Morgunblaðið - 31.08.2009, Qupperneq 24
24 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 31. ÁGÚST 2009
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@mbl.is
LISTASAFN Reykjavíkur stendur
fyrir fjölda áhugaverðra sýninga á
næstu mánuðum og ýmiss konar
fræðsludagskrá verður um sýning-
arnar í Hafnarhúsinu og á Kjar-
valsstöðum.
Heimskunnur
popplistamaður
Hinn heimskunni japanski popp-
listamaður Yoshitomo Nara, sem
fæddur er 1959, sýnir í september
og út árið verk sem er sérstaklega
gert fyrir Hafnarhúsið. Hafþór
Yngvason, safnstjóri Listasafns
Reykjavíkur, segir þetta vera stór-
viðburð í myndlistarlífi landsins.
„Nara er einn fremsti myndlist-
armaður Japans, mjög þekktur á
meginlandi Evrópu og í Bandaríkj-
unum og verk hans eru meðal dýr-
ustu verka á markaðnum. Sýning
hans nefnist The Crated Rooms in
Iceland og samanstendur af litlum
byggingum í formi listaverkakassa.
Þetta er sýning sem á örugglega
eftir að vekja athygli.“ Listasafnið
fékk hæsta styrk sem hægt er að fá
frá Japan Foundation, milljón jen,
til að fjármagna sýninguna.
Valdir rammar
Næstkomandi fimmtudag, 3.
september, verður opnuð í Hafn-
arhúsinu sýningin Rammar í end-
ursýn. Sýningin er byggð á völdum
römmum úr kvikmyndum Lars von
Triers og Friðriks Þórs Friðriks-
sonar en Ari Alexander Ergis er
sýningarstjóri. „Þetta verður mjög
forvitnileg og flott sýning,“ segir
Hafþór. „Friðrik Þór, Lars von
Trier og Ari Alexander eiga það
sameiginlegt að hafa stúderað
myndlist og sýnt í galleríum en eru
þekktir sem kvikmyndagerð-
armenn. Lars von Trier og Friðrik
eru góðir vinir og von Trier valdi
verk sín í samráði við Friðrik.“
Hönnun Steinunnar
Önnur sýning sem örugglega
mun vekja áhuga margra er yf-
irlitsýning á hönnun Steinunnar
Sigurðardóttur sem er borg-
arlistamaður þessa árs. Á sýning-
unni, sem verður opnuð á Kjarvals-
stöðum í nóvember, er lögð áhersla
á frumeintök af hönnun Steinunnar
sem ekki eru ætluð til fjöldafram-
leiðslu auk ljósmynda eftir Mary
Ellen Mark. Listasmiðja verður í
tengslum við sýninguna þar sem
hægt verður að spreyta sig á verk-
efnum sem tengjast hönnun.
Fjölmargar aðrar forvitnilegar
sýningar verða opnaðar á næstu
vikum og mánuðum. Fyrsta sýn-
ingin sem opnar á Kjarvalsstöðum
á nýju sýningarári nefnist Blik.
Þar er Op-listin á Íslandi, þar sem
listamenn vinna með sjónblekk-
ingar, skoðuð út frá verkum nokk-
urra listamanna, eins og Eyborgar
Guðmundsdóttur, Hreins Frið-
finnssonar og Ólafs Elíassonar.
Sérstök Blik-smiðja verður sett
upp á Kjarvalsstöðum í tengslum
við sýninguna og þar geta gestir
spreytt sig á verkefnum sem tengj-
ast blik-list, sjónblekkingum og
vísindum.
Arkitektúr og vatnslitir
Í tilefni af áttræðisafmæli arki-
tektsins Högnu Sigurðardóttur
verður á Kjarvalsstöðum opnuð yf-
irlitssýning á verkum hennar í nóv-
ember en að sögn Hafþórs er gríð-
arleg rannsóknarvinna tengd þeirri
sýningu. Málþing og fyrirlestrar
verða haldnir samhliða sýningunni.
