Morgunblaðið - 07.07.2009, Page 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
Hvað á Steingrímur J. Sigfússonfjármálaráðherra við þegar
hann segir: „Ég held að Davíð
Oddsson sé einn á ferð ef hann er
virkilega með þá skoðun að við
eigum ekki að bera neina ábyrgð
á þessu?“ Þessi setning er orðrétt
höfð eftir Steingrími á bls. 4 hér í
Morgunblaðinu í gær.
Sagði Davíðeinhvers
staðar að „við
eigum ekki að
bera neina
ábyrgð á þessu“?
Nei, en hannsagði hins
vegar í viðtali hér í Morgun-
blaðinu á sunnudag, að hann vildi
fá úr því skorið hver væri ábyrgð
okkar, hvað varðar Icesave. Hann
nefndi að til þess að fá úr því
skorið, þyrfti að fara dómstóla-
leiðina.
Í Morgunblaðinu sl. fimmtudagvar lítil frétt þess efnis að sam-
kvæmt skoðanakönnun Gallup
væru um 60% aðspurðra andvíg
Icesave-samkomulaginu. Er nið-
urstaða þeirrar skoðanakönnunar,
sem tók til 2.500 einstaklinga, vís-
bending um að „Davíð Oddsson sé
einn á ferð“? Þar kom ekki fram
hversu stórt svarhlutfallið var, en
19% svarenda sögðust hlynntir
samkomulaginu og 21% sagðist
hvorki hlynnt né andvígt.
Samkvæmt útreikningum semgerðir hafa verið liggur fyrir
að hver Íslendingur tæki á sig 1,8
milljónir króna í auknum skuldum
vegna Icesave, ef 75% af eignum
Landsbankans innheimtast. Það
jafngildir því að hver fjögurra
manna fjölskylda á Íslandi axlaði
7,2 milljóna króna skuldabagga.
Hvað sem mönnum finnst umIcesave-samninginn er alveg
ljóst að Davíð Oddsson er hvergi
nærri einn á báti í sinni afstöðu.
Steingrímur J.
Sigfússon
Hvað á fjármálaráðherra við?
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 14 skýjað Lúxemborg 22 skýjað Algarve 27 heiðskírt
Bolungarvík 12 skýjað Brussel 22 skýjað Madríd 30 heiðskírt
Akureyri 18 léttskýjað Dublin 17 léttskýjað Barcelona 27 léttskýjað
Egilsstaðir 11 skýjað Glasgow 18 léttskýjað Mallorca 30 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 11 alskýjað London 19 skýjað Róm 28 léttskýjað
Nuuk 10 léttskýjað París 20 skýjað Aþena 29 skýjað
Þórshöfn 13 skýjað Amsterdam 21 léttskýjað Winnipeg 22 léttskýjað
Ósló 13 súld Hamborg 24 heiðskírt Montreal 20 skýjað
Kaupmannahöfn 19 skýjað Berlín 22 skýjað New York 26 heiðskírt
Stokkhólmur 15 skýjað Vín 19 þrumuveður Chicago 27 skýjað
Helsinki 16 heiðskírt Moskva 14 skýjað Orlando 31 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
7. júlí Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 0.32 0,8 6.30 3,3 12.34 0,7 18.50 3,8 3:20 23:46
ÍSAFJÖRÐUR 2.37 0,6 8.22 1,8 14.28 0,6 20.40 2,2 2:30 24:47
SIGLUFJÖRÐUR 4.55 0,3 11.15 1,1 16.57 0,5 23.05 1,3 2:09 24:33
DJÚPIVOGUR 3.29 1,8 9.39 0,5 16.05 2,1 22.16 0,6 2:39 23:27
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á miðvikudag, fimmtudag og
föstudag
Hæg breytileg átt eða hafgola,
þurrt að mestu og víða bjart
veður. Hiti 12 til 20 stig, hlýjast
í innsveitum.
Á laugardag og sunnudag
Útlit fyrir svipað veður áfram.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Austlæg eða breytileg átt, víða
3-8 m/s. Skýjað að mestu A- og
SA-lands og lítilsháttar súld, en
annars skýjað með köflum og
úrkomulítið. Hiti 10 til 20 stig,
hlýjast inn til landsins.
ÓSAMIÐ er við landeigendur í Kjós
vegna framhalds á tilraunabor-
unum. Staðfest var í fyrra að næg-
ur jarðvarmi væri til staðar fyrir
hitaveitu. Umfangsmikil leit fór
fram í fyrra sunnan Laxár og skil-
aði hún ágætis árangri. Næsta
skref hjá Kjósarhreppi er að kanna
samningsgrundvöll fyrir nýtingu
jarðhitans gagnvart landeigendum
en jarðhitaréttindi fylgja eign-
arhaldi jarða og lóða. Hægt hefur
miðað í samningaviðræðum. ,,Við
viljum ekki taka á okkur meiri
kostnað fyrr en við erum komin
með ramma um nýtingarsamning,“
segir Sigurbjörn Hjaltason, oddviti
hreppsnefndar, sem vill lítið segja
um viðræðurnar annað en að þreif-
ingar standi yfir. Nauðsynlegt sé að
geta framselt dreifingaraðila nýt-
ingarréttinn. Einnig sé inni í mynd-
inni að stofna hitaveitufélag um
reksturinn. ,,Það eru allar líkur á
því að um nýtanlegt, heitt vatn sé
að ræða en til þess að fullvissa sig
um það þarf að bora aðra holu, 300-
400 metra djúpa. Þannig gætum við
fengið hitaforsenduna,“ segir Sig-
urbjörn. Að því loknu væri hægt að
reikna út kostnað við dreifingu og
leggja dæmið fyrir hagsmunaaðila.
Svo hægt sé að ganga í þetta þurfi
samningar við eigendur að vera
frágengnir.
sigrunerna@mbl.is
Ósamið við landeig-
endur í Kjósarhreppi
Morgunblaðið/Kristján Kristjánss
HVERGERÐINGAR mótmæltu í
gær legu Suðurlandsvegar með af-
hendingu 295 undirskrifta.
Bæjarbúar eru ósáttir við breyt-
ingu á aðalskipulagi sem gerir ráð
fyrir því að Þjóðvegur 1 sé færður til
suðurs og íbúðabyggð minnkuð. Íbú-
ar segja það óskynsamlegan ráða-
breytni að láta þannig fjögurra ak-
greina hraðbraut skera byggðina í
tvennt. Bestu byggingarsvæðin verði
með þessari breytingu eyðilögð.
Að sögn Björns Pálssonar, sem
safnaði undirskriftunum, veldur þjóð-
vegurinn nú þegar óþægindum í þeim
íbúðabyggðum sem næst honum eru.
Ámælisvert sé hversu illa málið hafi
verið kynnt íbúum.
Mótmæla legu
Suðurlandsvegar
Ósátt Helga Kristjánsdóttir, staðgengill bæjarstjóra, tók við undirskriftum
bæjarbúa í mótmælaskyni frá Aage Michelsen og Birni Pálssyni.