Morgunblaðið - 31.08.2009, Qupperneq 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
Herfilegar mótsagnir eru í mál-flutningi Vinstri grænna um
ríkisfjármálin.
Ögmundur Jón-asson heil-
brigðisráðherra
hefur til dæmis
skorið upp herör
gegn reykingum og
ætlar að halda
landsins fyrsta tób-
aksvarnaþing hinn
11. september.
Það er að sjálfsögðu góðra gjaldavert að reyna að draga úr reyk-
ingum. Það sparar t.d. peninga í
heilbrigðiskerfinu eins og ráð-
herrann bendir á.
En ef allir reykingamenn hættu aðreykja á morgun, missti ríkis-
stjórnin, sem VG situr í, af stórum
tekjupósti. Stutt er síðan álögur á
tóbakið voru auknar stórlega til að
afla ríkissjóði peninga í hallærinu.
Frá flokksráðsfundi VG umhelgina kemur tillaga um að
„auknar álögur verði fyrst og fremst
lagðar á þann hluta samfélagsins
sem stendur undir frekari álögum,
t.d. með stighækkandi hátekjuskatti,
þrepaskiptum stóreigna- og erfða-
skatti og skattlagningu fjármagns-
tekna til jafns við launatekjur.“
Hljómar óneitanlega fallega.
Staðreyndin er þó sú, að verðiauknar álögur eingöngu lagðar
á hátekju- og stóreignafólkið, kemur
voða lítið í ríkiskassann.
Þegar allt kemur til alls nær ríkiðekki fleiri krónum í kassann
nema skattleggja allan almenning.
Til dæmis þá, sem reykja þrjápakka á dag.
Ögmundur
Jónasson
Mótsagnir í málflutningnum
Byggt á upplýsingum frá Veðurstofu Íslands
Veður víða um heim kl. 18.00 í gær að ísl. tíma °C Veður
Reykjavík 14 skýjað Lúxemborg 20 heiðskírt Algarve 30 heiðskírt
Bolungarvík 6 alskýjað Brussel 21 heiðskírt Madríd 35 léttskýjað
Akureyri 8 skýjað Dublin 19 skýjað Barcelona 26 léttskýjað
Egilsstaðir 9 alskýjað Glasgow 16 skúrir Mallorca 28 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 12 skýjað London 19 skýjað Róm 32 þrumuveður
Nuuk 5 alskýjað París 24 heiðskírt Aþena 30 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað Amsterdam 19 léttskýjað Winnipeg 17 skýjað
Ósló 17 skýjað Hamborg 16 skýjað Montreal 22 skýjað
Kaupmannahöfn 16 léttskýjað Berlín 20 heiðskírt New York 24 heiðskírt
Stokkhólmur 17 léttskýjað Vín 21 skýjað Chicago 17 léttskýjað
Helsinki 17 léttskýjað Moskva 20 skýjað Orlando 31 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
31. ágúst Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3.51 2,8 10.05 1,4 16.24 3,3 22.44 1,3 6:09 20:48
ÍSAFJÖRÐUR 0.00 0,9 5.52 1,5 12.02 0,9 18.21 1,9 6:06 21:01
SIGLUFJÖRÐUR 1.57 0,6 8.35 1,1 14.17 0,7 20.17 1,3 5:49 20:44
DJÚPIVOGUR 0.30 1,4 6.51 0,8 13.32 1,7 19.50 0,9 5:36 20:20
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
Á þriðjudag
Austan og norðaustan 3-8. Víða
væta en úrkomulaust á Vestur-
landi. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast
suðvestanlands.
Á miðvikudag
Austlæg átt, 3-10 m/s. Rigning
sunnanlands en annars skýjað
en úrkomulítið. Hiti 6 til 11 stig.
Á fimmtudag
Austlæg átt. Rigning suðvest-
anlands en annars skýjað að
mestu og úrkomulítið. Hiti 6 til
10 stig.
Á föstudag
Sunnan- og suðaustan-átt og
væta sunnan- og vestanlands
en annars skýjað með köflum.
