Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 09.09.2009, Blaðsíða 2
2 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. SEPTEMBER 2009 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 ~ 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 GÖNGUFERÐ Á TENERIFE Frábærar gönguferðir um króka og kima fjalllendis Tenerife, blómaeyjunnar fallegu í Kanaríeyjaklasanum. Margrét Árnadóttir, þaulreyndur fararstjóri og annálaður göngugarpur, mun stýra ferðinni og henni til aðstoðar er innfæddur leiðsögumaður. Frábært verð, spennandi gönguferðir og allt innifalið! 21.-28. október Verð frá: 169.900,- á mann í tvíbýli, m/ fullu fæði, drykkir með mat, nesti, allur flutningur og fararstjórn MEIRA Á urvalutsyn.is Eftir Magnús Halldórsson magnush@mbl.is FORSVARSMENN íslensku líf- eyrissjóðanna ætla að taka sér einn mánuð til þess að taka afstöðu til hugmyndar forsvarsmanna Lands- samtaka lífeyrissjóða um stofnun Fjárfestingasjóðs Íslands. Kynn- ingarfundur um stofnsetningu sjóðsins var haldinn á Grand Hóteli í gær og sóttu um 80 forsvarsmenn lífeyrissjóða fundinn. Fundarmenn tóku vel í stofnun sjóðsins, að sögn Arnars Sigmundssonar, formanns Landssamtaka lífeyrissjóða. Samkvæmt þeim hugmyndum sem settar voru fram á fundinum, og hafa verið til umræðu frá því í nóvember í fyrra, verður sjóðnum fyrst og fremst ætlað að fjárfesta í lífvænlegum fyrirtækjum og öðrum arðbærum verkefnum. Með lífvæn- legum fyrirtækjum er átt við fyr- irtæki sem eru með traustan grunnrekstur og eigi mikla mögu- leika til framtíðar. Talið er að um 60 til 80 prósent af fyrirtækjum í landinu glími við sligandi fjár- magnskostnað, meðal annars vegna hruns krónunnar, og er stór hluti þeirra tæknilega gjaldþrota, þ.e. með skuldir umfram eignir. Rekstrargrundvöllur er þó fyrir hendi hjá mörgum fyrirtækjum og með nýju hlutafé gætu fyrirtækin náð vopnum sínum á ný. Arnar segir fjárfestingatækifæri vera fyr- ir hendi víða. Sérstaklega séu fyr- irtæki í útflutningi, og einnig þau sem spari gjaldeyrisútgjöld, meðal þeirra sem til greina komi sem álit- legir kostir fyrir lífeyrissjóði. „Það eru mörg sterk fyrirtæki hér á landi sem hafa tekið á sig mikil högg vegna falls bankanna, og ekki síst hruns gjaldmiðilsins. Lífeyr- issjóðirnir geta komið að þessum fyrirtækjum og að því er ég tel hagnast á því í þágu sjóðsfélaga, og íslensks efnahagslífs almennt.“ Ragnar Önundarson, formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verzl- unarmanna, segist „mjög sáttur“ við hugmyndirnar um stofnun fjár- festingasjóðsins og vonast til þess að þær nái fram að ganga. Hann segist líka hlynntur því að í sem flestum tilfellum verði fyrirtækin sem fjárfest verður í skráð á hluta- bréfamarkaði. Þannig geti fjárfest- ingar lífeyrissjóðanna orðið áhrifa- meiri í endurreisninni og um leið orðið góð fjárfesting fyrir sjóðs- félaga. „Ég legg áherslu á, að í þessari umferð verði lífeyrissjóðir kjölfestufjárfestar í fyrirtækj- unum. Lífeyrissjóðirnir eiga að mínu mati að koma strax að málum þegar lífvænleg fyrirtæki verða endurreist og skráð á markaði,“ segir Ragnar. Morgunblaðið/Golli Fundað Um 80 forsvarsmenn lífeyrissjóða funduðu á Grand Hótel um stofnun Fjárfestingasjóðs Íslands. Sjóðirnir jákvæðir Stjórnir lífeyrissjóðanna ætla að taka sér einn mánuð til þess að meta kosti og galla stofnunar Fjárfestingasjóðs Íslands Eftir Þorbjörn Þórðarson thorbjorn@mbl.is KRÖFUM stærstu kröfuhafa í þrotabú Baugs Group er hafnað „að svo stöddu“ ýmist þar sem kröfulýsing er ekki fullnægj- andi eða ekki liggja fyrir upp- lýsingar um verðmæti und- irliggjandi veða. Stóru viðskipta- bankarnir eru langstærstu kröfuhafarnir en þeir voru allir mjög duglegir að lána Baugi Group fyrir bankahrunið. „Það kann að taka nokkur ár að sjá hvað kemur upp í þessar kröfur af veðum,“ seg- ir Erlendur Gíslason, lögmaður hjá Logos og skiptastjóri þrotabúsins. Hafnað að svo stöddu Í nokkrum tilvikum frestar skiptastjórinn því að taka afstöðu til krafna. „Krafa Landsbankans er veðkrafa, henni er ekki alfarið hafnað, heldur er henni hafnað að svo stöddu,“ segir Erlendur. Að hans sögn gefst kröfuhöfum núna tækifæri til að koma með at- hugasemdir. „Þetta mun skýrast á næstu dögum og enn frekar síðar,“ segir hann. Skilanefnd Landsbankans gerir kröfu upp á samtals 94 milljarða en kröfum bankans er hafnað með fyrirvara. Bankinn var ekki búinn að taka saman fylgiskjöl með kröfu sinni þegar kröfulýsingarfrest- urinn