Morgunblaðið - 31.08.2009, Page 14
14 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
NÝ rannsókn
leiðir í ljós að
hvítir Evr-
ópubúar hafi
ekki orðið til fyrr
en fyrir um 5.500
árum. Rann-
sóknin, sem
framkvæmd var
við Óslóarhá-
skóla, sýnir að
fólkið sem bjó á
Bretlandi og Norðurlöndunum hafi
haft dökka húð í margar aldir.
Fyrst þegar fornmaðurinn hóf
landbúnað fyrir um 5.500 árum síð-
an hafi húð hans tekið að breytast.
Orsökin sé sú að ræktaður matur
innihaldi lítið magn D-vítamíns,
sem er mikilvægt næringarefni.
Maðurinn geti búið efnið til þegar
sólarljós er nægt, en ljós húð geri
það hinsvegar hraðar en dökk. Í
Norður-Evrópu þar sem sól er af
skornum skammti hafi ljós húð því
verið nauðsynleg til að lifa af.
Hvíti maðurinn
aðeins 5.500
ára gamall?
Evrópubúar voru
dökkir á hörund.
NOKKRAR
verslanir í
Leeds á Eng-
landi hafa feng-
ið hótunarbréf
þar sem þær eru
varaðar við að
byrja að selja
jólakort fyrir 1.
nóvember, ann-
ars verði lími
hellt í skráar-
götin. Höfundur bréfsins segist tala
fyrir „Samtökum hlynntum því að
hemja jólin.“ Lími hefur þegar ver-
ið hellt í skráargat búðar sem selur
jólakort til styrktar geðsjúkum.
„Þetta hefur gert starfsmenn, að-
allega sjálfboðaliða, órólega. Við
höfum fjarlægt jólakortin í bili.
Þetta er slæmt því við höfum þénað
70 pund á viku í góðgerðaskyni,“
segir talsmaður búðarinnar. Málið
er í rannsókn.
Reyna að hemja
jólin með hótunum
Jólagleði Kviknar
hún of snemma?
EHUD Olmert,
fyrrverandi for-
sætisráðherra
Ísraels, verður
fyrstur forsætis-
ráðherra lands-
ins til að fara
fyrir rétt. Ol-
mert hefur m.a.
verið ákærður
fyrir að þiggja
ólöglega fjármuni frá bandarísk-
um stuðningsmanni, tvírukka fyrir
opinberar ferðir og hirða mismun-
inn.
Ehud Olmert fer
fyrir rétt í Ísrael
Ehud Olmert
FRÉTTASKÝRING
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
„ÞETTA voru byltingarkenndar
kosningar. Almenningur hefur sýnt
hugrekki og tekið stjórnmálin í eigin
hendur,“ sagði Yukio Hatoyama, leið-
togi japanska Jafnaðarmannaflokks-
ins eftir að ljóst varð að flokkur hans
hafði unnið stórsigur á Frjálslyndum
jafnaðarmönnum í gær.
Niðurstöður kosninganna þykja
sögulegar í Japan því aðeins einu
sinni á síðastliðnum fimmtíu árum
hafa frjálslyndir misst völdin. Jafn-
aðarmannaflokkurinn vann meira en
300 sæti af 480 sætum í valdamikilli
neðri deild þingsins.
Jafnaðarmenn hafa m.a. lofað al-
menningi að horfið verði frá hörðum
kapítalisma og komið á fót öflugra fé-
lagskerfi. Breytt utanríkisstefna hef-
ur einnig verið boðuð þar sem sjónum
verði í auknum mæli beint til Asíu og
unnið að meira sjálfstæði gagnvart
Bandaríkjunum
Tímamót í lýðræðissögunni
Frjálslyndi flokkurinn leiddi Jap-
ani í gegnum „efnahagsundrið“ í kjöl-
far seinni heimstyrjaldarinnar.
Flokkurinn hefur verið sakaður um
aðgerðaleysi á tíunda áratugnum og
ofuráherslu á frjálst markaðskerfi
sem af mörgum er sagt hafa aukið fé-
lagslegan ójöfnuð í landinu. Þá hefur
alþjóðlega efnahagskreppan sett
mark sitt á Japan og hefur atvinnu-
leysi aldrei verið meira.
