Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 07.07.2009, Blaðsíða 14
Reuters Bræði Mótmælendur taka út reiði sína á rútu á götu úti í Urumqi í Xinjiang. Myndin er tekin úr fréttatíma kínverska ríkissjónvarpsins, CCTV. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is ÞÚSUNDIR kínverskra lögreglu- manna vakta nú götur Urumqi, höfuðborgar héraðsins Xinjiang í norðausturhluta Kína, eftir að þús- undum manna úr þjóðarbroti Uig- hur-manna, sem eru múslímar, lenti saman við kínverska meirihlutann. Kínversk stjórnvöld líta mótmæl- in afar alvarlegum augum enda eru þau einhver þau fjölmennustu frá óeirðunum á Torgi hins himneska friðar fyrir réttum tveimur áratug- um. Tölur um fjölda látinna eru á reiki en kínverska fréttastofan Xin- hua hefur eftir yfirvöldum að 156 hafi látist og um 830 særst. Eins og vænta má í ríki umfangs- mestu fjölmiðlaritskoðunar sögunn- ar er mikill munur á frásögnum kínverskra yfirvalda og fulltrúa Uighur-manna af atburðum. Opinbera útgáfan er að minni- hlutinn hafi efnt til óeirða, kveikt í 260 bifreiðum og skemmt um 200 verslanir og aðrar byggingar. Mót- mælendur hafi gengið berserks- gang og ráðist að öryggislögreglu með hnífum og bareflum. Líkt og þegar upp úr sýður í Tíbet er er- lendri íhlutun kennt um en að þessu sinni skella yfirvöld í Xinji- ang skuldinni á brottflutta Uighur- menn sem hafi skipulagt óeirðirnar úr fjarlægð. Skutu á mótmælendur Dolkun Isa, talskona heimsþings Uighur-manna (WUC), ber brigður á tölur stjórnvalda og segir 600 af um 10.000 mótmælendum hafa beð- ið bana í aðgerðum lögreglu. Aðrir talsmenn Uighur-manna hafa tekið undir þetta og fullyrt að lögreglan hafi gengið fram af hörku og hafið skothríð á fólkið. Uighur-menn hafa áratugum saman krafist aukinnar sjálfsstjórn- ar frá kommúnistastjórninni. Mikið mannfall eftir blóðugar fjöldaóeirðir í Norðvestur-Kína  Uighur-menn telja 600 látna  Fullyrða að skotið hafi verið á mótmælendur Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is DMÍTRÍ Medvedev Rússlandsforseti og Bar- ack Obama Bandaríkjaforseti undirrituðu í gær viljayfirlýsingu um fækkun kjarnavopna. Yfirlýsingin er skuldbindandi og felur í sér að innan sjö ára hafi ríkin hvort um sig að há- marki 500 til 1.100 flaugar sem borið geta kjarnavopn og í mesta lagi á milli 1.500 og 1.675 kjarnaodda í vopnabúri sínu. Þá hyggjast ríkin setja á fót sameiginlegan sérfræðingahóp sem falið verður að leiða sam- vinnu á ýmsum sviðum, svo sem orkumálum. Samkomulagið á sér langan aðdraganda en ITAR-TASS-fréttastofan hefur eftir Sergei Ryabkov, aðstoðarutanríkisráðherra Rúss- lands, að enn sé ágreiningur um fyrirhugaðan eldflaugaskjöld Bandaríkjanna í A-Evrópu. Fóru ekki framlengingarleiðina START-I afvopnunarsamkomulagið frá 1991 rennur út í desember og er nú ljóst að ríkin munu ekki framlengja það um fimm ár með gagnkvæmu samþykki, eins og John Isa- acs, stjórnandi stofnunarinnar Center for Arms Control and Non-Proliferation í Wash- ington, leiddi líkur að í samtali við Morgun- blaðið, skömmu eftir embættistöku Obama. Afvopnunin hefur þokast áfram í nokkrum skrefum en árið 2002 skuldbundu ríkin sig til að hafa yfir að ráða að hámarki á milli 1.700 og 2.200 virkra kjarnaodda. Þegar mest var höfðu Sovétríkin yfir að ráða meira en 40.000 kjarna- oddum, Bandaríkin á fjórða tug þúsunda. Georgíustríðið ekki lengur hindrun Andað hefur köldu í samskiptum gömlu kaldastríðsstórveldanna frá átökunum í Georgíu í ágúst og samþykktu forsetarnir að hefja á ný samvinnu ríkjanna í varnarmálum, eftir að þeim var tímabundið hætt í kjölfar stríðsins. Nær samvinnan meðal annars til heimildar fyrir birgðaflutningum Bandaríkja- hers