Sýningin Vatnslitir í 100 ár verð-
ur opnuð á Kjarvalsstöðum eftir
áramót en þar er gefið yfirlit yfir
sögu íslenskra vatnslitamynda.
„Það hefur aldrei verið gerð nein
heildarúttekt á íslenskum vatns-
litamyndum,“ segir Hafþór. „Ýmsir
listamenn sem aldrei náðu veruleg-
um tökum á olíumálverkinu voru
frábærir í vatnslitamyndum. Þessi
sýning birtir okkur öðruvísi lista-
sögu en þá sem við erum vön að
skoða.“
Erró í Japan
Næstkomandi fimmtudag, 3.
september, verður opnuð í Hafn-
arhúsinu sýningin Erró – japönsk
ástarbréf. Verkin tengjast heim-
sókn málarans til Japan í upphafi
áttunda áratugarins. Sama dag
verður opnuð sýning í D-sal safns-
ins en þar sýnir Ingibjörg Birg-
isdóttir nýtt myndbandsverk og
bútasaumsverk á vegg. Í lok októ-
ber sýnir listamaðurinn Ryan Par-
teka verk sín í sama sal.
Innblástur í poppmenningu
Í októberlok verður sýnt í safn-
inu verk eftir Egil Sæbjörnsson
sem hann hefur unnið að frá árinu
2005. Egill býr og starfar í Berlín
og samtímis sýningunni kemur út
vegleg bók um hann frá þýskum
útgefanda.
Eftir áramót verður sýningin
Ljóslitlifun opnuð en Hafþór
Yngvason er sýningarstjóri henn-
ar. „Þetta er samsýning á vegg-
myndum og öðrum málverkum
ungra íslenskra myndlistarmanna
sem sækja innblástur í poppmenn-
ingu síðustu ára. Ég hef haft mjög
gaman af að vinna að þessari sýn-
ingu sem ég held að verði mjög
spennandi,“ segir Hafþór.
Ljósmyndir á listahátíð
Á Listahátíð á næsta ári verður
mikil áhersla lögð á ljósmyndun og
sýningar verða á söfnum og víða
um borg. Listasafn Reykjavíkur
verður með stóra sýningu á ljós-
myndum úr safni Péturs Arasonar
og Rögnu Róbertsdóttur. „Þetta er
ótrúlega vandað safn og því hægt
um vik að skapa úr því sýningu
sem geymir verk margra þeirra
merku listamanna sem hafa gert
ljósmyndina aftur að mikilvægum
miðli innan myndlistarinnar á síð-
ustu þrjátíu árum,“ segir Hafþór.
Útskriftarsýning Listaháskóla
Íslands verður í safninu á næsta
ári. Að lokum skal þess getið að í
undirbúningi er sýning á verkum
Garðars Eide Einarssonar. Garðar
er norskur listamaður en á íslensk-
an föður. Hann hefur unnið í New
York síðustu ár þar sem hann er
orðinn áhrifamikill listamaður.
Fyrirhugað er að opna sýninguna í
september á næsta ári.
Stjörnur í Listasafni Reykjavíkur
Verk eftir Yoshitomo Þessi heimsfrægi listamaður sýnir verk sem er sérstaklega gert fyrir Hafnarhúsið.
Heimsfrægur japanskur popplistamaður sýnir í Hafnarhúsinu Myndir Lars von Trier og
Friðriks Þórs verða málverk Yfirlitssýning á hönnun Steinunnar Sigurðardóttur í nóvember
NORRÆNA vísna-
fjölskyldan kemur
fram á tónleikum í
Norræna húsinu í
kvöld kl. 20. Nor-
ræna vísna-
fjölskyldan hefur
haldið fjölda tónleika
í Svíþjóð og Noregi. Meðlimir hennar eiga það
sameiginlegt að hafa hlotið menntun sína í
Nordiska Visskolan i Kungålv. Í hópnum eru
Norðmenn, Svíar og Finnar; atvinnuvísna-
söngvarar og áhugamenn sem elska að syngja.