Hiti 6 til 12 stig.
Á laugardag
Sunnan- og suðvestan-átt og
rigning um sunnan- og vest-
anvert landið en annars þurrt.
Hiti 8 til 14 stig.
VEÐRIÐ NÆSTU DAGA
SPÁ KL. 12.00 Í DAG
Rigning eða súld á austari
helmingi landsins, en annars
úrkomulítið. Hiti 5 til 16 stig,
hlýjast suðvestanlands.
EKKI gengur að viðskipta-
bankar og aðrir lánveitendur
standi einir að greiðslu- og
skuldaaðlögun hjá ein-
staklingum, að mati Gísla
Tryggvasonar, talsmanns neyt-
enda.
„Annaðhvort þarf löggjafinn
að setja um þetta efni reglur á
málefnalegum forsendum eða
að neytendur komi að málinu, t.d. með því að
gerðardómar úrskurði um niðurfærslu lána.“
Segir hann að með því að láta bankana eina um
þetta, eins og lesa megi úr nýlegum ummælum
Gylfa Magnússonar viðskiptaráðherra, sé þeim í
raun selt sjálfdæmi í málunum. „Í viðtali í
Morgunblaðinu sl. fimmtudag sagði ráðherra að
ferlið þyrfti að vera gagnsætt og að tryggja
þyrfti að fólki yrði ekki mismunað á bak við
tjöldin. Ég tel að þessar forsendur stangist á við
hugmyndir um að bankarnir sjái einir um aðlög-
unina,“ segir Gísli. Segir hann að hugmyndir
sínar um gerðardóma feli í sér aðferðafræði við
að finna rétta lausn. „Engin lausn á þessum
vanda er góð nema neytendur komi sjálfir að
henni.“
Gísli fagnar því hins vegar að bílalán séu nú
komin í umræðuna, en áður hafi hún nánast að-
eins snúist um íbúðalán. „Fyrir fjórum mán-
uðum sendi ég forsætisráðherra tillögu um eign-
arnám íbúðaveðlána og niðurfærslu þeirra eftir
mati gerðardóms. Ég hef nú sent sambærileg
tilmæli til banka og annarra lánveitenda og í
þeim er einnig tekið á bílalánum og öðrum lán-
um, sem ekki var gert í fyrri tillögunni.“
bjarni@mbl.is
Ekki eigi að selja bönkum sjálfdæmi
Talsmaður neytenda segir neytendur verða að koma að lausn á vanda heimila
Gísli
Tryggvason
VERÐMÆTI saltaðra grá-
sleppuhrogna og grásleppukavíars á
fyrri helmingi ársins nam 923 millj-
ónum króna í útflutningi frá land-
inu.
Það er 113% aukning frá sama
tíma í fyrra, að því er fram kemur á
vef Landssambands smábátaeig-
enda.
Frakkar keyptu langmest af grá-
sleppukavíar, líkt og undanfarin ár,
eða tæpan helming af heildarmagn-
inu. Þjóðverjar komu næstir og Ítal-
ir voru í þriðja sæti í heildarmagni
innkaupa. Alls voru flutt út 226 tonn
á tímabilinu. Hæsta meðalverð fyrir
grásleppukavíar fékkst á Banda-
ríkjamarkaði.
Heildarútflutningsverðmæti kaví-
ars var 355 milljónir króna. Þrátt
fyrir að veik króna hafi hjálpað til
við verðmætaaukningu í íslenskum
krónum náðist einnig hækkun á
báðum vörunum í evrum og dollar.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Grásleppa Útflutningsverðmæti hrognanna hefur aukist undanfarið.
Verðmæti gráslepp-
unnar aukist um 113%
Í HNOTSKURN
»Svíar og Danir keyptumest af söltuðum grá-
sleppuhrognum og Þjóðverjar
voru þar á eftir.
»Alls svaraði heild-armagnið til 4.658 tunna á
móti 4.117 tunnum á sama
tímabili 2008.