Morgunblaðið - 31.08.2009, Side 11
Fréttir 11INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
Eftir Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
ÁFRAM er unnið að endurheimt hinna fornu
Brimnesskóga við Kolkuós í Skagafirði, svæði sem
á landnámsöld var skógi vaxið milli fjalls og fjöru
en eru nú aðeins móar og melar. Verkefnið, sem
Steinn Kárason, umhverfishagfræðingur og garð-
yrkjumeistari, hefur unnið að undanfarin 15 ár, er
einsdæmi á Íslandi; aldrei hefur neitt í líkingu við
það verið gert hérlendis.
Að sögn Steins er markmiðið að skila náttúrunni
því sem frá henni var tekið en endurheimta á skóg-
ana eingöngu með upprunalegum trjám: birki,
reyni og víði, sem vaxið hafa í Skagafirði frá önd-
verðu.
Steinn hefur í samstarfi við ýmsa aðila unnið að
ræktun úrvals birkitrjáa sem ræktaðar hafa verið
upp með fræi af völdum trjám í Fögruhlíð í Aust-
urdal og Geirmundarhólaskógi í Hrolleifsdal í
Skagafirði. Einnig hefur farið fram ræktun á af-
burðabirki, sem fæst við ágræðslu og kynbætur á
birkinu í gróðurhúsi, og með svonefndri vefja-
ræktun á reyni úr Hrolleifsdal. Hefur Steinn feng-
ið aðstöðu hjá Gróðrarstöðinni Mörk í Reykjavík
fyrir kynbótastarfið.
Komið að ákveðnum tímapunkti
Árangur þrotlausrar vinnu við ágræðslu og fræ-
ræktun er kominn í ljós því góð uppskera hefur
fengist af kynbættu birkifræi úr Geirmundar-
hólaskógi. En núna er verkefnið komið á mikil-
vægan tímapunkt.
„Það er brýnt að fá fjármagn til verkefnisins svo
að fræið eyðileggist ekki í geymslu. Geymslutími
fræsins er skammur, kannski þrjú til fimm ár að
jafnaði, en það fer þó eftir geymsluaðstöðu. Ef vel
á að vera þarf að rannsaka fræið með því að spíru-
prófa það og húða síðan til að hægt sé að vélsá
fræinu en birkifræ er mjög smátt. Frærannsóknir
eru ekki lengur stundaðar á Íslandi en þær eru
fyrirhafnarsamar og kosta sitt,“ segir Steinn.
Fyrsta gróðursetning fór fram fyrir fimm árum,
með tilstyrk Yrkju-sjóðs Vigdísar Finnbogadótt-
ur, fv. forseta Íslands. Sama ár fékkst fjárstyrkur
og stofnaði Steinn þá félagið Brimnesskóga utan
um verkefnið. Frá árinu 2005 hafa um 12 þúsund
trjáplöntur verið gróðursettar. Þar af voru um 200
vefjaræktuð reynitré, um 60 cm há, og 30 ágrædd
birkitré, 3-5 metra há, sem eru fyrirhugaðar fræ-
mæður á ræktunarsvæðinu. Gróðursetningin hef-
ur farið fram með aðstoð grunnskólanemenda í
Skagafirði og sjálfboðaliða úr ýmsum áttum.
Plönturnar hafa farið niður á 4–5 hektara svæði en
á síðasta ári fékk félagið enn stærra land, 21 hekt-
ara, til afnota hjá Sveitarfélaginu Skagafirði. Var
svæðið girt af í sumar af stjórnarmönnum Brim-
nesskóga og sjálfboðaliðum. Á næstu 5-6 árum
stendur svo til að planta á svæðinu alls 70 þúsund
plöntum. Steinn segist ótrauður ætla að halda
áfram og ljúka ætlunarverkinu. Hann hefur haldið
fræðslu- og kynningarfyrirlestra í grunnskólum í
Skagafirði og víðar, en hátt í 150 nemendur hafa á
síðustu árum tekið þátt í gróðursetningunni.
Steinn hyggst efla og styrkja kynningarstarfið á
næstunni og vonast eftir stuðningi til þess þrátt
fyrir erfitt árferði í efnahagsmálum þjóðarinnar.
