Morgunblaðið - 31.08.2009, Side 7
Fréttir 7INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
Verðsssprengja!
MÁNUDAG OG ÞRIÐJUDAG
Ýsuflök m. roði 1.140,-
Ýsuflök, roðl. og beinl. 1.280,-
Þorskflök m. roði 1.140,-
Rauðsprettuflök 1.090,-
Bleikjuflök 1.490,- Raspaðir ýsubitar 1.280,-
Reykt ýsa 1.470,-
Fiskibollur 1.090,-
Plokkfiskur 1:090,-
Sigin grásleppa 1.190,-
Gellur
–nýjar og nætursaltaðar 1.340,-
Kinnar
–nýjar og nætursaltaðar 1.340,-
Marineruð löngusteik 1.090,-
Steinbítssteikur 1.190,-
– Parmesan
– Indversk
– Sinneps & grasl.
– Karrý og kókos
– Béarnaise
Ýsaísósu:1.150,-
FLÖK STEIKUR
ÝMISLEGT
HEITUR MATUR
Í HÁDEGINU
Matseðill dagsins
Brasseruð keila m. hvítvínssósu
hrísgrjónum og salati
Pönnusteikt ýsa m. lauksmjöri,
kartöflum og salati
Ekta plokkfiskur m. rúgbrauði og tilheyrandi
Djúpsteiktur fiskur, kartöflur, sósa og salat
Nr.1
Bjóðum kaffi og “meððí”milli kl. 16 og 19 mánud. og þriðjud.
Gildir á meðan birgðir endast!
Nr.2
Nr.3
Nr.4
Bryggjuhúsið, Höfðabakka 1, 110 Reykjavík • Opið virka daga frá 10:00 - 19:00 • Sími: 587 5070
VIÐ GULLINBRÚ
„ÞAÐ er sama
hvernig maður
veltir lögum og
réttarvenjum,
konur fá ekki
vernd og þessi
hætta er ekki
tekin alvarlega,“
segir Guðrún
Jónsdóttir, tals-
kona Stígamóta.
Henni þykir ekki
nægilegt hald í úrræðum sem fyrir
hendi eru til verndar þeim sem orð-
ið hafa fyrir heimilisofbeldi.
Guðrún telur að þegar búið er að
sakfella mann fyrir mjög alvarleg
brot á lægra dómsstigi eigi meðferð
á honum að vera eftir því þar til
önnur niðurstaða fæst. Hann eigi
ekki að ganga laus.
Nafnbirtingar eftir atvikum
„Yfirhöfuð finnst mér nafnbirt-
ingar mjög varhugaverðar í svona
málum því þau snerta svo marga
aðra en ofbeldismanninn,“ segir
Guðrún en sambýliskona Bjarka er
í DV um helgina sögð vilja að nafn
hans sé birt til verndar öðrum kon-
um. Guðrún telur að þegar svo ber
undir sé rétt að nöfnin séu gerð op-
inber, fórnarlömbin eigi að hafa
eitthvað um málið að segja. Ekki sé
þó hægt að setja fram neina al-
menna reglu um þetta, meta verði
hvert mál fyrir sig.
Úrræðin
ekki full-
nægjandi
Slæmt að sakfelldir
menn gangi lausir
Guðrún
Jónsdóttir
FRÉTTASKÝRING
Eftir Skúla Á. Sigurðsson
skulias@mbl.is
MAÐURINN, sem dæmdur var í
átta ára fangelsi í Héraðsdómi
Reykjavíkur þann 7. júlí fyrir bar-
smíðar og gróft kynferðisofbeldi
gegn fyrrverandi sambýliskonu sinni,
er frjáls ferða sinna um þessar mund-
ir. Dómnum var áfrýjað til Hæsta-
réttar Íslands og verður ekki fram-
fylgt fyrr en niðurstaða Hæstaréttar
í málinu liggur fyrir.
Fyrst og fremst er krafist frávís-
unar málsins á grundvelli vanhæfis
þeirra sem komu að málinu hjá lög-
reglu og ríkissaksóknara.