Tónleikagestir fá líka að syngja vísur. Tónleik-
arnir eru öllum opnir og frítt inn. Eftir tón-
leikana verður létt spjall með vísnasöngv-
urunum um sameiginlegan vísnaarf
Norðurlandanna.
Tónlist
Norræna vísna-
fjölskyldan syngur
Norræna húsið.
GUÐFINNA Anna Hjálm-
arsdóttir og Valgerður
Björnsdóttir mynd-
listakonur opnuðu sýningu á
olíumálverkum og graf-
íkmyndum um helgina í sýn-
ingarsal Íslenskrar Graf-
íkur, Tryggvagötu 17 í
Reykjavík, hafnarmegin.
Sýningin er opin fimmtu-
daga til sunnudaga til 13.
september frá kl. 14 til 18.
Guðfinna og Valgerður stunduðu báðar nám
í Myndlista- og handíðaskóla Íslands og
Listaháskóla Íslands. Báðar hafa tekið þátt í
fjölda samsýninga ásamt einkasýningum til
margra ára.
Aðgangseyrir á sýninguna er enginn.
Myndlist
Olía og grafík
í Grafíksalnum
Valgerður
Björnsdóttir
STAFRÓF glæpamanna er
heiti myndlistarsýningar
Styrmis Arnar Guðmunds-
sonar sem opnuð var um
helgina í Gallerí Crymogeu
við Laugaveg. Á mynd-
unum á sýningunni fagnar
Styrmir hinum ýmsu
krimmum frá A til Ö í
svarthvítu. „Þarna koma
við sögu illkvittnir glæp-
onar á borð við B-rennuvarginn og F-
jársvikarann,“ segir Styrmir. Sýningin helst í
hendur við útgáfu Crymogeu á bókinni Staf-
rófi glæpamanna, með myndum Styrmis og
texta Baldvins Þórs Magnússonar. Í bókinni
er farið yfir flóru glæpaheimsins með aðstoð
stafrófsins.
Myndlist
Glæpamenn
í stafrófsröð
Eitt verka Styrmis.
Á sýningunni Rammar í end-
ursýn sem verður opnuð 3.
september í Hafnarhúsinu hafa
rammar úr kvikmyndum Friðriks
Þórs Friðrikssonar og Lars von
Trier verið málaðir upp með ol-
íulitum á gríðarstóra strigafleti.
Í salnum er einnig innsetning úr
ýmsum kvikmyndum tvímenn-
inganna eftir Ara Alexander
Ergis Magnússon. Sýningin
stendur til 18. október.
Lars og Friðrik Þór
SÝNINGIN Kviksyndi var
opnuð á Torginu í Þjóð-
minjasafni Íslands um
helgina. Þar má sjá verk
blindra og sjónskertra
barna sem þau hafa unnið á
sérstökum námskeiðum við
Myndlistaskólann í
Reykjavík.
Börnin fengu að vinna
með reipi, þræði, snúrur,
garn, teygjur, tágar, gifs, liti, blöð og tvinna. Í
kennslunni var leitast við að vinna á mismun-
andi skala, þannig að verkin yrðu bæði stór og
smágerð og efniviður óvæntur og fjölbreyttur.
Kennarar á námskeiðinu voru Brynhildur Þor-
geirsdóttir og Margrét H. Blöndal.
Kviksyndi stendur til 11. október.
Kviksyndi í
Þjóðminjasafninu
Margrét H. Blöndal
Myndlist
Rammi úr Börnum náttúrunnar Rammar úr myndum Friðrik Þór og Lars
von Trier verða að málverkum. Ari Alexander Ergis er sýningarstjóri.