„Það þarf þrautseigju og eljusemi til að vinna að
svona verkefni,“ segir Steinn og er sannfærður um
að endurheimt Brimnesskóga muni renna styrkari
stoðum undir vistvæna og menningartengda
ferðaþjónustu og efla atvinnu, menningu og skóla-
starf í Skagafirði. Þá leiki enginn vafi á að reynsla
og ávinningur af verkefninu muni nýtast á lands-
vísu.
Steinn segir að með því að velja til ágræðslu og
undaneldis fallegustu og bestu birkitrén sem eftir
eru, sé úrkynjuninni snúið við sem hafi verið að
þróast gegnum aldirnar hér á landi. Allt að 400
ágræðslur voru gerðar áður en nægur fjöldi birki-
plantna náðist. „Þetta er langt ferli, erfitt og flókið
því trén verða ófrjó í gróðurhúsi en verða nægi-
lega frjó á einhverjum tilteknum tíma utandyra,“
segir Steinn um aðferðafræðina. Vonast hann til
að trén í endurheimtum Brimnesskógum verði öfl-
ugur fræbanki í framtíðinni.
Berst áfram fyrir endur-
heimt Brimnesskóganna
Stefnt að gróðursetningu 70 þúsund trjáplantna á næstu fimm til sex árum
Morgunblaðið/Eggert
Frumkvöðull Steinn Kárason er með vefjaræktaðar trjáplöntur heima hjá sér sem eiga vonandi
eftir að skjóta rótum í Brimnesskógum í Skagafirði og gefa af sér fræ til framtíðar.
Í Landnámabók Ara fróða er sagt frá Brimnes-
skógum í grennd við Kolkuós í Skagafirði, sem
voru svo gróskumiklir að hryssan Fluga, einhver
nafntogaðasti gæðingur landnámsaldar, týndist
í skóginum. Landið var á þeim tíma ekki aðeins
skógi vaxið heldur hafa fornleifarannsóknir síð-
ustu ára sýnt fram á gróskumikið mannlíf við
Kolkuós fyrr á öldum. Í dag er landið skógvana,
aðeins móar og melar.
Steinn segir það verðugt verkefni að endur-
heimta birkiskóga víðar um land og tekur sem
dæmi þjóðgarðinn á Þingvöllum. Þar hafi tapast
miklir skógar gegnum aldirnar. „Voru menn ekki
að sjóða öl þegar skógurinn brann snemma á
þjóðveldisöld,“ spyr Steinn brosandi og vísar
þar til Íslendingasögunnar um landnámsmann-
inn Ölkofra þegar hann varð valdur að sinu- og
skógarbruna á Þingvöllum.
Steinn hefur lagt sig eftir að skoða rekstur og
starfsemi þjóðgarða og náttúruverndarsvæða á
ferðum sínum gegnum árin, nú síðustu þrjú ár á
Balkanskaga á nokkrum stöðum.
Brimnesskógar í Landnámabók Ara fróða
ÞÓ að verkefnið hafi að mestu verið
á herðum Steins Kárasonar undan-
farin ár hefur hann fengið góða að-
stoð víða að. Nemendur og kennarar
úr grunnskólunum í Skagafirði hafa
séð um gróðursetningu, ásamt inn-
lendum og erlendum sjálfboðaliðum,
m.a. ungu fólki í umhverfishópi
Landsvirkjunar.
Aðrir samstarfsaðilar eru Yrkju-
sjóður Vigdísar Finnbogadóttur, fv.
forseta Íslands, sem fjármagnar 3-5
birkiplöntur á hvern grunnskóla-
nema sem tekur þátt hverju sinni.
Sveitarfélagið Skagafjörður hefur
lagt til 21 hektara ræktunarsvæði
við Brimnes og garðyrkjustjóri
Skagafjarðar hefur aðstoðað við
gróðursetningu. Þá hefur Gróðr-
arstöðin Mörk í Reykjavík lagt fram
aðstöðu til ræktunar- og tilrauna-
starfs, án endurgreiðslu.
