Morgunblaðið - 07.07.2009, Page 18

Morgunblaðið - 07.07.2009, Page 18
18 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009 Heimilisbókhaldið er í Einkabankanum þér að kostnaðarlausu. Kynntu þér málið á landsbankinn.is. E N N E M M / S ÍA / N M 3 7 6 7 5 N B I h f. (L a n d s b a n k in n ), k t. 4 7 10 0 8 -2 0 8 0 . EINKABANKINN | SJÁLFVIRKT HEIMILISBÓKHALD Með einum smelli í Einkabankanum sérðu þína köku • Fyrsta sjálfvirka heimilisbókhaldið • Enginn innsláttur í Excel og engir útreikningar • Þú velur hvaða reikningar og kort mynda kökuritið • Færslurnar eru flokkaðar fyrir þig • Hægt er að endurnefna og endurflokka færslur Vísindasamfélagið rétt eins og samfélag- ið allt, stendur nú á krossgötum. Fram- undan er niðurskurð- ur á fjárveitingum hins opinbera til há- skóla og rannsókna- stofnana. En þau mik- ilvægu skilaboð hafa einnig borist að stað- inn verði vörður um samkeppnissjóðina, sem hefur ver- ið eitt helsta baráttumál Vísinda- og tækniráðs frá stofnun þess árið 2003. Í þeim skilaboðum býr spennandi vísindapólitísk sýn um að forgangsraða beri því fé sem út- hlutað er í samkeppni og á grund- velli gagnsæs gæðamats. Nú er auðvitað ekki spurt hvort skorið verði niður á næstu árum, heldur hvernig og hvað. Það blasir við að forgangsraða verður í op- inberum rekstri. Hvaða viðmið og hvaða stefnu viljum við þá leggja til grundvallar? Hvaða verkefni og hvaða starfsemi á að verja eða jafnvel efla á niðurskurðartímum? Nú er áríðandi að halda fast við langtímastefnu í vísindamálum og búa svo um hnútana að stjórnvöld, og þar með öll ráðuneyti og und- irstofnanir þeirra, fylgi þeirri stefnu eftir í hvívetna. Hafa þarf í huga að rannsóknir taka tíma og rannsóknartengd nýsköpun, sem er sú verðmætasta fyrir samfélagið, tekur enn lengri tíma. Og þráð- urinn má ekki rofna; stefnan verður að vera þolinmóð og staðföst – rétt eins og fjár- magnið. Ég er sannfærð um að þau drög sem nú liggja fyrir að nýrri stefnu Vísinda- og tækniráðs verða mikilvægur leiðarvísir fyrir stjórnvöld í því endurskoðunarferli sem við blasir. Stefnudrögin hvíla á þeirri sann- færingu að líta beri á allt vísinda- og nýsköpunarkerfið sem eina heild. Nú er nauðsynlegt að taka skrefið til fulls og samræma fjár- veitingar til háskóla, stofnana og sjóða, og tryggja að þær byggi á alþjóðlegum gæða- og árangurs- viðmiðum. Þau viðmið eru ekki á reiki eins og stundum er látið að liggja, heldur eru þau alþekkt, og er brýnt að vísindasamfélagið allt fylki sér um þau. Slík samstaða er lykilatriði. Nýr vegvísir Vísinda- og tækni- ráðs um rannsóknainnviði (e. rese- arch infrastructures) var sam- þykktur nú í maí. Vegvísirinn auðveldar forgangsröðun í upp- byggingu rannsóknaraðstöðu og skilgreinir sóknarfæri á al- þjóðavettvangi. Í vetur hefur einn- ig verið unnin forathugun á rann- sóknastofnunum, auk þeirra skýrslna sem gerðar hafa verið á vegum menntamálaráðuneytis um stefnumótun á sviði háskóla og vís- inda og eru nú til umfjöllunar hjá rýnihópi ráðuneytisins. Við höfum allar forsendur og úr margskonar og ólíku efni að moða til að marka metnaðarfulla stefnu í háskóla- og vísindamálum til næstu ára. Við þurfum að koma okkur saman um einfaldar reglur um gagnsæi í fjár- veitingum og sveigjanleika í skipu- lagi vísindakerfisins. Og síðast en ekki síst: okkur ber skylda til að bera okkur saman við það besta sem gerist annars staðar. Því miður gafst ekki nægur tími til að tengja slíka heildstæða lang- tímasýn við ákvarðanir um nið- urskurð í fjárveitingum fyrir árið 2010. En það gerist vart aftur. Nú hlýtur að vera algjört forgangsmál stjórnvalda að slík stefna