„Við gerum auðvitað kröfu um
sýknu til vara, það er bara venju-
bundið þegar menn hafa lýst sig sak-
lausa,“ segir Hilmar Ingimundarson,
lögmaður Bjarka Más Magnússonar,
sakbornings í málinu.
Bjarki er fæddur 1973 og er stjórn-
málafræðingur að mennt. Var hann í
héraði fundinn sekur um að hafa beitt
eiginkonu sína ýmiss konar ofbeldi í
hartnær tvö ár. Meðal þess sem hann
var dæmdur fyrir var að hafa þvingað
hana til samræðis við fjölda annarra
karlmanna. Á sjöunda hundrað
mynda og tuttugu myndskeið af at-
hæfinu voru meðal sönnunargagna í
málinu. Dómurinn taldi brotin einkar
ófyrirleitin og sagði Bjarka ekki eiga
sér neinar málsbætur. Málið ætti sér
enga hliðstæðu hér á landi.
Gæsluvarðhalds ekki krafist
Ekki er heimild í lögum til að fara
fram á gæsluvarðhald eða að af-
plánun dóms hefjist eftir að máli er
áfrýjað til Hæstaréttar. Bjarki sætti
gæsluvarðhaldi í þágu rannsókn-
arhagsmuna 11. til 24. janúar 2008 en
ekki var farið fram á lengra varðhald
þar sem rannsóknarhagsmunum var
talið borgið.
Samkvæmt upplýsingum frá emb-
ætti ríkissaksóknara var talið afar
hæpið, með hliðsjón af fordæmum
dómstóla, að fallist yrði á gæslu-
varðhald á grundvelli hættu á frekari
brotum eða almannahagsmuna.
Ásamt því að forsendur framleng-
ingar nálgunarbanns sem Bjarki
mátti sæta frá 29. janúar til 31. júlí í
fyrra voru í Hæstarétti ekki taldar
fyrir hendi var þetta talið útiloka með
öllu að krafa um gæsluvarðhald á
fyrrnefndum grunni næði fram að
ganga. Var þess því ekki krafist í mál-
inu.
Miklar kröfur til sönnunar
Hefði varðhald á grundvelli al-
mannahagsmuna fengist hefði verið
hægt að krefjast framlengingar þess
fram að meðferð Hæstaréttar á mál-
inu. Þar sem svo var ekki eru ekki
fyrir hendi forsendur í lögum sem
heimila að sakborningur sé sviptur
frelsi sínu. Gengur Bjarki því laus.
Að áliti lögfróðra manna og sam-
kvæmt upplýsingum frá rík-
issaksóknara gera íslenskir dóm-
stólar ríkar kröfur til að sýnt sé fram
á að almannahagsmunir eða hætta á
ítrekuðum brotum krefjist gæslu-
varðhalds. Er þetta eðlilegt í ljósi
þess að gæsluvarðhald er mjög þung-
bær ráðstöfun. Vegast í þessu á sjón-
armið um almannaöryggi og réttindi
sakbornings.
Morgunblaðið/ÞÖK
Ógn ofbeldis Ótti við barsmíðar og skapofsa mannsins knúði konu hans til
að taka þátt í kynlífsathöfnum gegn vilja sínum. Myndin er sviðsett.
Frjáls þrátt fyrir dóm
Sakborningur áfrýjaði átta ára fangelsisdómi fyrir fordæmalaust ofbeldi gegn
sambýliskonu sinni Maðurinn gengur laus þar til Hæstiréttur tekur málið fyrir
Maður sem sakfelldur var fyrir að
þvinga sambýliskonu sína til
samræðis við aðra menn og ann-
að ofbeldi gengur laus. Afplánun
dómsins hefst ekki fyrr en nið-
urstaða Hæstaréttar liggur fyrir.
Í HNOTSKURN
» Í Héraðsdómi Reykjavík-ur var Bjarki fundinn sek-
ur um fimmtán kynferðisbrot
gegn fyrrverandi sambýlis-
konu sinni og fjölda líkams-
árása.
» Einnig var hann dæmdurfyrir hótanir og líkams-
árás gegn föður sínum.
» Hann hefur ekki áðurgerst sekur um refsiverða
háttsemi svo vitað sé.