Morgunblaðið - 31.08.2009, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
LAGERSALA 50-70% AFSL.
Max Mara, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík, sími 562 2862
!"#$%!&' )%*+,
#2&34 56789! ..7.:;
*%<-%$=! ..7./
!"#$ &'()*+ ,-(,./ 012+,-(,3
410567" ,81/
912#2 &:;<=6"><?:<2>2&
@A!+ -B, ( C$ 3,D DD-D
EEE+>F;1+"<
!"#" %&#'#(#) *+ ,-./0)#11
Flauelsbuxurnar
eru komnar
Laugavegi 84 • sími 551 0756
Morgunblaðið/Steinunn
Þrot Frá höfninni á Seyðisfirði.
SKIPTUM er lokið á þrotabúi Haf-
síldar hf. á Seyðisfirði, en fyrir-
tækið var úrskurðað gjaldþrota 13.
september 1993, fyrir 16 árum.
Hafsíld rak loðnuverksmiðju á
Seyðisfirði en fór í þrot eftir að
aflabrestur varð á tveimur loðnu-
vertíðum í röð.
Lýstar kröfur í búið námu alls
rúmum 236 milljónum króna eða
nálægt 485 milljónum samkvæmt
verðlagi dagsins í dag. Viður-
kenndar veðkröfur við upphaf
skipta námu 448 þúsund krónum
og viðurkenndar forgangskröfur 66
þúsund krónum. Greiddust þessar
kröfur að fullu. Alls námu almenn-
ar kröfur 235,8 milljónum króna og
greiddist ekkert upp í þær.
Gunnar Jónsson hrl., skiptastjóri
búsins, segir að uppgjör búsins
hafi dregist af ýmsum ástæðum.
Helst þeirra var sú að þrotabúið
höfðaði mál gegn manni, sem hafði
gefið út hlutafjárloforð í fyrir-
tækið. Það mál tapaðist og búið
dæmt til greiðslu kostnaðar, sem
það átti ekki fyrir. Þrotabúið beið
eftir því hvort mál yrði höfðað til
að ná þessum kostnaði, en fyrning-
arfrestur var 10 ár. Slíkt mál var
aldrei höfðað.
Gunnar Jónsson segir að eig-
endur Hafsíldar hafi sjálfir óskað
eftir gjaldþrotaskiptum og kröfu-
höfum hafi verið gert það ljóst
strax í upphafi, að búið væri nær
eignalaust. sisi@mbl.is
Skiptum lokið á Hafsíld
Loðnuverksmiðja á Seyðisfirði var úrskurðuð gjaldþrota
fyrir 16 árum Fór í þrot eftir aflabrest tvær vertíðir í röð
SAMTÖK versl-
unar og þjón-
ustu, SVÞ, hafa
beint þeirri
áskorun til utan-
ríkisráðuneyt-
isins að það mæti
aukinni þörf fyrir þýðingar á skjöl-
um með því að nýta þjónustu einka-
aðila. Tilefnið er að stjórnvöld sjá
fram á stóraukna þörf fyrir þýðing-
arþjónustu en ráðuneytið hefur að
undanförnu auglýst eftir þýð-
endum. Fyrir dyrum standa aðild-
arviðræður við Evrópusambandið
og SVÞ segja ljóst að gífurlegt
magn skjala muni þarfnast þýð-
ingar í tengslum við þær viðræður.
Benda samtökin á að hér á landi séu
starfandi fjölmörg fyrirtæki sem
byggja starfsemi sína á þýðing-
arvinnu hvers konar.
Þýðingarvinna
til einkaaðila
ÍBÚÐIR við Bif-
röst, sem aug-
lýstar voru á
uppboði um
helgina, snerta
Háskólann á Bif-
röst ekki og seg-
ir rektor að nem-
endur muni ekki
verða fyrir nein-
um óþægindum
vegna málsins. Íbúðirnar eru í eigu
félagsins Selfells og standa við
Sjónarhól á háskólasvæðinu. Há-
skólinn á minnihlutaeign í félaginu
en meirihluti er í eigu verktaka
sem hefur ráðið gangi félagsins, að
sögn Ágústs Einarssonar, rektors á
Bifröst. „Selfell á íbúðirnar og þær
koma okkur ekkert við. Þær eru
bara hér á svæðinu,“ segir Ágúst.
Skólinn leigir hluta íbúðanna sem
boðnar verða upp en Ágúst segir að
uppboðið hafi engin áhrif á það.
Leigusamningurinn sé ótímabund-
inn og ekki verði hægt að hækka
leiguna til skólans.
sigrunerna@mbl.is
„Íbúðirnar koma
skólanum ekki við“
Háskólinn á Bifröst
– meira fyrir áskrifendur
Glæsilegt sérblað um börn og
uppeldi fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 11. september
Börn &
uppeldi
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan 16
mánudaginn 7. september.
Nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir
í síma 569 1105 netfang: kata@mbl.is
Víða verður komið við í uppeldi barna
bæði í tómstundum þroska og öllu því
sem viðkemur börnum.
Meðal efnis:
• Öryggi barna innan og utan heimilis.
• Barnavagnar og kerrur.
• Bækur fyrir börnin.
• Þroskaleikföng.
• Ungbarnasund.
• Verðandi foreldrar.
• Fatnaður á börn.
• Þroski barna.
• Góð ráð við uppeldi.
• Umhverfi barna.
• Námskeið fyrir börnin.
• Barnaskemmtanir.
• Tómstundir fyrir börnin.
• Barnamatur.
• Ljósmyndir.
• Ásamt fullt af spennandi efni um börn.
Rangt var farið með áskriftarverð
Morgunblaðsins í umfjöllun í sunnu-
dagsblaðinu um hag heimilanna. Al-
menn áskrift kostar nú 3.390 krónur
á mánuði. Beðist er velvirðingar á
þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Rétt áskrift
Morgunblaðsins