Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 14
14 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 Peningana eða lífið  Talið er að dauðadómar yfir tveimur Norðmönnum í Austur-Kongó séu af efnahagsrótum runnir  Ólíklegt er að mennirnir verði teknir af lífi Eftir Boga Þór Arason bogi@mbl.is SÉRFRÆÐINGAR í málefnum Austur-Kongó telja ólíklegt að tveir Norðmenn verði teknir af lífi þar þótt þeir hafi verið dæmdir til dauða í gær fyr- ir morð og njósnir. Jonas Gahr Støre, utanrík- isráðherra Noregs, segir að dómsmálaráðherra Austur-Kongó hafi fullvissað norsk stjórnvöld um að mennirnir verði ekki teknir af lífi. Herréttur í borginni Kisangani í austanverðu landinu dæmdi Norðmennina, sem eru báðir fyrr- verandi hermenn, til dauða fyrir morð á kongósk- um bílstjóra þeirra og fyrir njósnir. Herrétturinn krafðist þess einnig að norska stjórnin greiddi skaðabætur að andvirði 60 milljóna dollara, eða einn dollar á hvern íbúa landsins (alls um 7,5 millj- arða króna). Vilja hluta af olíuauðnum Búist er við að Norðmenn hefji viðræður við kongósk stjórnvöld um að dauðadómunum verði breytt í fangelsisdóm og mennirnir fái að afplána hann í Noregi. Mikil fátækt er í Austur-Kongó og sérfræðingar telja að dauðadómarnir séu af efna- hagsrótum runnir; markmiðið sé að kría eins mikla peninga út úr Norðmönnum og mögulegt sé fyrir að þyrma lífi fanganna. Í HNOTSKURN » Þrátt fyrir allmarga dauðadóma hefurenginn verið tekinn af lífi í A-Kongó frá árinu 2000 að undanskildum hópi sem var dæmdur fyrir aðild að valdaráni. » Norðmennirnir geta áfrýjað dauða-dómunum til borgaralegs héraðsdóm- stóls og síðan hæstaréttar Austur-Kongó. Aftaka getur ekki farið fram nema forseti landsins undirriti aftökutilskipun. LÍKLEGT má telj- ast að al-Qaeda reyni aftur að sprengja farþega- þotur, að sögn talsmanna breskra stjórnvalda en þrír menn voru á mánudag dæmdir sekir um að und- irbúa hryðjuverk sem hefðu getað kostað allt að 10.000 þúsund manns lífið. Mennirnir þrír, Abdulla Ahmed Ali, sem er talinn hafa verið leiðtogi hóps- ins, Tanvir Hussain og Assad Sarwar voru sakfelldir í London fyrir að leggja á ráðin um að sprengja flug- vélar í loft upp yfir Atlantshafi með heimatilbúnum sprengjuvökva. The Daily Telegraph segir að mennirnir hafi ætlað að granda sjö þotum. Mennirnir voru handteknir árið 2006 og olli málið því að reglur um vökva í handfarangri voru hertar mjög. Leyniþjónustumenn segja að til- ræðin hafi veriö skipulögð í Pakistan og mennirnir hafi verið í sambandi við þarlenda al-Qaeda liða. The Times segir að afskipti Dick Cheneys, þáverandi varaforseta Bandaríkjanna, hafi nær eyðilagt mál- ið. Hann hafi beitt sér fyrir því að tengiliður sprengjumannanna í Pak- istan hafi verið handtekinn áður en breska lögreglan hafði safnað nægi- legum gögnum til að sanna sekt mannanna. kjon@mbl.is Búast við fleiri tilræðum Abdulla Ahmed Ali Al-Qaeda hugðist sprengja þotur STATOILHYDRO í Noregi hefur sett á flot 65 metra háa og um 5.300 tonna þunga vindmyllu sem mun fljóta á sjó um 10 km frá eynni Körmt við vesturströndina. Myllan er fest við sjávarbotn með þrem miklum stögum. Myllan nefnist Hywind og á að geta framleitt 2,3 megavött; búist er við að hún fari að framleiða raf- magn eftir nokkrar vikur. Hywind á að geta athafnað sig á 120-700 metra dýpi. Segja framleiðendur að mylla af þessu tagi sé hentug þar sem lítið pláss er á landi og aðdjúpt við strendur. kjon@mbl.is Fljótandi vindmylla FJÖLMÖRG brúðkaup fara fram víða um heim í dag, á níunda degi níunda mánaðar níunda árs 21. aldarinnar. Í tilefni af deginum fékk papp- írsfyrirtæki í Ísrael fatahönnuði til að hanna brúðkaupskjóla úr salernispappír í auglýs- ingaskyni. Fyrirsætur sýna hér afraksturinn. 