verði mörkuð eigi síðar en í lok þessa árs, svo að ákvarðanir um fjárveit- ingar næstu ára, 2011 og 2012, verði byggðar á skýrri lang- tímasýn. Hugsjónin með stofnun Vísinda- og tækniráðs árið 2003 var að heildstæð stefna lægi ávallt til grundvallar opinberum fjárveit- ingum til vísinda og nýsköpunar. Margt hefur áunnist, en hafa ber í huga að ráðið markar aðeins stefnu en hefur ekki fram- kvæmdavald. Sú staðreynd að vís- indamál eru á hendi margra ráðu- neyta gerir eftirfylgni heildstæðrar stefnumörkunar flókna. Skýr heildarsýn myndi stuðla að betri nýtingu opinbers fjár. Því er nauðsynlegt að stórefla Vísinda- og tækniráð og tengja starf þess enn betur við hinn póli- tíska vettvang. Um leið þarf að efla Rannís sem þjónustustofnun hins opinbera stuðningskerfis vís- inda og nýsköpunar. Eins og nefnt var í upphafi er nú ekki spurt um hvort eigi að skera niður, heldur hvernig og hvað. En eigum við að láta þar við sitja? Það er lífsnauðsynlegt fyrir þjóð okkar að við höfum djörfung og framsýni til að forgangsraða í þágu mennt- unar og vísinda. Fordæmi annarra þjóða í kringum okkur, eins og Finna og Bandaríkjamanna, kenna okkur að við eflum ekki samkeppn- ishæfni þjóðar eða atvinnusköpun framtíðarinnar nema með því að fjárfesta í grunnstoðum samfélags- ins, í menntun, vísindum og ný- sköpun, ekki síst á krepputímum. Ef okkur lánast að forgangsraða með rökstuddum og víðsýnum hætti getur tímabundinn nið- urskurður dregið athyglina að helstu vaxtarbroddunum og gefið þeim nauðsynlegt rými; en ef við skerum jafnt af öllum, án tillits til gæða og árangurs, munum við öll koma særð út úr þessari kreppu. Við verðum því að setja markið hátt. Við eigum öfluga vísindamenn sem standast alþjóðlegan sam- anburð, fjölbreytt háskólakerfi sem býr yfir miklum möguleikum og áræði, rannsóknafyrirtæki eins og Íslenska erfðagreiningu, sem skar- ar fram úr á sínu sviði á al- þjóðavettvangi, og stóran hóp ungs fólk í námi hér heima og erlendis sem vill skapa okkur ný tækifæri í framtíðinni. Ég er bjartsýn, því að ég veit að við munum ekki láta tækifæri þeirra, og þar með okkar sjálfra, úr greipum ganga. Eftir Guðrúnu Nordal »Nú þarf að forgangs- raða í ríkisfjár- málum. Ef skorið er jafnt af öllum, án tillits til gæða og árangurs, munum við öll koma særð út úr þessari kreppu. Guðrún Nordal Höfundur er formaður vísinda- nefndar Vísinda- og tækniráðs. Metnaðarfull háskóla- og vísindastefna ÁRIÐ er 2019. Siggi litli er hreint ekkert lítill lengur, enda orðinn 19 ára gamall. Það hefur margt breyst síðan hann var að klára 4. bekk. Þá var árið 2009. Árið sem ís- lenska þjóðin var í áfalli mitt í erfiðustu fjármálakreppu síðari tíma. Árið sem Siggi litli hélt áfram að leika sér og mæta í skól- ann og lét á engu bera þó að pabbi hans, mamma og kennararnir væru meira og minna þungbúin allt þetta ár og lítil gleði væri í lofti. En 10 ár eru langur tími og sem betur fer virðist árið 2009 eins og fjarlægur draumur. Það sem þá virtist aldrei geta tekið enda er nú löngu gleymt. Enginn talar lengur um Icesave og hryðju- verkalög í matarboðum og kaffi- húsin eru hætt að minna á morg- unverðarfundi Seðlabankans og þess í stað aftur orðin vettvangur blómlegrar, skemmti- legrar og menningar- legrar umræðu. Siggi er góður, vel gefinn og hjartahlýr strákur, eins og hann var fyrir 10 árum og flestum líkar mjög vel við hann. Þó að honum gangi vel í skólanum og hann beri sig yf- irleitt vel, er hann oft hræddur við framtíð- ina. Hann skilur ekki af hverju hann er svona oft kvíðinn og áhyggjufullur, á meðan flestum í kringum hann virðist líða ágætlega. Siggi var alltaf