„Kosningarnar snúast um að búa
til kerfi þar sem flokkum sem mis-
tekst er hent út,“ sagði Yoshiyuki
Kobayashi verkamaður, sem greiddi
atkvæði sitt í gær. „Við verðum að
kenna stjórnmálamönnum að vera
hræddir,“ sagði Kobayashi við blaða-
mann New York Times.
Sigurinn virðist síður hafa snúist
um að koma jafnaðarmönnum til
valda heldur umfram allt að koma
frjálslyndum frá völdum. Kosning-
arnar eru taldar marka tímamót í
sögu japansks lýðræðis, kosn-
ingaþátttaka var um 70%, en jap-
anskir kjósendur hafa ekki verið
þekktir fyrir að skipta sér mikið af
stjórnmálum.
„Almenningur heldur í sér and-
anum og kýs jafnaðarmenn,“ hefur
New York Times eftir Jeff Kingston,
prófessor í japönskum stjórnmálum
við Temple-háskóla í Tókíó. „Hann
vill allt annað en Frjálslynda demó-
krata,“ sagði Kingston.
Aðgerðasinnar í Japan vonast til að
nú verði hálfrar aldar setu eins
stjórnmálaflokks skipt út fyrir meiri
samkeppni á stjórnmálasviðinu.
En of stór sigur Jafnaðarmanna
getur að mati margra reynst nei-
kvæður og skilað sér í því að nýtt
flokkseinveldi komist á fót í stað þess
að fleiri flokkar skipti með sér völd-
um.
Japanskur almenningur
hefur krafist breytinga
Stjórnarandstöðuflokkurinn vann stórsigur í þingkosningum
Reuters
Von Þátttakendur í Asakusa-hátíðinni ganga framhjá kosningaspjaldi
Hatoyama sem lofar að vinna gegn atvinnuleysi og bæta félagskerfið.
Frjálslyndir jafnaðarmenn hafa
misst völd í Japan eftir rúmlega
fimmtíu ára valdatíð. Óttast er
að Jafnaðarmannaflokkurinn nái
ekki að uppfylla vonir lands-
manna um breytt samfélag.
Eftir Jóhönnu Maríu Vilhelmsdóttur
jmv@mbl.is
BRESKI dómsmálaráðherrann, Jack Straw, hefur
neitað fullyrðingum Sunday Times um að lausn
Líbíumannsins Abdelbaset al-Megrahi, sem sat í
lífstíðarfangelsi fyrir sprenginguna yfir skoska
bænum Lockerbie, hafi verið liður í samningum
sem leyfðu breska olíurisanum BP að bora eftir ol-
íu í Líbíu.
Vangaveltur um slíkan samning hafa verið há-
værar allt frá því að al-Megrahi var leystur úr
haldi og sendur heim til Líbíu fyrr í mánuðinum.
Samkvæmt heimildum Sunday Times skrifaði
Straw skoska dómsmálaráðherranum, Kenny
MacAskill, í desember 2007 og sagði að „víðtækar
samningaviðræður við Líbíumenn væru að komast
á úrslitastig“ og að hann myndi hætta við tilraunir
til að halda al-Megrahi utan við samning um lausn
fanga „í ljósi yfirþyrmandi hagsmuna Bretlands“.
Bréfin sem Sunday Times hefur undir höndum
þykja sýna að ákvörðun um að al-Megrahi yrði
hluti af samningnum hafi í raun verið tekin í Lond-
on í þágu breskra þjóðarhagsmuna en ekki af yf-
irvöldum í Skotlandi.
Þegar líbísk yfirvöld notuðu samning við BP
sem útspil til að fá al-Megrahi lausan hafi Jack
Straw skipt um skoðun. Samningurinn hljóðaði
upp á 15 milljarða punda og snerist um olíu- og
gasvinnslu en tilkynnt var um hann í maí 2007. Sex
mánuðum síðar beið samningurinn enn staðfest-
ingar.
