Morgunblaðið - 09.09.2009, Síða 1
M I Ð V I K U D A G U R 9. S E P T E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
244. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
95
ára
mbl.is
«FRJÁLSÍÞRÓTTADEILD ÍR
FRÁ GJALDÞROTI Í
GLÆSTAN ÁRANGUR
«MÁLVERK LEIKSTJÓRANNA
Versta sýningin?
Eða sú besta?
Allar nánari upplýsingar
á www.keilir.net
FRUMKVÖÐLANÁM
Morgunblaðið/Ómar
Spurningar Íslensk stjórnvöld hyggjast senda
svör til ESB fyrir 16. nóvember næstkomandi.
JÓHANNA Sigurðardóttir forsætisráðherra tók við lista með
2.000 spurningum úr höndum Olli Rehn, stækkunarstjóra Evrópu-
sambandsins, í stjórnarráðinu í gær. Sagði Rehn heimsókn sína
marka nýjan áfanga í umsókn Íslands að sambandinu.
Rehn kvað Ísland þegar komið langt áleiðis í umsóknarferlinu,
ekki síst vegna aðildar landsins að Evrópska efnahagssvæðinu og
Schengen-samkomulaginu. Þá ætti landið sér djúpar lýðræðisræt-
ur og uppfyllti öll svokölluð Kaupmannahafnarskilyrði varðandi
lýðræði og mannréttindi fyrir aðild. Hann sagði að sjávarútvegs-,
landbúnaðarmál og jafnvel fjármálaþjónusta yrðu í forgangi hugs-
anlegra aðildarviðræðna.
Íslensk stjórnvöld stefna að því að senda svör við spurningum
ESB fyrir 16. nóvember svo taka megi aðildarumsókn landsins fyr-
ir á leiðtogafundi sambandsins í desember. ben@mbl.is | 5
Stækkunarstjóri ESB afhenti forsætisráðherra spurningar
Áfangi í umsóknarferli
Eftir Sigrúnu Ásmundsdóttur
sia@mbl.is
Í TÖLUM sem Lánasjóður ís-
lenskra námsmanna (LÍN) tekur
saman í september ár hvert kemur
fram að umsækjendum hefur fækk-
að umtalsvert frá sama tíma í fyrra.
Hlutfallslega er meiri fækkun í um-
sóknum frá námsmönnum erlendis,
allt að 25%.
„Það er ekkert langt síðan gengi
dönsku krónunnar var 13,“ segir
Hlöðver Bergmundsson, deildar-
stjóri lánadeildar LÍN. „Munurinn
er því gríðarlegur á því að hafa
fengið 50.000 danskar krónur fyrir
13 krónur þá eða 24 krónur núna.“
Hjördís Jónsdóttir, framkvæmda-
stjóri Samtaka íslenskra náms-
manna erlendis, kveðst verða tals-
vert vör við að fólk hætti við að fara
í nám til útlanda.
Berglind Sunna Stefánsdóttir
hætti við að fara í nám í Danmörku
og staða krónunnar átti þar stóran
hlut að máli. Hún segir tvo vini sína
þó hafa skellt sér utan í nám, annars
vegar í Bandaríkjunum og hins veg-
ar í Skotlandi. „Þeir gera það nátt-
úrlega meðvitandi um að þeir munu
sitja uppi með miklar skuldir,“ segir
Berglind Sunna. Hún segir sárt fyr-
ir námsmenn að hugsa til þess að
sambærilegt nám kostaði helmingi
minna fyrir tveimur árum.
Dæmi um niðurfellingu
Dæmi eru um að afborgun náms-
lána sem greiða átti 1. september
hafi verið felld niður. Í þeim til-
vikum hefur lántaki sýnt fram á
tekjufall upp á 30% eða meira og
uppreiknaðar tekjur fyrir árið 2009
undir fjórum milljónum. Ef tekju-
fallið er á bilinu 20-30% geta lántak-
ar jafnframt sótt um lækkun af-
borgunarinnar. Páll Haraldsson,
deildarstjóri fjármáladeildar LÍN,
segir álagið á skrifstofunni hafa ver-
ið mjög mikið frá því í endaðan
ágúst, fólk hringi til að fá upplýs-
ingar um leiðir sem gera því kleift
að kljúfa afborganir. „Ég myndi
giska á að þetta séu 10% sem eru að
kanna stöðuna,“ segir Páll.
Fólk hikar við | 6
Allt að 25% færri sækja um
lán vegna náms erlendis
Fólk fer utan í nám „meðvitandi um að
það muni sitja uppi með miklar skuldir“
„ÉG er kallaður maðurinn með hattinn,“ segir Steinar Halldórsson frá
Auðsholti, sem verið hefur fjallkóngur í Hrunamannaafrétti síðan 1998 en
hér er hann ásamt öðrum gangnamönnum að reka féð yfir Sandá hjá Svín-
árnesi. „Þetta er hrein ævintýramennska og ég veit fátt skemmtilegra en
að fara á fjöll á haustin í leit að skepnunum,“ segir Steinar og tekur fram
að smölun hafi gengið einstaklega vel fyrir sig þetta haustið sem megi ekki
síst þakka þurrviðrinu sem auðveldi yfirferð á því svæði þar sem leitað er.
Réttað verður í Hruna- og Skaftholtsréttum á föstudaginn.
FÁTT SKEMMTILEGRA EN AÐ FARA Á FJÖLL
Morgunblaðið/Sigurður Sigmund
ARCTIC Trucks hefur selt yfir
130 sérútbúna Landcruiser-jeppa
til norska hersins sem hafa m.a.
verið notaðir í Afganistan. Örn
Thomsen, framkvæmdastjóri fyr-
irtækisins, segir að samstarfið við
norska herinn sé fyrirtækinu ótrú-
lega mikilvæg tekjulind. „Í þetta er
að nýtast þessi reynsla og kunnátta
sem við höfum af okkar landi, okk-
ar erfiðu fjallvegum og aðstæðum,“
segir Örn. Norðmenn fengu áhuga
á jeppum Arctic Trucks eftir að
hafa fengið að kynnast þeim í Afg-
anistan en íslenska friðargæslan
notaði bíla frá fyrirtækinu þar. »13
Íslendingar selja norska
hernum sérútbúna jeppa
VEGNA mik-
illar skerðingar
á ýsukvóta er nú
þegar brostinn á
flótti sjómanna
undan ýsunni,
þótt ekki séu
liðnir nema átta
dagar af kvóta-
árinu. „Við erum
að reyna að forðast ýsuna en það
gengur ekki allt of vel, þótt fiski-
fræðingarnir finni hana ekki,“ seg-
ir Gunnar Hannesson skipstjóri á
Sæbjörgu frá Grímsey. Hjá kvóta-
miðlurum eru símar rauðglóandi en
engan ýsukvóta að hafa. »11
Sjómenn byrjaðir að flýja
ýsuna vegna minni kvóta
GÖMUL íslensk frímerki undir
nafninu Hollandshjálp, sem gefin
voru út árið 1953, ganga enn kaup-
um og sölum meðal frímerkjasafn-
ara um allan heim.
Frímerkin voru stór liður í söfn-
un til styrktar Hollendingum, sem
urðu fyrir miklum búsifjum í flóð-
um í Norðursjó þetta sama ár.
Efnt var til almennrar söfnunar á
Íslandi og upphæðin sem safnaðist
hér á landi jafngildir um 22 millj-
ónum króna. »7
Hollandshjálpin enn vinsæl
meðal frímerkjasafnara