Morgunblaðið - 31.08.2009, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt
til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Verð kr. 24.990
Netverð á mann. Flugsæti aðra leið með skött-
um til Alicante. Sértiboð 24. september og 8.,
15., 22. og 29. október. Flugsæti aðra leið
með sköttum frá Alicante. Sértiboð 17. og 24.
september og 8., 15., 22. og 29. október. Verð
fram og til baka á þessum dagsetningum kr.
49.990. Takmarkaður fjöldi sæta á þessu verði.
Síðustu sætin!
Alicante
í sept og okt.
frá kr. 24.990
Nú getur þú tryggt þér síðustu
sætin í sólina við Alicante í sept-
ember eða október á hreint
ótrúlegu verði. Bjóðum sértilboð á
takmörkuðum fjölda flugsæti á
völdum dagsetningum. Gríptu
tækifærið og tryggðu þér flugsæti
á frábærum kjörum.
Eftir Þröst Emilsson
og Sigurð Boga Sævarsson
LÖGREGLA rannsakar nú tildrög
eldsvoða í Laugarásvídeói í Reykja-
vík í fyrrinótt. Margt bendir til
íkveikju. Nánast allt myndasafn leig-
unnar, um 40 þúsund kvikmyndir,
eyðilagðist auk þess sem miklar
skemmdir urðu á innanstokks-
munum. Leigan er í þriggja hæða
húsi á horni Dalbrautar og Sæbraut-
ar en á efri hæðum þess eru íbúðir.
Fólk sem þar bjó varð eldsins fyrst
vart og flýtti sér út á nærklæðum.
Slökkvistarf á vettvangi gekk greið-
lega en auk þess kom Rauði krossinn
að málum og veitti fólki aðhlynningu.
Hellti inn um skilalúguna
Tilkynning um eldvoðann barst
klukkan hálffjögur um nóttina. „Hér
var opið til klukkan eitt. Ég var hins
vegar að vinna til klukkan þrjú í ýms-
um frágangi. Þá hélt ég til míns
heima sem er hér í næstu götu. Var
varla kominn inn úr dyrunum þar
þegar einn íbúanna á Dalbraut
hringdi í mig og sagði að vídeóleigan
væri að brenna,“ segir Gunnar Jós-
efsson, eigandi Laugarásvídeós.
Þegar slökkvilið kom að skíðlogaði
í húsinu. Fimm eftirlitsmyndavélar
eru í Laugarásvídeói og var upp-
tökubúnaður og annar tölvubúnaður í
eldtraustu herbergi, þar sem áður
voru peningageymslur í útibúi Ís-
landsbanka sem lengi var í húsinu. Á
upptökum úr myndavélunum sést
hvar maður kemur akandi að leig-
unni, gengur að útihurð og kastar
einhverju inn um skilalúguna.
„Þetta er að líkindum karlmaður
en hann hendir tusku eða einhverju
slíku inn og beygir sig síðan niður og
hellir einhverju inn um lúguna. Í kjöl-
farið blossar upp mikill eldur. Það
sést glöggt á upptökunum hvernig
allt fuðrar upp. Það er svakalegt að
skoða þetta,“ segir Gunnar sem er
bjartýnn á að lögreglu takist að hafa
hendur í hári brennuvargsins. Sjálfur
kveðst hann ekki geta ímyndað sér
hver hafi þarna verið að verki.
„Sjálfur tel ég mig ekki eiga óvild-
armenn.“
Tjónið 200 milljónir
Laugarásvídeó er ein rótgrónasta
vídeóleiga landsins, var opnuð fyrir
23 árum og hefur í tímans rás átt
marga trausta viðskiptavini. Svo til
allt brann í nótt sem brunnið gat og
er tjónið gríðarlegt. Ætla má, að sögn
Gunnars, að virði húsnæðisins hafi
verið um 40 milljónir og miðað við
einfalda þumalputtareglu megi ætla
að virði myndanna á leigunni, sem
voru rétt tæplega 40 þúsund, sé um
160 milljónir kr. Tjónið er því sam-
anlagt 200 milljónir króna.