Samkvæmt Sunday Times skrifaði Straw um-
rætt bréf til MacAskill þann 19. desember 2007 og
sex vikum síðar hafði Líbíustjórn samþykkt samn-
inginn við BP.
Talsmenn BP hafa neitað því að stjórnmál hafi
haft áhrif á samþykkt samningsins eða að hann
hafi tafist vegna samninga um fangaflutninga.
Lockerbie-fangi látinn laus fyrir olíu?
Reuters
Velkominn Gaddafi fagnað Al-
Megrahi við komuna til Líbíu.
Bresk yfirvöld neita fullyrðingum Sunday Times um að hættan á að ekkert yrði
úr olíusamningi BP í Líbíu hafi ráðið úrslitum um lausn Abdelbaset al-Megrahi
Í HNOTSKURN
»270 manns létu lífið þegar PanAm-þotavar sprengd yfir Lockerbie í Skotlandi.
»Al-Megrahi var dæmdur í lífstíðarfang-elsi fyrir verknaðinn
»Lausn hans var umdeild en hann varsendur heim til Líbíu af mannúðar-
ástæðum þar sem hann er dauðvona.
Yukio Hatoyama, sem væntanlega
verður nýr forsætisráðherra Jap-
ans, er einn ríkasti þingmaður
landsins og forfeður hans hafa
verið atkvæðamiklir í japönskum
stjórnmálum. Hatoyama-ættinni
hefur stundum verið líkt við Ken-
nedy-fjölskyldu Bandaríkjanna.
Yukio Hatoyama er fjórða kynslóð
stjórnmálamanna í fjölskyldu sinni
en hann er barnabarn fyrrverandi
forsætisráðherra landsins, Ichiros
Hatoyama. Hinn afi hans stofnaði
stærsta dekkjaframleiðslufyrir-
tæki heims, Bridgestone.
Faðir Yukios Hatoyama var utan-
ríkisráðherra á áttunda áratugn-
um og bróðir hans ráðherra undir
núverandi forsætisráðherra.
Yukio Hatoyama þykir því ólík-
legur til umfangsmikilla byltinga í
japönsku samfélagi og þykir í orði
og útliti svipa mjög til andstæð-
inga sinna í Frjálslynda flokknum.
Hatoyama hefur þó lofað „bylt-
ingarkenndum breytingum“ í
kosningabaráttunni.
Yukio Hatoyama á eitt barn með
eiginkonu sinni, Miyuki, sem er
leikkona og þykir litrík og opinská.
Hatoyama er af ríkri stjórnmálaætt
„Fólk hefur orðið fyrir miklum
vonbrigðum með núverandi
stjórnvöld,“ segir Toshiki Toma,
prestur innflytjenda á Íslandi.
„Það ríkir ekki
mikil bjartsýni
varðandi jap-
önsk stjórn-
mál. Nýr
flokkur vann
núna en það
er allt eins
víst að al-
menningur
verði fyrir
vonbrigðum á ný,“ segir Toma.
Hann segir ýmis hneykslismál
hafa valdið því að japanska rík-
isstjórnin missti traust almenn-
ings. „Meðal annars í ellilífeyr-
ismálum. Fólk hafði borgað
ellilífeyri í mörg ár sem hafði svo
ekki verið skráður. Þetta var stórt
hneykslismál og alvarlegt fyrir þá
sem bráðum eiga rétt á sínum
ellilífeyri,“ segir Toma.
„Fólk hefur líka orðið órólegra í
kjölfar efnahagskreppunnar, sem
reyndar er ekki jafn slæm og á Ís-
landi. Frjálslyndir demókratar
gátu ekki gefið landsmönnum
von eða sýnt fram á breytingar
sem treystandi væri á. Tveir for-
sætisráðherrar hafa hætt eftir
aðeins tæpt ár í starfi. Taro Aso
er því þriðji forsætisráðherrann á
einu kjörtímabili. Það er túlkað
sem mikið ábyrgðarleysi og stór-
sigri jafnaðarmanna hafði verið
spáð,“ segir Toma. Þó sé alls
óvíst að ný ríkisstjórn muni
standa undir vonum landsmanna.
Vonbrigði ríkjandi
Toshiki Toma