rann út. Þá er 26 milljarða króna kröfu skilanefndar Kaup- þings einnig hafnað með fyrirvara. Skilanefnd Landsbankans, eins og aðrir kröfuhafar, getur borið ákvarðanir skiptastjóra undir dóm- stóla til að fá skorið úr lögmæti þeirra. Jafnframt er hægt að víkja skiptastjóra frá störfum ef ákveð- inn hluti kröfuhafa krefst þess. Endurskoðunarfyrirtækið Price- waterhouseCoopers stýrir í um- boði Landsbankans eignarhalds- félaginu BG Holding í Bretlandi, en þar liggja verðmætustu eignir þrotabúsins. Undir BG Holding er t.d leikfangakeðjan Hamley’s. Gunnar Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Baugs, er í dag stjórn- arformaður Hamley’s. Þrotabúið hafnaði 8,2 milljarða kröfu frá Gaumi og Högum, en þau eru bæði í eigu Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og fjölskyldu. Kröfum í bú Baugs hafnað „að svo stöddu“ Ófullnægjandi kröfulýsingar Í HNOTSKURN »Heildarkröfur í þrotabúBaugs nema 316,6 millj- örðum króna og skilanefnd Landsbankans er stærsti kröfuhafinn. »Verðmætustu eignirþrotabúsins eru í félaginu BG Holding í Bretlandi, en þar inni eru meðal annars Iceland Foods verslanakeðjan og leik- fangabúðin Hamley’s. Erlendur Gíslason Þrátt fyrir bankahrunið og eignabrunann, sem því fylgdi, standa íslenskir lífeyrissjóðir traustum fótum. Eignir þeirra nema um 1.800 milljörðum, þar af eru um 500 milljarðar erlend- is, sem hafa ávaxtast vel í nær fordæmalausum hækkunum á hlutabréfamörkuðum í sumar. Íslenski hlutabréfamarkaðurinn er nánast alveg hruninn til grunna en með aðkomu lífeyr- issjóðanna gæti viðspyrnan orð- ið hröð. „Skilvirkur hlutabréfa- markaður, þar sem lífeyrissjóðir kæmu að frá grunni, gæti skipt sköpum í uppbyggingunni,“ segir Ragnar Önundarson. Miklar eignir RÍKISSTJÓRNIN hefur í framhaldi af skýrslum vist- heimilisnefndar um Heyrnleysingjaskólann, Kumb- aravog og skólaheimilið Bjarg ákveðið að sett verði al- menn lög um bætur vegna misgjörða á vistheimilum. Stefnt er að því að frumvarp til slíkra laga verði lagt fram á Alþingi fljótlega eftir að haustþing kemur saman. Jafnframt er ætlunin að setja á fót bótanefnd, en sam- hliða henni á að starfa tengiliður vistmanna við stjórn- völd er aðstoði fyrrverandi vistmenn við að ná fram rétti sínum, m.a. er varðar félagslega aðstoð, heilbrigðisþjón- ustu og menntun. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Þar kemur einig fram að ætlunin sé að væntanleg lög kveði á um það að bótanefndin geti úrskurðað almennar bætur er nemi tiltekinni fjárhæð, sem eftir er að ákveða. Meginskilyrðið verði að vistmaður hafi sjálfur orðið fyrir illri meðferð eða ofbeldi meðan á vistun stóð, en ekki verði um strangar sönnunarkröfur að ræða. Í sérstökum tilfellum verður heimilað að hækka bætur að álitum. Hækkun bóta geti m.a. komið til vegna alvarleika ofbeld- is eða illrar meðferðar, aðdraganda vistunar eða tíma- lengdar vistunar. Jafnframt verði kveðið á um skattfrelsi bóta, erfðarétt vegna einstaklinga sem fallnir séu frá, og aðgang að gögnum vistheimilisnefndar til að einfalda málsmeðferð og lögmannsaðstoð. Eftirlit með vistheimilum verði bætt Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hyggst fela starfsfólki að undirbúa frumvarp á grundvelli samskipta ráðuneytisins við Breiðavíkursamtökin og í ljósi fyrstu áfangaskýrslu vistheimilisnefndar. Ráðgert er að hafa samráð við samtök fyrrverandi vistmanna og hlutaðeig- andi sveitarfélög. Loks ber þess að geta að félags- og tryggingamálaráðherra mun taka mið af nýkynntri áfangaskýrslu við endurskoðun á barnaverndarlöggjöf og framkvæmd og eftirliti á því sviði. | 8 Bætur vistmanna verða mögulega skattfrjálsar Lög um bætur vegna misgjörða á vistheimilum væntanleg HENRIK Danielsen er á góðri leið með að tryggja sér sinn fyrsta Ís- landsmeistaratitil í skák. Hann er með 7 vinninga eftir átta umferðir á Skákþingi Íslands, sem fram fer í Bolungarvík. Þrjár umferðir eru eft- ir. Henrik er danskur, en með ís- lenskan ríkisborgararétt. Í áttundu umferð í gær vann Hen- rik Jón Viktor Gunnarsson en sam- tímis tapaði hans helsti andstæðing- ur, Þröstur Þórhallsson, fyrir Ingvari Þór Jóhannessyni. Þröstur, Bragi Þorfinnsson og Guðmundur Gíslason eru í 2.-4. sæti með 5 vinn- inga. Guðmundur og Sigurbjörn Björnsson hafa báðir möguleika á að ná áfanga að alþjóðlegum meistara- titli. 9. umferðin verður tefld í dag Henrik stefnir hraðbyri að sigri á Skákþinginu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.