Morgunblaðið - 07.07.2009, Side 27
Velvakandi 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. JÚLÍ 2009
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
HALLÓ BLESS LYKILLINN AÐ GÓÐU SAMBANDI ER
AÐ SLEPPA ÞVÍ SEM ER Á MILLI
TÓKSTU
EFTIR ÞVÍ
AÐ ÉG SENDI
ÞÉR EKKI
ÁSTARBRÉF?
JÁ
JÁ, ÉG
HEF TEKIÐ
EFTIR ÞVÍ
GOTTÉG HEF ALDREI GERT ÞAÐ
OG ÉG VILDI BARA VERA
VISS UM AÐ ÞÚ HAFIR
TEKIÐ EFTIR ÞVÍ
ÚFF
KALVIN!
VIÐ VERÐUM
AÐ HÆTTA AÐ
HITTAST SVONA
KONAN MÍN
ER FARIN AÐ
HALDA AÐ ÉG
FESTIST Á
EYÐIEYJUM
VILJANDI
MÁ ÉG FLYTJA INN TIL
ÞÍN? SKATTURINN ER Á
HÆLUNUM Á MÉR! HANN
SEGIR AÐ ÉG HAFI SVIKIÐ
UNDAN SKATTI. ÉG ER BLÖNK
GJÖRÐU
SVO
VEL
BÍLSTJÓRINN MINN
ER BLANKUR... ÞJÓNNINN
MINN ER BLANKUR...
KOKKURINN MINN
ER BLANKUR... ÞERNAN
MÍN ER BLÖNK...
MAGADANS-
NÁMSKEIÐIÐ
MITT ÆTLAR AÐ
HALDA SÝNINGU
ER
ÞAÐ?
Á ÞRIÐJUDAGINN Á
HVER OG EINN NEMANDI
AÐ DANSA Í FIMM
MÍNÚTUR Á TYRKNESKUM
VEITINGASTAÐ
ÉG VEIT EKKI HVORT
MIG LANGAR AÐ DANSA
HÁLFNAKIN FYRIR
FRAMAN FULLT AF
ÓKUNNUGU FÓLKI
HMM...
ÞAÐ VÆRI GOTT EF ÞÚ
GÆTIR SAGT EITTHVAÐ
UPPLYFTANDI...
ÞÚ ÁKVAÐST AÐ
MINNSTA KOSTI
EKKI AÐ ÆFA
NEKTARDANS
PETER, LASTU
GAGNRÝNINA
MÍNA?
JÁ, ÉG
GERÐI
ÞAÐ
UPPÁHALDS LÍNAN MÍN VAR:
„EKKI BARA ENN EIN KVIKMYNDA-
STJARNAN SEM VILL PRÓFA SVIÐIГ
NÚ? AF HVERJU HÚN?
HEYRÐIR ÞÚ ÞAÐ
EKKI? ÞAU SÖGÐU
AÐ ÉG VÆRI KVIK-
MYNDASTJARNA!
ÞAÐ skipti engu hvar landsmenn voru staddir um helgina, sólin lék við
hvern sinn fingur og skein á alla landshluta. Lífið lék við Huldu Karen og
Helgu Praní sem kældu sig í Elliðaánum.
Morgunblaðið/Eggert
Boltaleikur í rjómablíðu
Opið bréf til Sigur-
bjargar Sigurgeirs-
dóttur, stjórnsýslu-
fræðings, PhD.
ÁGÆTA Sigurbjörg,
ekki er að efa að þú haf-
ir lög að mæla í grein
þinni í Morgunblaðinu
1. júlí sl., bls. 25, varð-
andi Icesave-samning-
inn. Ég er þér hins-
vegar ósammála í því að
útiloka dómstólaleiðina.
Það er vissulega harð-
ari stefna og við erum
sigruð þjóð í hnipri.
Eigi að síður er það óá-
sættanlegt hvernig
ESB-þjóðirnar ætla að láta okkur
hér kokgleypa Icesave-ið og sjá svo
til hvort okkur verði bumbult af í ná-
inni framtíð, grípa þá inn í og bjarga
okkur frá okkur sjálfum í dýrðar-
ljóma eigin ágætis.
Ég er því ósammála, að það teljist
fráleitt að velta upp dómstólaleiðinni
mitt í umræðunni, vegna þess að um-
ræður eru til þess að takast á um
mál, enda fleiri en einn flötur á
hverju máli. Til þess eru lögfróðir
menn auk annarra að takast á um
þessa fleti, enda segir þú svo að
„dómstólaleið gæti verið fær laga-
tæknilega [...] en að hún sé pólitískt
ómöguleg“.
Er það ekki hér hvar hundurinn
liggur grafinn sem át fiskinn undir
steininum, þessi pólitíski ómöguleiki?