til Afganistans í gegnum Rússland, flutn- ingum sem Bandaríkjastjórn telur mikilvæga. Obama hefur lagt ríka áherslu á að kalda- stríðsorðræðan eigi ekki lengur við í sam- skiptum ríkjanna og er samningur forsetanna um aukið samstarf á borgaralegum sviðum, svo sem í heilsugæslu, til marks um þann ásetning að efla samvinnu þeirra í millum. Nýr kafli í afvopnunarferlinu  Barack Obama og Dmítrí Medvedev Rússlandsforseti undirrita viljayfirlýsingu um afvopnun  Ætlað að leysa START-I afvopnunarsamninginn af hólmi  Mun fela í sér fækkun kjarnavopna Reuters Leiðtogar Vel fór á með Bandaríkjaforseta og Dmítrí Medvedev á fundi þeirra í Kreml í gær. Obama hefur lagt áherslu á að horfa beri til framtíðar og auka samvinnu og samskipti ríkjanna. 14 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009 Reknir fá fljótt vinnu AF þeim 2.600 yf- irmönnum í Dan- mörku sem var sagt upp störfum frá september í fyrra til febrúar á þessu ári fengu 56 prósent nýtt starf innan þriggja mánaða. Leiðtogi samtaka stjórnenda, Gert Bronton, segir þetta næstum því jafnmarga og fyrir kreppuna, að því er greint er frá í dönskum fjöl- miðlum. Bronton telur að það séu einkum stjórnendur innan byggingariðn- aðarins og verslunar- og þjónustu sem þurfi að sætta sig við lægri stöð- ur. Atvinnuleysi meðal stjórnenda hefur aukist úr 0,8 prósentum í 1,8 prósent frá því kreppan skall á. ingibjorg@mbl.is Í Kaupmannahöfn ROBERT McNamara, sem lengst hefur gegnt embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, lést á heimili sínu í Washington í gær, 93 ára aldri. McNamara var þjóðþekktur maður í Bandaríkj- unum sem forstjóri Ford Motor Company þegar demókratinn John F. Kennedy gerði hann að varnarmálaráðherra stjórnar sinnar eftir sigurinn á Richard Nixon í forsetakosningunum 1960. McNamara gegndi embættinu áfram eftir að Lyndon B. Johnson gerðist for- seti í kjölfar morðsins á Kenn- edy í nóvember 1963 og fór því fyrir undirbúningi Víetnam- stríðsins sem braust út um mitt ár 1964 og átti sem kunnugt er eftir að kljúfa þjóðina. Þrátt fyrir að hafa komið víða við á ferli sínum eftir að hafa látið af embætti varnar- málaráðherra árið 1968 er það fyrst og fremst hlutur hans í stríðinu sem hans er minnst fyrir. Önnur störf McNamara, svo sem staða for- seta í Alþjóðabankanum þar sem hann beitti sér fyrir framlögum til fátækra ríkja, féllu í skuggann af harðri gagnrýni á framgöngu hans í stríðinu. Tæplega áttræður gerði McNamara þennan tíma upp í bókinni In Retrospect: The Tragedy and Lessons of Vietnam, sem hann skrifaði í félagi við Brian VanDeMark, en þar leitaðist hann við að viðurkenna mistök í stríðinu. McNamara þótti mikill atgervismaður og eftir að hann sagði skilið við Alþjóðabankann 1981, þá 65 ára, var hann sí- vinnandi að ýmsum verkefnum, þar með talið af- vopnunarmálum. baldura@mbl.is Robert McNamara látinn í hárri elli Fór fyrir undirbúningi Víetnamstríðsins Robert McNamara FARÞEGUM frá Menorka til Glas- gow var tilkynnt þegar þeir voru komnir um borð í flugvél Thomas Cook-flugfélagsins um helgina að átta tíma seinkun yrði vegna bilunar á vélinni. Jafnframt var tilkynnt að fljúga þyrfti með flugvirkja til Menorka frá Manchester vegna viðgerðarinnar. Þá bauðst einn farþeganna til þess að gera við vélina. Í ljós kom að um flugvirkja var að ræða og eftir að hann hafði sýnt alla pappíra því til sönnunar hófst hann handa. Viðgerðin tók ekki langan tíma og flugvélin fór í loftið 35 mínútum seinna. Farþegunum létti sérstaklega þegar flugvirkinn settist sjálfur meðal þeirra að lokinni viðgerðinni. ingibjorg@mbl.is Farþegi gerði við flugvélina

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.