09.09.09 VINSÆLL BRÚÐKAUPSDAGUR Reuters Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is BRESKA læknafélagið, BMA, vill að lagt verði algert bann við því að auglýsa áfengi í landinu og verði bannið þáttur í baráttu gegn of- drykkju hjá ungu fólki. Ungt fólk í Bretlandi misnotar áfengi mun meir en í flestum öðrum löndum heims. Sagt er í nýrri skýrslu læknafélags- ins að ein orsök vandans sé að fram- leiðslufyrirtækin gerist æ einbeittari í að koma vöru sinni á framfæri og notfæri sér m.a. íþróttaviðburði í því skyni. „BMA berst ekki gegn áfeng- isnotkun sem slíkri,“ segir Vivienne Nathanson, sem fer fyrir vísinda- og siðanefnd félagsins. „Sem læknar leggjum við áherslu á að ein- staklingar drekki skynsamlega svo að þeir stofni ekki lífi sínu og heilsu í hættu.“ Að sögn BBC er talið að það kosti breskt samfélag allt að þrjá millj- Vilja banna allar áfengisauglýsingar Breska læknafélagið vill draga úr mik- illi misnotkun meðal ungra neytenda arða punda, rösklega 600 milljarða króna, á ári að meðhöndla meiðsl og sjúkdóma sem tengjast áfeng- isneyslu. Rannsóknir sýna að meira en þriðjungur fullorðins fólks í land- inu drekkur meira en mælt er með. Einn skýrsluhöfundanna, Gerard Hastings, prófessor við Stirling- háskóla, segir að beitt sé marg- víslegum áróðursaðferðum. „Þar sem áfengisiðnaðurinn ver 800 millj- ónum punda árlega í að koma áfengi á framfæri í Bretlandi er ekki neitt undarlegt við að fólk sjái þetta alls staðar – í sjónvarpinu, í tímaritum, á tónlistarhátíðum og í kostunarsamn- ingum við knattspyrnufélög, á sprettigluggum (pop-ups) á netinu og samskiptasíðum. Allt hefur þetta að markmiði að gera áfengi að eðli- legum hlut í daglegu lífi.“ Ráðuneyti vill frekar sjálfviljugar hömlur Embætti landlæknis í bæði Skot- landi og Englandi hafa mælt með lágmarksverði á áfengi; vegna sam- keppni á markaðnum er oft boðið upp á afar ódýrt áfengi í breskum stórmörkuðum. En heilbrigðisráðu- neytið í London hefur hafnað þeim hugmyndum. Vill það þess í stað hvetja fyrirtækin til að undirrita af fúsum og frjálsum vilja reglur sem eiga að hvetja til hófdrykkju. En hvað segja áfengisframleið- endur og söluaðilar? Jeremy Bead- les, framkvæmdastjóri Samtaka áfengisfyrirtækja, segir að tillögur BMA myndu auka útgjöld margra milljóna neytenda og ógna afkomu mörgþúsund manna sem starfa í iðn- aðinum, einnig þeirra sem vinna við auglýsingagerð og í fjölmiðlum. Skattar á áfengi í landinu séu nú þegar með því hæsta sem gerist í Evrópu og ljóst sé að hærra verð dragi ekki úr misnotkun áfengis. Áfengisdauði Misnotkun áfengis er meira vandamál meðal ungmenna í Bretlandi en í nokkru ríki Evrópusambandsins og fer vaxandi síðustu árin. Hvernig eru tengsl framleið- enda við íþróttafélög? Nefna má sem dæmi að bjórverk- smiðjan Carling kostar knatt- spyrnukeppni í Englandi og er einnig með auglýsingar á skyrtum Celtic og Rangers í Skotlandi. Hvað kostar misnotkun áfengis breskt samfélag ár hvert? Slys og sjúkdómar valda heilbrigð- iskerfinu allt að þriggja milljarða punda útgjöldum. En einnig er bent á að óbeinn kostnaður vegna minni framleiðni geti verið yfir sjö milljarðar punda. Alls sé kostn- aður samfélagsins því um 10 millj- arðar punda, rösklega 2.000 millj- arðar króna. Hver eru mótrök framleiðenda við tillögum læknanna? Þeir segja m.a. að hærra verð dragi ekki úr misnotkun, það hafi reynslan sýnt. Einnig segja þeir rannsóknir sanna að auglýsingar auki ekki neysluna. Þær hafi að- eins áhrif á val fólks á tegund. S&S

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.