Sumar kvikmyndanna sem fóru í
brunanum fáist þó seint bættar, að
ætla má, enda segist Gunnar hafa
lagt sig sérstaklega eftir gullmolum
kvikmyndasögunnar og myndum á
öðrum tungum en hinni engilsaxn-
esku, nokkuð sem fæstar aðrar vídeó-
leigur bjóði.
Minn klaufaskapur
„Tryggingamál hefðu vissulega
mátt vera í betra lagi sem er minn
klaufasakapur,“ segir Gunnar Jós-
epsson. Hann segir það þó engu
breyta um áform sín um að opna víd-
eóleiguna aftur, eftir um tvo mánuði.
Allt bendir til íkveikju
Tugir þúsunda kvikmynda ónýtir eftir bruna í Laugarásvídeói í fyrrinótt Margir helstu gullmolar
kvikmyndasögunnar voru á leigunni Tjónið nemur 200 milljónum króna, segir eigandinn
Sótugt Viðkvæmur tölvubúnaður eyðilagðist. Tryggingar á
vídóleigunni hefðu mátt vera betri, segir eigandinn.
Húsið Laugarásvídeó er á horni Dalbrautar og Sæbrautar og
hefur haft sérstöðu fyrir fjölbreytt úrval kvikmynda.
Skemmdir Myndbandsspólur og DVD-diskar bráðnuðu niður
eins og smjör á pönnu. Á leigunni voru um 40.000 myndir.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eigandinn Þrátt fyrir ágjöf stefnir Gunnar Jósefsson í Laugarásvídeói að því að opna leiguna aftur fljótlega.
Lögreglan vinnur af krafti að
rannsókn á brunanum í vídeó-
leigunni við Dalbraut. Rann-
sóknarlögreglumenn unnu
sleitulaust allan daginn í gær
við málið. „Við höfum engan
handtekið ennþá,“ segir Friðrik
Smári Björgvinsson, yfirmaður
rannsóknardeildar Lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu.
Myndbandstökur af vettvangi
segir hann misjafnar að gæðum
og því ekki hægt að fullyrða
hvort þær gagnist.
Ef rétt reynist að um íkveikju
hafi verið að ræða má sá sem að
henni stóð búast við harðri refs-
ingu.
Þannig segir í 164. grein al-
mennra hegningarlaga að refs-
ing skuli vera ekki lægri en
tveggja ára fangelsi, enda hafi
sá sem verkið vann séð fram á
að mönnum yrði bersýnilegur
lífsháski búinn eða eldsvoðinn
mundi hafa í för með sér aug-
ljósa hættu á skemmdum.
Viðurlögin eru hörð
KONAN mín vaknaði við spreng-
ingar og bjóst þá við að sjá flug-
eldasýningu. Þetta reyndist hins
vegar vera eldsvoði og þá var ekki
annað að gera en að koma sér út í
hvelli,“ segir Páll Stefánsson ljós-
myndari. Hann býr með fjölskyldu
sinni, eiginkonunni Áslaugu
Snorradóttur og tveimur börnum
þeirra, á Dalbraut 3, þar sem Laug-
arásvídeó er á neðstu hæð. Á ann-
arri hæð búa foreldrar Áslaugar.
„Atburðir næturinnar eru í upp-
rifjuninni svolítið óraunverulegir.
Hingað kom fjöldi slökkviliðsbíla
og menn gengu fumlaust í þetta. Ég
fékk því strax þá tilfinningu að
slökkviliðið réði við þetta. En það
er ótrúlegt að menn skvetti bensíni
og beri eld að byggingu þar sem
sofandi fólk er innandyra. Afleið-
ingarnar geta verið skelfilegar,“
segir Páll, sem fékk að fara með
fjölskyldu sinni inn í íbúðina um
klukkan fimm um nóttina, en þá
hafði slökkviliðið ráðið niðurlögum
eldsins. Í gær var fólk svo í óðaönn
við að reykræsta íbúðina með því
að opna glugga svo trekkti í gegn.
sbs@mbl.is
Flúðu þegar flugeldasýningin
reyndist vera eldsvoði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tiltekt Páll Stefánsson og Stefán sonur hans hreinsuðu mettaða svefnpoka
á Dalbrautinni í gær. Heimilið slapp vel en reykjarlyktin var þrúgandi.
Óraunverulegt í
upprifjuninni, segir
Páll Stefánsson