viðkvæmur sem barn, en það var ekki fyrr en á unglingsárum að hann fór að finna fyrir verulega hamlandi kvíða og áhyggjum. Þó að hann sé ungur hefur reynsla hans af erfiðleikum kennt honum að efnisleg gæði skipta alls ekki svo miklu máli. Ef hann er glaður í hjartanu og laus við áhyggjurnar getur hann sætt sig við mjög lítið. Það gleður hann að 9 ára börn árið 2019 þurfi ekki að ganga í gegnum það sama og hann fyrir 10 árum. Nú er allt orðið rólegra og betra. Aftur til nútímans. Veturinn sem nú er á enda var vægast sagt þungur fyrir íslenska þjóð og sér ekki fyrir endann á þyngslunum alveg í bráð. Þjóðin er sár og reið eftir það sem á undan er gengið og ekki að ástæðulausu. Margir gerðu það eitt rangt að koma sér upp þaki yfir höfuðið í brjálæðislegri uppsveiflu og sitja í skuldafangelsi fyrir vikið. Fyrirtækin í landinu heimta lægri stýrivexti og réttlæt- iskennd fólks æpir á að einhver verði dreginn til ábyrgðar. Þó að daufheyrst hafi verið við þessum kröfum enn sem komið er, skulum við vona að dropinn holi steininn og eitthvað mjakist í rétta átt. En mitt í öllum hamaganginum er hætt við að einn hópur gleym- ist, þar sem hann virðist eiga sér fáa háværa talsmenn. Hópur sem hvorki hefur greiðan aðgang að fjölmiðlum né stjórnmálamönnum. Þessi hópur eru börn og unglingar Íslands. Fólkið sem byggja mun upp íslenskt samfélag á 21. öld- inni. Margir virðast halda að börn- in taki lítið eftir því sem nú er að gerast og haldi bara áfram að leika sér, glöð og áhyggjulaus. Þetta er rangt. Börn eru yfirleitt miklu næmari en fullorðið fólk og taka það sem nú er að gerast á Ís- landi inn á sig og afleiðingarnar kunna að koma fram árum og ára- tugum síðar og taka á sig alls kyns birtingarform. Meira en 15 árum eftir efna- hagskreppuna í Finnlandi eru þeir enn að takast á við alls kyns fé- lagsleg og heilsufarsleg vandamál, sem rekja má beint til krepp- unnar. Fjölmargar rannsóknir sýna fram á aukið þunglyndi og kvíða eftir kreppuna og ekki síst hjá ungu fólki, sem var á barns- aldri þegar það versta gekk yfir. (sjá m.a. Leinonen, Solantaus & Punamaki, 2002.) Sumarið 2009 og árin sem fara í hönd skipta sköpum fyrir börn þessa lands. Það er beinlínis lífsnauðsynlegt fyrir framtíð þjóð- arinnar að vel verði haldið utan um þennan stóra og fjölbreytta hóp. Niðurskurðarhnífurinn má ekki lenda of harkalega á mál- efnum barna. Slíkan niðurskurð munum við þurfa að borga marg- falt síðar meir. Nú þurfa allir sem vettlingi geta valdið að taka hönd- um saman um að verja yngstu kynslóðina. Foreldrar, kennarar, fjölmiðlar, stjórnmálamenn og allir hinir. Siggi litli er að verða fullorðinn maður. Hann áttar sig alltaf betur og betur á því hvað áhrif barnæsk- unnar geta verið mikil og langvar- andi. Líklega skiptu jafnvel minnstu hlutir miklu máli þegar allt kemur til alls. Hann er svo heppinn að hafa nógu sterk bein og þroska til að takast á við sína vanlíðan og er sannfærður um að hann verði hamingjusamur um ókomin ár. Sumir eru ekki jafn- heppnir og Siggi. Sum börn þola ekki margra ára heimilishald af stöðugum áhyggjum og kvíða. Sum börn mega ekki við því að fá minni stuðning í skólanum. Sum börn mega ekki við því að detta út úr tómstunda- og íþróttastarfi. Tök- um öll höndum saman um að vernda þessi börn. Stærsta skuldsetningin Eftir Sölva Tryggvason Sölvi Tryggvason »Nú þurfa allir sem vettlingi geta valdið að taka höndum saman um að verja yngstu kyn- slóðina. Foreldrar, kenn- arar, fjölmiðlar, stjórn- málamenn og allir hinir. Höfundur er dagskrárgerðamaður og áhugamaður um velferð barna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.