Að sögn Steins hafa ýmsir aðilar
lagt verkefninu lið fjárhagslega. Má
þar nefna Gyðu Jónsdóttur, ekkju
Ottós Michelsen, og fjölskyldu sem
hefur viljað heiðra minningu Ottós
en hann var mikill áhugamaður um
garðyrkju og trjárækt. Einnig hafa
KB-banki (nú Kaupþing), Skógrækt-
arsjóður Skagafjarðar, Land-
græðsla ríkisins, Landbótasjóður og
landbúnaðarráðuneytið lagt til fjár-
magn. Þá segir Steinn fjölda fyr-
irtækja og einstaklinga hafa lagt
verkefninu lið, eins og Skagfirð-
ingabúð (Kaupfélag Skagfirðinga),
Flytjanda, Skógræktarfélag Reykja-
víkur, Þórarin E. Benedikz, skóg-
fræðing á Mógilsá, og bændur í
Hjaltadal, Óslandshlíð og Blönduhlíð
í Skagafirði. „Ekki má gleyma nú-
verandi og fyrrverandi eigendum í
Gróðrarstöðinni Mörk en án aðstöð-
unnar þar hefði þetta verkefni aldr-
ei orðið að veruleika,“ segir Steinn.
Hann vonast til að unnt verði að
ljúka verkefninu í Brimnesskógum á
fimm til sex árum, að því gefnu að
nægt fjármagn fáist, og plöntun
verði lokið árið 2015. Kostnaðar-
áætlun er upp á alls sjö milljónir
króna, rúm milljón á ári í sex ár.
Fjölmargir hafa lagt hönd á plóginn
Vinna Þeir girtu landið af í sumar, f.v.: Ottó S. Michelsen, Ómar Örn Pálsson,
Steinn, Vilhjálmur Egilsson, Stefán S. Guðjónsson og Snorri Stefánsson.
Nemendur og kennarar í Skagafirði hafa ásamt sjálfboðaliðum gróðursett í landi Brimnesskóga
Girða þurfti landið af í sumar vegna ágangs hrossa Kostnaður við plöntun um sjö milljónir kr.
Í HNOTSKURN
»Stjórn félagsins Brimnes-skóga er skipuð þeim Stef-
áni S. Guðjónssyni, formanni,
Steini Kárasyni, Jóni Ásbergs-
syni, Sölva Sveinssyni og Vil-
hjálmi Egilssyni. Eiga þeir all-
ir rætur í Skagafirði eða
tengjast héraðinu.
»Þrír úr stjórninni, ásamtfleirum, girtu landið af í
sumar eftir ágang hrossahóps
á svæðinu. Fræðast má nánar
um verkefnið á www.steinn.is.
1995
Steinn Kárason, frumkvöðull að
endurheimt Brimnesskóga, kynnti
verkefnið í Morgunblaðinu 18. júlí
og einnig í útvarpsþætti. Þing-
mönnum kjördæmisins og sveit-
arstjórnarmönnum kynnt hug-
myndin með bréfi.
1996
Greinar af ellefu völdum birkitrjám
í Geirmundarhólaskógi í Hrolleifs-
dal teknar til kynbóta. Ágræðsla
birkis hófst í gróðrarstöðinni Mörk
í Reykjavík. Kynbætur hafa síðan
staðið þar sleitulaust.
2004
Félagið Brimnesskógar stofnað af
Steini Kárasyni þegar KB-banki
veitti fjárstyrk til verksins. Fyrsta
gróðursetning birkis og gulvíðis
fyrir tilstyrk Yrkju-sjóðs Vigdísar
Finnbogadóttur, fv. forseta Íslands.
Plönturnar ræktaðar af fræi úr
Fögruhlíð og Geirmundarhóla-
skógi. Kynningarfyrirlestrar
haldnir í grunnskólum í Skagafirði.
Um 150 grunnskólabörn og kenn-
arar úr Árskóla á Sauðárkróki og
grunnskólunum á Hólum, Hofsósi
og Sólgörðum gróðursettu ásamt
sjálfboðaliðum.
2005
Fyrsta uppskera af kynbættu fræi
úr Geirmundahólaskógi fékkst í
Gróðrarstöðinni Mörk. Vefjarækt-
un á reynivið úr Hrolleifsdal hófst í
tilraunaaðstöðu í Mosfellsdal.
2008
Samningur félagsins Brimnesskóga
við Sveitarfélagið Skagafjörð und-
irritaður um afnot af 20 ha lands til
starfseminnar. Um 30 ágrædd
birkitré gróðursett ásamt 170
vefjaræktuðum reynitrjám.
2009
Land Brimnesskóga girt varanlega.
Gróðursettar um 2.500 birki-
plöntur.
2015
Áætlun um að verkinu verði lokið
og þá búið að planta alls 70 þúsund
plöntum.
Hófst með grein
í Morgunblaðinu
Ljósmynd/Steinn Kárason