnþrýstings
voru greinileg. Enginn munur var
hinsvegar merkjanlegur á byggingu
forhólfs augans. Marktækt meira
tap á taugavef hjá þeim sem höfðu
flögnunarheilkenni kom í ljós í
mælingum á hlutfalli milli
sjóntaugarbolla og sjóntaugaróss.
Einnig sáust breytingar í áhættu
sem benda til þess að andoxun
gegni hlutverki í framgangi heil-
kennisins.
Ársæll er fæddur á Akranesi
1968 og lauk þar stúdentsprófi
1988. Hann lauk BA-gráðu í sál-
fræði frá félagsvísindadeild Há-
skóla Íslands árið 1993 og MS-prófi
í heilbrigðisvísindum frá læknadeild
HÍ 1997. Hann starfaði í áratug hjá
alþjóðlegum lyfjafyrirtækjum, en
áður hafði hann lengi starfað hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatlaðra.
Ársæll er lektor í sálfræði við Há-
skólann á Akureyri, þar sem hann
býr ásamt eiginkonu sinni Guðríði
Ólafsdóttur og fjórum börnum.
Doktor í líf- og
læknavísindum
VEGNA fréttaskýringar í Morgun-
blaðinu laugardaginn 4. júlí um
skipulag háskólastigsins vill Háskól-
inn í Reykjavík ítreka mikilvægi
þess að í umræðu um framlög rík-
isins til háskóla sé horft á öll fram-
lög, bæði til kennslu og rannsókna.
„Framlög ríkisins til háskólanna
vegna kennslu eru jafnhá á hvern
nemanda í tilteknu fagi, en það er
mikill munur á framlögum ríkisins
til háskólanna vegna rannsókna.
Rannsóknir eru óaðskiljanlegur
hluti háskólastarfs og því nauðsyn-
legt að skoða fjármögnun beggja
þátta.
Samkvæmt fjárlögum 2009 eru
heildarframlög ríkisins til Háskól-
ans í Reykjavík tæpir 2,2 milljarðar,
og skv. vef Hagstofu Íslands voru
nemendur þar 2974 árið 2008. Fram-
lög á hvern nemanda eru því um
731.000 kr. á árinu. Framlög ríkisins
til Háskóla Íslands eru á bilinu 10-11
milljarðar (eftir því hvort sjálfstæð
framlög til stofnana og sjóða sem
tengjast HÍ eru talin með eða ekki),
og þar voru nemendur 11.847 á árinu
2008. Heildarframlög ríkisins á
hvern nemanda eru þannig 15-27%
hærri hjá HÍ en hjá HR. Munurinn
skýrist að miklu leyti af rannsókna-
samningi ríkisins og Háskóla Ís-
lands, en einkareknir háskólar hafa
ekki sambærilega rannsóknasamn-
inga og þurfa því að fjármagna sínar
rannsóknir með skólagjöldum og
rannsóknastyrkjum.
Af ofangreindu má vera ljóst að
það er villandi að gefa í skyn, eins og
gert er í fréttaskýringu Morgun-
blaðsins, að ríkisháskólar beri al-
mennt skarðan hlut frá borði í fram-
lögum ríkisins til háskóla.“
Nauðsynlegt að
horfa á öll framlög
„RÉTT eins og í ríkissamningunum
er lögð megináhersla á hækkun
lægstu launa,“ segir Sigurður
Bessason, formaður Eflingar.
Skrifað var undir kjarasamning
milli Reykjavíkurborgar, Starfs-
mannafélags Reykjavíkurborgar og
Eflingar um áttaleytið í gærkvöldi.
Að sögn Sigurðar eru helstu
breytingar þær að öll laun sem
liggja fyrir neðan 180 þúsund taka
breytingum í þremur skrefum, frá
og með 1. júlí, síðan 1. nóvember og
loks 1. júní 2010. Tvær fyrri launa-
hækkanirnar nemi 6.750 kr. en sú
þriðja 6.500 kr. „Þetta tekur til meg-
inhluta þeirra launa sem eru innan
Eflingar,“ segir Sigurður. Alls ná
breytingarnar til tæplega 5.000
starfsmanna Reykjavíkurborgar.
Á morgun hefjast samningafundir
við sveitarfélögin og segist Sigurður
búast við að þar verði málin leyst
með svipuðum hætti. una@mbl.is
Samið við
Reykja-
víkurborg
Einblínt á hækkun
lægstu launataxta