Við kjósum einstaklinga í ábyrgð-
arstöður á Alþingi Íslendinga. Mér
sýnist í þessari umræðu nú að ákall-
andi eftirspurn sé eftir ein-
staklingum sem þora.
„When you stick our head up from
the crowd, they shoot at you,“ segir
enskurinn.
Það er þannig öruggara að feta
refilstigu torsóttra samninga undir
leiðsögn og undir áþján erlendra
þjóða, enda erum við sigruð þjóð, í
stað þess að berjast svo blóð renni.
Niðurstaða mín er þessi:
Farsældin okkar á fjármál Breta rekst,
framtíðin barnanna á veikum grunni
skekst.
Áheitum söfnum,
Ísbjörgu höfnum.
Bylting er lögleg svo lengi sem hún tekst.
Ómar Torfason.
Hreint land?
ÉG ER nýbúin að fara
hringferð með þýskum
ferðamönnum. Fólkið
sem kemur hingað frá
Þýskalandi er yfirleitt
mjög meðvitað um
umhverfisvernd. Það
rak upp stór augu þeg-
ar við stoppuðum á út-
sýnisstaðnum rétt áð-
ur en maður ekur
niður í Kelduhverfið á
Norð-Austurlandi. Þar
var vinnuhópur í því
að úða einhverju
gumsi á plönturnar
sem uxu kringum bíla-
planið og milli hellnanna sem var bú-
ið að leggja þar. Svona illgresiseyðir
er auðvitað ekkert annað en eitur
sem fer út í lífríkið. Því í ósköpunum
er hann notaður á svona stöðum?
Hvað er slæmt við það að villtar
plöntur fylli upp í eyðurnar á mann-
gerðum pöllum? Við auglýsum okkar
land sem hreint og óspillt til að laða
ferðamenn hingað. Erum við virki-
lega á svo lágu plani í umhverfis-
vernd að við vitum ekki að öll eitur-
efni sem við notum bitna á lífríkinu?
Hvað hugsar ferðafólk sem verður
vitni að slíkum vinnubrögðum?
Úrsúla Jünemann, leiðsögumaður.
Týndur páfagaukur
DÍSARFUGLINN Mowgli flaug út
heiman frá sér í Hæðarseli í Selja-
hverfi, síðastliðinn sunnudag, 5. júlí.
Hún er grá og gul með kamb og app-
elsínugular kinnar eins og flestar
dísur en er auk þess gráperlótt.
Ef einhver hefur séð til hennar
eða hefur jafnvel bjargað henni inn,
vinsamlegast hringið í síma 823-6829
eða 822-5382. Hennar er sárt sakn-
að, fundarlaun í boði.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Félagsstarf fellur niður
vegna sumarlokunar. Matur kl. 12-13.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna 12.30, boccia kl. 9.45. Púttvöllur.
Bólstaðarhlíð 43 | Opin handa-
vinnustofa, hárgreiðsla, böðun, fótaað-
gerð, kaffi/dagblöð, hádegisverður, pútt-
tími kl. 13.30, 18 holu púttvöllur opinn
öllum.
Dalbraut 18-20 | Félagsvist kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Fundur
með farþegum í Vestfjarðaferð í dag kl.
11 í Stangarhyl 4. Laust sæti fyrir einn
karlmann. Uppl. í síma 588-2111.
Félagsheimilið, Gullsmára | Handa-
vinnustofa opin, ganga kl. 10, matur.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Sýning Höllu Har í Jónshúsi er opin kl.
10-16, Bónusrúta frá Jónshúsi kl. 14.45.
Hraunbær 105 | Félagsmiðstöðin er op-
in kl. 9-14, matur kl. 12.
Hæðargarður 31 | Opið kl. 9-16. Lista-
smiðja, morgunfjas, Stefánsganga,
bankaþjónusta, tölvur, púttvöllur, gáfu-
mannakaffi, o.fl. Félagsvist kl. 13.30 alla
mánudaga. Málverkasýning Erlu og Stef-
áns. Ljóðabók Skapandi skrifa til sölu.
Hópar sem vilja starfa á eigin vegum vel-
komnir. S. 411-2790.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Kaffi/
vísnaklúbbur kl. 9, boccia kl. 10.30,
handverksstofa opin kl. 11, opið hús og
spilað kl. 13, kaffiveitingar kl. 14.30. Hár-
greiðslustofa opin, s. 862-7097, fótaað-
gerðastofa opin, s. 552-7522.
Vesturgata 7 | Handavinna kl. 9-15.30,
matur kl. 11.45, vídeó/spurt og spjallað
og spilað kl. 13, kaffi kl. 14.30. Hár-
greiðsla og fótaaðgerðir kl. 9-16.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Handa-
vinnustofan opin, hárgreiðslu- og fóta-
aðgerðastofur opnar, félagsvist kl. 14.